Morgunblaðið - 16.08.1985, Qupperneq 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1985
LIST
Nýlistasafnið:
Tumi Karlsson
í Nýlistasafninu viö Vatnsstíg
stendur um þessar mundir yfir sýn-
ing á málverkum eftir Tuma Karls-
son. Til sýnis eru málverk af ýmsu
tagi unnin á Islandi og í Englandi.
Tumi hefur haldiö nokkrar einkasýn-
ingar og tekiö þátt I mörgum sam-
sýningum heima og erlendis.
Sýningin er opin frá 16.00 til
20.00 virka daga og frá 14.00 til
20.00 helga daga.
Þrastarlundur:
Valtýr Guömundsson
Valtýr Guömundsson sýnir mál-
verk I Þrastarlundi þessa dagana.
Þau eru öll máluö á slöustu mánuö-
um. Hann hefur oft áöur sýnt I Þrast-
arlundi.
Sýningunni lýkur á sunnudaginn.
Café Gestur:
Gunnar í.
Guömundsson
A Café Gesti stendur nú yfir sýn-
ing á verkum Gunnars í. Guö-
^hndssonar. Til sýnis eru 12 olíu-
málverk og fjórar vatnslitamyndir.
Þetta er 14. einkasýning Gunnars.
Neskaupstaður:
3 sænskir grafík-
listamenn
A morgun verður opnuð I Nes-
kaupstaö sýning á verkum priggja
grafíklistamanna frá bænum Eskil-
stuna I Svlþjóð. Sýningin stendur út
mánuöinn.
Gallerí Gangurinn:
Cario Mauro
Ungur ítali, Carlo Mauro, heldur
um þessar mundir sýningu í Gallerf
Ganginum, Rekagranda 8. Hann
hefur sýnt viða, einkum I Sviss og á
Ítalíu. A sýningunni eru nokkrar
myndaraöir og bækur.
Hótel Garður:
Sýning á
smámyndum
Mahmood Mall frá Pakistan
opnaöi um síðustu helgi sýningu á
litlum teikningum og vatnslitamynd-
um á Hótel Garði.
Mall hefur sýnt á ýmsum stööum I
Evrópu og Asiu slðustu 15 árin.
Hann teiknar einkum og málar
byggingar, bæöi fornminjar og ný-
tlskulegar byggingar.
Sýningin hefst sem fyrr segir I dag
og henni lýkur 18. ágúst næstkom-
andi.
Skíðaskálinn í
Hveradölum:
Málverkasýning
Bjarni Jónsson listmálari sýnir
olíumálverk og vatnslitamyndir í nýja
gróöurskálanum viö skiöaskálann í
Hveradölum. Sýningin er opin alla
daga.
Selfoss:
Sýning í Safnahúsinu
í sýningarsalnum í Safnahúsinu á
Selfossi stendur nú yfir sérsýning á
32 myndum sem Listasafni Arnes-
inga hafa áskotnast undanfarin ár.
Sýningin er opin frá 14.00 til
16.00 á virkum dögum en frá 14.00
til 18.00 um helgar. Sýningunni lýkur
| um helgina.
HVAÐ
ERAÐ
GERAST
UM
Gallerý Langbrók:
Fellistóllínn Sóley
A fimmtudaginn hófst I Gallerý
Langbrók sýning á fellistólnum Sól-
eyju eftir Valdimar Haröarson arki-
tekt. Sýndar veröa ýmsar útgáfur af
stólnum auk Ijósmynda af frumgerð-
um hans.
Sýningin stendur I hálfan mánuö
og er aögangur ókeypis. Virka daga
er opið frá kl. 10.00 til 18.00 og
14.00 til 18.00 um helgar.
Gallerí Borg:
Sumarsýning
I Gallerf Borg hefur veriö opnuð
sumarsýning. Þar eru til sýnis um
hundraö myndverk, grafikmyndir,
pastelmyndir, vatnslitamyndir og
teikningar eftir alla helstu listamenn
þjóöarinnar. Einnig eru til sýnis
listmunir úr keramik og gleri.
Sýningin veröur opin til ágústloka
og mun taka einhverjum breytingum
frá degi til dags.
Gallerf Borg veröur lokað um
helgar í ágúst nema sérstakt sam-
komulag komi til viö einstaklinga
eöa hópa.
Eden Hveragerði:
Ray Cartwright sýnir
Ray Cartwright heldur um þessar
mundir sýningu á olímálverkum,
vatnslitamyndum og spjald-ristum I
Eden í Hveragerði í dag.
Þetta er þriöja einkasýning Rays í
Eden en hann hefur einnig sýnt
spjald-ristur I Borgarspítalanum og
haldiö sýningu I Asmundarsal.
Sýningunni lýkur 18. ágúst. öll
verkin á sýningunni eru til sölu.
Vesturgata 3:
Málverk í pappír
og silki
Elln Magnúsdóttir opnaði einka-
sýningu I „Salnum viö Vesturgötu 3“
Igina ?
Kjarvalsstaöir:
Norræn vefjarlistarsýning
Textíltríennalinn svokallaöi er samsýning norrænna textíl-
listamanna. Hún stendur nú yfir í fjóröa sinn og aö þessu sinni
á Kjarvalsstööum.
520 verk voru send til dómnefndar sýningarinnar sem svo
valdi úr 80 verk. Margir velþekktir listamenn eru meöal þeirra
sem sýna sem og ungir og upprennandi. Á sýningunni má sjá
margar nýjungar í meöferö efnis og forms.
Fulltrúar íslands á sýningunni eru: Guörún Gunnarsdóttir,
Guörún Marínósdóttir, Hólmfríöur Árnadóttir og Sigurlaug Jó-
hannesdóttir.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 14.00 til 22.00. Henni lýkur
25. ágúst.
i gær. Þetta er önnur einkasýning
Ellnar og sýnir hún málverk unnin I
pappír og silki.
Sýningin verður opin til sunnu-
dagsins 18. ágúst frá kl. 13.00 til
20.00 daglega.
ísafjörður:
Sýning í Slunkaríki
Lára Gunnarsdóttir sýnir um
þessar mundir ( Slunkariki á Isafiröi.
A sýningunni eru 14 teikningar unn-
ar með blýanti, litblýanti og kolum.
Lára var viö nám í Myndlista- og
handiöaskóla íslands frá 1978 til
1983. Þessi sýning er fyrsta einka-
sýning hennar en áöur hefur hún
tekið þátt i nokkrum samsýningum.
Sýningin er opin frá kl. 14.00 til
18.00 þriöjudaga til föstudaga og
frá kl. 15.00 til 18.00 um helgar.
Henni lýkur á morgun.
Ferstikla, Hvalfirði:
Málverkasýning
Ólafur Thorlacius opnaöi um
mánaðamótin málverkasýningu I
veitingaskálanum Ferstiklu I Hval-
firöi.
Hann sýnir þar vatnslitamyndir,
landslagsmyndir frá Vesturlandi.
Sýningin stendur I mánuö.
SOFN
Þjóöminjasafniö:
íslenskar hannyrðir
í Bogasal
Nú stendur yfir í Bogasal ÞjóÖ-
minjasafnsins sýning á verkum Is-
lenskra hannyröakvenna og nefnist
hún „Með silfurbjarta nál“. Þar gefur
aö líta verk eftir rúmlega 40 konur
sem uppi voru frá því á 12. öld og
fram undir slðustu aldamót. A sýn-
ingunni er leitast viö aö draga fram
helstu einkenni hinnar Islensku út-
saumshefðar. Mjög vegleg sýn-
ingarskrá hefur veriö gefin út og er i
henni meðal annars aö finna ævi-
ágrip allra þeirra kvenna sem verkin
á sýningunni eru eftir.
Sýningin er opin daglega frá kl.
13.30 til 16.00 fram I október.
Ásgrímssafn:
Sumarsýning
Sumarsýning Asgrimssafns
stendur yfir til ágústloka. Sýningin er
haldin á heimili listamannsins. A
neöri hæö er aö finna eldri málverk
hans en á efri hæöinni gefur aö llta
yngri verk, ollumálverk, teikningar
og vatnslitamyndir.
Lögö hefur veriö áhersla á aö
hafa sýninguna sem fjölbreytilegasta
bæöi hvaö varöar myndefni og
tækni. Safniö er opið alla daga
nema laugardaga frá kl. 13.30 til
16.00. Aögangur er ókeypis.
Ásmundarsafn:
Konan í list
Ásmundar
Nú stendur yfir i Asmundarsafni
viö Sigtún sýning sem ber heitiö
„Konan i list Asmundar". Er hér um
aö ræöa myndefni sem tekur yfir
mestallan listferil Asmundar og birt-
ist I fjölbreytilegum útfærslum.
Sýningunni sem stendur til næsta
vors, er skipt I fjórar einingar sem
sýndar eru I fjórum sölum safnsins:
Kona og karl, niöri I kúlunni, Kona
viö vinnu, I pýramldunum, og Kona
sem tákn, I skemmunni.
Safnið er opiö alla daga frá
kl. 10.00 til 17.00.
Árbæjarsafn:
Sumarsýning
Sumarsýning Arbæjarsafns
stendur yfir. Hér er um aö ræöa far-
andsýningu frá Þjóöminjasafni
Grænlendinga I Nuuk. Sýndir eru
grænlensku bátarnir quajaq og umi-
aq.
Sýningin er opin á opnunartlma
safnsins sem er frá kl. 13.30 til
18.00 alla daga nema mánudaga.
Sædýrasafnið:
Dýrín mín
stór og smá
Sædýrasafnið veröur opiö um
helgina eins og alla daga frá kl.
10.00 til 19.00.
Meðal þess sem er til sýnis eru
háhyrningar, Ijón, Isbjörn, apar,
kindur og fjöldi annarra dýra, stórra
og smárra.
Listasafn
Háskóla íslands:
Nútímaverk ís-
lenskra listamanna
Listasafn Háskóla fslands I Odda
(nýbyggingu Háskólans beint upp af
Norræna húsinu) sýnir 90 verk úr
safni sínu. Um er aö ræöa úrval af
nútlmaverkum safnsins sem öll eru
eftir Islenska listamenn.
Sýningin er opin daglega frá kl.
13.30 til 17.00. Aðgangur er ókeyp-
is en sýningarskrá má fá keypta hjá
gæslukonu á staðnum. Sýningin
mun standa fram í september.
SAMKOMUR
Fógetinn:
Angus Rolk)
kominn aftur
Angus Rollo sem spilaöi og söng
á Fógetanum fyrr i sumar er kom
aftur til landsins um slðustu helgi.
Mun hann skemmta gestum Fóget-
ans í Aðalstræti til 22. ágúst, öll
kvöld nema mánudagskvöld, en þá
eru djasskvöld haldin á Fógeta.
Norræna húsið:
Grafíkmyndir eftir
Piu Schutzmann
í anddyri Norræna húsains stendur nú yfir sýning á grafík-
myndum eftir danskan myndiistarmann, Piu Schutzmann.
Pia Schutzmann byrjaói ekki aó fást viö myndlist fyrr en hún
var oröin þrítug, fékk þá inngöngu í Listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn. Fyrstu árin vann hún aöallega vió grafík og teikn-
ingar, á seinni árum hefur hún snúið sér meir aö olíumálverki og
höggmyndum. í Danmörku er hún þó einkum þekkt sem grafík-
listamaöur.
Hún hefur sýnt grafíkmyndir á öllum Noröurlöndunum áður,
nema íslandi. Sýningin veröur opin á venjulegum opnunartíma
Norræna hússins og lýkur 22. ágúst.