Morgunblaðið - 25.04.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.04.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1985 B 3 FÖSTUDAGUR 26. aprfl 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Páll Þorsteinsson og Siguröur Sverrisson. 14.00—16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdis Gunnarsdóttir. 16.00—18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jón Ölafsson. Þriggja mlnútna fréttir sagðar klukk- an: 11.00, 15.00. 16.00 og 17.00. Hlé. 23.15—03.00 Næturvaktin Stjórnendur: Vignir Sveinsson og Þorgeir Astvaldsson. LAUGARDAGUR 27. aprfl 14.00—16.00 Léttur laugardagur Stjórnandi: Asgeir Tómasson. 16.00—18.00 Milli mála Stjórnandi: Helgi Már Barðason. Hlé. 24.00—00.45 Listapopp Endurtekinn þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar Salvarsson. 00.45—03.00 Næturvaktin Stjórnandi: Kristln Björg Þorsteins- dóttir. SUNNUDAGUR 28. aprfl 13.30—15.00 Krydd I tilveruna Stjórnandi: Asta Ragnheiður Jó- hannesdóttir. 15.00—16.00 Tónlistarkrossgátan Hlustendum er gefinn kostur á að svara einföldum spurningum um tónlist og tónlistarmenn og ráöa krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón Gröndal. 16.00—18.00 Vinsældalisti hlustenda rásar 2 20 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Asgeir Tómasson. MÁNUDAGUR 29. april 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Gunnlaugur Helgason. 14.00—15.00 Ot um hvippinn og hvappinn Stjórnandi: Inger Anna Aikman. 15.00—16.00 Sögur af sviðinu Stjórnandi: Sigurður Þór Salvarsson. 16.00—17.00 Nálaraugað Reggltónlist. Stjórnandi: Jónatan Garðarsson. 17.00—18.00 Rokkrásin Kynning á þekktri hljómsveit eöa tónlistarmanni. Stjórnendur: Snorri Már Skúlason og Skúli Helgason. Þriggja mlnútna fréttir klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. Evópa: Sjónvarps- byltingin mikla í bandaríska tímaritinu Newsw- eek birtist nýlega forvitnileg grein um það sem blaðið kallar sjón- varpsbyltinguna í Evrópu. Tvær gervihnattasjónvarpsstöóv- ar eru nú að reyna að byggja upp svolítið, sem aldrei hefur sést áður: Evrópusjónvarp. Og þær nota 15 íra gamla bandaríska gamanþætti, ann- ars flokks kvikmyndir og mynd- bandapopp til þess. Önnur stöðin, Sky Channel (Himnarásin), sem er fyrsta raunverulega stöðin er sendir mestmegnis út skemmtiefni um gervihnetti, hefur þegar þrjár milljónir áskrifenda í 11 Evrópu- löndum. Hin stöðin, Music Box (Músíkboxið), sem byggir send- ingar sínar fyrst og fremst á myndbandapoppi, hefur dregið til sín tvær milljónir áskrifenda á þeim átta mánuðum, sem hún hef- ur starfað. „Þetta er mjög mikil- vægur viðburður," segir Rex nokkur Winsbury hjá timaritinu Guðaðá skjáinn Nýr fjölmiðlamarkaður, er sér- hæfir sig í fréttum úr sjón- varpsiðnaðinum. „Upp er komið nýtt sjónvarpskerfi í Evrópu, sem aídrei hefur verið til áður,“ segir hann svo. Það er spurning hversu stórt kerfið getur orðið. Stöðvarnar tvær senda nú dagskrá sína frá gervihnöttunum í kapalkerfi, sem færa hana inn á heimilin. Enn sem komið er eru aðeins 7 milljón heimili af 125 milljónum í Vest- ur-Evrópu kapaltengd og framtíð- arhorfurnar eru misjafnar. Póst- og símamálaráðherra Vestur- Þýskalands áætlar að um milljón heimili í landinu eigi eftir að kap- altengjast á þessu ári en í Bret- landi og Frakklandi hafa kaplar ekki náð eins víða og við var búist. Og á Ítalíu er engin kapalstöð og engar áætlanir uppi um að byggja eina. Afleiðingin er sú að stöðvarnar tvær, Himnarásin og Músíkboxið, beina sjónum sínum nú æ meira að gervihnattarsendingum, sem stefnt yrði beint og milliliðalaust inn á sjónvarpstækið í stofunni. Flest Evrópulöndin banna hótel- um, sjúkrahúsum, fjölbýlishúsum og skólum að nota hina sérstöku tækni sem þarf til að ná sjón- varpshnattasendingum beint, en það má auðveldlega breyta lögun- um og ýmis teikn eru á lofti þar að lútandi. En á meðan hamast Himnarás- in og Músíkboxið við að tryggja sér kapalstöðvar. Fyrir minna en tveimur árum var útlitið heldur svart fyrir Himnarásina en þá kom til sögunnar margfrægur blaðakóngur að nafni Rubert Murdock frá kengúrulandinu og i dag eru horfur fyrirtækisins bara góðar. Því hefur tekist að útvega sér leyfi til að senda efni sitt í kapalkerfi á 275 ólíkum stöðum en er þó rekið með talsverðu tapi enn sem komið er. Auglýsingatekjur eru einu peningarnir sem til fyrir- tækisins renna og þær nægja ekki til að halda fyrirtækinu halla- lausu. Mest af því efni sem Himnarás- in sendir frá sér er næsta lélegt. Sem dæmi má nefna fastaþætti sem bera heitið „Herra Ed“ og voru uppá sitt besta kringum 1961, en rásin hyggst bæta dagskrána að mun þegar tekjur hennar fara að aukast. Eitt stærsta vandamálið, sem snýr að Himnarásinni og Murdock, er tungumálaerfiðlerkarnir. Rásin sendir einungis út efni á ensku, sem aðeins um fjórðungur Evr- ópubúa skilur. Tungumálaerfið- leikarnir eru talsvert minni hjá Músíkboxinu því sú rás sendir út 18 klukkustundir af myndbanda- poppi á dag með því að sýna sama sex klukkustunda prógrammið þrisvar sinnum í röð yfir daginn. Og eins og allir vita þarf tónlistin ekkert tungumál til að skiljast. Sendingar um gervihnetti eru í sjálfu sér ekkert nýtt í Evrópu, en aðeins Himnarásin og Músíkboxið hafa náð yfir lungann af álfunni. Fyrirtækin tvö hafa hrist svolítið upp í evrópskum sjónvarpsiðnaði og hafa sjónvarpsstöðvarnar í Evrópulöndunum reynt fyrir al- vöru að lífga uppá dagskrána. Himnarásin og Músíkboxið hafa líka kveikt áhuga hjá öðrum á að stofna gervihnatta-sjónvarpsstöð, sem næði yfir alla Evrópu. Banda- rískur milli að nafni Ted Turner er einn af þeim, sem hafa áhuga á þvi og sjálfsagt eiga fleiri eftir að fylgja í kjölfarið ef vel gengur hjá byrjendunum. En hvernig ætli verði í framtíð- inni ef gervihnattasendingar ná beint inná hvert heimili? Ætli litlir sætir diskar leysi þá gömlu og ljótu sjónvarpsloftnetin af hólmi og tróni eins og sólir á hús- þökunum. — ai. „Upp er komið nýtt sjónvarpskerfi í Evrópu, sem aldrei hefur verið til áður.“ í fvrsta skiptí: Flug og BOl á Mallorka 3 vikur frá kr.19.900. - 3 í bíl Nú er hægt aö njóta til fullnustu fegurðar þessa vinsælasta ferðamannastaðar Evrópu. Með bíl til umráða er hægt að skoöa eftir eigin geðþótta alla þá fallegu og áhugaverðu staði sem hérfinnast. Velja á milli baðstranda, veitingastaða og leiktækjagarða eftir óskum fjölskyldunnar. 3vikur frákr. 23.800.- Brottför: 8.og27. maí 17, júní 8. og 29. júlí 19. ágúst 9. og 30. sept. 21. október ^ Umboð a Islandi fyrir \ DINERS CLUB -\ INTERNATIONAL • , »i •* \ mmmmm!! FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTIG 1, SÍMAR 28388 - 28580

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.