Morgunblaðið - 11.04.1985, Page 2

Morgunblaðið - 11.04.1985, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1985 „Úrbót sem ætti að vera komin fyrir löngu“ — segir Snorri Ingimarsson um línuhraðalinn „Með tilkomu línuhraðals fá geislalækningar mikla úrbót sem hefði átt að vera komin fyrir löngu. Þessi nákvæmu og öflugu geislatæki hafa verið lengi í notkun og þykja ómissandi þar sem krabbameinslækningar eru stundaðar í samræmi við þær kröfur sem gera þarf,“ segir Snorri Ingimarsson, sérfræð- ingur í krabbameinssjúkdómum og framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags íslands. „Að mínu áliti er það mjög lofsvert framtak hjá Lions-mönnum að efna til landssöfnunar til kaupa á línuhraðli. Slíkur stórhugur er hvetjandi og stuðlar án efa að því að við verðum fyrr en ella fær um að veita þá þjónustu sem krabbameinssjúklingar þurfa á að halda." „Sú þjónusta sem fram fer hér hjá okkur hjá Krabbameinsfélag- inu gerir að sjálfsögðu kröfu til þess að hægt sé að veita nauðsyn- lega meðferð hér innanlands og það er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir því að það er afleitt að þurfa að vísa veiku fólki til út- landa í þeim mæli sem gert hefur verið vegna þess að við höfum ekki haft línuhraðal. Kóbolttækið gamla er gott svo langt sem það nær en það svarar ekki kröfum sem gerðar eru til geislatækja nema að takmörkuðu leyti. íslend- ingar hafa oft sýnt hvers þeir eru megnugir þegar þeir taka höndum saman um að leysa nauðsynleg verkefni með því að efna til al- mennrar fjársöfnunar, og er skemmst að minnast hins glæsi- lega árangurs sem náðist þegar Krabbameinsfélagið safnaði fyrir nýju húsi. Sú fjársöfnun gerði okkur kleift að koma starfseminni í þau húsakynni sem við erum nú í og gerir það að verkum að við höf- um möguleika á að veita nauðsyn- Snorri Ingimarsson, forstjóri Krabbameinsfélags fslands. lega þjónustu í samræmi við kröf- ur nútímans. Það leikur ekki vafi á því að sameiginlegt átak af hálfu almennings hvetur stjórnvöld til dáða og á sinn þátt í þeirri upp- byggingu sem fram fer,“ segir Snorri. Þau munu vinna við línuhraðalinn þegar hann verður tekinn í notkun: Kjartan Magnússon, sérfræðingur í krabbameinssjúkdómum, Þórarinn Sveinsson, yfirlæknir, Sigrún Jónatansdóttir, Vera Björk Einarsdóttir, Guðrún Vigdís Jónsdóttir, Ásdis Ólafsdóttir og Garðar Mýrdal. Myndin er tekin við kóbalttækið sem hingað til hefur verið eina geislalækningatækið á landinu. Skörp og nákvæm og skað- ar síður heilbrigðan vef — segir Garðar Mýrdal eðlisfræðingur um geislun með línuhraðli Garðar Mýrdal, eðlisfræðingur á Eðlisfræði- og tæknideild Landspítalans, er sá sem starfa mun í einna nánustum tengslum við línuhraðalinn þegar þar að kemur, en um þetta nýja tæki segir hann m.a.: „Geislameðferð hefur verið beitt með sífellt batnandi árangri, ann- að hvort einni sér, eða ásamt ann- ars konar meðferð. Sú tegund geislunar sem hentugust er til meðferðar á æxlum sem liggja inni í líkamanum er háorkugeisl- un. Slík röntgengeislun myndast þegar orkumiklar rafeindir stöðv- ast i þungu efni eins og wolfram, sem mikið er notað í þessum til- gangi. Fyrir hendi er einnig sá möguleiki að nota sjálfar rafeind- irnar sem henta vel til meðferðar á grunnt liggjandi æxlum vegna þess hve stutt þær draga inn i lík- amann. Rafeindalinuhraðall, sem líka hefur verið kallaður línall, er tæki sem framleiðir fótónur og rafeindir með mikilli orku og er víðast hvar i heiminum helsta tæki sem notað er til slíkrar með- ferðar. Til frekari skýringar á eigin- leikum línuhraðals má nefna að umfram kóbalttækið, sem nú er orðið slitið og kostnaðarsamt í viðhaldi, hefur hraðallinn þá kosti að orkuhörku geislunarinnar má stilla og gefa þannig meiri og jafnari geislaskammta í djúpt- liggjandi æxlisvef en unnt er með kóbalttækinu. Þetta kemur t.d. að miklum notum þegar krabbamein í blöðruhálskirtli er geislað og kemur m.a. í veg fyrir að þarmar verði fyrir álagi af völdum geisl- unar. I öðru lagi má með línu- hraðli velja elektrónugeislun þannig að fall geislunar handan æxlis verði ört, en með því móti má hlífa heilbrigðum vef sem ligg- ur dýpra í geislastefnu. í þriðja lagi þá er geislunartími styttri en við kóbalt-geislun. Styttri geislun- artími býður upp á meiri ná- kvæmni, m.a. að því að þá er síður Garðar Mýrdal, eðlisfræðingur. hætta á því að sjúklingur hreyfi sig meðan á geislun stendur. Til samanburðar má geta þess, að al- gengur geislunartími f kóbalttæki er 2—5 mínútur en í línuhraðli má ætla að meðaltími verði 20 sek- úndur, sem þýðir t.d. það að í sum- um tilvikum gæti sjúklingur hald- ið niðri í sér andanum meðan á geisluninni stendur, en það er til mikils hagræðis. Loks má nefna það að með línuhraðli verða mörk geislunar skarpari og því minnka líkur mjög verulega á varanlegum skemmdum í aðliggjandi líffær- um, auk þess sem að miklu leyti verður hægt að draga úr því að geislareitir skarist," segir Garðar Mýrdal eðlisfræðingur. Persónugervingur fyiir línuhraðalinn? Lions-menn hafa það að gam- anmálum sín á milli að dr. Hjalti Þórarinsson prófessor sem um ára- bil hefur verið virkur félagi í Lions-hreyfingunni beri nokkra ábyrgð á línuhraðlinum. Ekki alls fyrir löngu hélt Hjalti erindi um línuhraðalinn á Lions-fundi og að loknum fundi varð einhverjum að orði að prófessorinn væri að verða eins konar persónugervingur fyrir tækið. Hann tók lítt undir það en var þá sagt að ekki þýddi fyrir hann að sverja af sér króann. Ekki stóð á svari hjá Hjalta Þórarins- syni: „Með tuttugu milljón volta svið og marga fína takka. Bráðum get ég gengizt við geislavirkum krakka." En hvernig sem Hjalti bregzt við því að Lions-menn kenni honum linuhraðalinn þá mun það mála sannast að hann hóf fyrstur máls á því að hafin yrði landssöfnun svo hægt væri að kaupa tækið. „Astæðan fyrir því að ég færði þetta í tal er m.a. sú að þetta er Dr. Hjalti Þórarinsson, prófessor. landssöfnun og þá þykir mér sjálfsagt að safnað sé fyrir ein- hverju sem kemur öllum lands- mönnum að notum,“ segir Hjalti þegar hann er spurður um þetta. „Vegna starfa minna við Land- spitalann er mér vel kunnugt um það hversu nauðsynlegt tæki línuhraðallinn er. Að mínu mati er mjög brýnt að við fáum þetta tæki sem allra fyrst. Við megum ekki dragast aftur úr nágranna- þjóðunum varðandi krabba- meinslækningar, en f nágranna- löndunum hafa línuhraðlar verið notaðir í 15—20 ár. Ég er þeirrar skoðunar að það hvemig búið er að sjúkum endurspegli ekki sízt menningu og þroska þjóðfélags- ins alls. Okkur er ekki stætt á því lengur að láta vanta hér línuhraðalinn sem er forsenda þess að unnt sé að beita nútíma- aðferðum við krabbameinslækn- ingar. Til þess höfum við allt nema línuhraðalinn og við svo búið má ekki standa. Mér er heldur ekki launung á þvi að ákvörðun Lions-manna nú um að safna fyrir tækinu er um leið þáttur i að koma skriði á þá nauðsynlegu framkvæmd sem K-byggingin er, en það hús er forsenda þess að hægt sé að taka línuhraðal í notkun hér á landi,“ segir Hjalti Þórarinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.