Morgunblaðið - 16.08.1985, Síða 7

Morgunblaðið - 16.08.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1985 B 7 prófaöi þaö. Var í grafík, skúlptúr og Ijósmyndun. Fékk svo um tíma mikinn áhuga á hinni tæknilegu hliö tilverunnar og var aö spá í „Laser Art“. Sem heitir á ís- lensku ... ja, hvaö skyldi þaö nú heita. Laser-list? Þetta finnst mór stundum slæmt, um leiö og taliö berst aö myndlist koma öll þessi ensku orö upp í hugann. Ekki það, sum íslensku oröin virka á mig al- veg jafn útlensk, eins og eitt sem mér finnst voöalega fyndiö. „Rosa- raunveruleiki" — ég var lengi aö átta mig á aö þetta var íslenska þýðingin á „realisma"." — Sjálfsmyndin er farin aö birt- ast heldur betur og þaö í hressi- legum litum. Litum sem koma í gegn á báöa vegu — myndin er máluö á gler og í því sem blaöa- maöur viröir fyrir sér bakhliö verksins tilkynnir Sissú kurteislega aö nú ætli hún aö sletta pínulítið. Pínulítiö er nú kannski kolvitlaus mælieining í þessu tilviki. En i krafti þess hve verkiö er stórt ákveöur blaöamaöur aö skýla sér bara á bak viö þaö. „Já, þaö er nú stundum verið aö benda mér á aö ég máli nú ekki beint sölulegar myndir, m.a. með hliösjón af stæröinni,” segir hún og gýtur aug- unum aö ööru verki og ennþá stærra. „En þaö er þetta með selj- P Þá er viss hópur fólks sem ég hef á til- finningunni að sýni minni myndlist áhuga af því að ég sit í stólnum — svo ekki sé minnst á að þessi kona í hjóla- stólnum á litla dóttur með dökkan hörunds- “'W anlegar myndir. Fyrsta spurningin þegar fólk kemur inn á sýningu er: — Hvaö ertu búin aö selja marg- ar? Örlar á hugsuninni aö hafi ein- hverjir komiö og keypt þá hljóti myndlistarmaðurinn aö vera viöur- kenndur og þá sé óhætt aö fjár- festa í mynd. Margir eru voöalega litiö að spá í myndirnar sem slíkar. Þess vegna þykir mér mlklu vænna um aö selja eöa gefa mynd ein- hverjum sem skilur hana, eins og eina á sýningunni um daginn, sem endaöi hjá listfræöingi. Þaö var mynd sem ekki nokkur sála haföi sýnt áhuga. Svo á ég líka erfitt meö að hugsa myndirnar mínar meö hliö- sjón af því hvaöa veggpláss fólk hefur. Og í sjálfu sér finnst mér allt í lagi aö fólk hafi töluvert af auöu veggplássi inni hjá sér. Frekar en t.d. aö setja upp myndir af lands- lagi eöa blómum j vasa, þessum hlutum sem þaö hefur hvort eö er fyrir augunum. Það er hins vegar auöa veggplássiö á opinberu stöö- upum sem fólk þarf aö hanga og bíöa á, sem fer í taugarnar á mér. I tollinum til dæmis. Ég ætla nú ekki aö lýsa því hvaö mig langar oft aö mæta með fötuna meö mór og sletta svolítiö á veggina." — Lítiö fyrir landslag? „Eftirlíkingar á raunverulegu landslagi, já. Þaö var ekki nema fyrst eftir aö óg kom frá París aö ég fór út á Reykjanes og málaöi landslag. Málaöi þá líka tökuvert af sjálfsmyndum. Ég fann þessar myndir um daginn og reif þær.“ — Er öóruvísi fyrir þig tem einstakling og myndlistarmann að búa hér en ytra? „Já, þaö er miklu auöveldara aö vera einstaklingur á staö eins og New York, þar sem tilveran er á fleygiferð og hlutirnir ganga ofsa- lega hratt fyrir sig. Einstaklings- hyggjan et rik i fólki og menn hafa allt annaö aö gera en aö velta sér upp úr öörum og annarra lífi. Óvæntar truflanlr banka ekki upp á svona dags daglega. Hór hefur fólk almennt þennan tíma og á þaö til aö velta sér svolítiö upp úr aö- stæöum annarra — oftast í góöri meiningu en samt fullmikiö stund- um. Ég finn oft þessa tilhneigingu hjá fólki til aö vilja bera mann svol- ítiö á gullstól í gegnum lífiö. En sem myndlistarmaöur þá er kannski helsti munurinn sá aö úti er myndlistinni sýndur miklu meiri almennur áhugi, hórna finnur maö- ur áhuga frá þeim sem eru í þessu sama, en ekki svo mikiö þar fyrir utan.“ — Á gullstól í gsgnum lífiö. Finnst þér aó einhverjir horfi é verkin þín fremur með hliösjón af þínum eigin aöstæöum en sem sjálfstæö verk? „Þaö er viss hópur fólks sem ég hef á tilfinningunni aö sýni minni myndlist meiri áhuga af þvi aö ég sit í stólnum, — svo ekki só minnst á aö þessi kona í hjólastólnum á litla dóttur meö dökkan hörundslit. Ég er iðulega spurö hvaöan hún sé! Sem er ósköp fyrirgefanlegt,“ segir hún brosandi og blöur viöstadda aö hafa sig afsakaöa um stund. Vippar sér úr stólnum og niöur þrjár tröppur þar sem annar bíöur. Kemur aö vörmu spori og endurtekur leik- inn, upp á viö í þetta skiptiö. Síöan tekur hún aftur til viö málverkiö, fárast yfir því aö vera búin meö uppáhaldslitinn sinn, „nákvæmlega þennan hérna,“ segir hún og bendir á afskaplega fram- sækinn rauöan. En upp fer önnur litatúpa og áfram mótast málverkiö. Var þaö alltaf takmarkiö á endanum? „Myndlistin, já, eða a.m.k. eitthvaö tengt því aö skapa. Einu sinni hélt ég aö ég væri efni i rithöf- und, en komst fljótlega aö því aö til þess þyrfti mikiö þolinmóðari manneskju. Ég held aö ég geti sagt mikiu betur frá í myndum en máli. Hef samt unniö töluvert meö orð og tengt þaö myndlistinni, eöa tjáö mig í Ijóðum, en ekki skrifaö nema í litlar bækur fyrir sjálfa mig. Svona hugmynda- og hugsanabækur, sem ég er svo smám saman aö rífa meö timanum." — Strokar út þaö sem liöið er, í hugsunum og hugmyndum, sbr. þessar bækur og Reykjanesmyndirnar. Eöa hvaó? „Já,“ segir hún meö sömu rólegu röddunni og hefur einkennt hennar hlut samræönanna. „For- tíöin sem slík er nauösynleg, en þaö er óþarfi aö velta sér upp úr henni. Framtíöin er miklu meira spennandi — og bara dagurinn í dag, sem er reyndar allt sem er.“ — Húsnæöismálin hafa verið ofarlega á baugi hjá Sissú é þessu ári, ekki einungis varö- andi vinnustofuna sem tvískiptist é milli hennar og Dóru Einarsdóttur búningahönnuðar, heldur fjárfesti hún og flutti í íbúö í Vesturbænum. Er hún kannski aö veröa rótgróinn íslendingur? „Alls ekki. Ég ætlaöi aldrei aö koma heim og þaö tók mig næstum hálft annaö ár aö jafna mig á þvi aö vera ekki aö flytja út aftur. En þaö er gott aö vera hér líka, sérstaklega meö litla dóttur. Ég fór meö hana 11 mánaða gamla í heimsókn til New York og sá þá borgina í allt ööru Ijósi, fannst hún ekkert óskaplega sniöug til aö vera meö lítiö barn í. En Sunna stækkar og mér þætti ekkert ólikiegt þó aö viö mæögurnar ættum eftir aö leggja land undir fót seinna meir. Svo finnst mér einhvernveginn heimurinn stefna í aö fólk búi bara þar sem þaö vill, án tillits til landsins sem þaö fæddist i. Ég er ekki rótgróinn Islendingur aö þessu leytinu." — Jafnvel ekki eftir aö steinsteypan kom til sögunnar? Hlær nú Sissú og segir: „Fyrir tveimur árum heföi ég sagt þér að þaö aö fjárfesta í steinsteypu á íslandi jafngilti því aö gerast þjóöfélagseign á víxlum. En maöur breytist. Mér heföi ekki fundist neitt.mál aö leigja þaö sem eftir er ævinnar, en hitt var hentugra, sérstaklega núna þegar ég er búin aö breyta íbúðinni og brjóta þar niöur alla þröskulda i eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Og aö öllu leyti er miklu þægilegra aö vera hér núna en t.d. þegar ég var heima í fríum og átti ekki bílinn. Þá þurftu helst tíu manns aö vita nákvæm- lega hvaö maöur ætlaöi aö gera og hvert aö fara og þetta kostaöi mikla skipulagningu." — En þaó er grunnt á flökkueölinu? „Já, flökkueöliö og nýjungagirnin er hvort tveggja ríkt í mér og t.d. ef mér byöist aö fara til Japans eöa Kína í einhver ár þá myndi ég sjálfs- agt ekki hika viö.“ — Japans eða Kína. Sá ég ekki áhrif frá því síóarnefnda á sýningunni þinni á Café Gesti nýveriö? „Jú. Ég spáöi einu sinni mikiö í austurlenska heimspeki og þá vaknaði áhuginn á þessum menningarheimi. I Visual Arts fór ég svo á þriöja ári í kínverska myndlist. Sem var eitthvaö allt annaö og ööruvisi en viö þekktum úr náminu áö- ur. Bara hlutir eins og uppröðun boröa uröu aö vera mjög nákvæmir og í upphafi hvers tíma fór fram hugleiösla, handa-, fingra- og augnæfingar. Þaö mátt enginn gera neitt út frá sjálfum sér, allt varö aö vera samkvæmt föstum reglum. Sumum nemendanna gekk illa aö aölagast kennslu í svo föstum skorðum og helmingurinn datt út á fyrstu vikunum. Þarna gilti sjálfsaginn númer eitt, tvö og þrjú og „sjálfiö" í hverjum og ein- um fékk aö sigla sinn sjó. En þaö var ágætt aö láta reyna á þaö líka. Hins vegar er ég nýbyrjuö aö taka upp pappír og pensla og mála á kínverska mátann aftur. Og um leiö finn ég sjálfsagann sigla ósjálfrátt upp á yfirboröiö. Annars er bara svo gott aö breyta til og máta meö annarri tækni. Það vegur upp á móti hræðslunni viö stöönun sem blundar í listamanninum. Svo aö hafa ekki tilbreytingarleysi í mynd- listinni frekar en ööru. Tilbreyt- ingarleysiö er eitt af þvi sem óg á erfitt meö aö þola,“ segir hún og setur þar meö síðasta pensilfariö á sjálfsmyndina. Þaö er þó ekki punkturinn yfir i-iö. Upp fer rakvól- arblaö og eftir aö hafa skafiö aö- eins af iistaverkinu, rúllar hún hjólastólnum á bak viö — og allt í einu birtist Sissú tvíefld í sjálfs- myndinni, i senn þessa heims og annars. Viðtal/Mynd Vilborg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.