Morgunblaðið - 09.11.1983, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
68
Frægðarsól Mezzo
fer æ hækkandi
Það berast alltaf nýir fróð-
leiksmolar um Mezzoforte inn é
borö hjá Járnsíöunni. Fyrr í vik-
unni barst okkur það til eyrna, að
strákarnir í hljómsveitinni v»ru á
m « SOUNDS f83
riT * " r- I lceland makes hot music AFTER six years together, Mezzoforte achieved the previously impossible for an lcelandic group — the status of professional musicians. They are lh« fir>f. e*plain» Me//oforte bass plavec Joliann AsmundsMin. because *»f a calchy jazz rock inslrumenial callcd C.aiú.n Pariy that swept lo top of Ihc Lnglish charts.
Úrklippan úr ástralska dagblað-
inu.
fullu viö að leika í Heimsmeist-
arakeppninni í diskódansi í Lond-
on ásamt tríóinu Imagination.
Þaö þykir í raun kannski ekki
svo rosalega merkilegt, aö Mezzo-
forte skuli hafa veriö fengin til aö
spila þarna, þótt vissulega sé þetta
heiöur fyrir strákana, heldur er
þetta kannski táknrænt fyrir bar-
áttuna á milli Mezzoforte og
hljómsveitarinnar Shakatak um
vinsældir. Sá flokkur haföi nefni-
lega verið ráöinn til þess aö spila
viö þetta tækifæri, en var síöan ýtt
út í kuldann.
Þá barst okkur nýleg úrklippa úr
áströlsku blaöi, þar sem fjallaö er
um velgengni Mezzoforte. Þykir
blaöinu mikiö koma til þessa
frama hljómsveitar frá Islandi og
fer lofsamlegum oröum um tónlist
Mezzoforte, auk þess sem stutt-
lega er rætt viö Jóhann Ásmunds-
son, bassaleikara.
Hljómsveitín DRON — sigurvegari Músfktilrauna (fyrra.
Músíktilraunirnar
verða endurvaktar
Hver minnist ekki Músíktii-
rauna SATT og Tónabæjar frá því
í fyrra? Þarna var um aö ræða
Tíví lifir
enn og vel
Okkur varð lítillega á í mess-
unni um daginn þegar viö skýrö-
um frá tilraunum Einars Jónsson-
ar við aö komast í samband við
hljómsveitína Whitesnake.
Sagt var, aö hljómsveit hans Tíví
væri hætt, en það mun ekkl rétt.
Hún starfar áfram, en heföi eöli-
lega lagt upp laupana ef White-
snake-dæmiö heföi gengiö upp.
Þá var nafn sveitarinnar rangt rit-
aö, TV í staö Tíví eins og þaö er
rétt.
Járnsíöan biöst velviröingar á
þessum mistökum.
skipulögöustu tilraunina til þess
að lyfta undir tónlistaráhuga
ungra poppara um margra ára
skeiö. Ef marka má þátttökuna
þarf ekki aö fara í grafgötur um
að tiltækið heppnaöist fullkom-
lega.
Aö því er Járnsíöan hefur fregn-
aö stendur nú til aö endurvekja
þessar Músíktilraunir á vegum
Tónabæjar og SATT. Mun fyrsta
kvöldiö veröa þann 17. nóvember,
en alls veröa kvöldin fjögur. Hiö
síöasta í rööinni verður 8. desem-
ber og kvöldiö eftir, 9. desember,
veröur lokaspretturinn háöur.
Ekki er aö efa, aö þessar „til-
raunir“ nú eiga eftir að veröa vin-
sælar á meðal yngri poppara
landsins rétt eins og í fyrra. Þaö er
því ekki um annaö aö ræöa en aö
heröa æfingar aö miklum mun og
taka stefnuna á sigur í keppninni.
Nánar verður skýrt frá tilhögun
hennar síöar.
Mike Pollock (á miðri mynd) með Bodies á meðan sú sveit var og hét.
Mike Pollock vísaö frá Bretlandi:
„1984 Georg Orwell
virðist gengið í garð“
— sagöi Pollock viö Járnsíöuna um meöferöina
á Abbotsinch-flugvellinum í Glasgow
„Ég hef ferðast víöa, en aldrei
lent í neinni sambærilegri með-
ferð. Þessum mðnnum viröist
hreinlega líðaat aö meðhöndla
mann eins og dýr,“ sagöi Mike
Pollock er Járnsíöan ræddi við
hann í vikunni. Sagði Pollock farir
sínar ekki sléttar af viðskiptum
sínum við breska innflytjendaeft-
irlitiö í Glasgow sl. sunnudag.
Eins og komiö hefur fram á
Járnsíöunni hélt Mike Pollock utan
á sunnudag til þess aö fara meö
plötu Frakkanna, 1984, í skurö hjá
Utopia-fyrirtækinu í Lundúnum.
Þar sem ekki var hægt aöfá beint
flug til London tók Mike flug til
Kaupmannahafnar, sem millilenti t
Glasgow. Þar ætlaöi hann, ásamt
10—12 öörum, aö skipta um vél
og halda til Lundúna.
„Ég vissi ekkert fyrr en ég var
gripinn, þar sem ég var aö skipta
um vél ásamt öörum Islendingum.
Ég haföi ekkert af mér brotiö og
vissi satt aö segja ekki hvaöan á
mig stóö veörið. En þaö varö engu
tauti viö þessa útsendara innflytj-
endaeftirlitsins komið. Mér var
dröslað inn í eitthvert yfirheyrslu-
herbergi og spuröur spjörunum úr.
Ég svaraði öllu skilmerkllega, en
þurfti síöan aö fara í tvö slík her-
bergi til viöbótar. í ööru þeirra var
ég berháttaöur og skoöaöur hátt
og lágt.
Þaö varö engu tauti viö þá kom-
iö þarna. Ég bauöst til þess aö fá
staöfestingu þess, aö ég ætti er-
indi inn í landiö, enda var ég meö
flugfarseöil fram og til baka. Þeir
vildu hins vegar ekkert meö slíkar
staöfestingar hafa og þessi yfir-
maöur innflytjendaeftirlitsins sagö-
ist hreinlega ekki trúa því, aö ég
væri ekki að reyna aö smygla mér
inn í landiö til langdvalar.
Ég botna enn ekkert í þessu öllu
saman. Ég er búinn aö hafa sam-
band viö breska sendiráöiö, svo
og þaö bandaríska (Mike Pollock
er meö bandarískt vegabréf útgef-
iö á íslandi) og þeir brugöust vel
viö og buöust til aö útbúa nýtt
vegabréf fyrir mig, þar sem í mínu
er nú stimpill, sem segir aö ég sé
óæskilegur í Bretlandi.
Sannast sagna veit ég ekki
hvaöa áhrif þetta kann aö hafa á
útgáfu plötunnar okkar,“ sagöi
Pollock og bætti svo viö: „Þetta á
eftir aö veröa okkur kostnaöar-
samt og ég veit ekki hvenær plat-
an kemur út. Hins vegar viröist
1984, sbr. sögu George Orwell,
vera gengiö í garö ef marka má
meðferð innflytjendaeftirlitsins í
Bretlandi," sagöi Pollock aö lok-
um.
. fnr leave to enter ^he Dnited
Michael D POLU)CK - You have asked^ ^ satisfied that you
agdom as a visitor for visitor only for this limited period.
e genuinely seeking entry as
Hluti skýrslunnar, þar sem segir að Pollock sé neitað um dvalarleyfi.
Vinsældalistar Járnsiðunnar:
Sviptivindasamt í
Tónabæ og Bretlandi
Við birtum vinsældalista
Járnsíöunnar og Tónabæjar
í fyrsta skipti um síðustu
helgi. Féll sú hugmynd vel í
kramið og er ætlunin að list-
inn skipi fastan sess á
Járnsíöunni á komandi
mánuöum. Viö birtum nú
listann eins og hann leit út
eftir aö 5 manna dómnefnd
unglinga úr Tónabæ haföi
kveöið upp dóm sinn sl.
þriójudag.
1 ( 9) Never Say Die/CLIFF
RICHARD
Adam Ant tekur undir sig stökk
é breska listanum.
2 ( -) Sunshine Reggae/LAID
BACK
3 ( -) Superstar/LYDIA
MURDOCK
4 ( -) New Song/HOWARD
JONES
5 ( 5) Modern Love/DAVID
BOWIE
6 ( 1) Dolce Vita/RYAN PARIS
7 ( 2) I Want You/GARY LOW
8 ( 7) Big Apple/KAJAGOO-
GOO
9 (10) Say, Say, Say/MICHAEL
JACKSON OG PAUL
McCARTNEY
10 ( 6) Come Back And Stay/-
PAULYOUNG
Þannig leit þaö dæmiö út. Þrjú
nýju lögin af þeim fimm, sem
kynnt voru, komust inn á listann
og þaö hátt á hann. Hins vegar
komst hvorki Blindfullur meö
Stuömönnum né Take Your Time
meö Jóhanni Helgasyni inn á list-
ann og veröur aö líta á þaö, sem
álitshnekki fyrir íslenska popp-
ara. Líklegasta skýringin er hlns
vegar sú, aö allir séu búnir aö fá
leiö á þessum lögum.
Þá vekur þaö ekki síöur athygli
aö nýja lagið meö Culture Club,
Karma Chameleon, datt út, en
var í 2. sæti listans í síöustu viku.
Sannkallaöir sviptivindar í Tóna-
bæ. Önnur lög, sem hrundu af
listanum, voru Safety Dance meö
Men Without Hats (5. sæti) og
Burning Down The House meö
Talking Heads (8. sæti).
Breski listinn
Til þess aö gefa Tónabæjar-
fólkinu og öörum poppunnend-
um einhverja hugmynd um hvaö
er aö gerast í breska poppheim-
inum birtum við hér enska listann
eins og hann leit út þessa vikuna.
1( 2) All Night Long/LIONEL
RICHIE
2( 5) Union Of The Snake/-
DURAN DURAN
3 (12) Uptown Girl/BILLY
JOEL
4 ( 1) Karma Chameleon/-
CULTURE CLUB
5 ( 3) They Don’t Know/-
TRACEY ULLMAN
6 ( 4) New Song/HOWARD
JONES
7 ( 8) The Safety Dance/MEN
WITHOUT HATS
8 (11) Please Don't Make Me
Cry/UB40
9 ( 6) The Rocksteady
Crew/ROCKSTEADY
CREW
10 (28) Puss’n’Boots/ADAM
ANT
Vissulega sveiflur hjá Bretan-
um og þaö litlu minnl en í Tóna-
bæ. Athygli vekur hiö nýja lag
UB40 svo og hversu hressilegt
stökk lag Adam Ant tekur undir
sig.