Tíminn - 24.09.1965, Síða 16
r
HmÉni
2TÓ. tbl. — Föstudbgur 24. septömber 1965 — 49. árg.
VERZLUNARSTJÓRA VIKIÐ
ÚR STARFI VEGNA SMYGLS
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
Eins og skýrt var frá í Tíman
um á þriSjudaginn þá fannst nokk
urt magn af smygluðu nautakjöti
f kjötverzlun þar sem áður hafði
fundizt smyglað kjöt — Síld og
fisk við Bergstaðarstræti. í
fyrra skiptið játaði verzlunarstjór
inn að kjötið væri á sínum
snærum, og einnig núna í seinna
skiptið. Hefur eigandi verzlunar-
TÓBAKSHLUTA-
VELTA STYRKTAR-
FÉLAGS
VANGEFINNA
Nú á laugardaginn verður hald
in „tóbakshlutavelta“ á vegum
Styrktarfélags vangefinna að Hall
veigarstöðum. Verða vinningarnir
eingöngu smyglaðar sígarettur,
sem tollgæzlan hefur gert upp-
tækar, en áður hefur ein slík
hlutavelta farið fram, og þá á
vegum Slysavarnarfélags íslands.
Séra Erlendur Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Styrktarfélags
vangefinna, sagði blaðinu frá
þessu í dag. Hann kvað félaginu
hafa verið gefið mikið magn af
sígarettum, sem tollgæzlan hefði
gert upptækt, og væri þetta gert
að tillögu Jóns Kjartanssonar, for
stjóra Áfengis- og tóbaksverzlunar
ríkisins og samkvæmt ákvörðun
Gunnars Thoroddsen fyrrverandi
fjármálaráðherra. Slík hlutavelta
á sér fordæmi, þar eð í hitteð
fyrra var haldin samskonar hluta
velta til ágóða fyrir Slysavarnar
félag íslánds, og gaf góðan árang
ur.
— Við, sem vinnum fyrir Styrkt
arfélag vangefinna, erum mjög
þakklátir fjármálaráðherranum
og forstjóra Áfengis- og tóbaks-
verzlunar ríkisins, fyrir þennan
mikla stuðning við félagið, sagði
sr. Erlendur, og við væntum þess
að tóbaksmenn noti tækifærið til
að kaupa ódýrt tóbak og styðja
gott málefni.
Hlutaveltan hefst klukkan 14
á laugardaginn á Hallveigarstöð
um, og unglingar innan 16 ára fá
ekki aðgang að henni.
innar af þessum sökum látið verzl
unarstjórann hætta störfuip. en
eigandi er eins og kunnugt er
Þorvaldur Guðmundsson. Hefur
Þorvaldur af þessu tilefni sent
Tímanum svohljóðandi yfirlýsingu:
„Vegna fréttar í dagblaðinu Þjóð
viljinn í dag fimmtudaginn 23.
september 1965, varðandi sölu á
erlendum kjötvörum í verzluninni
Síld og Fiskur, vil ég undirritað
ur taka eftirfarandi fram:
Við reglulega eftirlitsskoðun
Heilbrigðiseftirlitsins í frystiklef
um verzlana minna hinn 3. þ. m.
kom í ljós, að þar voru til staðar
um 70 kg. af erlendu nautakjöti.
Við rannsókn máls þessa fyrir
dómi hefir komið í Ijós, að um-
rætt kjöt hefir verzlunarstjóri
viðkomandi verzlunar, sem »1-
gjörlega annast rekstur 'hennar,
tekið til vörzlu í eigin þágu, en
ekki haft það til sölu.
Þar sem hér er um endurtekið
brot að ræða af hálfu umrædds
starfsmanns hefur hann nú látið
af störfum sem verzlunarstjóri í
viðkomandi verzlun.“
VITNI VANTAR
MB-Reykjavík, fimmtudag.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur
beðið blaðið að auglýsa eftir vitn
um í sambandi við tvenna þjófn
aði, sem framdir voru í síðustu
viku. Er í öðru tilfellinu um
að ræða rafsuðuvél og í hinu til
fellinu hjólbarða á felgu og
verkfærakistu með allmiklu af
verkfærum í.
Á tímabilinu frá 11.—18. þ. m.
var stolið rafsuðuvél úr ólæstum
skúr, sem er næsta hús sunnan
við Landshafnarhúsið í Ytri-Njarð
vík. Vél þessi er blágrá að lit,
með áföstum rafmagnskapli. Vél
in var sex ára gömul og í góðu
ásigkomulagi.
Aðfaranótt föstudagsins 17.
þ. m. var brotizt inn í bifreiðina
J-01661, þar sem hún stóð við
Hafnargötu 22 í Vogum. Úr bif-
reiðinni var stolið hjólbarða á
felgu, felgustærð 735x14. Hjól-
barðinn var af Good-Year gerð.
Einnig var tekin græn verkfæra
kista með miklum verkfærum.
Framhald á bls. 14.
GEIM VlSINDASÝNING
OPNUÐ EFTIR VIKU
JHM-Reykjavík, fimmtudag.
Upplýsingaþjónusta Banda-
ríkjanna mun opna gcimvís-
indasýningu í hinu nýja húsi
Eðlisfræðideildar háskólans 4.
október n. k. Þarna mun
kenna margra grasa, t. d. verð
ur til sýnis gcimbúningur, Iík
ön af geimfari og gervihnetti
í smækkaðri mynd. Hér verð
ur um mjög athyglisverða sýn-
ingu að ræða á þessu vísinda
sviði, sem stöðugt er að verða
umfangsmeira í hinu daglega
lífi nútímamannsins.
Blaðamenn Tímans komu við
í Eðlisfræðistofnuninni í dag
og ræddu við þá er þar vinna
við undirbúninginn á uppsetn-
ingu sýningarinnar. Ruben Mon
son, blaðafulltrúi tjáði frétta-
mönnum, að þessi sýning væri
í rauninni fimm smærri
ferðasýningar, sem sendar hafa
verið hingað. Þarna verða ýms
ar deiidir, sem sýna m. a. Ijós
myndun úti í geimnum, sam
vinnu hinna ýmsu landa á
sviði geimrannsókna, veðurat-
huganir gervihnatta o. m . fl.
Þá verða sýndar kvikmynd
ir um geimferðir og geimvís-
indi allan daginn í sérstöku
kvikmyndaherbergi meðan sýn-
ingin er opin. Alls verða sýmd
ar um 20 kvikmyndir og þ. á.
m. er 10 mín. litfilma frá æf
ingum geimfaranna í Öskju,
sem aldrei hefur verið sýnd hér
áður.
Fluttir verða fyrirlestrar
um framfarir og rannsóknir á
sviði geimvísinda, og verða
flestir fyrirlesararnir ís-
lenzkir. Mikið verður af ljós
myndum, bæði lit og svart-
hvítum, á geimsýningunni.
Fréttamenn hittu á staðn
um ungan íslending, sem er
nýkominn heim eftir rúmlega
fjögurra ára útivist á Ítalíu
og í Bandaríkjunum, sem heit
ir Svavar Hanson. Hann vinn
ur við uppsetningu og skreyt
ingu á sýningunni. Svavar hef
ur m. a. numið málaralist er-
iendis og haldið eina sýningu í
Framhald á bls. 14.
Hér vinnur Svavar a3 þvf að mála eitt merkið á geimvísindasýn-
ingunni sem opnuð verður í byrjun naesta mánaðar. (Tímam Kári)
FÁ HAFNFIRÐINGAR VATN
ÚR HEITA VA TNSHOLU?
IGÞ—Reykjavík, fimmtudag.
Eins og kunnugt er, þá liafa
Hafnfirðingar átt við langvarandi
vatnsskort að búa í sumar, og
ekki tekizt að bæta úr honum
þrátt fyrir ýmsar tilraunir. Fjórða
stóra atlagan til úrbóta í þessu
efni verður gcrð á morgun, þegar
fyrirhugað er að dæla vatni úr
borholu í Kaldárseli inn á vatns
veitukerfi bæjarins.
Þegar Tíminn talaði í kvöld við
Jón Pálmason, bæjarfulltrúa, sagði
hann að síðustu tvo sólarhringa
hefði stórt hverfi baejarins verið
vatnslaust með öllu. Hefði fólk
vakað um nætur til að freista þess
að safna vatni, sem kynni að
koma, þegar álagið minnkaði í
lægri bæjarsvæðum, en þær vök-
ur hefu reynzt árangurslausar, þar
sem ekki hefði verið deigan dropa
að fá úr krönunum. Eitthvað hef
ur verið reynt að bæta úr vatns
skortinum með því að flytja vatn
í bílum til þeirra bæjarhverfa
sem verst eru stödd, en slík að-
stoð hefur náð skammt.
Mikil hætta hefur verið samfara
þessum vatnsskorti, því slökkvi-
tæki bæjarins hefðu verið meira
og minna óvirk, ef til eldsvoða
hefði komið, í þeim hverfum sem
hæst standa. En sem betur fer
hefur ekki á þetta reynt.
Framhald á bls 14.
VILJA „ÞOGULT HVERFI" LISTA-
OG VÍSINDAMANNA í REYKJAVÍK
GB-Reykjavík, fimmtudag.
Á borgarráðsfundi nú í vik
unni gerðist það m. a., að
því er segir í fundarfrétt, að
„lögð var fram umsókn frá
Jóni Leifs, dags. 13. þ. m., um
lóð í Breiðholtshverfi og skipu
lagning „þöguls hverfis“ fyrir
listamenn og vísindamenn. Um
sókninni var vísað til lóðanefnd
ar.“
— Hver er hugmyndin með
þessu „þögla hverfi“, sem var
á dagskrá borgarráðs um dag-
inn? spurðum við Jón Leifs,
er við náðum tali af honum í
dag.
— Eru þeir strax farnir að
anza þessu bréfi mínu, það eru
sveimér snarari viðbrögð en
ég átti von á. Já, hver hug
myndin sé með þessari málaleit
an minni? Einfaldlega eins og
þar stendur að leita athvars eða
meira starfsnæðis fyrir þá
listamenn, sem vinna að hug
verkum, og vísindamenn. Þeir
þurfa líka a*_ hafa vinnufrið
Hefur ekki jafnvel Halldór
Laxness kvartað undan því að
hafa ekki vinnunæði uppi i
Mosfellssveit og hann neyðist
stundum tii að flýja til útlanda
til að koma einhverju í verk
En það er víst aðallega gesta
nauðin, sem han; hefur ekki
húsfrið fyrir. Þá dettur mér
í hug það se. Halldór sagði
mér ekki alls fyrlr löngu að
hann var á ferð suður 1 Sviss
og ætlaði að heilsa upp á
kollega sinn, eitthvert Nóbels
skáld, sem þ„r býr En þegar
hann kom í hlað, rak hann
augu í skilti á húsinu, þar sem
hitt Nóbelsskáldið baðst und
an gestakomum. Lét Halldór
sér það að kenning" verða og
hvarf frá við svo búio. En úr
því þeir listamenn. sem búa
uppi í sveit, verða að flýja að
heiman hvað þá um okkur
vesalingana, sem verðum að
gera okkur að góðu að hafast
við innan um allan þann háv
aða og gauragang, sem er hér
inni í miðborginni. Það er
svoddan dæmalaust skipulags-
leysi á öllu hér í mörgum
hverfum bæjarins. enginn frið
ur fyrir hávaða og djöfulgangi
í gömlum virðulegum íbúðar
hverfum bæjarins, t. d. í Þing
holtunum, eða á Freyjugötunni.
Framhald á bls. 14