Morgunblaðið - 05.06.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.06.1984, Blaðsíða 28
 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 1984 Minning: Brynjar Valdimars- son yfirlœknir Fæddur 19. júní 1930 Dáinn 26. maí 1984 Brynjar Valdimarsson, yfir- læknir Kristnesspítala, er allur. Hann lést í svefni aðfaranótt 26. maí sl. Varð bráðkvaddur. Hann hafði i nokkuð mörg ár búið við skerta líkamsheilsu, en andlátið kom þó óvænt og án nokkurrar viðvörunar. Við, sem umgengumst hann daglega, höfum einmitt haft á orði að undanförnu, á þessu óvenjugóða og hlýja norðlenska vori, hve létt og bjart var yfir Brynjari síðustu vikurnar. Alveg sérstaklega heilsaði hann komu farfuglanna og fagnaði hverju nýju lífi jafnt í dýra- sem jurta- ríkinu. Honum bættist meira að segja eitt barnabarn, og varð það eins og til að kóróna sköpunarverk þessa vors. Eftir á að hyggja sýn- ist næstum allt hafa lagst á eitt með að nesta Brynjar sem best til sinnar hinstu og mestu ferðar. Við hinir verðum nú um hríð að sjá um styttri vegalengdir án hans og annast okkar gönguferðir sjálfir. Brynjar var fæddur á Akureyri 19. júní 1930, ólst upp þar og í Eyjafirði. Foreldrar hans voru Valdimar Antonsson og Áslaug Jóhannsdóttir, eyfirskir stofnar af traustari gerð. Leið Brynjars lá síðan gegnum Menntaskólann á Akureyri og Háskóla íslands. Eft- ir læknisfræðinám og tilskilinn tíma á öðrum sjúkrahúsum hóf hann aðalævistarf sitt að Krist- nesi 1962 og starfaði þar óslitið síðan utan 1 ár á Borgarspítala 1975. Hann kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Dagbjörtu Em- ilsdóttur, 1956, og eignuðust þau tvö börn, Guðmund Hrafn og Ás- laugu Herdisi. Brynjar lét sér mjög annt um velferð sinna nán- ustu og var góður faðir barna sinna jafnt sem barna eiginkonu sinnar af fyrra hjónabandi. Ein- stök greiðasemi hans kom og víða að góðu gagni í byggðarlaginu, eins og mörgum er kunnugt, en verður ekki rakið nánar hér. Það er ekki hægt að kveðja Brynjar án þess að fara nokkrum orðum um Kristnesspítala. Fram- tíðarhlutverk spítalans er í athug- un hjá stjórnvöldum og línur að skýrast hægt og hægt. Sú bið- staða, sem nú er uppi, er þegar orðin of löng og erfið. Það er von mín og var óskadraumur Brynjars fyrir hönd þessarar stofnunar, að vegur hennar og virðing verði auk- in og þjónustuhlutverkið eflt í framtfðinni, þó að illa líti út í bili vegna samdráttar ríkisútgjalda. Róðurinn kann að verða þungur, en með samvinnu komast jafnvel hin erfiðustu mál í höfn. Öll ósamstaða, hvar og hvernig sem hún birtist, var Brynjari sérstak- ur þyrnir í augum. Hann á það inni hjá okkur, sem nú tökum upp þræðina, að hvergi verði slakað á um samstöðu og ekkert látið liggja laust í böndum, sem snertir starf- semi spítalans í bráð og lengd. Vandamönnum, skyldmennum og vinum hins látna votta ég dýpstu samúð mína og minna. Að lokum: Kær vinur, félagi og starfsbróðir er kvaddur. Margs er að minnast, og verður farið nánar í það síðar, þegar timi gefst. Hann var ætíð öðlingur. Brynjólfur Ingvarsson Á björtum vormorgni dró skyndilega ský fyrir sólu er mér barst fregnin um lát míns ágæta vinar Brynjars Valdimarssonar, yfirlæknis í Kristnesi, sem lést í svefni aðfaranótt 26. maí síðast- liðinn tæplega 54 ára að aldri. Allt frá bernskudögum höfðum við þekkst, er við lærðum sund í Hrafnagilslauginni hjá Jónasi frá Brekknakoti, en vináttuböndin voru þó fyrst hnýtt á okkar menntaskóla og háskólaárum, þar sem við nutum saman óteljandi gleði og ánægjustunda. Við völd- um okkur viðfangsefni hvor á sínu sviði, og eðlilega fækkaði nokkuð samverustundum þegar námi lauk og hvor um sig þurfti að sinna sinni atvinnu og stofnaði sitt heimili. Áfram ríkti þó einlæg vinátta okkar f milli og var það ekki síst að þakka sérstöku trygg- lyndi Brynjars. Þar var alltaf sama ljúfa viðmótinu að mæta, þegar við hittumst. Brynjar Valdimarsson var fæddur á Akureyri hinn 19. júní 1930 sonur hjónanna Áslaugar Jó- hannsdóttur frá Garðsá í öngul- staðahreppi og Valdimars Antons- sonar frá Finnastöðum í Hrafna- gilshreppi, sem bæði eru látin. Á þessum tíma voru þau hjón búsett á Akureyri en skömmu síð- ar tóku þau á Ieigu jörðina Espi- hól eða Stórhól eins og hún er að jafnaði nefnd í Eyjafirði. Þar bjuggu þau myndarbúi um árabil, en fluttu síðar að Litla-Hvammi í sömu sveit og loks aftur til Akur- eyrar árið 1945. Brynjar var alinn upp á miklu menningarheimili, þar sem oft var margt manna í heimili og unnið af dugnaði og alúð að bústörfunum. Hann var næst elstur fjögurra systkina. Elstur var Aðalsteinn sem lést 1979, en yngri eru systk- inin Ragnheiður og Anton, bæði búsett á Akureyri. Að loknu barnaskólanámi f Hrafnagilshreppi hóf Brynjar nám við Menntaskólann á Ákur- eyri og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1950. Um haustið innritaðist hann í Læknadeild Háskóla ís- lands og útskrifaðist þaðan árið 1961. Á námsárum sínum vann Brynjar að sumrinu við ýmiskonar verkamannavinnu sem bauðst, m.a. vann hann nokkur sumur f síldarverksmiðju á Raufarhöfn og þar kynntist hann lífsförunaut raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar húsnæöi óskast Skrifstofuhúsnæði óskast Óska eftir ca. 80—120 fm skrifstofuhúsnæði til leigu. Þarf að vera laust strax eða fljótlega. Æskileg staðsetning, austurbærinn í Reykja- vík. Upplýsingar í síma 76040. Einbýlishús eöaraðhús óskast til leigu á Stór-Reykjavíkursvæðinu sem fyrst eða fyrir 15. september. Upplýsingar í síma 46167. íbúð óskast til leigu f Kópavogi Leitum aö 3ja — 4ra herbergja íbúö til leigu fyrir starfsmann. íbúðin þarf aö vera laus fljótlega. Fyrirframgreiðsla eftir samkomu- lagi. Byggðaþjónustan Nýbýlavegi 22, Kópavogi. Sími 41021. Til sölu á Siglufirði Einbýlishúsið Túngata 28. Húsið sem er steinsteyptur kjallari meö tveim herbergjum ásamt geymslum og bakinngangi. Miðhæö úr timbri, járnklædd. Stofa, gangur, eldhús og bað. Rishæö meö kvistum 3 herbergi. Hita- veita. Stór lóð og steypt gata. Tilboöum sé skilað til undirritaðs fyrir 15. júní nk. sem gefur nánari upplýsingar. Friörik Stefánsson, Túngötu 28, 580 Siglufiröi. Sími 96-71626. Verslunarhúsnæði til sölu Til sölu verslunarhúsnæöi, miðsvæðis í Reykjavík, sem er á tveim hæðum þ.e. kjall- ari og hæö 2x160 fm. í kjallara eru rúmgóöar kæli- og frystigeymslur. Húsnæðiö fæst á góðum kjörum eða í skiptum fyrir ódýrari eign eöa bíl. Eignahöllin 28850-28233 Fasteigna- og skipasala Skúli Ólafsson Hilmar Victorsson viöskiptafr Hverfisgötu 76 Súðavík Til sölu einbýlishús aö Aðalgötu 28, Súöavík. Uppl. í símum 666841 — 36541. Auglýsing um iðngarða Reykholtshreppur auglýsir til leigu húsnæði í iöngöröum. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 93- 5115 kl. 13.00—17.00 til 10. júní. Reykholtsdalshreppur. Til leigu er 3ja hæð í nýbyggingu í Skeifunni. Hús- næðið er 250 fm og leigist í einu lagi. Innrétt- ingaóskir eftir samkomulagi. Tilboöum sé skilað í pósthólf 4094 merkt: „Góð bílastæöi". Bifreiða- og búvélaverk stæði í Borgarfirði til leigu með öllum vélaútbúnaöi. Upplýsingar í síma 93-5115 næstu daga. í < i f. **«*.«** |>fc Hvaðer^ Hyaðer ^ n lí'Sö án 1*6 «5 ||t éstar? . aSta . n, stegg Sexy steggir', Sexy stegt Sexyst gg od,húsr Ekkl sæmandi Jprt saemandi Hefur þú séð Nýtt líf? Nýtt líf er komiö út stútfullt af skemmtilegu og lifandi efni. M.a.: Hvaö er lífið án ástar — viötal viö Ingólf Guöbrandsson. Opinská viötöl viö Bergþóru Árnadóttur og Ragnhildi Gísladóttur. Heim- sókn til Helgu Hansen í Chicago. Sagt frá Suzanne Brögger, „Sexý steggjum" í Ameríku, heimili Láru » Best og fl. Smásagan heitir „Kynfæra-ilmúöi“ og auövitaö er dagbókin og afmælisbarniö á sínum staö auk hins sívinsæla og glæsilega tískuþáttar. Nýtt líf er lifandi og skemmtilegt blaó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.