Morgunblaðið - 09.11.1983, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 09.11.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER1983 63 Snekkjur í höfn frönsku borgarinnar St Malo rétt fyrir keppni. fet, og svo framvegis niður í 25 fet. Meginreglan er, að því lengri sem snekkja er, því hraðskreiðari er hún.“ — Hvað varð til þess að vekja áhuga þinn á að koma á þessari keppni? „Sjáðu til, ég er Skoti og sem slíkur ber ég hagsmuni minnar þjóðar fyrir brjósti. En jafnframt hefur það farið í taugarnar á mér að flestar frægar siglingaleiðir liggja frá meginlandi Evrópu og suður á bóginn, til Bahama og Bermuda, engin fer norður. Sú sem kemst næst því er „Round Britain and Ireland Race“, sem er mjög vinsæl keppni. Ég hef því trú á því að menn hafi áhuga á að sigla til íslands." Reri yfir Atlantshafið Afrekaskrá Chay Blyth í sigl- ingaíþróttinni er ævintýraleg í hæsta máta. Feril sinn hóf hann árið 1966 með því að róa við annan mann á 20 feta árabáti yfir Norður-Atlantshafið. Ferðin tók þá félaga 92 daga. Hann komst á bragðið í þessum róðri, þótt hann segi sjálfur að sér hafi drepleið9t, og lagði næst upp í verkefni, sem margir töldu ofurmannlegt. Hann sigldi einn sins liðs, hvíldarlaust, i kringum hnöttinn í vesturátt, gegn ríkjandi straumum og vind- um. Hann er eini maðurinn sem þetta hefur gert. Fjölmargt fleira hefur hann unnið sér til frægðar á sviði siglinga, en næsta verkefni hans verður tilraun til að brjóta 132 ára gamalt met, að sigla á milli New York og San Francisco um Cape Horn. Metið er 89 dagar. Blaðamaður hugsaði sér gott til glóðarinnar að hripa niður krass- andi sögur Blyth um ævintýri hans til sjós, en hann var tregur í taumi: „Satt að segja finnst mér leið- inlegt að tala um siglingar. Sér- staklega mínar eigin. Það er ein- hvern veginn út í hött. Hér situr maður í rólegheitum yfir kaffi- bolla á viðkunnanlegu hóteli í hita og birtu, og fara síðan að lýsa því hvernig er að vera staddur á skipskríli úti í hafsauga, kannski í haugasjó og djöfulgangi. Það er einfaldlega ekki hægt. Það missir marks. En ef þú vilt spyrja, skal ég reyna að svara." — Eigum við ekki að byrja á upphafinu. Hvernig vaknaði áhugi þinn á siglingum? „Það er löng saga og leiðinleg. En í stuttu máli: Ég hef alltaf haft áhuga á listinni að komast af við hinar ýmsu aðstæður. Ég var í eina tíð fallhlífarstökkvari hjá hernum, og í því sambandi fékk ég þjálfun í að lifa við harðar að- stæður, í eyðimörk, og kuldabelti og viðar. En „survival" á sjó, hafði ég ekki reynt og fannst því tilvalið að prófa það næst. Þess vegna fór- um við kunningi minn út í það að róa yfir Atlantshafið." — Gjörsamlega reynslulausir? „Tja, hvernig öðlast menn reynslu í að róa yfir Atlantshafið? Nei, auðvitað höfðum við enga reynslu." — Kom ekkert fyrir á þessu ferðalagi? „Við lentum tvisvar í fellibyl." - Og? „Sluppum með skrekkinn." — Varstu hræddur? „Ég er alltaf hræddur til sjós.“ — Hvers vegna ertu þá að þessu? „Eitthvað verður maður að gera. Og auðvitað höfum við öll gaman af því að lenda í ævintýrum. Það er tölverð áhætta sem fylgir sigl- ingum, eins og reyndar flestum öðrum íþróttum, en það er einmitt áhættan sem gcfur þessu gildi. Ef maður væri fullkomlega öruggur allan tímann væri ekkert í sigling- ar spunnið." — Hvernig var að þvælast á árabáti á Atlantshafinu samfleytt í 92 daga? „Leiðinlegt!" Undarlegur maður, Chay Blyth. GPA. trésmiður eins og þeir hafa verið mann fram af manni í hans fjöl- skyldu. Fyrir stríðið hafði hann flutzt til Parísar, þar sem hann vann að sínu starfi og var ham- ingjusamur. Sagðist hann hafa bezt kunnað við sig í París af öllum þeim stöð- um, sem hann hafði dvalizt á í Evrópu. Sagðist hann hafa getað leikið á gestapistlana, landa sína þar. Hann var lygilega ferskur og ung- legur og kvaðst halda sér við með því að lifa nógu eðlilegu lífi („nat- úrliches Leben"). Af gamlingjan- um stafaði góðleiki og hann um- bar djöflaþýzku greinarhöfundar með æðruleysi og kímni. Einhverjir náungar frá Fern- sehen — sjónvarpinu í Hamborg voru að kvikmynda með nærlins- um. Myndir, dagblöð og plaköt á veggjum saiarkynnanna. Tíu mín- útum eftir opnun var tilkynnt að fara ætti fram skuggamyndasýn- ing með tali í einum salanna. Þar var öll sýningin í hnotskurn — öll sagan frá því nazisminn festi ræt- ur sínar hér í Flensburg. Ekki var annað að sjá en að góð- ur jarðvegur hafi verið fyrir naz- ismann í þessari landamæraborg sem áður tilheyrði dönsku krún- unni. En þýzkarar og Danir bland- ast illa — hugsunarháttur þeirra er svo ólíkur og skapgerð. Saga nazismans í Flensburg var rakin lið fyrir lið — hvernig sú sálfræði myndaðist að fólk tók stefnunni feginsamlega á tímum kreppu og atvinnuleysis, hvernig allt blómstraði, hvernig allir fengu vinnu eftir að nazistar kom- ust til valda, hvernig æskan efld- ist að djörfung og allri dáð, hvern- ig konurnar hættu að vera úrkynj- aðar, en urðu þess í stað sí- kvenlegar (ewig Weibliche) og frjósemislegar — þessar bein- vöxnu þéttholda stríðskonur, vanalega bláeygar og há-germ- anskar í útliti. Þær voru líklegar til að ala af sér hrausta og hugaða sonu og fallegar dætur, sem mundu halda aríska kynstofninum við. Svo sem andstæða við slíkt voru birtar myndir af úrkynjuðum gyðingum með hálfgerða upp- dráttarsýki ... jawohl bitte schön! Svo voru það allar myndirnar af öllum heiðursmerkjunum og vopn- unum (Ehrenwaffen). Þarna var allt pýramídakerfið ljóslifandi og öll stéttaskiptingin — hvernig hinir sterku og snjöllu gátu unnið sig upp af dugnaði og harðfylgi, hvað þeir (nazistar) mátu hollustu og harðfylgi ofar öllu öðru og létu viðkomandi njóta þess. Og allt þetta hárnákvæma skipulag. Kraftur og sjálfsagi (Kraft und Diziplin), það voru slagorðin, sem glumdu við í tíma og ótíma. „Það er fasisti í okkur öllum," sagði smágreindur kommablaðamaður hjá Þjóðviljanum við greinarhöf- und, þegar hann skenkti honum flösku af Geisweiler-rauðvíni fyrir mörgum árum. Og af hverju hann sagði það sýndi að hann þorði að tjá sig andlega heiðarlega — ólíkt mörgum kommum. Sáifræðin í nazismanum var sótt í gamlan hernaðaranda. Sumt af henni var sótt í kenningar strangtrúarreglu jesúíta. Göbbels var lærður úr jesúítaskóla eins og alkunna er. Það skýrir margt, til að mynda kenninguna um það að sýna ekk- ert undandrag í lífinu, vera hollur prinsippinu, sýna fjölskyldu sinni ást og virðingu (almennt var talið að dæmigerður SS-foringi héldi ekki fram hjá, enda þótt honum mætti freisting í París eða í Sophia, ella hefði honum fundizt hann vera að svfkja börnin sín). Svo var talið að minnsta kosti. Nazistar lögðu áherzlu á þegn- skyldu, að fólk ynni fyrir föður- landið án kaups og vegna ánægj- unnar einnar saman. Þeir lögðu áherzlu á líkamsrækt, sem getur líka verið gott upp að vissu marki. Þá innprentuðu þeir 9jálfsafneit- un samfara hugrekki og heiðurs- kennd eins og að framangreindu. Þetta var fegurðin í hugsjóninni. Ef borinn er saman marxismi f framkvæmd og nazismi í fram- kvæmd, kemur í ljós miklu minni hræsni í síðargreindri stefnunni. Þeir yfirspiluðu hins vegar eins og svo margir öfgasinnaðir hugsjóna- menn gera. Það kann að orka tvímælis, þá vogað er að halda því fram, að það sé viss andlegur skyldleiki meA ís- lenzku ungmennafélagshugsjón- inni og hinni upprunalegu þjóð- ernishugsjón þýzku nazistanna. „tslandi allt“ segja íslenzku ung- mennafélagarnir, „Þýzkalandi allt“ sögðu nazistarnir. Meira að segja sumar manngerðir, ýmsir forystumenn íslenzkra ungmenna- félaga hefðu notið sín allvel á nazista-rallíum í Flensburg eða Múnchen eða Braunschweig. Nátt- úrlega í góðri trú! Hvað annað ... 26. sept. 1983. Pípulagningamenn Vélsmiðjur Til afgreiðslu: Ridgid snittivélar: 802, 520C, 300A ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM BROSTU! MYNDASÖGURNAR MORGUN Vikuskammtur af skellihlátri ptiOírgMmM&foiifo MetsöluNad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.