Morgunblaðið - 09.11.1983, Page 27

Morgunblaðið - 09.11.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 75 AKANDI SVARAR I SIMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI ^ TIL FÖSTUDAGS Enn um byggðasöfn Skúli Magnússon, Keflavík skrif- ar: ..Byggöasafn Húnvetninga og Strandamanna að Reykjum í Hrútafirði var opnað 9. júlí 1967. Árið 1961 hafði verið reistur þar skáli yfir hákarlaskipið ófeig, sem varð einn aðalstofn safnsins. (Árbók Fornleifafél. 1962 og 1968.) Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ var opnað 15. júní 1952. Skömmu fyrir 1940 hafði Englend- ingurinn Mark Watson lagt til að bærinn yrði varðveittur, svo að síðar mætti hafa þar minjasafn. Gaf Watson fé til þess fyrstur manna. (Öldin okkar 1951—1970.) Minjasafnið á Akureyri var opnað 17. júlí 1963 í Kirkjuhvoli. Akureyrarbær á 3/s hluta safnsins, Eyjafjarðarsýsla Vs og KEA Vs. Viðbygging við Kirkjuhvol var tekin í notkun 1. júlí 1978. Árið 1949 hafði Þórarinn bóndi Eldjárn fyrstur hreyft hugmyndinni um stofnun minjasafns. (Dagur 10. júlí 1963 og 3. ágúst 1983, Árbók Fornl.fél. 1979.) Byggðasafn Þingeyinga að Grenjaðarstað var opnað í gamla bænum 9. júlí 1958. Aðdragandi safnsins var nokkuð langur. I maí 1980 var vígt safnahús á Húsavík þar sem hluti byggðasafnsins er til húsa. (Dagur 12. júlí 1958 og Árbók Þingeyinga 1958 og 1980.) Minjasafn Austurlands. Á fundi i Atlavík 19. júlí 1942 var kosin nefnd sem vinna skyldi að stofnun minjasafns. Einnig höfðu Sam- band austfirskra kvenna, UÍA og Búnaðarsamband Austurlands tekið málið að sér. Þessir aðilar stóðu að stofnun minjasafns á Hallormsstað 10. og 11. okt. 1943. Frá 1945 voru munir þess geymdir á Skriðuklaustri. 1971 var komið á fót Safnastofnun Austurlands. Innan hennar skyldu vera minja- og náttúrugripasöfn. Auk geymslu á Skriðuklaustri fékk minjasafnið geymslu á Egilsstöðum. Nýlega var hafin bygging safnahúss á Eg- ilsstöðum. (Múlaþing 1980. í aust- firskum blöðum eru ýmsar heim- ildir um minjasafnið og Safna- stofnun, einkum í blaðinu Austur- landi.) Byggðasafn Austur-Skaftfellinga var opnað á Höfn í Hornafirði 6. júní 1980. Safnið er geymt í gömlu verslunarhúsi frá Papósi. 1966—’67 var stofnuð nefnd á veg- um sýslunefndar A-Skaftafells- sýslu sem annast skyldi söfnun muna. Árið 1976 fékk safnið 1 milljón króna frá sýslunefnd til starfsemi sinnar. (Múlaþing 1980. Mbl. 12. júní 1980.) Byggðasafn Rangæinga og V-Skaftfellinga. Formlega opnað í nýreistu húsi í Skógum 1955. Á sýslufundi Rangæinga 1945 hreyfði sr. Jón M. Guðjónsson fyrstur nauðsyn á slíku safni. Kaus fundurinn þá sérstaka safnsnefnd. V-Skaftfellingar kusu slíka nefnd 1952. Munir fengu geymslu í Skógaskóla 1949, en 1952—’54 voru þeir til sýnis í skólastofum. Fljótlega eftir að sr. Jón M. Guðjónsson fluttist til Akraness varð Þórður Tómasson forgöngumaður safnsins og hefur verið höfuðstoð þess alla tíð. (Goðasteinn 1964.) Byggðasafn Vestmannaeyja. Um 1932—33 hóf Þorsteinn Víglunds- son söfnun fyrstu munanna. Voru þeir í geymslu á heimili hans í Háagerði þar til þeir voru fluttir í gagnfræðaskólann 1955—’56. Það- an lá leið þeirra á þriðju hæð í húsi Sparisjóðsins við Bárugötu. Þar var safnið opnað 12. júlí 1967. Hinn 15. apríl 1978 var opnað nýtt safnahús í Vestmannaeyjum þar sem byggðasafnið er til húsa. Ef litið er á aðdraganda safnsins, sést að það er eitt elsta minjasafn landsins fyrir utan Þjóðminja- safn. (Blik 1967. Árbók Fornl.fél. 1979.) Byggðasafn Árnessýslu var opnað á Selfossi 5. apríl 1964 í nýreistu safnahúsi þar sem það er í sam- býli með bókasafni og listasafni. Hugmyndin um stofnun safnsins kom fyrst fram á sýslufundi Ár- nesinga 1942. Skúli Helgason ferð- aðist um Árnesþing á árunum 1950—'60 og aflaði safninu muna. (Sýningarskrá að Árvöku Selfoss. 1972.) Byggðasafn Suðurnesja var opnað í Keflavík 17. nóv. 1979. Hluti safnsins er til sýnis á Vatnsnesi, húsi sem Bjarnfríður Sigurðardóttir ánafnaði Keflavík- urbæ eftir sinn dag. Gamla íbúð- arhúsið í Innri-Njarðvík telst hluti byggðasafnsins. Safnið er rekið af Keflavíkur- og Njarðvík- urbæjum. Helgi S. Jónsson (f. 1910, d. 1982) hreyfði fyrstur hug- myndinni um sérstakt byggðasafn i Keflavík. Það var um 1940. Fljótlega eftir það hófst söfnun muna. Geymdi Helgi sumt af þeim heima hjá ser. í aprílblað Faxa 1942 ritar Helgi í fyrsta sinn um byggðasafnið opinberlega. Má vera að hann hafi haft spurnir af svipuðu starfi á ísafirði, en Helgi var Vestfirðingur, og hélt tryggð við Vestfirðinga heima og heiman, þó að hann dveldi lengst af í Reykjavík og Keflavík. (Faxi des. 1979. Mbl. júlí 1980.)“ Þessir hringdu . . . Mætti endursýna þessa dagskrá — og það oftar en einu sinni Garðbæingur hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Laugar- dagskvöld 22. október sáu leikarar frá Leikfélagi Reykjavíkur um dagskrá í sjónvarpinu og nefndu hana „Við byggjum leikhús". Þetta var alveg frábær skemmtun og bætti mönnum í skapi. Svo sann- Dario Fo arlega mætti endursýna þessa dagskrá og það oftar en einu sinni. Endursýn- ið Dario Fo Jarþrúður Pétursdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég var svo heppin að slökkva ekki á sjónvarpsviðtækinu, þegar Wagner-þættinum lauk sunnu- dagskvöldið 30. október sl. Þá hófst nefnilega frábær dagskrá með ítalska leikaranum og leik- ritahöfundinum Dario Fo. Eg hef hins vegar orðið vör við að flestir þeirra sem ég hef talað við, slökktu á viðtækjunum og misstu af þessum ítalska meistara. Ég skora því á sjónvarpið að endur- sýna dagskrána. GÆTUM TUNGUNNAR Sést hefur: Rætt var um gerð nýrra eld- flaugna. Rétt væri:... um gerð nýrra eldflauga. Kór Breiðholtskirkju auglýsir Óskaö er eftir áhugasömu fólki í allar raddir kórsins. Raddþjálfun stendur nú yfir. Vinsamlegast gefift ykkur fram vift Daníel í síma 72684, Valgerfti í síma 74940 og Sigurft í síma 37518. Kórstjómin Hirslur eru til margra hluta nauösynlegar og hjá okkur eru til hirslur í hvert einasta herbergi í húsinu þínu. Veggskápar í einingum og samstæðum í stofur meö geymslurými fyrir dúka, matarstell, hnífapör, uppáhalds- glösin þín og verömætustu bækurnar undir gleri, og margar hillur sem þú getur sett á styttur, skálar og fleiri hluti sem þú vilt hafa fyrir augunum hvern dag vegna þess að þeir eru þér kærir. Skápar í sjónvarpsherbergið, útvarps- videó- og plötuspilaraskápar, plötuskápar og raunar skápar fyrir hverskonar tæki og „græjur” sem þú átt. Bókaskápar sem allsstaöar eru til prýöi. Skápar í herbergi barnanna, unglinganna og í herbergi húsbóndans og húsfreyjunnar. Allt þetta fæst hjá okkur í ótal stærðum, gerðum og viöartegundum á hagstæöu veröi meö góðum greiðslukjörum. HAGSÝNN VELUR ÞAÐ BESTA HDSGAGNAHÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.