Morgunblaðið - 06.09.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
B 15
Skálholt:
Kór Sankt Annae-menntaskólans
Kór Sankt Annae-menntaskólans í Kaupmannahöfn heldur tónleíka í Skálholtskirkju á morgun kl. 17.00. Á efnisskránni er kirkjuleg
tónlist.
Kórinn hefur dvalist á íslandi upp á síókastið, fyrst á Akureyrí, þar söng hann í kirkjunni, og nú síöustu daga í Reykjavík.
Kórinn telur um 200 manns og mun vera stœrsti kór Noröurlanda. Tæplega 150 kórfélagar taka þátt í íslandsferðinni.
Hann heldur af landi brott á sunnudaginn.
FERÐIR
Hana-nú:
Faríð í berjamó
A morgun kl. 13.00 fara félagar I
Frístundaklúbbnum Hana-nú I berja-
mó. Lagt veröur af staö frá Digra-
nesvegi 12.
Þátttöku skal tilkynna I slma
44677 í dag eöa í síma 16603 I
kvöld milli kl. 18.00 og 20.00.
Útivist:
Heigarferðir
Fariö veröur i Þórsmörk og hún
skoðuð í haustskrúðanum. Gist i
Básum. Einnig verður ferö um Fjalla-
baksleiö syðri.
Dagsferöir á sunnudag
Þórsmerkurferö. Lagt af staö kl.
8.00.
Kl. 9.00 verður lagt af stað i ferö
um Linuveginn sem er falleg öræfa-
leiö frá Uxahryggjum um Hlööuvelli
aö Gullfossi.
Selsvellir — Hraunssel — is-
Norræna húsið:
Ulla Sangervo-Lappalainen
Á morgun veröur opnuö sýning á leirskúlptúrum
eftir finnsku listakonuna Ulla Sangervo-Lappalain-
en í anddyri Norræna hússins.
Ulla Sangervo-Lappalainen fæddist í Turku og
hóf feril sinn meö því aö vinna í postulíns-
verksmiójum í Finnlandi og Svíþjóö. Hún stundaöi
nám viö Konstfack-skólann í Stokkhólmi og
Listiönaðarskólann í Helsinki. Eftir það fékkst hún
nokkuð viö kennslu í keramik viö ýmsa skóla í
Finnlandi.
Sýningin verður opin á venjulegum opnunartíma
Norræna hússins og stendur til 19. september.
Þjóöminjasafniö:
íslenskar hannyrðir
í Bogasal
Nú stendur yfir I Bogasal Þjóö-
minjasafnsins sýning á verkum (s-
lenskra hannyröakvenna og nefnist
hún „Meö silfurbjarta nál“. Þar getur
aö líta verk eftir rúmlega 40 konur
sem uppi voru frá því á 12. öld og
fram undir slöustu aldamót. A sýn-
ingunni er leitast við að draga fram
helstu einkenni hinnar islensku út-
saumshefðar. Mjög vegleg sýn-
ingarskrá hefur veriö gefin út og er I
henni meðal annars aö finna ævi-
ágrip allra þeirra kvenna sem verkin
á sýningunni eru eftir.
Sýningin er opin daglega frá kl.
13.30 til 16.00 fram I október.
Listasafn
Einars Jónssonar:
Listasafn Einars Jónssonar er
opiö alla daga nema mánudaga I
sumar, frá kl. 13.30 til 16.00.
Höggmyndagarðurinn er opinn
daqlega frá kl. 11.00 til 17 00
Listasafn Há-
skóla íslands:
Nútímaverk ís-
lenskra listamanna
Listasafn Háskóla islands I Odda
(nýbyggingu Háskólans beint upp af
Norræna húsinu) sýnir 90 verk úr
safni sinu. Um er aö ræöa úrval af
nútímaverkum safnsins sem öll eru
eftir fslenska listamenn.
Sýningin er opin daglega frá kl.
13.30 til 17.00. Aðgangur er ókeyp-
is en sýningarskrá má fá keypta hjá
gæslukonu á staðnum. Sýningin
mun standa fram I september.
Sædýrasafniö:
Dýrín mín
stór og smá
Sædýrasafnið veröur opið um
helgina eins og alla daga frá kl.
10.00 til 19.00.
Meðal þess sem er til sýnis eru
háhyrningar, Ijón, isbjörn, apar,
kindur og fjöldi annarra dýra stórra
og smárra.
SAMKOMUR
Norræna húsiö:
Kammerkór
Sankt Annae
I kvöld kl. 20.30 veröa tónleikar I
Norræna húsinu 30 til 40 mánna
kammerkórs, skipaöur kórfélögum
úr Sankt Annae kórnum danska sem
staddur er hér á landi.
A efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir W. Stenhammer, L. Bernstein,
Sv. S. Schultz og V. Holmboe. Aö-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Ölkeldan:
Þjóðlagakvöld
Grétar, Matti og Wilma munu sjá
gestum Ölkeldunnar viö Laugaveg
fyrir fjörugri þjóölagatónlist næstu
föstudags- og laugardagskvöld.
Tónlistin er margvlsleg en írsk,
skosk, norræn og slavnesk þjóölög
veröa mest áberandi.
Skíöaskálinn í
Hveradölum:
50 ára afmæli
skálans
Skíöaskálinn I Hveradölum heldur
um þessar mundir upp á fimmtlu ára
afmæli sitt. í tilefni af þvi hafa Hauk-
ur Morthens og félagar leikiö og
sungiö fyrir gesti og gangandi. Þeir
munu halda þvi áfram fram á haust-
iö, hvert föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Hótel Saga:
Hljómsveit
Grétars Örvarssonar
Hljómsveit Grétars örvarssonar
leikur fyrir dansi á Hótel Sögu á
föstudags- og laugardagskvöldum.
HLH-flokkurinn skemmtir gestum
staðarins sömu kvöld.
Hótel Borg:
Orator með dansleiki
Hótel Borg hefur tekiö stakka-
skiptum og þar eru aftur haldnir
dansleikir á vegum Orators. Þar
veröur bryddaö á ýmsum nýjungum,
en andi siðastliðins vetrar mun svlfa
yfir vöfnum.
Pöbb-lnn:
Hljómsveitin
Rock-óla
Hljómsveitin Rock-óla leikur fimm
daga vikunnar á Pöbb-lnn viö Hverf-
isgötu 46, þaö er aö segja frá miö-
vikudegi til sunnudags. Hljómsveit-
ina skipa Agúst Ragnarsson, Bobby
Harrison, Pálmi Sigurhjartarson og
Rafn Sigurbjörnsson.
Gestgjafinn:
Eyjakvöld
Svokölluö Eyjakvöld eru haldin
föstudags- og laugardagskvöld á
Gestgjafanum I Vestmannaeyjum.
Yfirskrift þeirra er: Ég vildi geta
sungið þér.
Flutt verða lög og Ijóö eftir
Oddgeir Kristjánsson, Asa I Bæ,
Arna úr Eyjum, Gísla Helgason og
Gylfa Ægisson. Þar aö auki verður
flutt hiö nýja þjóöhátiöarlag eftir Lýð
Ægisson og Guöjón Weihe.
I tengslum við Eyjakvöldin verður
boöiö uppá pakkaferðir til Eyja.
Þessi kvöld veröur framreiddur
ýmiss konar matur sem dæmigeröur
má teljast fyrir Vestmannaeviar.
ólfsskáli er ný gönguleið. Hún veröur
gengin á sunnudaginn. Lagt af staö
kl. 10.30.
Loks verður fariö um Selatanga I
ísólfsskála undir leiðsögn ísólfs
bónda Guömundssonar.
Allar upplýsingar fást I slmum
14606 og 23732.
Athugið:
Þeir sem vilja koma upplýsingum
i þátt þennan þurfa að skila þeim á
ritstjórn Morgunblaösins fyrir kl.
18.00 á miðvikudegi, eigi þær aö
birtast næsta föstudag.
Feröafélag íslands:
Helgarferðir
I kvöld verður lagt af stað I feröir I
Þórsmörk og Landmannalaugar.
Klukkan 8.00 I fyrramáliö verður
haldið inn aö Emstrum hvaöan
gengiö veröur I Þórsmörk. Þar verö-
ur gist.
Dagsferðir
Kl.9.00 á sunnudaginn veröur far-
iö í gönguferö á Skriðuna. Ekiö verö-
ur aö Laugarvatni og gengiö af
Miðdalsfjalli á Skriöuna. Kl. 13.00
sama dag verður fariö I haustferð á
Þinqvelli.
„Þjóösaga“ eftir Jón Reykdal.
Kjarvalsstaðir:
Jón Reykdal
Jón Reykdal opnaöi um síðustu helgi sýningu í
vestursal Kjarvalsstaöa. Á sýningunni eru 65 verk,
þurrkrítarmyndir og olíumálverk unnin á síðustu
tveim árum.
Þetta er þriöja eínkasýning Jóns og sú stærsta til
þessa. Henni lýkur 15. september.