Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 16
tonr rirrrr i m rrTrr\ ( mtnrrrri»f rrrrr » rrrTrrrr\rjr\tr
r
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984
Jazzballettskóli Kristínar
6 vikna vornámskeiö byrjar fimmtudaginn 26. apríl í
leikfimisal Langholtsskóla v/Holtaveg og miöviku-
daginn 2. maí í Nes-Sól, Austurströnd 1, Seltjarnar-
nesi. Mjög alhliöa kennsla bæöi einu sinni og tvisvar
í viku fyrir alla aldurshópa.
Börn frá 7 ára aldri.
NES
Innritun í síma 17020.
Langholtsskóla:
söl Innritun í síma 39160 eftir kl. 2 á daginn.
Kristín Svavarsdóttir
I
Bindindisfélag
f|||| ökumanna
Reykjavíkurdeild
I
heldur góöaksturskeppni laugardaginn
28. apríl nk. Hefst viö Templarahöllina
kl. 14.
Skráning keppenda fer fram í síma
83533, fimmtudag og föstudag kl. 9-17.
Húsavík:
Blíðviðri og mikið
að vera um páskana
Kirkju-
sókn góð
um páska
Kirkjusókn á nýafstaðinni
páskahátíð var góð, að sögn
séra Bernharðs Guðmunds-
sonar, blaðafulltrúa Þjóð-
kirkjunnar. Sagði hann að á
milli 300 og 400 guðsþjón-
ustur hefðu farið fram á
landinu og þess hefði verið
dæmi að prestar hefðu mess-
að allt að níu sinnum yfir há-
tíðina.
Séra Bernharður kvað messu-
stöðum í Reykjavík hafa farið
fjölgandi á undanförnum árum og
nú um páskana urðu messustaðir
fleiri utan kirkna en í þeim, það er
á spítöium, elliheimilum, i fang-
elsum og fleiri stöðum. Einnig
hefði verið mikið um guðsþjónust-
ur utan hefðbundins messutíma
og víða hefðu helgivökur verið
haldnar bæði á skírdagskvöld og
að kvöldi föstudagsins langa. Enn-
fremur hefði sá siður farið vax-
andi að halda guðsþjónustur að
morgni páskadags og þá oft með
safnaðarkaffi að lokinni messu.
Þá hefðu kirkjur sums staðar ver-
ið sérstaklega útbúnar til að
minnast páskana. Til dæmis var
allur altarisbúnaður fjarlægður í
kirkjunni á Sauðárkróki og í hans
stað settur upp trékross til að
minnast krossfestingarinnar.
Húsavík, 24. apríl.
GOTT veður var i Húsavík alla
páskahelgina. Úrfellid sem var vestan-
til á Norðurlandi náði ekki til Húsa-
víkur. Margt aðkomufólk var í bæn-
um og ýmislegt fyrir það að sjá og
heyra. Leikfélag Húsavíkur frum-
sýndi fyrir fullu húsi sjónleikinn
Sölku Völku eftir Laxness undir leik-
stjórn Maríu Kristjánsdóttur og var
þeirri sýningu mjög vel tekið.
Friðarhópur Húsvíkinga hélt
velsótta fjölskylduhátíð í félags-
heimilinu á laugardag undir kjör-
orðinu „Fyrir frið gegn kjarnorku-
búnaði og allri stríðsógnun í heim-
inum“. Ávörp fluttu: Sveinn Rúnar
Hauksson, læknir, Guðlaugur Aðal-
steinsson, sérleyfishafi, Kolbrún
Jónsdóttir, alþingismaður, og séra
Björn H. Jónsson.
Að vanda settu fermingarguðsþjónustur svip sinn á helgihald páskanna.
Þessi mynd var tekin ( Hallgrímskirkju á annan í páskum.
Fá umferðaróhöpp
MIKIL umferð var á þjóðvegum
landsins um helgina að sögn
Tryggva Ólafssonar hjá umferðar-
ráði.
Mest var umferðin á suðvest-
urhorni landsins til og frá Reykja-
vík um suður- og vesturland. Að
sögn Óskars Ólasonar yfirlög-
regluþjóns var lítið um óhöpp í
Reykjavík, en 30 voru teknir
ölvaðir við akstur sem mun vera
óvenjulega mikið.
Á Akureyri slasaðist piltur á
mótorhjóli og fimm meiddust er
bifreið var ekið á staur.
Guðmundur Björgvinsson, list-
málari frá Reykjavík, sýndi olíu-,
pastel- og akrýlmyndir í Safnahús-
inu og Hrönn Eggertsdóttir frá
Akranesi sýndi 50 glermyndir í
Barnaskólanum og voru þessar sýn-
ingar báðar vel sóttar.
Samgöngur í lofti og á láði gengu
samkvæmt áætlun og er hér besta
verður f dag, hláka og sunnan gola.
— Fréttaritari.
OFNASMIDJA NORÐURLANDS, ONA HEFUR NÚ FLUTT
STARFSEMISÍNA AÐ FUNAHÖFDA 17, REYKJAVÍIC
ONA SÉRSMÍÐAR RUNTAL OFNA ÚR 1,5-2,0 MM STÁLI
RUNTAL OFNARNIR FRÁ ONA ERU ÞYKKUSTU
STÁLOFNARNIR Á ÍSLENSKA MARKAÐNUM.
KOMHD OG LEITHD TILBOÐA Á SKRIFSTOFU OKKAR
FUNAHÖFDA 17, REYKJAVÍK, SÍMAR 82422 og 82980.
OFNASMÐJA NORÐURLANDS
FUNAHÖFÐA 17-v/ÁRTÚNSHÖFÐA
SÍMI82477 - 82980 -110 REYKJAVÍK
Felagsmálastofnun Reykjavíkurfeórgar
Vonarstræti 4 — Sími 25500
Heimili óskast
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar eftir aö
komast í kynni viö fjölskyldu í Reykjavík sem er tilb.
til þess aö veita ungri móöur og barni hennar hús-
næði og stuöning.
Þeir sem áhuga hafa fyrir þessu starfi vinsamlegast
leggi inn nöfn sín á augld. Mbl. fyrir 3. maí nk. merkt:
„Heimili — 188“.
Auglýsing
Enskunám í Englandi
i oxhom iioiini:
sniooi.
Ol' IMJSH
.. . er góöur skóli í West-
gate á SA-horni Englands.
Persónuleg samskipti og
hressilegur andi tryggir
árangursríkt enskunám.
Takmarkaöur fjöldi íslend-i
inga fær aðgang aö skól-
anum í senn, þannig næst
betri árangur.
Boöið er upp á margvísleg
námskeiö við hæfi og
áhuga hvers og eins.
Stutt er til London,
baöströndin er góð og
umhverfið er eitt það feg-
ursta, enda í „aldingarði"
Englands — Kent. Til
Frakklands er aðeins
40—50 mín. sigling.
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Theodórsdóttir s.
66939.