Morgunblaðið - 09.11.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 79
FRÍ veróur að vinna mikið starf
svo ekki fari fyrir frjálsum
íþróttum eins og glímunni
Vidburöaríku keppnistímabili
frjálsíþróttamanna er nýlokiö og
framundan er ársþing landsam-
banda þeirra, FRÍ. i lok starfsárs
er eölilegt að litið sá yfir farinn
veg og skoðaö hvernig til hefur
tekízt. Undirritaöur hefur veriö
„innan búöar“ í Frjálsíþróttasam-
bandinu í þrjú ár og eftirfarandi
hugleiöingar byggöar á reynslu,
sem af því hefur hlotizt, og einnig
reynslu keppnismanns f 14 ár.
Niöurstaöan er sú aö margt megi
til betri vegar færa og aö nauö-
synlegt sé aö gera stórátak í út-
breiðslumálum. Og þaö er ekki
laust viö aö undirrituðum finnist
aö nýjan drifkraft vanti í störf
stjórnar FRÍ til aö gára vatnið og
hleypa af staö öldu nýrrar sóknar
til fyrri reisnar íþróttarinnar, sem
falliö hefur í skuggann fyrir knatt-
íþróttum.
íslenzkir frjálsíþróttamenn unnu
góö afrek á þessu ári og voru þjóö
sinni til sóma. i þessu sambandi
rifjast upp nöfn Einars Vilhjálms-
sonar, Óskars Jakobssonar, Þrá-
ins og Vésteins Hafsteinssona,
Þórdtsar Gísladóttur, Þorvaldar
Þórssonar, Odds Sigurðssonar,
Ragnheiöar Olafsdóttur, Jóns
Diðrikssonar, Lilju Guðmundsdótt-
ur, Sigurðar T. Sigurössonar,
Kristjáns Hreinssonar, Kristjáns
Haröarsonar, Bryndísar Hólm, Sig-
uröar Einarssonar, Ágústar Þor-
steinssonar og Sigfúsar Jónsson-
ar, aö öörum ólöstuöum.
Of langt mál yröi aö tíunda afrek
þessa íþróttafólks, en þaö er
vissulega umhugsunarefni aö lang-
flest voru þau unnin á erlendri
grund. Þungamiöja keppnistímans
er í útlöndum hjá nokkrum tugum
af landsins beztu frjálsíþrótta-
mönnum, sem þar dveljast rúma
níu mánuöi á ári hverju. Heim
koma þeir eftir langt og strangt
keppnistimabil, sumir hvíldinni
fengir.
Af þessum sökum eiga íþrótta-
áhugamenn þess aöeins kost aö
fylgjast meö afrekum þessa fólks
úr fjarlægð, lesa um þau í blöðum.
Þetta íþróttafólk sést vart í keppni
hér á landi í sumar, fyrst og fremst
vegna verkefnaleysis og mls-
heppnaðs mótaskipulags, og fátt
er gert til þess aö safna beztu
íþróttamönnunum á mót þegar
þeir dveljast hérlendis. Hér þarf aö
ráöa bót á t.d. meö einu eöa fleiri
vönduöum „úrvalsmótum", eins-
dagsmótum þar sem virkilega yröi
vandaö til hlutanna og þátttaka
alls bezta fólksins tryggö í völdum
greinum, m.a. til þess aö draga aö
áhorfendur, en þá hefur vantaö á
mótin síöustu árin, þar sem þau
hafa verið lítt aölaöandi. Fátt hefur
veriö gert til aö ráöa bót á þessu
meini, en þar á Frjálsíþróttasam-
bandiö auðvitað aö hafa forystu og
reyna drífa félög og sambönd meö
sér.
Liöur í þessu er aö skipuleggja
keppnistimabiliö betur og af meiri
fyrirhyggju en á sl. sumri, en þá fór
m.a. landskeppni viö Ítalíu fyrir
ofan garö og neöan vegna rangrar
niöurrööunar, sem varð m.a. til
þess aö mótin hér heima, á ári sem
menn vilja jafnvel kalla ár frjáls-
íþróttanna, voru lágkúra.
Lítil útbreiðsla
Undirritaöur telur þó aö eitt
brýnasta verkefni nýrrar stjórnar
FRÍ sé á sviöi útbreiöslu. Þar verö-
ur aö taka til hendi ef ekki á aö
fara fyrir frjálsíþróttunum eins og
glímunni. Þetta helgast af því aö
fremur hefja unglingar iökun frjáls-
íþrótta af tilviljun en vegna út-
breiöslustarfs FRÍ. Og ef ekki væri
fyrir einskæran áhuga nokkurra
einstaklinga víös vegar um land,
sem unniö hafa stórvirki í því aö
glæöa áhuga æskufólks fyrir frjáls-
íþróttum, værum víö illa á vegi
staddir.
Þannig steig stærstur hluti
landsliösmanna síöustu ára sín
fyrstu frjálsíþróttaspor í unglinga-
hlaupum, sem félög og sambönd
fundu upp á á öndveröum áttunda
áratugnum. Og flestir íþrótta-
mannanna, sem nefndir eru aö
framan, hófu frjálsíþróttaiökun
meö þessum hætti eöa fyrir tilvilj-
un. Hins vegar er í þessu fólki aö
finna eitthvert öflugasta áróöurs-
vopn sem nokkur stjórn FRÍ getur
fengiö í hendur og ætti þaö aö
auðvelda nýrri stjórn leikinn. Nán-
ast ekkert hefur verið gert af hálfu
stjórnar FRÍ til aö nýta þaö gífur-
lega tækifæri, sem hór hefur boö-
ist, til að kveikja áhuga æskufólks-
ins á frjálsíþróttum.
I þessu sambandi er vert aö
hafa í huga aö frjálsíþróttir eru vart
iökaöar á stórum og fjölmennum
svæöum landsins. Þannig eru
frjálsiþróttir ekki iökaöar á Akra-
nesi, í Garöabæ, á Reykjanesi, í
Vestmannaeyjum, á Akureyri, í
Siglufiröi eöa á isafiröi. i landsliöi
er engan að finna af svæðinu frá
Stykkishólmi til Sauöárkróks. Á
stórum svæöum takmarkast frjáls-
iþróttaiökun viö viku fyrir hér-
aösmót og hálfan mánuö fyrir
landsmót. Segir þetta mikla sögu
um viögang frjálsiþrótta í landinu.
Iðkun í einhverjum mæli er aöeins
í Reykjavík, þó alltof lítil þar, í
Kópavogi, Hafnarfirði, í Borgar-
firði, Húnavatnssýslum, á Aust-
fjöröum, þar sem vel er starfaö, á
Suöurlandsundirlendinu og Sel-
fossi.
Auka þarf þekkingu
þjálfara
Stjórn FRÍ hefur þvi mikiö verk
aö vinna aö þvi aö auka og efla
útbreiöslu frjálsíþróttanna. f þessu
sambandi þarf aö stórefla ungl-
ingastarfið svo aö æskufólkiö
flykkist í frjálsíþróttafélögin. Búa
þarf vel að unga fólkinu og sýna
þvi áhuga og tillitssemi. Hvetja
þarf þaö með ýmsum hætti og
veita því aöhald. Nóg er af ungu
fólki sem gæti náö langt á íþrótta-
brautinni, og þarf aö búa þvi um-
hverfi til aö þroska hæfileika sína
og fá útrás fyrir eölilegan metnaö.
Einnig þarf aö taka upp mark-
vissa stefnu og aðgerðir í þjálfun-
armálum, sem setið hafa á hakan-
um lengi. Aukin þekking er for-
senda framfara. Brotiö hefur verið
blaö í fræðslumálum FRÍ með út-
gáfu tímarits um þjálfun og meö
útgáfu kennsluefnis fyrir leiöbein-
endur. Þar er þó aðeins um byrj-
unarstarf aö ræöa og halda veröur
sókninni á þessu sviöi áfram, því
nauösynlegt er m.a. aö mennta
leiðbeinendur svo hægt sé aö
fylgja öflugu útbreiöslustarfi eftir.
Ennfremur þarf aö auka þekk-
ingu þeirra þjálfara og leiöbein-
enda sem fyrir eru með markvissri
endurmenntun. Þjálffræöiþekking
er í minna lagi, meö örfáum und-
antekningum þó, og því veröug
verkefni sem bíöa í þessum efnum.
Skokkarar útundan
Þá er annað mikilvægt sviö sem
alveg hefur veríð vanrækt af FRÍ,
en þaö er aö hvetja hinn almenna
borgara til heilsubótartrimms.
Heilsubótarskokk hefur breiöst út
af miklum krafti allt í kring um
okkur, undir forystu frjálsíþrótta-
sambanda viökomandi landa, og
eru fordæmin þvi næg. Bjóöa þarf
skokkara og trimmara velkomna
og gefa þeim kost á keppnum þar
sem þeim er gert a.m.k. jafn hátt
undir höföi og keppnismönnunum.
Meö því aö gefa skokkurum og
trimmurum aukinn gaum, konum
sem körlum, ungum sem öldnum,
mundi skapast aukinn velvilji
þessa hóps í garö íþróttarinnar og
jafnvel áhugi til aukínnar þátttöku í
félagsstarfi, sem býr viö mikinn
skort á starfskröftum, eöa að
sækja frjálsíþróttamót. Skokkara-
hópurinn er stór og afl þeirrar
straumþungu elfu óbeizlaö.
Afreksmenn á eigin spýtur
Afreksfólkiö, sem aö framan er
nefnt, hefur sýnt ungu fólki fram á
hvert hægt er aö ná ef rækt er lögö
viö æfingar. Engum dylst sú nauö-
syn sem er á þvt aö eiga afreks-
menn, þar sem góö afrek þeirra
vekja áhuga unglinga og almenn-
ings á íþróttinni. Afreksmenn und-
anfarinna ára hafa brotist á tindinn
af eigin rammleik fyrst og fremst.
Þeir hafa fyrst og fremst oröiö aö
treysta á sig sjálfa í allri uppbygg-
ingu og þjálfun. Hér er breytinga
þörf og skapa veröur þeim betra
umhverfi til aö iöka íþrótt sína.
Ferill þeirra er lengri en fjögurra
ára vist viö bandaríska háskóla.
Þaö þarf aö skipa svo málum aö
viökomandi geti átt von á aö hljóta
einhvern stuöning ef hann nær til-
teknum árangri, því vonin um
umbun hvetur íþróttamanninn til
aö leggja örlítiö haröar aö sér.
Nægur efniviður er fyrir hendi en
stefnuleysi í þessum efnum hefur
staöið í vegi fyrir því aö viö höfum
eignast fleiri afreksmenn.
i þessu sambandi er stefna
ólympíunefndar hvaö snertir lág-
mark til þátttöku í Ólympíuleikjun-
um í Los Angeles sárgrætileg.
Nefndin hefur markað þá stefnu aö
láta ekkert lágmark gilda þótt t.d.
frjálsíþróttamenn vilji þaö eindreg-
iö. Þannig hafi þeir eitthvaö til aö
stefna aö og sigrast á, tilbúnir til
aö sætta sig viö aö vera ekki valdir
til leikanna ef lágmarksárangur
næst ekki á tilskildum tíma. Nefnd-
in hefur kosiö aö halda öllum í
óvissu fram á síöustu stundu, sem
auðvitaö er mjög óæskilegt og
• Ágúst Ásgeirsson
ekki samkvæmt vilja íþróttamann-
anna.
Nauðsyn fasts starfskrafts
Ýmislegt sem hér hefur veriö
nefnt krefst mikillar vinnu og sam-
eiginlegs átaks margra handa. Og
litlu veröur komiö (verk nema ráö-
inn veröi starfsmaöur á skrifstofu
FRÍ í fullt starf. Myndu starfskraft-
ar áhugamanna nýtast miklu betur
ef starfsmaður væri á skrifstof-
unni. Hefur sambandiö ekki efni á
því aö vera án fasts starfskrafts.
Slíkur maöur gæti einnig auöveld-
aö allt starf á sviöi fjáröflunar, sem
á undanförnum þremur árum hefur
einkennst af óraunsæi. Meiri festa
fengist einnig i störf stjórnarinnar
ef starfsmaöur væri fyrir hendi.
Undtrrituðum hefur í stórum drátt-
um fundist markmiö og stefnu
skorta í ýmsum málum og tíminn
illa nýttur, en ein skýring á þvf síö-
asttalda er mismunandi virkni
stjórnarmanna.
Breytt skipulag
Undirritaöur er þeirrar skoðunar
aö gera þurfi breytingar á starfsári
stjórnar FRi. Núverandi skipulag
miöar viö ársþing í nóvemberlok,
en nær væri aö færa þaö fram í
septemberlok. Keppnistímabilinu
er nánast lokið um mánaöamótin
ágúst/september og hafa haust-
mánuöirnir september, október og
nóvember veriö eins konar tóma-
rúm, þar sem stjórnin hefur legiö
meira og minna i dvala. Reyndar
finnst undirrituöum vetrarmánuð-
irnir langt frá því aö vera nógu vel
nýttir til undirbúnings fyrir sumar-
starfiö, en þaö mundi bæta veru-
lega úr aö hafa fastan starfsmann
á skrifstofunni.
Keppt án metnaöar
Loks telur undirritaöur þörf
nýrra viðhorfa í samskiptum viö
aörar þjóöir. Lítið samhengi hefur
veriö í erlendum samskiptum og
oft veriö samið um keppnir fyrir-
hyggjulítiö. Þátttaka i keppnum í
útlöndum hefur og veriö án
markmiöa og reisnar. Metnaöur
sambandsins á því sviöi hefur nán-
ast enginn veriö. Engu hefur skipt
hver frammistaöan yröi og kepp-
endum ekki veitt aöhald til aö út-
koman yröi eins góö og kostur
væri.
Hér hefur veriö drepiö á nokkra
þætti í starfi Frjálsíþróttasam-
bands íslands, sem undirrituöum
hefur þótt betur mega fara og á
aöra drepið, þar sem nauösyn er
nýrra starfshátta. Er þaö skoöun
undirritaös aö mikil og veröug
verkefni bíöi nýrrar stjórnar. I grein
sem þessari er þó vart hægt aö
gera hiutunum fullnægjandi eöa
tæmandi skil. Hér er fyrst og
fremst um hugleiöingar aö ræöa,
sem þó ættu aö sýna, aö nýrri
stjórn FRÍ er mikill vandi á hönd-
um, vandi sem menn vonandi vaxa
með og vaxa af.
Ágúst Ásgeirsson
Frlðlsar (brótllr
v------------------
• Frá Evrópukeppni landsliða í frjálsum íþróttum í írlandi en þar keppti landslíð Islands.
Morgunblaðiö/Þórarinn Ragnarsson