Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985 Hafandi fyrir okkert mörgum séd og heyrt Mezzoforte spila í litlum skólasölum á íslandi fyrir þette niöur í kannski tíu áheyrendur er þetta allt hálfótrúlegt. Sautján þusund manns komu á tónleika Mezzoforte á Flötinni ( Ttvoli aó meötöldum starfsmönnum skemmtigarðsins og japönskum myndavélasölu- mönnum eistei skemmtigaróinum Fyrsti og síðasti kafli sannrar frásagnar þar sem segir frá tvennum tónleikum íslensku hljómsveitarinnar Mezzoforte í Kaupmannahöfn Texti og myndir: Sveinbjörn I. Baldvinsson Þaö er hiö besta veöur í Kaup- mannahöfn. Af þykkum dag- blööunum má ráöa aö þaö sé sunnudagur, tuttugasti og fyrsti júlí. íslenska kjarnafjölskyld- an vaknar í nokkrum atrennum, stríðir viö það um stund aö veröa ein klædd heild og leggur á ráöin um strandhögg dagsins. Reyndar er þegar nokkuð Ijóst hvaö liggur fyrir, því komiö hefur i Ijós aö Frissi, Eyþór, Gulll og Jói, ööru nafni Mezzoforte, séu aö spila • Tivolí klukkan þrjú. Af djúpri þjóö- erniskennd er glaöst yfir aö þeir muni fá gott veður, en verra er að stórbrotnir útihljómleikar fara fram á sama tíma úti í Valby, þar sem danska rokklandsliðið mætir í Tu- borg-búningum og spilar til ágóöa fyrir vöðvarýrnunarsambandiö. Svo er Gitte Hænning líka aö þenja sig í Fælledparken, en þaö er svolít- iö ánnar handleggur, allt önnur Ella, eins og beinast liggur viö aö oröa þat>. ,Úpp úr hádegi (sem ætla mætti a6 heföi veriö langt undan þegar íslenska kjarnafjölskyldan vaknaöi, en var þaö ekki) er haldiö af staö áleiöis í paradís íslenskra feröa- barna, Tívoli. Þegar þangað kemur, * rúmum klukkutíma fyrir tónleikana, er fólk þegar fariö aö streyma aö. Á Flötinni er sviöiö tilbúiö. Mannf jöld- inn jókst hratt bæöi utan afgirta svæöisins framan viö sviöið og innan þess, þar sem hægt er aö kaupa sér sæti. Hafandi fyrir ekkert mörgum árum séö og heyrt Mezzo- forte spila í litlum skólasölum á ís- landi fyrir þetta niður í kannski tíu áheyrendur, er þetta allt hálf ótrú- legt, en óneitanlega ansi gott fyrir litlu þjóðarsálina, sem alltaf virðist láta á sér kræla um leið og maöur stigur niöur fæti á útlendum flug- velli. Kannski er þaö eitthvaö í sambandi við matinn í flugvélunum. Næsta klukkutímann fyllist allt af fólki, bæöi á bekkjunum og standandi allt í kring. Auövitaö er yst í mannhafinu töluvert af japönskum myndavéla- sölumönnum sem fremur eru á höttunum eftir hinu eina sanna Ijós- opi en íslensku jassrokki og maöur sér dag eftir dag tölta inn og út úr sömu stóru rútunni frá Pedersens T uristfart í Hvidovre. Pedersen þessi gerir þaö greini- lega mjög gott á sumrin. Einnig má grilla þar i slangur af rosknum Ameríkönum í tíu daga Evrópuferö, meö dómkirkjum, minnismerkjum, Eiffelturnum og Kaupmannahöfn, heimalandi Danny Kays og Ijóta andarungans. Nær úir hins vegar og grúir af dönskum ungmennum, sólbrúnum og sællegum, í fötum sem gefa til kynna mikla fimi í seglbrettasigling- um og tennisleik. Inni á milli standa svoTívolíveröirnir ífínu svörtu jökk- unum meö rauðum boöungum og gylltumhnöppum. Þegar klukkan fer aö nálgast þrjú veröur vart viö hreyfingu á sviöinu. Þaö eru þó ekki stjörnurnar sjálfar, heldur nokkuö skrautlegur hópur rótara og hljóðmanna og slíkra til- heyrandi aöstoöarmanna. Heyra má kliö fara um Flatargesti í hvert sinn sem hreyfing sést bakatil viö sviöiö. aö er svo á slaginu þrjú að fjórmenningarnir frá íslandi arka inn á sviðiö ásamt góö- um liösauka viö mikil fagnað- arlæti. Liösaukinn er annars vegar hollenski slagverksleikarinn Jer- ome de Jijk og hins vegar danski saxófónleikarinn Niels Macholm. Eyþór kveikir á einni græjunni sinni og þökk sé undrum tölvualdar byrj- ar dynjandi undirleikur aö bragöi. Menn munda nú, mér liggur viö aö segja eldfærin vegna áhrifa frá þjóöarskáldinu, en menn munda sem sagt hljóðfærin og einn af öörum tekur til viö að fylla út hljóö- myndina sem brátt veröur skýr og kunnugleg. Eftir fyrsta lagiö tekur Jóhann Ásmundsson bassaleikari til máls á enskri tungu og ávarpar fjöldann. Síðan leika þeir blúsinn sinn góöa og smátt og smátt myndast hin besta hljómleikastemmning. Þaö er auöséö aö gestirnir þekkja flest lögin. Þriöja verkiö á efnisskránni er Rockall og hafi einhver viö- staddra efast um þaö í upphafi aö Mezzoforte væri nógu stórt númer til aö ná upp dampi á Flötinni í Tív- olí, hlýtur sá hinn sami aö fara aö endurskoöa afstööu sina, eins og málglaöur stjórnmálamaöur aö afstöönum kosningum. Aö loknu hinu fallega, hæga titil- lagi siöustu plötunnar, Rising, hefst mikið trommu- og slagverksdúó, þar sem þeir Jerome de Rijk og Gunnlaugur Briem leika lausum hala á tunnur sínar og leirtau, eins og óvandaöur maöur kallaði ein- hverju sinni þau tól sem meö réttu heita bumbur og málmgjöll. (Sami aöili hefur einnig heyrst taka sér í munn orðiö „skápur“ um hið stæöi- iega hljóöfæri kontrabassann og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.