Morgunblaðið - 06.09.1985, Page 2

Morgunblaðið - 06.09.1985, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985 eyraar- og talmeinastöð íslands Viðtal við Einar Sindrason yfirlækni Texti: HJR Undirstaða venjulegra tjáskipta er aö fólk heyri og geti talað. Hér áöur fyrr var litið á þaö sem óumflýjanleg örlög ef öörum hvorum eöa báöum þessum þáttum var ábótavant. Meö auk- inni tækni og þekkingu hefur þessi afstaða breyst. En því miöur hafa aukin tækni og iönvæöing einnig haft þaö í för meö sér aö heyrnartap af völdum hávaöa er oröiö út- breiddasti atvinnusjúk- dómur í heimi, sam- kvæmt skýrslum Al- þjóöaheilbrigöismála- stofnunarinnar. Hvaö er til ráöa? Hvert eiga þeir aö snúa sér sem finnst þeir vera aö tapa heyrn eöa hafa grun um aö einhver þeim nákominn heyri ekki eins vel og skyldi? Er eitthvaö hægt aö gera fyrir börn sem ekki ná réttum hljóöum og þá er eiga í talöröugleikum vegna sjúkdóma? Svariö við öllum þessum spurning- um er aö finna hjá starfsfólki Heyrnar- og talmeinastöövar ís- lands. Blaðamaður sneri sér þvi til Einars Sindrasonar yfirlæknis Heyrnar- og talmeinastöövar ls- lands og baö hann aö greina frá starfsemi stöövarinnar. „Samkvæmt lögum á stofnunin aö annast hvers konar þjónustu viö heyrnarskerta, t.d. prófun heyrnar og úthlutun heyrnar- tækja,“ sagöi Einar. „Einnig sjúk- dómsgreiningu málhaitra, heyrn- armælingar í fyrirbyggjandi til- gangi, t.d. vegna hávaöa viö vinnu eöa notkunar lyfja. Þá skal stofn- unin hafa yfirumsjón meö þjálfun og endurhæfingu heyrnarskertra og málhaltra, heyrnartækjameð- ferð og heyrnarrannsóknum, í samráöi viö aöra aöila er starfa á þessum vettvangi. Stofnunin skipuleggur feröir starfsmanna sinna til aöstoöar heyrnardaufum og málhöltum úti á landi og er reynt aö heimsækja hvern staö annaö hvert ár. Haft er náiö samstarf viö Háls-, nef- og eyrnadeild Borgarspítalans í Reykjavík, enda er stofnuninni ætl- uö þar framtíöarstaösetning í þeg- ar hönnuöum húsakynnum göngu- deildar HNE í Borgarspítalanum. Þá hefur stofnunin í samráöi viö skólastjóra og kennara Heyrnleys- ingjaskólans sérfræöilega umsjón Einar Sindrason yfirlæknir. meö heyrnaruppeldis- og læknis- fræöilegri meðferö og rannsókn nemenda skólans. Hiö sama gildir um sérdeildir heyrnardaufra i al- mennum skólum og um stofnanir og sérdeildir fyrir þroskaheft fólk og um samráö viö skólastjóra og kennara þeirra. Svo ærin eru verk- efnin. Heyrnar- og talmeinastööin flutti í núverandi húsnæöi áriö 1980 og var hlutverk hennar þá verulega aukiö. Áöur haföi hún veriö í hús- næöi Heilsuverndarstöövar Reykjavíkur, þá undir styrkri stjórn Erlings Þorsteinssonar er unniö hefur mikiö brautryöjandastarf á sviöi heyrnarlækninga hérlendis," sagöi Einar. „Viö teljum rétt aö sama stofn- unin sinni greiningu á heyrnar- og talmeinum, enda er þaö form haft á t.d. í Bretlandi og Bandaríkjun- um. Þegar börn fara í 4 ára skoöun er heyrnin athuguö, einnig þegar þau hefja nám í grunnskóla og þegar þau Ijúka þaöan námi. Ef eitthvaö finnst athugavert er börn- unum vísaö til okkar til frekari rannsóknar. Morgunbladiö/Friöþjófur Helgason ylgni milli seins málþroska og erfiðleika við nám síðar — Rætt við Friðrik Rúnar Guðmundsson talmeinafræðing Texti: HJR Friörik Rúnar talmeina- fræöingur hjá Heyrnar- og talmeinastöö islands sagöi aö ekki væru til neinar tölur hér á landi um þaö hvaö mörg börn þyrftu á aöstoö aö halda vegna talöröugleika. En eftir því sem þekktist hjá öörum þjóö- um mætti ætla að um 10% barna þyrftu athugunar viö. Fólk væri oröiö meðvitaöra um aö hægt væri aö gera ýmsa Muti og þeir sem sjálfir pöntuöu tíma hjá HTÍ væru flestir foreldrar sem heföu áhyggj- ur af því aö börn þeirra heföu ekki náö fullu valdi á talmáli áöur en Þrýstimæling framkvæmd. þau byrjuöu í skóla. Slíkar áhyggj- ur væru réttmætar þar sem ákveö- in fylgni væri milli seins málþroska og erfiöleika viö lestrarnám, staf- setningu og tungumálanám síöar. Algengustu talmeinin væru seinn málþroski og framburöargallar. Til sín heföu frá áramótum komiö á 4 hundraö börn og væru drengir þar í miklum meirihluta. Heyrnar- og talmeinastööin væri fyrst og fremst greiningaraöili en sökum mannfæðar gæti stofnunin lítiö sinnt meöferö. Ef í Ijós kæmi aö talöröugleikarnir stöfuöu af heyrnardeyfu væri börnunum vís- aö til Athugunar- og greiningar- deildar Heyrnleysingjaskólans. Ef málþroskaathugun sýndi veruleg frávik frá eölilegri getu samkvæmt aldri væri barninu vísaö í Kjar- valshús meö aöstoö barnalæknis, en þar væri nú 2 ára biðlisti. Ef

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.