Morgunblaðið - 07.12.1984, Síða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
Háþrýstidælur, mótorar,
ventlar og stjórntæki í
vökvakerfi til sjós og
lands.
Eínkaumboð á íslandi.
Atlas hf
Borgartún 24, sími 26755.
Pósthólf 493 — Reykjavík.
LEGUKOPAR
Legukopar og fóöringar-
efni í hólkum og heilum
stöngum.
Vestur-þýzkt úrvals efni.
Atlas hf
Anna Svava og Vigdfs með jólakortin sfn.
Morgunblaöiö/Frlöþjófur.
Þær búa til sín
jólakort sjálfar
„Ég bý til jólakort til aö gefa og senda til Danmerkur," sagöi
Anna Svava Knútsdóttir 7 ára og stalla hennar Vigdís Vign-
isdóttir 10 ára sagöist senda vinkonum sínum á Þingeyri
jólakortin, sem hún býr til. Þær voru önnum kafnar viö
jólakortageröina, þegar okkur
bar aö garöi og voru búnar aö
raöa þeim snyrtilega á borð-
stofuboröiö heima hjá Önnu
Svövu. „Ég hef ægilega gam-
an af aö teikna, sérstaklega
jólasveina og slaufur," sagöi
Anna Svava, en Vigdís kvaöst
helst teikna jólatré og svo líka
jólasveina. „Uppáhaldslitirnir mfnir eru blátt og rautt,“ sagöi
Anna Svava okkur, „en núna nota ég aöallega grænan og
rauöan lit.“
„Þaö er gaman aö búa til jólakortin sjálfur í staö þess aö
kaupa þau í búö,“ sagöi Vigdís og hérna sjáum viö afrakst-
urinn af jólakortagerð vinkvennanna.
1979—81 leiddi meöal annars í Ijós að 77
af þessum pörum gátu tekið ákvöröun um
hvaö þau raunverulega vildu meö tilliti til
framtíöarinnar. Viö uppgötvuöum líka, aö
um helmingur hjónannna, hvort sem þau
höföu ákveöiö aö skilja eöa halda áfram
sambúö, sögöust hafa fundið leiö til aö lifa
í sátt og samlyndi eftir aö þau höfðu gert
sér Ijós vandamál sín. Þetta getum viö sagt
meö fullri vissu, því viö höföum samband
viö fólkiö hálfu ári eftir aö þaö haföi veriö
hjá okkur og könnuöum árangurinn.“
— Svo viö víkjum aftur að sjálfri ráögjöf-
inni, ræöiö þiö aöeins viö fólkiö í hópum?
„Nei, þaö gerist stundum aö fólki finnst
þægilegra aó tala í einrúmi, hún viö kven-
ráögjafa og hann viö karlráögjafa. En viö
erum meö ráögjafa af báöum kynjum til
þess aö gera ekki upp á milli parsins. Eftir
slík samtöl er andrúmsloftiö venjulega af-
slappaðra."
— En taka börnin ekki þátt í umræöun-
um ef þau eru komin til vits og ára?
„Jú, en þau koma ekki inn í samtölin fyrr
en foreldrarnir eru báöir sammála um
það.“
— Hvaö er fólk venjulega marga tíma
hjá ykkur?
„Athugun sem viö geröum á þessu leiddi
í Ijós, aö þaö er frá 3 til 20 tíma. Viö höfum
tekið eftir því aö eftir því sem pörin koma
oftar til okkar, þess þægilegra veröur sam-
bandiö á milli þeirra."
S K I L N A Ð I R
— Hver eru helstu sambúöarvandamál-
in, sem komiö er með til ykkar?
„Viö höfum gert tölfræöilega úttekt á
þessu og sýnir hún aö oftast er þaö fram-
hjáhald. En í samræöum við fólkiö sem í
hlut á hefur iöulega komiö í Ijós, aö þaö er
ekki raunveruleg ósk þess aö tengjast
þriöja aðila heldur orsakaöist framhjáhald-
iö miklu fremur af því, aö eitthvað annaö
var að hjá pörunum.
Vinnuálag hefur líka gjarnan veriö nefnt
sem orsök vandans. En á sama hátt hefur
viö nánari athugun oröiö Ijóst aö mikil
vinna er aöeins yfirskin, fólkiö var á flótta
frá vandamálum í einkalífinu.
Fleira getur komiö til, sem eykur
vandann. Þegar ágreiningur milli hjóna er
oröinn staðreynd þá gerist þaö oft aö aöil-
arnir gera illt verra meö því aö misskilja
afstööu og viöbrögð hvors annars, þaö er
nú reyndar líka hægt í snuröulausri sam-
búö. Dæmigert fyrir þetta er þegar aöilarn-
ir koma heim úr vinnunni. Annar er ef til vill
þögull eöa utan viö sig þennan dag. En þá
getur þaö gerst aö hinn sambúöar- eöa
hjónabandsaöilinn túlki þetta sem eins
konar árás eöa þögla gagnrýni, og hugsi
meö sér: „Hvaö hef ég gert af mér? Hvaö
er nú að?“
Fyrst byrjar fólk á því að setja sig í varn-
arstööu og síöan í árásarstööu í staöinn
fyrir aö láta makann í friöi meö sitt skap.
Þaö er erfitt aö þurfa alltaf aö vera aö gera
grein fyrir, hvers vegna maöur situr þögull
eöa hefur þennan eöa hinn svipinn á andlit-
inu. Ég held aö þaö væri hægt aö koma í
veg fyrir margan ágreininginn, ef maöurinn
eöa konan væru nógu þroskuö til aö um-
bera sveiflur í skapi hvors annars og létu
vera aö gera athugasemdir þar aö lútandi."
— í starfi ykkar vinniö þiö kerfisbundiö
meö fólkinu, notiö ákveöna meöferö. Getur
þú sagt okkur nánar frá henni?
„Viö styöjumst viö aöferöir í sálgreiningu
í vinnu okkar meö pörin. Til aö öólast meiri
skilning á þeirri vinnu sem fram fer höfum
viö þróaö ákveöin hjálpargögn til aö varpa
betra Ijósi á samskipti maka.
Viö flokkum niöur hinar ýmsu geröir
sambúöar, allt eftir því hve auöveld eöa
erfiö sambúðin er og hvaöa möguleika fólk
hefur til aö takast á viö sambúöarmálin.
Flokkunin grundvallast í fyrsta lagi á því,
hvernig þau hvort um sig viöhalda ákveönu
samskiptamunstri. I ööru lagi hvort aöilarn-
ir eru færir um aö tjá persónulegar hugsan-
ir, tilfinningar, óskir og þarfir.
Þegar pörin koma i fyrsta samtalið eru
þau flokkuö niöur eftir því hvernig sam-
skiptamunstri þeirra er háttaö og hve
sjálfstæö þau eru gagnvart hvort ööru. Eft-
ir því sem samspiliö á milli þeirra breytist
meöan þau eru hjá ráögjöfunum getur ver-
iö aö þessi flokkun breytist. Mælikvaröinn
er hvort sjálfstæöi þeirra hefur aukist eöa
minnkaö, hvort fólk geri sér betur grein
fyrir vandamálum sínum og hvod þaö sé í
betra tilfinningalegu jafnvægi eöa öfugt.
Einnig gerum viö lista yfir þætti, sem
einkenna samskipti fólksins svo og fyrir
hvern einstakling út af fyrir sig, sem fólkiö
segir okkur sjálft frá eöa upplýsist í samtöl-
unum. Þessi listi hjálpar okkur til aö finna
út hvaöa einkenni og ákveðin vandamál
eiga sér staö hjá pörunum og hvaöa sér-
fræðilegu hjálp þau þurfa á aö halda, ef svo
ber undir."
— Koma ekki til ykkar pör, sem er alls
ómögulegt aö hjálpa?
„í upphafi héldum viö aö þaö væri alltaf
eitthvaö af pörum, sem alls ekki væri hægt
aö hjálpa meö sáttatilraunum í þessu
formi. Þetta töldum viö einkum eiga viö
hjón meö „gamlan skaöa“, þ.e. hjón meö
flókin, óleyst sálarvil. Slíkur andlegur arfur
hefur oft neikvæö áhrif á sambúö og eyði-
leggur hana.
En þaö sýndi sig eftir hálfs árs starf,
þegar viö könnuöum hvernig fólkinu haföi
vegnaö, aö viö höföum veriö of svartsýn.
Þaö kom nefnilega í Ijos, aö þó aö þessi
pör heföu ekki náö aö leysa sin mál algjör-
lega, þá höföu þau breytt samskiptum sín-
um í sambúðinni. Til dæmis haföi þeim,
sem lifðu viö miklar innbyröis deilur í
hjónabandinu tekist aö minnka þær og ef
um ofbeldi var aö ræöa haföi þaö hætt.
Þannig aö þó aö pörunum heföi ekki