Morgunblaðið - 09.11.1983, Side 19

Morgunblaðið - 09.11.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 67 Fræðsluþættir Geðhjálpar: LITIÐ YFIR SÍÐASTA STARFSÁR ÞÆTTIR okkar hafa legið niðri í sumar, en nú ætlum við að taka upp þráðinn að nýju því að enn trúum við því staðfastlega að öll fræðsla um geðheilbrigðismál muni draga úr fordómum á þeim. Starfsemi Geðhjálpar sl. vetur var tvíþætt, annars vegar fræðsla, en hins vegar rekstur félagsmiðstöðvar. Þættir okkar hér í blaðinu birtust nokkuð reglulega. Við vitum að þeir vöktu nokkra um- ræðu um ýmis mál, sem helst hefur aldrei mátt nefna. Þykir okkur það mjög jákvæð þróun. Félagið stóð fyrir nokkrum fyrirlestrum um ýmis mannleg vandamál, svefnleysi, streitu o.fl. Voru þeir haldnir á geðdeild Landspítalans og voru ótrúlega vel sóttir. Stundum komu allt að 100 manns og sýnir það okkur að margir hafa þörf fyrir slíka fræðslu, hafa e.t.v. yfir áhyggjur vegna andlegrar heilsu sinnar eða sinna nánustu, en hafa ekki haft kjark til að gera neitt í því. Margt fólk hefur haft samband við okkur, þakkað okkur, talið sig hafa haft mikið gagn af fróð- leiknum og hvatt okkur til að halda áfram. Erum við nú að undirbúa framhald á þessu starfi. í vetur boðaði stjórn Geð- hjálpar stúdenta frá ýmsum deildum Háskólans á sinn fund til að vekja athygli þeirra á starfseminni og reyna að fá þá sem sjálfboðaliða í fyrirbyggj- andi starf okkar. Einnig tók félagið þátt í sjón- varpsþættinum Líf og heilsa, sem fjallaði um geðheilbrigðis- mál. Félagsmiðstöð Geðhjálpar tók til starfa í nóvember 1982. Fé- lagið leigði tvær stofur og eldhús að Bárugötu 11, Reykjavík. Starfsemin hefur svo sannarlega blómstrað síðan. Geðhjálp hefur haft opið hús um helgar síðan opnað var og hafa yfirleitt tveir félagar tekið á móti gestum. Mæting hefur verið mjög góð og alltaf bæst við ný andlit. Að meðaltali mæta um 15 manns í hvert sinn. Þar ríkir yfirleitt léttur andi yfir kaffi og kökum, margt er spjall- að og fólk talar óþvingað um að- stæður sínar ef það hefur þörf fyrir. Oft er sungið, kastað fram stöku, eða gripið í spil og tafl. Nokkrar sameiginlegar leikhús- ferðir hafa verið farnar. Við telj- um fullvíst að þessi fyrsti vetur í félagsmiðstöð okkar hafi dregið úr einmanakennd margra og ýmsir bundist vináttuböndum. Fjórir sjálfshjálparhópar hafa starfað á Bárugötu í vetur og er markmið þeirra að fólk reyni að hjálpa sér sjálft og styðja hvert annað. Þótt félagið hafi byrjað með tvær hendur tómar á Bárugötu og orðið að notast við lánshús- gögn eingöngu, liðu ekki margir mánuðir þar til félagar úr Lionsklúbbnum Ægi færðu því stórgjöf, bæði stofuhúsgögn og skrifstofuhúsgögn. Eitt af mörgum áhugamálum félagsins er að bæta atvinnumál fólks með geðræn vandamál. Langar okkur að vinna meira að þeim málum í náinni framtíð. Félagið hélt aðventukvöld á Kleppsspítala í vetur. Þar var mikið fjölmenni og góður andi ríkjandi. Eina útsölu héldum við á Lækjartorgi í vor og tóku margir félagar þátt í henni. í sumar stofnuðum við til tveggja ferðalaga á vegum fé- lagsins. Var auðfundið á undir- tektum og þátttöku fólks að mik- ill grundvöllur er fyrir að fara í fleiri ferðir næsta sumar. Nýlega tók félagið á leigu þriðja herbergið á Bárugötu. Opnast þá ýmsir möguleikar til fjölbreyttari starfsemi. Þarna mætti koma af stað ýmsum hóp- um, sem félagar hafa stungið upp á, svo sem teiknihóp, les- hring, leiklistarhóp o.fl. o.fl. Einnig eru ýmis námskeið á óskalistanum. Kvennaathvarfið hefur nýlega fengið afnot af húsnæði Geð- hjálpar og er þar með opna skrifstofu 2 klst. daglega. í vetur er von okkar að geta eflt aila starfsemina, haft oftar opið hús, stofnað fleiri sjálfs- hjálparhópa, haldið fieiri fyrir- lestra og haldið áfram fræðslu- þáttum okkar í Mbl. en til þess að þetta verði að veruleika verð- um við að virkja fleiri félaga því að hingað til hefur þetta sjálf- boðaliðastarf hvílt á of fáum. Við ætlum því að auka við stjórn félagsins og stofna einnig stuðn- ingshóp, sem mundi þá koma sjaldnar saman en stjórnin, en þó reglulega. Þessi stuðnings- hópur gæti miðlað nýjum hug- myndum, tekið að sér sérstök verkefni og tengt félagið á ýms- an hátt út á við. Þarna gæti fé- laginu komið til góða kraftar fólks, sem hefur sýnt málstað okkar mikinn áhuga, en hefur vegna starfa sinna takmarkaðan tíma. Félagsmiðstöðin er ennþá í mótun, en starfið, sem þar hefur þegar farið fram hefur sannað að það á rétt á sér og getur létt mörgum lífið. Þarna kynnist fólk sem kemur úr ýmsum áttum og á öllum aldri, einangrun þess minnkar og það öðlast aukna ábyrgðartilfinningu. Margir félagar, sem orðið hafa fyrir ýmsum geðrænum áföllum taka virkan þátt í starfinu og vonum við og vitum reyndar að það gefur þeim mikið í aðra hönd. Við stefnum hátt og erum bjartsýn. Við skorum á allt áhugafólk um þessi efni að styrkja okkur og styðja í þessu umbótastarfi okkar. Stjórn Geðhjálpar. í hamingjuleit Ástarsaga eftir Danielle Steel KOMIN er út skáldsagan „f ham- ingjuleit“ eftir Danielle Steel. Um söguþráðinn segir svo í frétt frá útgefanda: „Gillian segir skilið við New York og eiginmann sinn og sest að í hinni sólfögru San Francisco ásamt fimm ára dóttur sinni. I starfi sínu kynnist hún Chris, ungum og óvenjulegum kvikmyndagerðarmanni, hug- myndaríkum og ráðríkum með lausbeislaða framkomu. Þau kynni verða afdrifarík. Hún sveiflast milli ástar á Chris og andúðar á framkomu hans, uns hún neyðist til að snúa aftur til fyrri heimkynna. í New York fær hún starf við kvennablað og leiðir þeirra Gordons liggja saman, en Gordon er algjör andstæða Chris, miðaldra maður með sára reynslu að baki. En Chris kemur aftur inn í líf hennar og litlu dótturinnar, Samöntu." Höfundur þessarar bókar, Dani- elle Steel, er einn vinsælasti höf- undur ástarsagna í heimalandi sínu, Bandaríkjunum. „í hamingjuleit" er fjórða bókin sem kemur út eftir hana á íslensku. Hinar heita: „Gleym mér ei“, „Lof- orðið" og „Hringurinn". Útgefandi er Setberg. Kapphlaupið KOMIN er út heimildarskáldsaga, er fjallar um ferðir Amundsens og Scotts og félaga þeirra til suðurskautsins 1911—1912. Bókin nefnist „Kapp- hlaupið" og er eftir norska rithöfund- inn Káre Holt, en Sigurður Gunnars- son þýddi og endursagði. I frétt frá Æskunni, sem gefur bókina út, segir m.a.: — „Norðmað- urinn Roald Ámundsen hefur undir- búið ferð á skipinu Fram til að freista þess að komast á Norður- heimskautið. Meðan á undirbúningi stendur berst frétt um að doktor Cook hafi komist á Norðurpólinn — og síðar einnig Robert Peary. Amundsen ákveður þá að fara til Suöurskautsins. Englendingurinn Robert Scott er foringi leiðangurs sem stefnir þegar þangað. — Þeir hafa aldrei sést. En á milli þeirra verður mikil keppni um að komast fyrstur á pólinn. Sálrænt álag setur mark sitt á samskipti þeirra við fé- laga sína og ferðirnar í heild. — Höfundur lýsir ógnþrungnu erfiði og hetjudáðum heimskautsfaranna, átökum við höfuðskepnur og harðri innri baráttu af einstökum skilningi. Bókin varð umdeild í Noregi enda dregur höfundur ekkert undan, felur ekkert, fegrar engan. Hún er ágeng, jafnt hvað varðar efnistök höfundar sem skírskotun hennar til lesenda — og lætur engan ósnortinn. Káre Holt er virtur og viður- kenndur norskur höfundur sem sam- ið hefur yfir 30 bækur. Margar þeirra eru sögulegs eðlis. Hann hef- ur hlotið margs konar verðlaun og þykir einn besti sögumaður vorra tíma í Noregi. Þýðandinn, Sigurður Gunnarsson fv. skólastjóri, las söguna í útvarp haustið 1979 við mikla hylli." Bókin er 216 síður að stærð. Mazda 323 Mest seldi japanski bíllinn í Evrópu! Þegar hinn nýi framdrifni MAZDA 323 kom á markaðinn, þá hlaut hann strax frábærar viðtökur um víða veröld og sérstaklega hefur hann fallið kröfuhörðum Evrópubúum í geð. 1984 árgerðin af þessum geysivinsæla bíl er nú fyrirliggj andi hj á okkur. ’ ' Verð kr. 264.815 með ryðvörn og 6 ára ryðvarnarábyrgð. gengisskr. 1.11.83 MAZDA — bestur í endursölu undanfarin 10 ár. Smiðshöfða 23 sími 812 99 BÍLABORG HF

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.