Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985 B 13 an mælikvarða í kvikmynda- tökuhópnum má nefna Þórarin Guönason, kvikmyndatöku- mann og Gunnar Smára Helga- son, hljóðmann. Aðstoðarmaður hans er svo eiginkonan, Kristín Erna Arnadóttir, en „Eins og skepnan deyr,... “ er fyrsta myndin sem hún vinnur viö. En þó orðið „gamalreyndur“ hafi borið á góma hér áðan ber ekki að skilja það svo að meðal- aldurinn í hópnum sé ýkja hár, hvorki hjá þeim sem vinna fyrir framan vélar eða aftan. Og leik- urunum ber saman um að það sé ekki síst heppilegt, „rétt eins og það að við leikararnir þrír er- um á svipuðu reki, höfum öll út- skrifast úr Leiklistarskólanum á sl. árum, öll gengiö í gegnum sama námiö og hjá sömu kenn- urunum og þekkjum tækni hvers annars,“ segir Edda Heiðrún. Er eitthvað umfram annað sem hefur komið þeim leikurum á óvart við vinnuna? „Ekki nema það hvað enda- laust er hægt að betrumbæta hlutina og sína eigin vinnu,“ heldur Edda Heiðrún áfram. Lít- ur síðan á nærliggjandi nótna- hefti og bætir við: „og hvað það er erfitt að læra á þverflautu!" Og mótleikarinn kinkar kolli, að vísu ekki í átt til þverflautunnar, heldur til ritvélar sem trónir á vinnuboröinu. Af öörum sem leggja skepn- unni lið sitt eru þær Elín Sveinsdóttir, sem i senn er skrifta og förðunarmeistari myndarinnar. Er þetta fyrsta ís- lenska myndin sem hún vinnur aö, en að loknu förðunarnámi i Frakklandi vann hún við gerð franskrar myndar áður en leiðin lá heima. Hulda Kristín Magn- úsdóttir sér um búninga, auk þess aö annast matseld á staðnum, en Hulda Kristín vann einnig meö Hilmari viö gerö myndarinnar „í skugga Scartar- is“, sem hann geröi meðan á kvikmyndagerðarnáminu stóð. j samskonar námi í Þýskalandi er nú vinur hans og aðstoðarleik- stjóri myndarinnar, Þorgeir Gunnarsson, og einn aðstoðar- manna í kvikmyndatöku- hópnum, Ólafur Rögnvaldsson, nema hvað hans nám fer fram í allt öðru landi og með „amerísk- um“ hreim. Annar aðstoðar- maður kvikmyndatökuhópsins er svo Jóhann Haukur Sigurðs- son. „Eins og skepnan deyr, ... “ er framleidd af kvikmyndafyrir- tækinu Bíó hf., en að því standa Jón Ólafsson og Hilmar Odds- son. Kostnaðaráætlun myndar- innar hljóöar upp á tæpar 8 milljónir króna, en til myndar- innar hefur í tvígang verið veittur styrkur úr kvikmyndasjóði, fyrst úthlutun upp á 2 milljónir króna og í aukaúthlutun nú nýverið 1,9 milljónir króna þar til viöbótar. Ráðgert er að vinnunni í Loð- mundarfirði Ijúki í septemberlok og ætti því myndin að koma kvikmyndahúsagestum fyrir sjónir á fyrri hluta næsta árs. Q I undanförnum tveimur föstudagsblöðum höfum við ffjaMað um heilsuna í greinum sem bera yfirskriftina „Mataræði — hr.nistur _____________________________líkami“._____________________________ Fyrir þá sem vilja kynna sér málið nánar og vonandi leggja eitt- hvað svolítið á sig til að öðlast hraustari líkama, birtum við í dag síðasta hluta greinarinnar, sem byggir á töflum og línuritum í fram- haldi af því sem áður hefur verið sagt. Og svo er bara að vona aó einhverjir verði til að gera meira en að lesa sér til um málið Hitaeiningaþörfin breytist með aldrinum Hitaeiningaþörf karla (efri lína) og kvenna (neðri lína) er mest ó táningsaldri og þá er miamunur á þörfinni mestur. Þarfir einstakl- inganna eru vitaskuld mjög mis- munandi. Ófrískar konur og þter sem eru meö börn á brjósti þurfa meira en gefið er til kynna á töfl- unni. Sá sem æfir íþróttir mjög stift getur einnig borðað tvisvar til þrisvar sinnum meira en gefiö er upp og samt haldið kjörþyngd sinni. Eftir því sem fólk hreyfir sig minna, minnkar hitaeiningaþörf- in. Ef borðað er meira en likam- inn brennir, safnast fita á líkam- ann. Æskilegt hlutfall hæðar og þyngdar Litaöi hlutinn á töflunum sýnir ssskilegt lágmarks- og hámarkshlutfall hsaöar og þyngdar karla og kvenna. Með aukínni yfirvigt eykst hsstta á ýmsum sjúkdómum. Töflurnar eru teknar úr enska blaðinu „The lllustrated London News — Health, Diet & Fitness" og er þar gert ráð fyrír heldur smávaxnara fólki en islendingar eru margir hverjir. Að brenna hitaeiningum Hjólað (21 km á klst.) 660 hitaein á klst Ekió bil 165 hitaein a klct. Leikiö goif 250 hitaein a klst Straujaö 180 hitaein á klst. Hlaupið (skokkaöj 600 hitaein. á klst Leikinn veggjabolti 600 hitaein a klst. Synt 350 hitaein. á klst Ryksugað 210 hitaein. á klst Gengió (6.5 km á klst.) 350 hitaein. á klst Tölurnar eru viðmiðunartölur og breytast eftir þyngd hvers og eins og því hversu hratt og kappsamlega viðkomandi hreyfir sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.