Morgunblaðið - 09.11.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 09.11.1983, Qupperneq 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 Fréttabréf úr Dölum: Fóðuriðja — 27 kg dilkur — Hafbeitarstöð — Skarðs- kirkja — Meðferðarheimili — Vegagerð — Dýrt rafmagn Skarðskirkja á Skarðsströnd. eftir Ingiberg J. Hannesson Iflvoli, 27. október. Nú í vetrarbyrjun líður hugur- inn yfir nýliðið sumar, og manni verður ósjálfrátt á að spyrja: Hvenær kom sumarið? Eða var það yfirleitt komið, nú í vetrar- byrjun. Það er áreiðanlegt, að við hér á Vesturiandi urðum lítið vör við sól og sumarblíðu, þótt tíminn rynni sitt skeið og veturinn sé nú kominn bæði samkvæmt alman- akinu og í reynd. Þetta sumar var með eindæmum ósumarlegt hvað veðráttuna snertir, sólardagarnir fáir og veðráttan í heild heldur lítt uppörvandi. En síðan á höfuð- dag, þegar hann loks birti upp, hefur tíðarfar verið gott, og þæg- ileg uppbót á sumarið, en nú hefir hann kólnað og veturinn er far- inn að sýna klærnar. Er það að vonum, enda langt liðið á októ- ber. Þrátt fyrir erfitt tíðarfar má segja, að heyfengur bænda hér um slóðir hafi verið þokkalegur hvað gagn heyja snertir, en gæð- in eru afar misjöfn og eftir að vita, hvernig skepnur fóðrast á slíkurn heyjum. En bót er í máli, að við höfum hér í sveit ágæta stofnun. Fóðuriðjan Þessi stofnun er Fóðuriðjan í Ólafsdal, kennd við þann sögu- fræga stað, ólafsdal, þar sem Torfi Bjarnason stofnaði fyrsta búnaðarskólann á landinu. Þetta er graskögglaverksmiðja, sem framleiðir kjarnfóður og kögglar sílgræna töðuna, sem slegin er í sprettu og hefur reynst afbragðs fóður, og er mér tjáð af fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, Sæmundi Kristjánssyni, að graskögglar héðan séu sam- kvæmt athugun sérfróðra manna, bæði í ár og í fyrra, beztir og næringarríkastir allra heyköggla á landinu hvað efnainnihald snertir og sýnu betri nú í ár en í fyrra þó góðir væru þá. Þetta eru góð meðmæli með þessu ágæta fyrirtæki, sem rekið er af mynd- arskap og dugnaði. En fram- leiðslan í ár var rúm 1000 tonn, um 150 tonnum minni en í fyrra, þar sem grasspretta í sumar var mun minni en í meðalári og erfitt að nýta til fulls það sem á jörð- inni þó óx vegna bleytu á ökrun- um, og má geta þess, að nú fyrir nokkrum dögum var verið að framleiða köggla úr grænfóðri, vegna þess einfaldlega, að ekki var hægt að komast um landið fyrr sökum bleytu, en frost hefur verið síðustu dagana. Söluhorfur hjá verksmiðjunni eru mjög góðar, þeir eru að verða búnir að selja upp sumarfram- leiðsluna, enda hefur eftirspurnin aukist verulega eftir því sem kögglarnir hafa batnað. Fóðuriðjan hefur nú undir 306 ha. ræktaðs lands, en stefnt er að því að koma í ræktun á næsta ári 100 ha. til viðbótar, enda hefur fyrirtækið nú nýlega keypt veru- legt viðbótarland úr landi Stór- holts og er stefnt að því að auka framleiðslugetuna eftir því sem markaðurinn leyfir og eftir- spurnin eykst. Hér er um þýð- ingarmikla framleiðslu að ræða, íslenzka atvinnustefnu, sem er atvinnuskapandi og gjaldeyris- sparandi og eykur verðmæti ís- lenzks jarðargróða og íslenzks framtaks. Megi fyrirtækinu vel vegna á komandi árum. Slátrun hjá kaup- félagi Saurbæinga Haustslátrun hjá kaupfélaginu er nú að mestu iokið. Slátrað hef- ur verið alls um 12 þúsund fjár. Meðalþungi dilka var rúm 14 kg. og er það svipað og tvö undanfar- in ár. Stærsta dilkinn í haust átti Jóakim Arason frá Múla í Gufu- dalssveit og vó hann rúm 27 kg. Að sögn kaupfélagsstjóra, Úlfars Reynissonar, hefur slátrunin gengið vel í haust og aldrei verið slátrað fleira fé í húsinu. Slát- urhússtjóri er Sigurjón Torfason í Hvítadal. Laxveiði í sumar Laxveiði í Staðarhólsá og Hvolsá gekk allyel í sumar, alls veiddust 100 laxar og er það raunar 11 löxum minna en í fyrra, en auk þess var góð sil- ungsveiði eins og jafnan áður. Stangaveiðifélag Keflavíkur hef- ur haft árnar á leigu siðustu þrjú árin, en trúlega verður laxveiði í ánum boðin út í haust. Við höfum hér mjög góða aðstöðu fyrir veiðimenn og fjölskyldur þeirra; veiðihúsið Ársel, þar sem eru sex svefnherbergi auk eldhúss og stórrar setustofu. Enda hafa veiðimenn nú seinni árin komið hingað í auknum mæli með fjöl- skyldur sínar með sér og þannig getað notið ánægjulegrar dvalar í ágætu húsi í friðsælli og fallegri sveit. Hafbeitarstöðin Dalalax í byrjun júlí á þessu ári var tekin í notkun hafbeitarstöð hér í Saurbænum, og er hér um að ræða stíflubúnað við ósa Stað- arhólsár og Hvolsár en þær renna til sjávar í sameiginlegum ósi. Stíflumannvirki þessi eru með gildru og tökubúnaði og gera kleift að stjórna að vissu marki fiskgöngu upp í árnar. Þessi út- búnaður getur haft þau áhrif, að hægt muni að stórauka laxa- gengd upp í árnar, ef vel gengur, og sleppa þangað upp fiski í miklu meiri mæli en verið hefur, og þannig stórauka möguleika stangveiðinnar, auk þess sem taka má fiskinn i gildrunni og koma honum á markað nýslátr- uðum eða lifandi, eins og gert var í sumar í litlum mæli og reyndist vel. í fyrra var sleppt í árnar 55 þúsund gönguseiðum, og nú í ár 30 þúsund, og vænta menn þess, að þetta skili sér á sínum tíma, en ekki voru menn hér þó ánægðir með heimturnar í sumar á árs- gömlum laxi, en menn eru þó yf- irleitt vongóðir og trúa á mikla möguleika í þessum atvinnuvegi, ef rétt er að staðið og komist hef- ur verið yfir þá byrjunarerfið- leika, sem alltaf eru fyrir hendi og sem menn smám saman læra að vinna bug á. En nýjungar koma mönnum oft undarlega fyrir sjónir — jafnvel fjandsamlega. Á því fengum við að kenna í sumar. Þegar laxveiði- menn komu hingað til að veiða, brugðust þeir sumir illa við er þeir sáu stíflumannvirkin og töldu að þarna — í gildrunni — tækjum við heimanenn allan lax- inn og hann fengi því ekki að ganga upp 1 árnar til ánægju fyrir laxveiðimennina. En hvílík- ur misskilningur. Það væru ekki skynsamleg vinnubrögð af hálfu heimamanna að takmarka svo laxgengdina upp í árnar, að stangaveiðin minnkaði og árnar yrðu þannig síður eftirsóttar til stangaveiða. Þvert á móti gerir þessi útbúnaður, eins og áður sagði, það mögulegt, að stórauka laxveiði í ánum með aukinni sleppingu í árnar, sem væntan- lega verður hægt þegar á næsta sumri. SkarÖskirkja á Skarösströnd Ekki get ég látið hjá líða að minnast þess stóra viðburðar í kirkjulífi hér á Skarðsströnd, er Skarðskirkja var tekin aftur í notkun við hátíðlega athöfn 28. ágúst sl. eftir umfangsmiklar endurbætur. Þar voru mættir tíu prestar af Vesturlandi auk vígslubiskups, sr. ólafs Skúlason- ar, sem heimsótti okkur í sinni fyrstu embættisferð eftir að hann tók vígslu sem vígslubiskup Skálholtsbiskupsdæmis. Þetta var ánægjulegur dagur í lífi safn- aðarins, og mitt í sumarrigning- unni fengum við meira að segja sólargeislana til að gægjast fram úr skýjum og hella geisladýrð sinni yfir sviðið ofurlitla stund eins og til að lýsa velþóknun sinni yfir stað og stund. Og upp úr þessu fór að birta í heiði, því höf- uðdagurinn var daginn eftir, og þá tók að rofa til í skýjaþykkninu fyrir alvöru, og við tók betri tíð undir haustið. Mikill fjöldi fólks var með okkur á Skarði þennan sunnudag og gerði daginn eftir- minnilegan. Það er annars eftir- tektarvert og lofsvert framtak, sem Skarðverjar hafa sýnt með uppbyggingu kirkju sinnar, en kirkjan er bændakirkja og í eigu þeirra Skarðverja og uppbygging- in því kostuð af þeim staðarhjón- um, Kristni Jónssyni og Þórunni Hilmarsdóttur, og þeirra fólki, þó kirkjan hafi auðvitað notið vel- vildar margra velunnara með gjöfum og aðstoð við uppbygg- ingarstarfið. Hafi þau öll heila þökk sem að þessu stóðu svo vel og giftusamlega. Meðferðarheimilið á Staöarfelli Á Staðarfelli var um áratuga skeið starfræktur húsmæðra- skóli, sem starfaði með reisn og prýði fram á seinustu ár. En þá breyttust aðstæður í þjóðfélag- inu, eins og flestum er kunnugt, ungar stúlkur hættu að sækja húsmæðranámið til húsmæðra- skólanna, fengu þessa fræðslu með öðru móti eða hreinlega töldu þetta ekki þess virði að eyða í það heilum vetri, og breytt við- horf á jafnréttisöld hafa hér vafalaust einnig komið til, nú gætu karlar alveg eins eldað og því minni þörf á að mennta sig í faginu, en þeir blessaðir ekki reiðubúnir að fara í slíkt nám, þó lítillega bryddaði þó á því síðustu árin. Hefur því húsmæðraskólun- um fækkað verulega í því formi sem þeir voru reknir. En á Staðarfelli var húsakost- urinn fyrir hendi, og þar er nú rekið eftirmeðferðarheimili fyrir áfengissjúklinga á vegum SÁÁ. Er þar um merkilega starfsemi að ræða, og verður að segja eins og er, að þar er unnið líknar- og mannúðarstarf, sem ástæða er til að þakka. Forstöðumaður heimil- isins er Grettir Pálsson. Sem sóknarprestur kem ég oft á þetta stóra heimili, en vistmenn eru oftast um eða yfir þrjátíu talsins, og fylgist því nokkuð með starf- inu, auk þess sem ég hef reglu- legar guðsþjónustur meðal vist- manna. Eru slíkar stundir helg- aðar af þeirri náð Guðs, sem rétt- ir hinum fallna hönd sína og seg- ir: Rís þú upp. Ég gef þér kraft- inn, þú getur endurnýjað líf þitt, komdu til mín, ég mun rétta þér hönd mína og gefa þér nýtt líf, nýja von, nýja trú, betri daga. Staðarfellskirkja gegnir veiga- miklu hlutverki í starfsemi heim- ilisins, og mér er kunnugt um það, að vistmenn nota hana mikið til að nálgast Guð sinn og finna hjá honum þann styrk sem dugir í endurreisnarstarfinu. Gefi góð- ur Guð, að þetta starf megi blómgast og dafna í harðri bar- áttu við hinn stóra og sterka óvin, Bakkus gamla. Þar er því miður mikið verk að vinna. Vegaframkvæmdir Þeir, sem úti á landsbyggðinni búa, hljóta að hugsa mikið um samgöngur í sínu héraði, enda háðir þeim mjög með alla að- drætti og starfsemi alla. Segja verður það yfirleitt, að vegir hér í Dölum hafa verið langt frá því að vera góðir, og sú þjónusta, sem veitt er, er oft á tíðum langt frá því sem æskilegt gæti talist. En allt þokast þetta þó í rétta átt. Vegabætur í sumar í Dalahér- aði hafa verið allmiklar, unnið var við uppbyggingu vegar sunn- an Búðardals og suður fyrir Þor- bergsstaði og einnig á alllöngum vegarkafla í Hvammssveit og á Fellsströnd, frá Rauðbarðaholti og út fyrir Breiðabólsstað. Sömu- leiðis var unnið á Laxárdalsheiði og víðar. Við sem ökum strandir sem kallað er, þ.e. Skarðsströnd, Klofning, Fellsströnd og Hvammssveit, höfum fundið verulegan mun á því hvað vegur- inn hefur batnað mikið, og má þar þakka aukinni vegagerð, er ég áður nefndi, svo og því, að hörpuð möl hefur verið notuð til ofaní- burðar og bætir það eitt ótrúlega mikið ástand veganna og gerir aksturinn auðveldari og þægi- legri, og hafa menn meira að segja haft á orði, að sumir kaflar í Hvammssveit og á Fellsströnd séu eins og að aka á malbikinu syðra. Já, litlu verður Vöggur feg- inn. Þegar við hér í fásinninu sjá- um glætu, þá gleðjumst við eins og börn, jafnt á þessu sviði sem öðrum, og það mega forráðamenn Vegagerðarinnar vita, að við tök- um eftir því sem gert er og virð- um það að verðleikum, en nú er veturinn framundan, og þeir veg- ir, sem ekki eru komnir upp úr snjó, þurfa góða þjónustu í vetr- armokstri, og það er ekki sama hvernig að honum er staðið. Svínadalur, sem er afar erfiður farartálmi á vetrum, er mokaður einu sinni í viku, og þá þarf að vanda vinnubrögð vel, moka vel út sem kaliað er, svo meiri líkur séu á því að þetta endist lengur. Brögð voru oft að því á sl. vetri, að ekki var gengið nægilega vel frá snjómokstri, og hefndi það sín oft illa fyrir þá, sem áttu að njóta. Annars má benda á það, að með batnandi vegum kringum Strandir er engin frágangssök að fara þá leið, þegar Svínadalur er lokaður, en þá þyrftum við sem fyrst að fá nýjan veg á Tjalda- neshlíð, það er í rauninni eini kaflinn á allri þessari leið, þar sem eftir er að búa til veg, en þetta er aðeins vegarruðningur frá fyrstu tíð, og aðeins öðru hvoru betrumbættir verstu annmarkarnir. Þegar svo væri komið mætti vegasamband um Strandir teljast allgott, og þá um leið mætti rjúfa þá einangrun, sem því fylgir að búa á afskekkt- um stöðum. Við skulum vona, að þingmenn kjördæmisins taki þetta til vinsamlegrar og rögg- samlegrar athugunar. Rafmagnsmál Ég veit ekki, hvort ég hef þrek til að minnast á þau mál einu sinni enn. Það er málaflokkur sem okkur hér í Dölum og auðvit- að víða úti á landi er ærið erfiður. Stórkostlegur kyndingarkostnað- ur íbúðarhúsa er að ofgera fjár- hagsgetu manna og sliga getu þeirra og vilja til að búa þar sem ójöfnuðurinn er svo mikill sem raun ber vitni á þessu sviði. Jöfnun upphitunarkostnaðar verður að eiga sér stað í auknum mæli, því þótt ríkisvaldið hafi varið nokkrum fjárhæðum í þessa jöfnun milli landsmanna, þá hefur slík viðleitni horfið sjón- um manna í darraðardansi óða- verðbólgunnar, en e.t.v. sér þess meiri og betri stað, eftir því sem verðbólgan lækkar og betur tekst að hemja þjóðarskútuna. En ríkisvaldið verður, ef ekki á að verða stórkostleg röskun á byggðajafnvægi í landinu, að grípa til stórum öflugri aðgerða í þessum efnum en hingað til hefur verið gert, og þessi nauðsyn er þeim mun brýnni sem heimilin hafa minna úr að spila með sí- versnandi efnahag og þrenging- um á lífskjörum, sem óhjákvæmi- lega hafa orðið með kaupskerð- ingum og öðrum björgunarað- gerðum stjórnvalda. Það verður að leggja aukna áherzlu á jöfnun upphitunarkostnaðar, það hefur þegar hlotist byggðaröskun af þessari hrikalegu mismunun, sem á sér stað manna í millum, eftir því hvar þeir búa á landinu. En nóg um þetta að sinni. Við skul- um vona, að Sverrir orkumála- ráðherra sjái þetta með jafn glöggum og gagnrýnum augum og afurðamál sjávarútvegsins — og taki á málinu í fullri alvöru. Því þó stjórnvöld sletti í þetta nokkr- um milljónatugum þá er það eins og dropi í hafið, ef ekki er tekið á vandamálinu á raunhæfan hátt. Fársjúkum líkama gagnar lítið ein sprauta, þó hún lini kvalirnar lítið eitt — þá er meinið samt eftir ólæknað og heldur áfram að draga úr lífskraftinum. Menn vænta þess almennt, að á þessu máli verði tekið með ákveðnum aðgerðum, sem gera það að verk- um, að meiri jöfnun náist en nú er. Fleira mætti til tína í pistil þennan, en mál er að linni að sinni. Góðan Guð biðjum við að gefa okkur farsæla vetrartíð, og landi og þjóð aukna velgengni og meira jafnvægi á efnahagssviðinu og betri hag á komandi mánuðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.