Morgunblaðið - 06.09.1985, Page 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
LIST
Listmunahúsiö:
Karl Kvaran
A morgun kl. 14.00 opnar Karl
Kvaran sýningu á 30 tússmyndum
og olíumálverkum.
Karl hefur haldiö fjölda einkasýn
inga og tekið þátt í samsýningum.
meðal annars með Septem-hópn-
um.
Sýningin er opin frá kl. 10.00 til
18.00 virka daga en frá 14.00 til
18.00 um helgar. A mánudögum er
lokað. Allar myndirnar eru til sölu.
Sýningunni lýkur 22. september.
Gallerí Borg:
Daði Guðbjörnsson
Daði Guðbjörnsson myndlistar-
maöur opnaði i gær sýningu á 21
olíumálverki og dukristú i Galleri
Borg.
Þetta er fjórða einkasýning Daða.
en hann nam hér heima og i Hol-
landi.
Sýningin er opin frá kl. 12.00 lil
18.00 virka daga en frá 14.00 til
18.00 um helgar. Henni lýkur
16.september.
HVAD
ERAD
GERAST
UM
Gallerí Langbrók:
Sóleyjarsýning
Sýningin á fellistólnum Sóleyju og
borði Valdimars Harðarsonar verður
framlengd til 15 september.
Galleríið er opið frá kl. tO.OO til
18.00 virka daga en frá 14.00 til
18.00 um helgar.
Kaldilækur:
Ragnar Kjartansson
Nú stendur yfir í Kaldalæk i
Ólafsvík sýning á vatnslitamyndum
eftir Ragnar Kjartansson mynd-
höggvara.
20 myndir eru á sýningunni. Hún
stendur til 15. september.
Kjarvalsstaöir:
Septem-hópurinn
Septem-hópurinn sýnir á Kjar-
valsstööum þessa dagana. Sýningar
hópsins hafa verið haldnar árlega
síðustu þrettán árin.
Um 60 verk eru á sýningunni.
Henni lýkur 15. sepfember.
Frá vinstri Símon ívarsson og Siegfried Kobilza.
Vestfirðir:
Tveir gítarleikarar
Símon ívarsson og Siegfried Kobilza munu á
næstunni ferðast um Vestfirði og leika á gítara sína
á ýmsum stöðum.
Á efnisskránni er lótt klassísk tónlist, meðal ann-
ars verk eftir Beethoven, J.S. Bach, M. Praetorius
og Boccherini.
Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld kl. 21.00 í félags-
heimilinu i Bolungarvík. Á morgun kl. 16.00 leika
þeir fólagar í ísafjarðarkirkju og á sunnudaginn á
Flateyri. Þeir tónleikar verða í mötuneyti Hjálms hf.
og hefjast kl. 20.30.
Þrastarlundur:
Sígríður Gyda
Siguröardóttir
Sýning á vatnslitamyndum eftir
Sigriöi Gyðu Sigurðardóttur stendur
nú yfir í veitingastofunni Þrastarlund
við Sog. A sýningunni eru 23 verk.
Þetta er fjóröa einkasýning Sigríðar
i Þrastarlundi. Hún hefur tekið þátt i
fjölmörgum samsýningum og einnig
átt verk á haustsýningum Félags is-
lenskra myndlistarmanna. Sýning-
unni lýkur á sunnudaginri.
Byggingaþjónustan:
Auður Ólafsdóttir
Efnilegu listafólki verður boðið að
sýna verk sin á „ pallborði" Bygg-
ingaþjónustunnar í vetur. Fyrsta sýn-
ingin hófst um síöustu helgi og er
það sýning á blýantsteikningum,
vatnslitamyndum, kritarmyndum og
pastelmyndum eftir Auði Ólafsdótt-
ur.
Sýningin er opin frá kl. 14.00 til
18.00 um helgar en á virkum dögum
frá kl. 10.00 til 18.00. Henni lýkur á
sunnudaginn.
Café Gestur:
Málverkasýning
í Café Gesti við Laugaveg stend-
ur nú yfir sýning á verkum Ómars
Stefánssonar. Þar verða einnig
kynntar tvær bækur eftir Ómar.
Aðra hefur hann gert einsamall en
hina í samvinnu við Björn Roth.
Sýningunni lýkur um helgina.
Gallerí Salurinn:
Óður til íslands
Gunnar Karlsson sýnir um þessar
mundir olíumálverk og skúlptúr í
Galleri Salnum, Vesturgötu 3.
Sýninguna kallar hann Óð til ís-
lands, en hann hefur verið búsettur
víðsvegar á Norðurlöndum síðustu
fimm árin.
Galleri Salurinn er opið frá kl.
13.00 til 18.00 alla daga nema
mánudaga. Fimmtudaga er opiö til
22.00.
Sýningunni lýkur 13. september.
Krákan:
Myndlist og spilverk
i Krákunni viö Laugaveg stendur
nú yfir sýning á gömlum og nýjum
olíu- og pastelverkum Guðmundar
Björgvinssonar.
Tryggvi Húbner sem er við nám I
klassískum gitarleik á Spáni mun
leika fyrir gesti i matartimanum á
föstudags- og laugardagskvöldum.
Geröuberg:
Vatnslitamyndir
íslensk kona, Helga Windle, sem
búsett hefur verið i London, sýnir
Dr. Sven Sandström.
Norræna húsiö:
List,
merking
og
upplifun
Dr. Sven Sandström
prófessor í nútímalista-
sögu viö háskólann í
Lundi heldur fyrirlestur
í Norræna húsinu á
morgun kl. 16.30.
Fyrirlesturinn nefnist
„List, merking og upp-
lifun“ og mun einkum
fjalla um skynjun og
túlkun á listaverkum.
Dr. Sandstrröm er
einn kunnasti listfræð-
ingur á Norðurlöndum
og hefur samið fjölda
bóka um listfræðileg
efni meðal annars um
endurreisnartímann,
nútímalist, listfélags-
fræði og listsálarfræði.
Með fyrirlestrinum
veröa sýndar litskyggn-
ur.
þessa dagana vatnslitamyndir í
menningarmiðstöðinni viö Gerðu-
berg i Breiðholti.
Gerðuberg er opið frá kl. 14.00 til
18.00 um helgar en frá 16.00 til
20.00 virka daga.
Sýningunni lýkur 15. september.
Golfskálinn Jaöri:
Málverkasýning
Iðunn Agústsdóttir opnaði mál-
verkasýningu í golfskálanum Jaðri
síðastliðinn laugardag.
A sýningunni eru 60 verk unnin i
olíu og pastel, öll nýleg. Myndirnar
eru allar til sölu.
Þetta er áttunda einkasýning Ið-
unnar, en hún sýndi siðast um pásk-
ana á Akureyri.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14.00 til 22.00.
Gallerí íslensk list:
Sumarsýning
17 listmálarar sýna 40 verk I Gall-
erí íslensk list, Vesturgötu 17, á
sumarsýningu sem nú stendur yfir.
Þar er opið daglega frá kl. 9.00 til
17.00 en lokað um helgar.
Sýningunni lýkur 20. september.
Slunkaríki, ísafirði:
Hdgi Vilberg
í Slunkaríki á ísafirði stendur nú
yfir sýning á sjö málverkum eftir
Helga Vilberg. Allar myndirnar eru til
sölu.
Skíðaskálinn í
Hveradölum:
Málverkasýning
Bjarni Jónsson listmálari sýnir
olíumálverk og vatnslitamyndir I nýja
gróðurskálanum við skíðaskálann í
Hveradölum. Sýningin er opin alla
daga.
LEIKLIST
Stúdentaleikhúsið:
EKKÓ
Stúdentaleikhúsið ferðast nú um
landið með tillegg sitt til árs æsk-
unnar, rokk-söngleikinn „Ekkó —
eða guðirnir ungu".
Verkið er eftir Sviann Claes And-
erson, en Ólafur Haukur Símonarson
þýddi það og samdi söngtexta.
Tónlistin er eftir Ragnhildi Gisladótt-
ur. Andrés Sigurvinsson leikstýrir.
Um helgina eru tvær sýningar
fyrirhugaðar, á Hvammstanga á v
föstudagskvöldið en á Blönduósi
laugardagskvöld. Báðar sýningarnar
hefjast klukkan 21.00.
SOFN
Ásmundarsafn:
Konan í list
Ásmundar
Nú stendur yfir I Asmundarsafni
við Sigtún sýning sem ber heitið
„Konan I list Asmundar". Er hér um
að ræða myndefni sem tekur yfir
mestallan listferil Asmundar og birt-
ist i fjölbreytilegum útfærslum.
Sýningunni, sem stendur til
næsta vors, er skipt i fjórar einingar
sem sýndar eru i fjórum sölum safns-
ins: Kona og karl niðri I kúlunni,
Kona við vinnu I pýramídunum og
Kona sem tákn i skemmunni.
Safnið er opið alla daga frá kl.
10.00 til 17.00.