Morgunblaðið - 09.11.1983, Side 17

Morgunblaðið - 09.11.1983, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 1983 65 var ströng og eftirlitsmaður og yf- irmaður klaustursins var Johann von Staupitz, en hann hafði eftir- lit með Ágústínaklaustrum og vann að samhæfingu þeirra. Hann hafði hert mjög allar reglur, aukið föstur og bænahald og afnumið upphitun að vetri til. Reglan sem Lúther undirgekkst var ströng eins og áður segir, hann átti að ganga um niðurlútur, mátti hvorki neyta fæðu né mæla orð af munni fram nema á þeim tímum sem til þess voru ákveðnir, mátti aldrei hlæja, lærði að gefa merki þegar mikið lá við. Auk þess átti hann að falla á kné við vissar aðstæður og fyrir vissum einstaklingum, einn- ig var þess krafist að hann kastaði sér flötum á jörðina þegar það þótti hæfa. Hann átti einnig að vinna ýmis grófari verk, svo sem að þvo gólf, bera út ösku og betla brauð á strætum borgarinnar, sem var í rauninni algjörlega ónauð- synlegt, reglan var það vel efnuð. Samkvæmt frásögnum allra samtíðarmanna Lúthers, sem þekktu hann og umgengust, var hann mjög hláturmildur og kom gjarnan auga á kátlegri hliðar mannlífsins, auk þess var hann gamansamur og naut þess bæði að drekka og borða. Þessar reglur hljóta því að hafa þvingað hann og þrúgað. Allt líf hans var héðan í frá ákvarðað, allt hafði ákveðinn tíma. Hann átti að skrifa oft og lesa Biblíuna og íhuga efni henn- ar. Hann bjó einn í klefa, sem var 2 sinnum 3 metrar og húsbúnaður var einn stóll, eitt borð, kerta- stjaki og rúmbálkur með hálmi sem undirsæng. Klefinn var ekki hitaður upp þótt svalt væri að vetri til. Máltiðir voru tvær á dag og á föstunni og þá aðra daga þeg- ar fastað var, var máltíðin ein. Skyldur og fyrirskipaður hegð- unarmáti, stöðug vinna eða ákveð- in hegðun spannaði allar vöku- stundir, svo að það gafst ekkert tóm til þess að íhuga persónuleg málefni eða íhuga annað en það sem átti að ihuga. Lúther sagði síðar, að djöfullinn léti munkinn í friði fyrsta árið. En þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir og aðgát er munknum hættara við að falla fyrir freistingum og fremja syndir en leikmanninum. Lúther gekk í klaustur til þess að öðlast sálu- hjálp að ætla verður og af áhuga á guðlegum fræðum, en klaustur- vistin varð til þess að auka á ótta hans um eigin sálarheill. Hann gat aldrei verið viss um að hann skriftaði allar syndir og að hann hefði gert allt sem krafist var af honum sem munki. Skriftafaðir hans var gamall maður og hann neitaði að hlusta á hinar stöðugu skriftir ungmunksins og sagði honum að Guð væri miskunnsam- ur og að Hann væri ekki reiður Lúther, heldur væri því öfugt far- ið, Lúther væri Guði reiður. Af- staða Lúthers til skriftanna var sú, að það væri ógerlegt að játa allt, það gæti ekki allt komist til skila og þar að auki gat hann ekki vitað hvað væri synd í Guðs aug- um, þar sem mennskan skilning brast í skilningi á guðdóminum. Lúther trúði öllu sem skriftafaðir hans sagði, en það nægði honum ekki til þess að verða sáttur við Guð, til þess var hann of heiðar- legur, trúaður og sannur kaþól- ikki. Johann von Staupitz kom 3. apr- íl 1506 í eftirlitsferð i Erfurt- klaustur og þá munu þeir fyrst hafa hist. En von Staupitz átti eft- ir að hafa mikið saman við Lúther að sælda og hann varð honum að vissu leyti andlegur faðir og leið- beinandi. Um haustið 1506 sór Lúther klausturheitin, hlýðni, fá- tækt, hreinlífi og var þar með full- I gildur munkur. Eftir því sem leið á klausturvist Lúthers og eftir því sem hann las meiri guðfræði og heimspeki, jókst örvænting hans um sálarheill sína. Skólaspekin var ráðandi heimsmynd kirkjunn- ar, þetta þúsund ára hátimbraða kenningakerfi, reist á skilningi kirkjufeðranna á helgum ritning- um og kenningum Aristotelesar og þeirri skynsemi sem leitaðist við að skilgreina hinstu rök tilverunn- ar. Þetta kerfi fullkomnaðist í verkum heilags Thomasar frá Aqvinó. Þrátt fyrir andstöðu ým- issra guðfræðinga og einkum mýstikera gegn viðieitni skóla- spekinnar til þess að tengja saman trú og skynsemi, mótaði þetta kerfi stefnu kirkjunnar og var jafnframt undirstaða stefnu hennar í andlegum og veraldleg- um efnum. Helsti gagnrýnandi heilags Thomasar var Duns Scot- us. Kenning hans var sú, að „það væru engin skynsamleg rök fyrir trú“. William Ockham var læri- sveinn Scotusar og gekk enn lengra en hann, svo langt að hann hratt kenningum hans og um leið riðaði kenningakerfi heilags Thomasar til falls. Ockham taldi, að menn gætu ekkert vitað um Guð, nema um opinberanirnar. Hann aðskildi skynsemi og trú fullkomlega og verk hans höfðu þau áhrif um þetta leyti að ýta undir bölsýni og efagirni, þótt hann hvikaði aldrei frá gildi opinberananna í kenningum sín- um. Lúther las skólaspekina, kirkju- feðurna, hl. Ágústínus, Scotus og Ockham og síðan mýstíkerana að ráði von Staupitz. Þrír þeirra höfðu eitthvað að segja honum: Dionysius Areopagite, hl. Bernard og Tauler, einkum Tauler. En kenningar þessara manna voru Lúther of persónubundnar, þeir hlutu að verða hluti þess Guðs, sem þeir töldu sig tengjast. Lúther leitaði sáluhjálpar utan sín sjálfs, þar sem hann ætti engan hlut að, nema sem þiggjandi náðarinnar. Því varaði hrifning hans af kenn- ingum mýstíkeranna ekki lengi, þótt hann teldi sig alltaf standa í þakkarskuld við þá. Lúther leitaði í ritum kirkju- feðranna og annarra og tók aðeins það gilt sem samsvaraði eigin þörfum og eðli, hann sætti sig aldrei við það sem var andstætt eða fullnægði ekki þeim kröfum sem hann gerði, hann leitaði full- vissu, allt annað var honum hjóm og hismi. Hann var slíkur ein- staklingur að hann braust til skilnings þess Guðs, sem hann taldi sinn Guð og beindi fylgis- mönnum sínum sama veg, „hver einstaklingur var eigin prestur". Barátta hans á þesari leið stóð í mörg ár. Örvæntingin gat orðið honum ofviða, það voru tímar, þegar hann hataði Guð og óskaði þess að hann væri ekki til. Hvaða sannanir voru fyrir tilveru Guðs? Til hvers var heimurinn og mað- urinn? Heimur fullur af skorti, grimmd og hatri. Hann vissi að hann vissi ekki neitt og var óverð- ugur syndari. Hirti Guð um hann? Lúther leitaði sannleikans af al- gjörum heiðarleika. Trúarstríð Lúthers stóð gegn útsölulausnum og gervivissu, siðleysi hugsunar- lausrar viðurkenningar á almennt viðurkenndri munnkristni. Og hann fann ekki þann skilning og þá nánd guðdómsins sem hann leitaði. Hann taldi sig glataðan, en hann hætti ekki leitinni. óttinn við hinn hefnigjarna Jahve yfir- bugaði hann, hann taldi sig guð- níðing og afneitara. Hugrenningar hans um Guð hefndarinnar og eyðingarinnar tóku á sig hrylli- legar myndir, svo að eitt sinn „þegar ég leitaði Krists, virtist mér ég finna djöfulinn". Getur maðurinn áunnið sér náð Guðs? Lúther gáfust margvisleg svör við þessari spurningu, en honum virt- ust þau öll einskis virði. Vilji mannsins til náðar var þýðingar- laus, náðin kom utan frá, hann gat ekkert gert til þess að öðlast náð- ina og þar með var hann glataður „helvítis eldsmatur". Allir menn voru syndarar, í rauninni gjör- spilltir og geta ekkert gert nema að syndga. Samfélög manna hljóta því að vera spillt frá grunni. Lúth- er taldi að bætt þjóðfélag myndi á engan hátt bæta manninn, en þrátt fyrir þessar skoðanir hafði Lúther ákveðnar hugmyndir um réttlátt, kristið samfélag og um skyldur landstjórnarmanna. Lúther var vígður til prests í maímánuði 1507. Fyrsta messa hans var honum þrekraun. Hann undirbjó sig vandlega og flutti messuna samkvæmt öllum gild- andi helgisiðum og með hugarfari þess sem fer að öllum kröfum um heilaga messu, en þrátt fyrir þetta var hugur hans fullur ótta og kvíða. Faðir hans kom með tutt- ugu manna fylgdarlið til dóm- kirkjunnar í Erfurt til að hlýða á son sinn og sitja fagnaðinn, sem haldinn var að lokum messunnar. Hann greiddi klaustrinu álitlega fjárhæð, eins og tíðkaðist við slík tækifæri, en það mátti sjá að hann var alls ekki sáttur við ákvörðun sonar síns. Þegar hann reis upp frá borðhaldinu, spurði hann svo allir máttu heyra: „Veistu ekki hvað skrifað stendur: Þú skalt heiðra föður þinn og móður?" Lúther svaraði, að hann hefði orð- ið skelfingu lostinn í óveðrinu og heitið á heilaga Önnu. Faðir hans svaraði: „Schauet auch zu, das es nit ein Gespenst sey.“ (Athuga ber hvort þarna hafi ekki verið draug- ur, þ.e. djöfullinn.) 1508 var Lúther sendur að und- irlagi von Staupitz til Wittenberg til fyrirlestrahalds þar við hinn nýstofnaða háskóla (1502). Witt- enberg taldi þá um 2000 íbúa. Þarna voru tvö klaustur og hin kunna Kastala-kirkja, sem var fræg fyrir einstakt safn helgra dóma sem töldust vera 5005 alls. Meðal þeirra voru 9 þyrnar úr þyrnikóró'nu Krists, 35 flísar úr krossinum, nokkur strá og hey úr jötu Krists, hárlokkar úr hári Maríu guðsmóður, auk mikils fiölda líkamshluta helgra manna. Alitið var að þetta mikla safn hefði í sér fólginn mikinn mátt. Sá, sem heimsótti safnið og fór með tilskyldar bænir og borgaði vissa upphæð, gat með því stytt dagana í hreinsunareldinum um hvorki meira né minna en 127.709 ár og 116 daga. Ágústínusarreglan átti tvo prófessora við háskólann, von Staupitz og Lúther frá 1511, en Lúther starfaði þar allt til dauðadags. Skömmu eftir að Lúther tók við störfum í Wittenberg, hófst mikil ókyrrð í Erfurt. Iðnsveinar hófu óeirðír, sem stefnt var gegn borg- arstjórninni þar og áður en þær voru bældar niður höfðu óeirða- seggir tekið forseta borgarráðsins af lífi og brennt og eyðilagt bóka- safn háskólans. Þetta voru fyrstu kynni Lúthers af skrílóeirðum og afstaða hans til óeirðanna var tvímælalaus. Hann fordæmdi þær algjörlega, þótt hann hefði samúð með þeim hópum sem að óeirðun- um stóðu og viðurkenndi réttmæti krafna þeirra. Hann viðurkenndi aldrei réttmæti uppreisna gegn yfirvöldunum, jafnvel þótt þau væru bölvuð. Hann taldi vonda valdstjórn skárri en stjórnleysi eða skrílræði. Þessi afstaða hans kom skýrt fram í bændaupp- reisninni síðar. Lúther var nú sendur til Rómar í erindum reglu sinnar. Hann dvaldi fjórar vikur í Róm og leit- aði þeirra náðarmeðala sem þar voru til reiðu fyrir aðþrengdar sálir. Hann skriftaði, sótti fund sálusorgara, messaði, fór í sjö höf- uðkirkjur Rómar, skreið upp tutt- ugu og átta þrep Scala Santa og fór með Pater Noster á hverju þrepi. Með þessu var talið að menn ættu kost á að frelsa eina sál úr hreinsunareldinum, eina sálin sem Lúther mundi eftir og var honum tengd, var afi hans. Hann fann ekki það sem hann leitaði að í höf- uðborg kristindómsins, en aftur á móti vakti það sem hann sá hryll- ing og andúð. Spilling kirkjulegra yfirvalda var öllum auðsæ og hegðunarmáti íbúanna var lítið betri. Þrátt fyrir vonbrigðin taldi hann sig ekki „hafa ástæðu til að hverfa frá kirkjunni". Skömmu síðar varð hann doktor í guðfræði og prófessor í biblíuútleggingum við háskóiann. Þegar Lúther veigraði sér við að takast þetta embætti á hendur, hvatti von Staupitz hann og sagði: „Þér hafið þá nóg að gera.“ Fyrirlestrar Lúthers við háskól- ann sýndu eftir því sem leið á meiri og meiri frávik frá kórrétt- um kenningum kirkjunnar. Sál- arstríð hans magnaðist og þótt von Staupitz reyndi hvað hann gat til þess að lina það með hvatning- um og ábendingum, þá varð það til einskis. Hann tók að afleggja messur og bölsýni og algjör ör- vænting helltist yfir hann. En þegar allar leiðir virtust lokaðar og honum virtist glötunin vís, gerðist undrið. Hann taldi sig finna uppsprett- una. Biblíurannsóknir hans og íhugun orðsins í mörg ár luku loks upp fyrir honum lausninni úr svartnættisþrengingum efa og hiks. Hann segir frá því í Borð- ræðunum: „Eitt sinn þegar ég sat í turnherberginu (í klaustrinu í Wittenberg) og var niðursokkinn í íhuganir ... að skyndilega virtist sem ég væri endurfæddur og dyr himnanna stæðu mér opnar. Eg sá heilagar ritningar í nýju ljósi...“ Hann skildi nýjum skilningi marglesinn kafla úr Rómverja- bréfinu 1.17: „Því réttlæti Guðs opinberast í því fyrir trú til trúar, eins og ritað er: En hinn réttláti mun lifa fyrir trú.“ Þessi uppljómun er talin hafa átt sér stað milli 1512 og 1515, sumir vilja álíta síðar, 1518. Maðurinn réttlætist fyrir trú. „Við erum alltaf að fremja syndir, jafnvel þegar vér vinnum góðverk ... þegar maðurinn veit að hann er syndin einber, mun Guð bjarga honum. Yfirþyrmandi syndakennd er forsenda sáluhjálpar." Með krossdauða Krists, fórn- ardauða, brúar Guð gjána milli sín og veraldarinnar og endurleys- ir mannkynið. Á þann hátt nálg- aðist hann syndugt mannkyn með Krist sem endurlausnara, það er náð Guðs.“ „En menn verða ætíð að hafa það hugfast að þeir eru syndarar, sem geta vænst sáluhjálpar." Lúther talar einnig um sinn „kæra djöful", þennan hirtingarvönd Guðs, sem er stöðug áminning og tilvísun um eigin ófullkomleika. Laugardaginn fyrir páskadag er sungið við kertavígsluna í kaþ- ólskum sið: „Ó nauðsynleg, sann- arlega nauðsynleg, synd Adams, sem dauði Krists afmáði. Ó ham- ingju synd — felix culpa — sem slíkur endurlausnari hæfði." Þessi mynd er hliðstæð hinum annáluðu setningum úr bréfi Lúthers til Melanchthons 1. ágúst 1521, þegar Lúther var í Wartburg: „Þegar þú prédikar um náðina, þá prédikaðu um raunverulega náð. Og ef náðin er raunveruleg, þá hlýtur hún að afmá raunveru- legar syndir. Guð bjargar ekki ímynduðum syndurum. Ver synd- ari og syndga duglega. En því meir, set því meira traust og vongleði á Krist, sigurvegara syndarinnar, dauðans og heimsins — Deus non facit ficte peccatores. Esto peccator et pecca fortiter, sed fortius fide et gaude in Christo qui victor est peccati, mortis et mundi..." — Þessi kafli hefur vakið mörgum undrun og hneyksl- an, aðaláherslan er á fortiter, for- tius en ekki á pecca. Bréfið er til Melanchthons, sem var mildur og saklaus persóna að allri gerð. Það sem Lúther er að fara er að hann krefst ástríðna en ekki hálfvelgju. Staupitz svaraði Lúther einhvern tímann, þegar hann var að fjarg- viðrast út af syndum sínum. „Kristur fyrirgefur raunverulegar syndir, þú ættir ekki að hafa áhyggjur af smávegis yfirsjónum. Lúther endursegir þetta: „Raun- verulegur endurlausnari þarfnast raunverulegra syndara." Vitrunin í turninum „Turm- erlebnis" varð hornsteinn lúterskrar trúar. Lúther studdist við Ágústínus og Tauler í kenningu sinni um réttlætingu SJÁ NÆSTU SÍÐU Minnismerki Lúthers Lúther í Wittenberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.