Morgunblaðið - 01.10.1985, Síða 7
6 B
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGAR1. OKTÓBER1985
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGAR1. OKTÓBER1985
B 7
mmmmm ■mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm*
• Halldór Áskelsson knattspyrnumaður ársins og Þorleifur Karlsson markakóngur, eftir útnefninguna
á laugardag. Morgunblaöið/Guömundur Svansson
Haildór Áskelsson
knattspyrnumaöur
______• -
ársins á Akureyri
— Þorleifur Karlsson markakóngur
sem hann þekkir frá því aö hann
var hér og ég er því ekkert allt of
bjartsýnn á aö ég komist í liöiö ef
hann þjálfar liöiö áfram.“
Hvernig líst þér á að fá Björn
Árnason sem þjálfara Þórsliös-
ins á nýjan leik?
„Ég er ánægöur meö aö fá
Björn afur. Ég hef aldrei haft
sama þjálfara tvö ár í röö síöan
ég kom í meistaraflokk — en þaö
er gott aö fá Björn nú þar sem
hann þekkir vel til liösins.“
Næstu menn í kjöri knatt-
sþyrnumanns ársins á Akureyri
voru þessir: í ööru sæti varö Sig-
uróli Kristjánsson, Þór, Baldvin
Guömundsson, Þór, varö þriöji,
fjóröi varö Erlingur Kristjánsson
úr KA og í 5.-6. sæti uröu jafnir
Bjarni Sveinbjörnsson úr Þór og
Jónas Baldursson úr Vask.
Markakóngur Akureyrar aö
þessu sinni varö Þorleifur Karls-
son, leikmaöur 6. flokks KA.
Hann skoraöi 12 mörk í þeim 4
leikjum sem telja — Vor, Akur-
eyrar- og Haustmóti. Samtals
skoraöi Þorleifur 54 mörk í
sumar, en eins og menn muna
kannski uröu hann og félagar
hans sigurvegarar í Eimskipafé-
lagsmótinu — óopinberu ís-
landsmóti 6. flokks — en úrslita-
keppni þess fór fram á Akureyri.
I fyrsta skipti var aö þessu
sinni afhentur Sporthúsbikarinn
því félagi sem flest stig fær sam-
tals í Vor-, Akureyrar- og Ha-
ustmótum. KA hlaut bikarinn aö
þessu sinni, hlaut 73 stig í 60
leikjum, Þór hlaut 48 stig í 60
leikjum og Vaskur hlaut 1 stig í 2
leikjum.
— AS.
HALLDÓR Áskelsson úr Þór var
um helgina kjörinn knatt-
spyrnumaöur Akureyrar meö
miklum yfirburöum. Þaö var
Knattspyrnuráö Akureyrar sem
stendur að kjörinu. Hlaut hann
til varðveislu í eitt ár fagra
styttu sem gullsmiöirnir Si-
gtryggur og Pótur gáfu þegar
kjörið fór fyrst fram, árið 1975.
Þaö kom engum á óvart aö Hall-
dór skyldi verða fyrir valinu aö
þessu sinni — hann lék mjög
vel meö Þór í sumar og var kjör-
inn efnilegasti leikmaöur 1.
deildar af leikmönnum liðanna.
Þetta á.' verður Halldóri eflaust
minnisstætt. Síöastliöiö vor var
hann kjörinn íþróttamaður Akur-
eyrar fyrir 1984, í haust var hann
kjörinn efnilegasti leikmaöur 1.
deildar eins og áöur sagöi, helg-
ina þar á eftir var hann kjörinn
knattspyrnumaöur Þórs af leik-
Akureyrar-
meistara-
titlarnir
Akureyrarmeistaratitlar í
knattspyrnu í sumar skiptust
þannig: KA varö meistari í 6 fl. A,
B og C, 5. fl. A og C, 4. fl. A, 3. fl.
A, og flokki 30 ára og eldri.
Þór varð meistari í meistara-
flokki karla og meistaraflokki
kvenna, yngri flokki kvenna, 2.
flokki karla, 3. fl. B, 4. fl. B og 5.
fl. B.
mönnum, og nú knattspyrnu-
maöur ársins á Akureyri.
„Eftir aö ég var kjörinn efni-
legasti leikmaöur 1. deildar ýtti
þaö undir von mína um aö hljóta
kjör hér í dag. Ég er mjög
ánægöur meö sumariö hjá mór
— þaö var góöur stígandi í leik
mínum. Ég var ekki ánægöur
meö fyrstu leikina. Eftirminni-
legustu leikirnir eru hér heima
gegn FH og Fram,“ sagöi Halldór
á sunnudaginn.
Er það rétt að haft hafi verið
samband viö þig frá öörum liö-
um um aö leika meö þeim
næsta sumar?
„Ég get ekki neitaö því aö þaö
hefur veriö haft samband viö mig
en ég fer ekki frá Þór. Ég mun
leika meö liöinu næsta sumar.“
Hvaö segiröu um næsta
sumar hjá Þór?
„Þaö er algjört lágmark aö ná
Evrópusæti næsta sumar og
einnig er engin spurnin um þaö
aö viö eigum aö geta unniö ann-
an bikarinn. Deildin getur ekki
spilast svona aftur — aö 35 stig
nægi ekki til Evrópusætis. Viö er-
um ákveönir í aö halda okkar
striki á heimavelli en verðum aö
bæta árangurinn á útivelli. “
Nú er þitt síöasta keppnis-
tímabil meö U-21 árs landsliö-
inu liöið. Stefniröu þá ekki á
A-landsliöið næst?
„Ég hef fengiö tækifæri meö
A-landsliöinu þegar atvinnu-
mennirnir hafa ekki veriö meö.
En þaö veltur mikiö á því hver
veröur meö landsliöiö hvort ég
fái tækifæri. Knapp hefur ekki
séö Þórsliöið leika. Hann viröist
byggja mikiö á þeim mönnum
Gull-, silfur- og bronzskórnir afhentir á laugardag:
„Markið gegn
Glentoran mér
eftimninnilegast"
— segir markakóngurinn Ómar Torfason úr Fram
• Markahæstu leikmenn fslandsmótsins í knattspyrnu 1. deild. Ómar Torfason í miðiö meö gullskóinn, Ragnar Margeirsson til hægrí meö
•ilfurskóinn og Guömundur Þorbjörnsson til vinstri meö bronsskóinn. Morgunbiaöið/juiius
Gullskórinn var á laugardag
afhentur markahæsta leikmanni
íslandsmótsins í knattspyrnu í
þriðja skipti hér á landi. Það er
Adidas-umboöiö hér á landi,
heildverslun Björgvins Schram
hf., sem stendur aö afhending-
unni en Adidas hefur um árabil
verölaunaö markahæstu leik-
menn Evrópu meö þessum hætti.
Aö þessu sinni var þaö Ómar
Torfason sem hlaut gullskóinn en
hann skoraði 13 mörk í 18 leikjum
1. deildarinnar. Ragnar Margeirs-
son úr Keflavík hlaut silfurskóinn,
sem nú var afhentur í annaö
skipti. Ragnar skoraöi 12 mörk í
16 leikjum. Bronsskórinn var nú
afhentur í fyrsta skipti hér á landi
og hann hlaut Valsarinn Guö-
mundur Þorbjörnsson. Guðmund-
ur skoraði 12 mörk eins og Ragnar
en lék alla 18 leiki mótsins.
Ólafur Schram, framkvæmda-
stjóri Adidas-umboösins, afhenti
köppum skóna í samkvæmi í veit-
ingahúsinu Nausti á laugardaginn.
I hófiö var boöiö forráöamönnum
allra 1. deildarliöanna, dómurum,
umboðsmönnum Adidas út um
land og fleirum. í hófinu afhenti Ól-
afur einnig þjálfurum eða fyrirliðum
allra Islandsmeistara í sumar viður-
kenningu frá Adidas, litla styttu.
„Ég þakka fyrst og fremst mikl-
um æfingum þann góöa árangur
sem ég hef náö. Ég fór í nýtt félag
og varö aö sanna getu mína,“ sagöi
Ómar Torfason, markakóngur ís-
landsmótsins og handhafi gull-
skósins, í samtali víö Morgunblaö-
iö.
„Ég lék í sumar nýja stööu — ég
lék varnartengiliö áöur en var sókn-
artengiliöur hjá Fram. Ég hef aldrei
skoraö eins mikiö á einu keppnis-
tímabili og nú. Mest haföi ég skoraö
•Á myndinni hérna til vinstri af-
hendir Ólafur Schram marka-
kóngi 1. deildar, Ómari Torfasyni,
Fram, gullskóinn frá Adidas en
þetta er í þriðja sinn sem hann er
afhentur. Á myndinni til hægri
eru fyrirliöar eöa þjálfarar allra
þeirra flokka sem heiöraðir voru
fyrir góöan árangur í knattspyrn-
unni í sumar. Þess má til gamans
geta aö einn af yngri kynslóðinni
lét sig ekki muna um aö koma
alla leiö frá Akureyri til aö vera
viöstaddur afhendinguna. Sá
heitir Helgi Arason og er fyrirliöi
6. flokks KA, hann er fyrir miöju í
neöri röðinni.
Morgunblaöiö/Júlíus
5 mörk áöur en nú er ég búinn aö
gera 20 mörk í 29 lelkjum og er
mjög ánægöur meö þaö.
Eftirminnilegasta mark sumars-
ins er fyrsta markiö gegn Glentoran
í Evrópukeppninni þar sem ég kast-
aöi mér fram og skoraöi meö skalla
— jafnaöi leikinn. Þetta var afar
mikilvægt fyrir okkur því viö náöum
okkur á strik í lelknum eftir aö ég
skoraði. Viö erum meö sókndjarft
liö hjá Fram og þaö hjálpar — þaö
er þaö sem áhorfendur vilja sjá. Ég
hef falliö vel inn í Fram-liöið og
áhuginn var mikill í vor aö standa
sig. Ég slapp viö meiðsli í sumar og
þetta hjálpast allt aö,“ sagöi Ómar.
„Framtíðin er mjög björt hjá
Fram næstu árin. Ásgeir verður
áfram þjálfari og flestir halda áfram
ef ekki allir þannig aö sami kjarninn
leikur áfram. Þá er 2. flokkur félags-
ins gífurlega sterkur og mikiö af
ungum leikmönnum þar sem eiga
framtíöina fyrir sér. Þá eru gífurlega
áhugasamir menn sem standa aö
starfinu hjá Fram. Þeir vinna mikiö
og óeigingjarnt starf og styrkleiki
félagsins liggur ekki síst í þeim og
starfi þeirra.
Ég ætla aö halda áfram í knatt-
spyrnunni eins lengi og heilsan leyf-
ir. Enda er ég ekki nema 26 ára
gamall. Knattspyrnan á Islandi er á
mikilli uppleiö, viö leikum betur en
áöur og um leiö skemmtilegri knatt-
spyrnu. Vegna þriggja stiga regl-
unnar var leikinn mikill sóknarbolti.
Gervigrasvöllurinn hefur gert þaö
aö verkum aö leikmenn komast fyrr
í leikæfingu og þá hefur veöráttan
veriö góö og það hjáipar. Þá er ný
og geysilega efnileg kynslóö aö
koma upp í knattspyrnunni hér.
Landsliöiö U-21 árs — í þvíeru leik-
menn frammtíöarinnar. Stórefni-
legiralllr.
Þrátt fyrir aö einu besta sumri
mínu í knattspyrnunni sé nú aö Ijúka
þá er ég strax farinn aö hlakkka til
aö hefja nýtt tímabil næsta sumar
og ég vona aö þaö veröi farsæll
endir í keppnistímabilinu hjá okkur
Frömurum nú; aö viö náum aö klára
dæmi okkar í Evrópukeppninni vel
og komumst í aöra umferö. Þaö yröi
frábært," sagöi Ómar Torfason,
sem leikiö hefur svo vel á keppnis-
tímabilinu sem er aö Ijúka.
Þaö er ekki á hverjum degi sem
miövallarleikmaöur veöur marka-
kóngur á Islandsmóti. Furöulegt aö
jafn snjall knattspyrnumaöur og
Ómar Torfason skuli ekki vera val-
inn í A-landsliöshópinn í knatt-
spyrnu eftir svona jafna og góöa
frammistöðu. Maöur spyr sjálfan
sig hvaö til þurfi aö komast í lands-
liöshópinn.
-ÞR/SH
KR Reykjavíkurmeistari í körfubolta
— sigraði Val, 83:75, í mjög góðum úrslitaleik í íþróttahúsi Hagaskóla á laugardag
KR VARÐ á laugardaginn
Reykjavíkurmeistari í körfu-
knattleik í meistaraflokki
karla er þeim unnu Val í úr-
slitaleik, 83:75. Staöan í hálf-
leik var jöfn, 43:43. Leikurinn
var mjög jafn og spennandi
lengst af og sýndu bæöi liöin
góðan leik.
KR-ingar byrjuöu betur og kom-
ust í 22:14 er 8 mín. voru liönar af
leiktímanum, en munurinn var aldr-
ei mikill og er fjórar mín. voru til
hálfleiks komst Valur yfir, 38:37.
Eftir þaö var skipst á aö skora og
var leikurinn alveg í járnum, þó
höföu KR-ingar oftast frumkvæðiö.
Þegar 5 mín. voru til leiksloka var
staöan jöfn, 70:70 og 72:72, en
KR-ingar voru sterkari á enda-
sprettinum og stóöu uppi sem
Reykjavíkurmeistarar í körfuknatt-
leik 1985. Unnu meö átta stiga
mun, 83:75.
pp*HR
Morgunblaöiö/Júlíus
'Æ 'A’ aJpk V1 ■ ~ 1
Hr Aá
Þaö fór ekki framhjá neinum sem
lagöi leiö sína í Hagaskóla aö liðin
eru mjög vel undir keppnistímabiliö
búin og veröur örugglega skemmti-
legt aö fylgjast meö úrvalsdeildinni
ívetur.
Þessi leikur var mjög góöur og
er góö kynning á komandi keppnis-
tímabili.
KR-ingar eru með mjög gott lið
og hafa mikið af ungum og góöum
leikmönnum. Þeir hafa fengiö til liös
viö sig Pál Kolbeinsson sem sýndi
mjög góöan leik á laugardag, sérs-
taklega i seinni hálfleik. Guðmund-
ur Jóhannsson og Árni Guömunds-
son eru komnir í herbúðir KR-inga
og koma til meö aö styrkja liðið
• Reykjavíkurmeistarar KR í
körfuknattleik meistaraflokks
karla ásamt þjálfara sínum, Jóni
Sigurössyni, lengst til hægri í aft-
ari röð.
mikiö, Guömundur kom mjög
sterkur út úr þessum leik.
Valsmenn eru alltaf erfiöir og
gefa örugglega ekkert eftir í bar-
áttunni um islandsmeistaratitilinn.
Þeir hafa reyndari leikmenn innan
sinna raöa, þó er missir i Kristjáni
Ágústssyni, sem nú leikur ekki meö
liöinu. Tómas, Torfi og Jón Stein-
grímsson voru bestir Valsmanna í
þessum leik.
Stigahæstir í liöi KR voru Páll
Kolbeinsson 20, Guömundur Jó-
hannsson 15, Garöar Jóhannsson
14 og BirgirMikaelsson 12.
Stigahæstir í liöi Vals voru Tóm-
as Holton 17, Torfi Magnússon 16
og Einar Ólafsson 13.
Þaö má telja líklegt aö þessi tvö
lið ásamt Njarövík og Haukum veröi
í baráttunni um Islandsmeistaratit-
ilinn á komandi keppnistímabili og
eiga sjálfsagt öll eftir aö taka stig
hvert af öðru, en þaö er engin
spurning, liöin koma mjög vel und-
irbúin til mótsins sem veröur vafa-
laustskemmtiiegt.
Þess má geta í lokin að stiga-
hæsti leikmaöur Reykjavíkurmóts-
ins varð Valsarinn Tómas Holton
með 63 stig og KR-ingurinn Garöar
Jóhannsson varö í öðru sæti meö
62stig.
— VBJ
Morgunblaöiö/Július
• Garðar Jóhannesson, fyrirliöi
KR-liösins, hampar Reykjavík-
urbikarnum á laugardag.