Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 „Þaö ar ako gaman að búa til svona brauöfígúrur. Pat ósamt börnunum. Morgunblaftið/Árni Sæberg Litið inn til Patriciu Burk og fylgst með þvíþegar hún býr til skemmti- legt jólaskraut úr brauði, sem auk þess er afar heilsusamlegt Hengja má skrautið út i giugga eða á jólatrá. Takiö eftir litla brauðhúsinu á borðinu. Hún Patricia Burk býr til alls konar skemmtilegar fígúrur úr brauði, sem hún skreytir til dæmis með hnetum, rúsínum, kókosmjöli og jafnvel spaghettíi, sem kemur þá í staðinn fyrir hár, til dæmis á jóla- sveini. Það góða við brauðskreytingarnar, sem geta hangið á jólatré, verið kertastjaki eða gluggaskreyting, er að það er hægt að borða þær. Og enn betra er að Patricia notar aðeins næringarrík hráefni úr lífrænum efnum í brauðin og kökurnar sínar. Til dæmis hunang í stað flórsykurs og ef hún er að baka döðlubrauð, þá notar hún meira af döðlun- um og minna af sykri eða sleppir honum alveg og auðvitað notar hún heilt korn í brauðið í staðinn fyrir hveiti. Pat eins og hún er kölluð flutti þessar skemmtilegu og ljúffengu brauðskreytingar með sér frá Bandaríkjunum. Þegar hún bjó í New York fyrir sex árum vann hún í bakaríi, þar sem eingöngu voru framleidd heilsusamleg brauð og voru þau unnin að mestu í höndunum. Hún sagði að brauðfígúrurnar hefðu orðið til af tilviljun þarna í bakaríinu. Hún hefði að gamni sínu farið að útbúa lítil dýr úr deigafgöngum og selt í búðinni og hefðu þau orðið vinsæl. Þau hefðu líka fikrað sig áfram með kökur úr heilsusamlegum efnum og prófað þær á viðskiptavinunum, sem þá sögðu álit sitt. Pat, sem hefur stundað listnám, kom til New York til að kenna steinprent við The School of Visual Arts. En eftir að hún fór að vinna í bakaríinu fór áhuginn að beinast í síauknum mæli að brauðgerðinni og notaði hún brauðið til myndsköpunar í stað pappírs og lita. Hún fór semsagt úr myndlist í matarlist, eins og ein- hver vinur hennar vildi orða það! Um þetta leyti kynntist Patricia íslenskri stúlku. Ákváðu þær að fara í Evrópuferð saman, sem byrjaði og endaði á íslandi. Og síðan hefur Patricia dvalið hér og á hér einn son. Nú vinnur hún hjá matsölu Náttúrulækningafélags- ins og býr til þau brauð og kökur, sem þar er boðið upp á. Auk þess tekur hún að sér að búa til kökur og brauð fyrir einstaklinga. Við fengum að fylgjast með því, þegar Patricia var að útbúa jólaskreytingar með nokkrum börnum, en krökkum þykir ógurlega gaman að fá að taka þátt í brauðgerðinni og skreyta fígururnar svo við tölum ekki um hve það er unaðslegt að fá að borða þær líka! ... og svo má borða skreytinguna líka ...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.