Morgunblaðið - 05.06.1984, Síða 29

Morgunblaðið - 05.06.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 5. JÚNl 1984 33 sínum, Dagbjörtu Emilsdóttur frá Akureyri. Þau giftu sig 14. júní 1956. Börn þeirra eru Guðmundur Hrafn, verslunarmaður á Akur- eyri, og Áslaug Herdís, sjúkraliði í Ólafsfirði. Þau eru bæði gift. Eldri börnum Dagbjartar var Brynjar sem góður faðir. Að loknu námi í Reykjavík hélt Brynjar aftur norður í átthagana, þar sem hann undi sér ætíð best í faðmi eyfirskra fjalla. Fyrst í stað bjó fjölskyldan á Akureyri, en flytur árið 1964 að Kristnesi, en hann hafði þá fyrir nokkru verið ráðinn aðstoðarlæknir við Krist- neshæli. Þar starfaði hann alla tíð síðan, utan nokkra mánuði sem hann dvaldi og starfaði í Reykja- vík. Oft á þessum tímabili gegndi hann starfi yfirlæknis í forföllum, en frá síðustu áramótum var hann ráðinn yfirlæknir Kristnesspítala. Brynjar var maður fremur stór vexti, feitlaginn, svipfagur með dökkt liðað hár, sem nokkuð var farið að grána. Hann gat verið fastur fyrir, þegar hann þurfti að verja sitt mál, en var mikili geð- prýðismaður og ljúfmenni í allri umgengni, ræðinn og skemmtileg- ur. Það var gott að vera í návist hans. Oft leitaði ég til hans ef mér lá eitthvað við og hlaut ætíð ein- staklega góðar móttökur á heimili þeirra hjóna. Brynjar var mikill dýravinur og náttúruunnandi og hafði yndi af ferðalögum. Hann iðkaði mikið gönguferðir og var þá oft einn á ferð með Snata, vini sínum. Hann var bókelskur og víðlesinn og átti mikið safn góðra bóka, en einkum hygg að hann hafi haft ánægju af fagurbókmenntum og setti sig ekki úr færi að kynna sér ný skaldrit, sem á markaðinn komu. Brynjar var einstaklega barn- góður og börnin hans og heimili voru honum fyrir öllu. Litla dótt- urdóttirin var augasteinn afa síns og margar gleðistundir áttu þau saman. I síðasta sinn er við áttum tal saman í síma í fyrri hluta maí- mánaðar, sagði hann mér að nú hefði hann einnig eignast litla sonardóttur og gleðin í rödd hans leyndi sér ekki. Mér er mikill söknuður í huga við fráfall vinar mfns, Brynjars Valdimarssonar, en þákklátur fyrir að hafa fengið að njóta vin- áttu og samvista við svo góðan dreng. Við Sigrún og fjölskyldan öll vottum Dagbjörtu, börnunum og öðrum ástvinum Brynjars innilega samúð og biðjum Guð að blessa þau í sorg þeirra. Valgarður Baldvinsson. Kveðja frá starfsfólki Kristnesspítala. „Allt er í heiminum hverfult". Starfsfólk Kristnesspítala var óþægilega minnt á sannleik þess- ara orða laugardagsmorguninn 26. maí sl. Nóttina á undan hafði yfir- læknir spítalans, Brynjar Valdi- marsson, látist. Birta og fegurð þessa fagra vors var ekki söm um stund. Myrkur dauðans og birta vors og gróanda eiga ekki samleið. Þó varð að lúta staðreyndum og játa mannlegt skilningsleysi gagnvart lögmáli lífs og dauða. Brynjar Valdimarsson var öll- um sem honum kynntust einkar kær. Meðfædd hógværð og hlýleiki gerðu hann fremur að föðurlegum vini en ströngum yfirmanni. Hann lét sér annt um starfsfólk ekki sfð- ur en sjúklinga og vildi gjarnan vita deili á hverjum og einum, enda ættfræði eitt af hans áhuga- málum. Hann var fróður maður og vel lesinn f vfðum og góðum skiln- ingi þess orðs. Aðaláhugamál Brynjars var þó starfið og staður- inn, sem hann helgaði nær alla sína starfsævi. Hann vildi veg og virðingu þessarar gömlu og góðu stofnunar, sem mestan. Og tákn- rænt má það heita, að þegar yfir lauk, var Brynjar í „fríi“ þótt daglega kæmi hann til starfa sinna, sem áður. Góður drengur er kvaddur með trega. Ástvinum hans er vottuð innileg samúð og þess beðið að skugginn megi vfkja fyrir birtu og yl minningarinnar um öðlings- mann. NORÐDEKK hetlsóluð radiaí dekk, íslensk fratnletðsla. Framleiðandi Gúmmívinnustofan hf, Réttarhálsi 2, R. Við tökum fulla ábyrgð á okkar framleiðslu Umboðsmenn um allt land Reykjavík Gúmmívinnustofan hf, SKIPHOLTI 35. s.31055 & 30360 Gúmmívinnustofan hf, RÉTTARHÁLSI 2. s.84008 & 84009 Höfífadekk hf, TANGARHÖFÐA 15. s.85810 Hjólbarðastöðin sf, SKLIFAN 5. s.33804 Hjólbarðahöllin, FELLSMULA 24. s.81093 Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, HÁTÚNI 2a. s. 15508 Hjólbarðaverkstæði Jóns Olafssonar, ÆGISSÍÐU. s.23470 Holtadekk sf, BJARKARHOLTI, s.66401 Landið Hjólbarðaverkstæði Björns, LYNGÁS 5, RANG. s.99-5960 Kaupfélag Árnesinga, SELFOSSI, s.99-2000 Vélaverkstæði Björns og Kristjáns, REYÐARFIRÐL s.97-4271 Ásbjörn Guðjónsson,STRANDGOTU 15a, ESKIFIRÐL s.97-6337 Hjólbarðaverkstæði Jónasar, ÍSAFIKÐL s.94-3501 Hjólbarðaþjónustan, HVANNAVÖLLUM 14b, AKUREYRL s.96-22840 Smurstöð SheU - 01is,FJÖLNISGÖTU 4a, AKUREYRL s.96-21325 Bifreiðaverkstæði Ragnars Guðmundssonar, SIGLUFIRÐL s.96-71860 Dagsverk, VALLAVEGI, EGILSSTÖÐUM. s.97-1118 Hjólbarðaviðgerðin hf, SUÐURGÖTU 41, AKRANESL s.93-1379 Hjólbarðaþjónustan, DALBRAUT 13, AKRANESL s.93-1777 Bifreiðaþjónustan hf, ÞORLÁKSHÖFN. s.99-3911 Aage V Michelsen, HRAUNBÆ, HVERAGERÐL s.99-4180 Bifreiðaverkstæði Bjama, AUSTURMÖRK IL HVERAGERÐL s.99-4535 Aðalstöðin hf, H^FNÁRGÖTU 86, KEFLAVÍK. s.92-1516 Jteynir sf, IJNJÚKABYGGD 31, BLÖNDUÓSI, s.95-4400_ ÞÓRÁ DÁL. AUGLYSINOÁSTOFA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.