Alþýðublaðið - 31.10.1931, Blaðsíða 2
ALÞ ÝÐUBliAÐIÐ
Uppsogn
Spánarsamningsins.
„Að ósi skal á stemma“.
Jónas dómsmálaráðherra getur
þess í gre.vn sinni í „Tímanum"
út af síðkvöldavínsöluleyfinu, er
hann hefir veitt Jóhannesi á Borg,
að nú orðið verði að vinna með
nýjum ráðum á móti áfengisböl-
inu. Pað er alveg rétt. Hér á við
orðtakið forna: „Að ósi skal á
stemma.“ Pað þarf að stífla upp-
tök áfengisflóðsins. Þjódin parf
aa losna vio Spánarvínin.
Sumir spyrja ef til vill: Er
það til nokkurs? Mun þá ekki
verða þeirn mun mieira bruggað
í landinu eða smygJað og selt í
laumi? — Það er langt frá að
hætta sé á því. Pað er einmitt
sérstaklega í s-kjóli Spánarvín-
anna, sem nú er hægt að fela
annað áfengi. Ef þau væru ekki
til þess að hafa í blóra, þá væri
hundrað sinnum auöveldara fyrir
löggæzlumenn að korna upp
smyglun og bruggi, þvi' að á-
fengið segir venjulega til sín, þar
sem það er haft um liönd. Með-
an hér var undanþágulaust að-
flutningsbann á áfengi, þvarr
drykkjuskapur mjög í landinu.
Með Spánarvinasamningnum óx
áfengisnautnin, svo sem alkunna
er. Áður var það mjög fátítt, að
konur neyttu áfengis. Óhappa-
verk hinna 40 þingmanna frá
1923 hefir leitt til þess, að þar er
nú orðin talsverð breyting á. —
Þegar Spánarsamningurinn var
samþyktur á alþingi að þjóðinni
fornspurðri var því óspart hald-
ið fram, að óhjákvæmilegt hefði
verið að ganga að honum vegna
saltfisksmarkaðarins á Spáni.
Með einhverju varð að verja
gerðir hinna 40 franuni fyrir
þjóðinni! En þeir, sem ekki hafa
áður séð gagnsleysi Spánarsamn-
ingsins til þess að bjarga við
fiskmarkaði íslendinga, ættu að
minsta kosti að geta séð það nú,
J
að hann hefir ekki bjargað. —
Þegar borgarafundirnir voru
haldnir hér í haust til að mót-
mæla síðkvölds-vínvedtingaleyf-
inu í gistihúsinu „Borg“, lét
„Timinn“ á sér skilja, að tillögur
Davíðs Árnasonar rafvirkja hef ðu
verið það eina, sem verulegu máli
skifti. Þær væru áskorun á rík-
isstjórnina um að afnema til
fullnustu vínveitingaleyfi í veit-
ingahúsum og -segja tafarlaust
upp Spánarsamnángnum. — Vill
pá „Tíminrí1 og peir, sem ad hon-
um standa, studla ad pví, að peita
verdi gert? Framkvæmdirnar
skifta mestu máli.
Vill Jónas dómsmálaráðherra,
sem greiddi árið 1923 ásamt Jóni
Baldvinssyni, sem þá var eini full-
trúi Alþýðuílokksins á alþingi,
atkvæði gegn Spánarsamningnum,
— vilJ J. J- nú, þegar hann er
orðdnn ráðherra, flytja þingsálykt-
unartillögu á næsta alþingi um
nppsögn Spáncirvitmsamningsins,
— flytja hana sem dómsmálaráð-
herra?
Þetta er hið nýja ráð, sem þarf
til þess að vinna á móti áfengis-
bölinu á islandi, — afnám Spán-
arvína-innflutningsins. —
Uppsögn hins þjóðskaðlega
samnings um Spánarvínin er alls
engin yfirlýsing um, að íslending-
ar vilji ekki semja við Spánverja
á öðrum grundvelli. Síður en
svo. Sþánverjar eru nú sjálfir ný-
búnir að velta af sér harðstjórnar-
oki, og þess vegna er sérstök
ástæða til að vænta þess, að þeir
skilji nú og viðurkenni rétt smá-
þjóðar og að lýðveldisstjórnin
óski ekki að feta í fótspor ein-
ræðisstjórnaTÍnnar um að traðka
rétti vorum, — ef krafan um inn-
flutning Spánarvínanna hingað
hefir þá átt fyrstu upptök sín
meðal spænskra manna.
Það er engin ástæða gegn því,
að stjórnin gangist nú fyrir af-
námi innflutnings á Spánarvínuin,
ef hún vill losna við þau, að 40
þingmenn greiddu samningnum
um þau atkvæöi árið 1923. Tím-
inn, sem síðan er Jiðinn, hefir
leitt það ótvírætt í ljós, að und-
anþágan hefir ekld orðið til þjóð-
arheilla. Mun varla þörf á að út-
skýra það nániar fyrir þeim, sem
vilja sjá. Þá eru einnig margir
menn á alþingi nú, sem ekki voru
þingmenn 1923. Hvers vegna ættu
þeir ekld að geta greitt atkvæði
gegn Spánarvínunum, þótt fyrir-
rennarar þeirra gerðu þaið ó-
happaverk að hleypa vínunum
;inn í landið?
Afstaða Alþýðuflokksins til
Spánarvína-innflutningsins er ó-
breytt eins og hún var þegar
fulltrúi flokksins, Jón Baldvins-
son, greiddi atkvæði gegn Spán-
arsamningnum á alþingi 1922 og
1923, í fyrra skiftið einn allra
þingmanna.
Ef afstaða Jónasar ráðherra tij
Spánarsamningsins er einnig ó-
breytt frá því, sem hún var árið
1923, — hvort er þess þá ekki að
vænta, að nægilega margir Fram-
sóknarflokks-þingmenn myndu
greiða stjórnartillögu um uppsögn
Spánarsamningsins atkvæði til
þess, að hún yrði samþykt, ef
hann flytti hana? Og hví þá ekki
að flytja hana?
Læhnlsfrœðiverðl aun NoLe s
—' ' rr gm
StokkhóJmi, 30. okt. U. P. rB.
Læknisfræðiverðlaun Nobels hafa
verið veitt Otto Warburg pró-
fessor í Berlín, fyrir uppgötv-
anir háns viðvíkjandi starfsemi
öndunarfæranna.
Vedrid. Kl. 8 í morgun var 6
stiga Jiiti í Reykjívík. Otlit hér á
Suðvesturlandi: Suðvestankaldi
og dálítið regn fram eftir degin-
um, en síðan allhvöss nerðvestan-
eða norðan-átt með snjóéljum.
Skránino atvlnnnlansra manna.
Samkvæmt lögunum um at-
vinnuleysisskýrslur fer skráning
'atvinnulauss fólks fram á mánu-
daginn og þriðjudaginn kemur
frá kl. 9 að morgni til kl. 7 lað
kvöldi. Fer hún fram- í Góðtempl_
arahúsinu við Templarasund.
Ekki hefir Knútur borgarstjóri
fengist til að láta skráningu fara
fram fyrr í haust, en nú gat
hann ekki dregið það lengur
vegna ákvæða laganna.
Nú er sérstaklega áríðandi, að
alt atvinnuliaust fóik, karlar og
konur, komi til skráningarinnar.
1 reglugerðarfrumvarpinu um at-
vinnubótastyrk ríkisins er lagt til,
að þeir einir geti komið til greina
við að komast að atvinnubóta-
vinnu, sem komið hafi til at-
vinnulausraskráningar. 1 annan
stað er undandráttarlaus skrán-
ing nauðsynlegt vopn til að reka
á eftir því, að atvinnubætur verði
byrjaðar sem ai-Jra fyrst.
Opið bréf
til atvinnulausra félagskvenna
i V. K. F. „Framsókn".
FéJagssystur!
2. og 3. nóvember næstkomandi
fer fram atvinnuleysisskráning
hér í Reykjavík.
Við viljum hér með alvarlega
brýna fyrir ykkur, að þið látiÖ
skrásetja yklmr, svo að atvinnu-
ástand meðal v-erkalýðsins komi
sem skýrast í ljós. Skráningin er
einn þáttur í atvinnuleysisharátt-
unni. Því fleiri sem taka þátt í
henni, því öflugri verður barátt-
an og því meiri von um lað at-
vinnubætur verði settar á stað.
Þó þiö hafið atvinnu núna, en
hafið verið atvinnulausar síðustu
3 mánuði, þá komið og Látið skrá
ykkur. Og þó þið hafið atvinnu
núna, en búist við eða vitið lað
ykkur verði sagt upp á næst-
unni, þá komið samt og Látið
skrá ykkur.
Allar atvinnulausar verkakon-
jur í „Framsókn" verða að koma
og láta skrásetja sig.
Stjórn V. K. F. „Fmmsókrí1.
Togamrnir. Snorri goði“, „Þór-
ólfur“ og „Max Pemberton" fara
á ísfiskveiðar í 'kvöld, en „Skalla_
grímur“ og „Egill Skállagríms-
son“ munu fara á þriðjudaginn.
„Kári“ er kominn úr Englandsför,
kom hér við í fyrra dag á leið
til Vestfjarða. „Otur“ kom I gær-
kveldi frá Englandi. — Enskur
togari kom hingað í miorgun
vegna véLarbilunar.
Skipafréttir. „Súðin“ fór síðdeg-
(is í fyrra dag vestur um 1-and í
hringferð. „Suðurland" kom í
gær úr Borgarnessför.
Kristileg samkoma á Njálsgötu
1 annað kvöld kl. 8. Allir vel-
komnir. •
F. U. J. - fundur
verður haldinn á morgun kl. 2
e. h. í alþýðuhúsinu Iðnó. Með
þessum fundi hefst vetrarstarf
okkar með miklum krafti. Ýms
m-erk mál verða til umræðu, þar
á meðal íþróttamál verkamanna,
skýrsla nefndarinnar, umræður
um árshátíðina. Enn fremur verð-.
ur rætt um hvernig haga skuli
starfsemi félagsins í vetur. Guð-
brandur Jönsson, sem er nýkom-
inn úr ferðalagi um Evrópu og
dvaldi um hríð í landi fascism-
ans, segir ágrip af ferðasögu sinni
og mörgu því, sem fyrir augu
hans bar. Félagar eru skyldir að
mæta. F. U. J. hefir ávalt Verið
b-ezta æskulýðsfélagið í borginni,
og það verður það eins fram-
vegis.
Komið öll, félagssystkini, í al-
þýðuhúsið Iðnó uppi á morgun.
Félagi.
gFrestun vígbúnaðar?
Washington, 29. okt. U. P. FB.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna
áformar að s-enda Þjóðabandalag-
inu orðsendingu í kvöld, viðvíkj-
andi allsherjarfrestun á vígbún-
aði um eins árs sbeið.
30. okt.: Talið er, eftir góðurn
heimildum, að í orðsendingunni
fallist Bandaríkjastjórn á frest-
iun vígbúnaðar í grundvallaratrið-
um, en kveðst skilja frestunar-
áætlunina þannig, að hún nái
ekki til áforma Bandaríkjanna
um að endumýja tundurspilla-
flota sinn(!), en frá þeim áform-
um hafði verið gengið áður en
frestunaráformin viðvíkjandi víg-
búnaði komu til sögunnar.
Prestuúnn í Veilby.
n ; í ; : — : j¥! : fl
Næsta mánudagskvöld sýnir
GamLa Bíó kvikmyndina „Prest-
urinn í Vejlby“. Er það fyrstai
danska talmyndin, og hefir hún
undanfarið verið sýnd í Dan-
mörku við fádæma aðsókn.
Danska skáldið St. St. Blicher
hefir samið söguna, sem myndin
sýnir, en hún er ofin um sannan
atburð, er átti sér stað árið 1750
í Vejlby. Þá var presturinn Sö-
ren Quist tekinn af lífi fyrir
morð, en nokkrum árum síðar
komst upp að hann hafði verið
saklaus. — Myndin er prýðilega
gerð, máliÖ skýrt og snjalt, svið-
in sönn og öllu vel fyrir komið.
Leikendur em hinir beztu meðal
Dana. — Tvær sýningar verða á.
myndinni á mánudagskvöldið.
Fisksalnn á Siglufirdi. 1 fregn
frá Siglufirði í blaðinu í gær
átti að standa: Tóku fisktökuskip-
in það, sem eftir var ‘af saltfiski
pcir (o. s. frv.).
„Þór“ kom hingað í dag með
nýjan fisk.