Morgunblaðið - 20.10.1985, Page 6

Morgunblaðið - 20.10.1985, Page 6
♦6 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER1985 TÍMABÆRAR ATHUGASEMDIR AÐFERÐ OG AFSÖNNUN A fsönnunarhyggja sír Karls Popper eftir Stefán Snævarr Stefán Snævarr Við lifum á öld efans. Enginn trúir lengur á „orsakalögmálið", engir nema afdalakallar trúa því að full- sanna megi kenningar. En ekkert er nýtt undir sólinni, sá maður sem einna fyrstur varð til þess að vega að sönnunar- hyggjunni var á dögum frá 1711 til 1765, fékkst við heimspeki og kallaðist David Hume. Einn sporgöngumanna Humes á þessari öld er heimspekingurinn Karl Popper, bor- inn og barnfæddur í Austurríki, en búsett- ur á Englandi og meira að segja orðinn „sör“. Ég ætla að gera hina svonefndu afsönn- unarhyggju Poppers að umtalsefni í þessari grein og ekki síst þá margháttuðu gagn- rýni sem Popper hefur mátt þola. Popper er nefnilega ekki sá guð sem margir ætla, satt best að segja á hann sér fáa formæl- endur meðal rökspekinga samtímans. HVENÆR ER KENNING RÖNG En hvert er þá megininntak afsönnun- arhyggjunnar? Popper segir að ekki sé hægt að sanna kenningu svo óyggjandi sé, en hinsvegar sé hægt að afsanna hana. Ef Jón segir að allir svanir séu hvítir þarf ekki nema einn svartan svan til að afsanna fullyrðingu Jóns. Aftur á móti er ekki hægt að útiloka þann möguleika að svart- ur svanur leynist í einhverju skúmaskoti þótt allir svanir sem hingað til hafa fund- ist séu hvítir sem mjöll. Þessi vandi sést skýrar ef við hyggjum að almennum kenningum visinda eins og þyngdarlögmálinu. Við getum imyndað okkur óendanlega marga möguleika á því að prófa þá kenningu en í reynd getum við aldrei framkvæmt óendanlega margar til- raunir. Mannskepnan var nú einu sinni ekki sköpuð fyrir óendanleikann og því aldrei hægt að fullreyna tilgátuna um þyngdaraflið. Af ofansögðu dregur Popper þá ályktun að vísindalegar kenningar séu ekki einfaldar summur staðreynda heldur vísi ævinlega út fyrir þekktar staðreyndir. Popper segir að strangt tekið sé hægt að „sanna“ hvaða kenningu sem vera skal ef menn aðeins skilgreina hugtök sín nægi- lega óljóst. Einu „sannanir" sem Popper tekur gildar eru prófanir sem í reynd eru misheppnaðar afsönnunartilraunir. Popp- er vill því losa sig við hugtakið „sönnun" og nota í staðinn hugtakið „styrking“ (corroboration). Og þá erum við komin að kjarna máls- ins, nefnilega þeirri skoðun Poppers að „hrekjanleiki" (falsifiability“) sé það sem skilur vísindalegar kenningar frá öðrum, hafrana frá sauðunum. Með orðum ís- lensks popperista: „Ef kenning getur ekki verið röng getur hún heldur ekki verið rétt.“ GAGNRÝNI Á POPPER En hér er galli á gjöf Njarðar: Það er enginn vandi að benda á kenningar sem eru afsannanlegar og prófanlegar en alls ekki vísindalegar, t.d. „kenninguna" „mán- inn er úr grænum osti“. Engum heilvita manni dettur í hug að flokka svona vit- leysu undir vísindi og þar af leiðandi getur hrekjanleiki í besta falli verið nauðsynleg en ekki nægjanleg forsenda þess að kenn- ing teljist visindaleg. Menn hafa ennfrem- ur velt því fyrir sér hvort það sé eins rót- tækur munur á sönnun og afsönnun og Popper vill vera láta. Ef ég staðhæfi að kenning x sé afsönnuð verð ég þá ekki að sanna þessa staðhæfingu? Popper hefur satt best að segja gengið afar illa að fást við þennan vanda. Hann segir að afsönnunartilgáta verði að vera vel styrkt (corroborated) en þegar allt kemur til alls sé það huglægt mat vísindamanna hvenær kenning telst af- sönnuð því að sjálfsögðu er ekki hægt að sanna afsönnunartilgátuna svo óyggjandi sé. En er þá ekki alveg eins hægt að telja almennt viðurkennda kenningu „sann- aða“? Það er augljóslega nákvæmlega jafn erfitt að afsanna eins og að sanna kenn- ingar. Og ef ekki er til neinn ótvíræður mæli- kvarði á afsönnun er engin sérstök ástæða til að telja hrekjanleika aðalsmerki vís- inda. Staðreyndin er sú að það er hægt að bjarga hvaða kenningu frá afsönnun ef viljinn er fyrir hendi. Þetta gildir engan veginn bara um „hjáfræði" heldur einnig um hávísindalegar kenningar af ýmsu tagi. Prófi maður til dæmis kenningu sem kveður á um að hlutir þenjist út við upp- hitun og tiltekinn hlutur nennir ekki aö hlíta kenningunni má bjarga málunum með því að setja fram hjálparkenningu sem segir að athugandi hafi pressað hlut- inn saman án þess að vita af þvi. Popper gerir sér grein fyrir þessum vanda og reynir að bjarga sinu skinni með þvi að segja að hjálparkenning verði að auka hrekjanleika hins fræðilega kerfis. En vísindafræðingar eins og Lakatos og Kuhn halda því fram að jafn auðvelt sé að finna eitthvað það sem mælir gegn kenn- ingu og eitthvað það sem mælir með henni. Þeir velta því fyrir sér hvað vísindamenn gera í reynd ef þeir rekast á slfkar „af- sannanir“. Segjum til dæmis að stjörnu- fræðingur kíki á stjörnurnar sinar eina góðviðrisnótt i þeim fróma tilgangi að at- huga sannleiksgildi ákveðinna forsagna um hreyfingar tiltekins himintungls. Nú finnur himintunglið upp á þeim ósóma að hreyfa sig á annan hátt en ætlað var. Og hvað gerir maðurinn (eða konan) þá? Lýsir hann/hún þvi yfir að sú almenna kenning sem forsagnirnar byggðu á sé hér með af- sönnuð? Nei og aftur nei! Það fyrsta sem honum/henni dettur í hug er að athuga hvort ekki sé eitthvað að blessuðum kíkin- um. Nú, ef allt er í lagi með apparötin veltir hann því fyrir sér hvort áður óþekktur þáttur hafi haft áhrif á gang himintunglsins. Kannski leynist stjörnu- þoka þarna einhvers staðar úti, þoka sem er svo óforskömmuð að láta þyngdarafl sitt trufla hinn daglega spássértúr himin- tunglsins. Og skítt með það þótt. þokan finnist ekki, kannski eru tækin sem við notum til að leita að henni ekki nógu full- komin, kannski finnst helvítið seinna þeg- ar við finnum upp betri stjörnukiki. Við höfum m.ö.o. oft skynsamlegar ástæður fyrir því að vernda kenningar gegn af- sönnun. Imre Lakatos segir að oft hafi svonefnd- ar afsannanir verið endurskoðaðar og „af- sannaðar" kenningar gert „come-back“. Og „afsannast" nú hið fornkveðna að „they never come back“! Lakatos heldur því fram að ef vísinda- menn átjándu aldarinnar hefðu beitt að- ferðum Poppers hefðu þeir kastað kenn- ingum Newtons fyrir róða. Þá bentu at- huganir stjörnufræðinga til þess að hreyf- ingar mánans væru ekki í samræmi við forsagnir sem leiddu af eðlisfræði Newt- ons. Sumir vísindamenn vildu gera rótt- æka endurskoðun á kenningum Newtons og jafnvel gefa þær alveg upp á bátinn. En flestir vildu halda þeim til streitu I þeirri von að Eyjólfur (eða Isaac) hresstist og það gerði hann svo sannarlega, eitthvert gáfnaljósið fann villu í stærðfræðinni sem notuð var við útreikninga á hreyfingum tunglsins. POPPER OG KUHN Thomas Kuhn telur að dæmi af þessu tagi sýni það ofstæki sem hann segir að einkenni vísindastarfsemi, menn haldi dauðahaldi í viðteknar kenningar hvað sem tautar og raular. Slíkt ofstæki er að mati Kuhns nauðsynleg forsenda vísinda- starfsemi ekki síst vegna þess að lang flestar „afsannanir" séu út í hött. Þess utan auki almennt samkomulag um grundvallaratriði möguleika vísinda- manna á samstarfi þvi þannig verði vandamál betur skilgreind en ella. Kuhn lýsir samfélagi vísindamanna sem lokaðri bræðrareglu þar sem menn eru miskunn- arlaust settir út af sakramentinu ef þeir makka ekki rétt. Popper aftur á móti telur að samfélag vísindamanna sé (eða ætti að vera) opið samfélag gagnrýnna manna sem efist um allt milli himins og jarðar. Kuhn svarar Popper með því að segja að hann einblíni á vísindastarfsemi eins og hún er á byltingarskeiðum vísinda. Á þeim tímaskeiðum hafi þessi opna gagnrýna af- staða jákvæðu hlutverki að gegna. Kuhn kryddar svo mál sitt með margháttuðum dæmum úr sögu vísindanna enda vísinda- sagnfræðingur. — Reyndar fæ ég ekki skilið hvers vegna Kuhn telur sættir um grundvallaratriði vera merki þess að sam- félag sé lokað, menn geta sæst á hitt og þetta af fúsum og frjálsum vilja og beitt skynseminni til þess arna. En áfram með smjörið, Kuhn segir að m S P J A L L itt sinn hafði Steinn Stein- arr það eftir fóstru sinni, að menning væri rímorð á móti orð- inu þrenn- ing. Utrætt mál. Sem kunn- ugt er var Steina gjarnt að tala í hálf- kæringi, en þó verður því ekki neitað að orðin menning og þrenning rima harla vel hvort á móti öðru. Hygg ég glögga menn vera mér sammála þar um. Þar á móti er mér hulið hyersu margir hafa leitt að því hugann, að menningin er I raun þrenning. Hún er nefnilega samtvinnuð úr þrem órjúfanlegum þráðum, þ.e.a.s. listum, fræðslu og lífi hinnar líðandi stundar. Því er þetta tekið fram sérstaklega að ýmsir virðast halda að menning sé i raun ekkert annað en listir, og þá einkum og sér í lagi þær listgreinar sem hugur þeirra sjálfra beinist að. Þannig hef ég oft heyrt svokallaða „klass- íkera" í tónlist lýsa því yfir, án þess að blána eða blikna, að djass sé ekki tónlist — og þar af leiðandi ómenningarlegt fyrirbæri. Nú jæja, Guð fyrirgefur þeim sjálfsagt eins og öðrum, þ.e.a.s. sjái þeir að sér. Ekki má gleyma hinum, sem eru að því leyti víðsýnni þeim sem að ofan greinir að þeir telja fræðslu til menningar, jafnvel þó hún gangi út fyrir þeirra eigið sérsvið. Þá er loks komið að hinum þriðja þætti menningarinnar, — menningu líðandi stund- ar. Lesendum til nokkurrar glöggvunar ætla ég að skýra mál mitt með nokkrum dæmum. Ekki alls fyrir löngu gekk ég fram á gamlan mann sepi var að smíða krossa yfir hálfrar aldar gömul leiði foreldra sinna. Þóttu honum þeir krossar sem fyrir voru á leiðunum heldur illa bitnir af tímans tönn og vildi bæta úr því auma ástandi. Fyrir nú utan það að nýju krossarnir vottuðu gott handbragð, þá lýsti sá hugur sem að baki bjó fölskvalausri ræktar- semi sem til fyrirmyndar er á timum hins stóra ÉG. Þetta er menning. Annað dæmi. Á bókasafnið þar sem ég vinn koma dag hvern nokkrir eftirlaunamenn að lesa blöðin, en þó aðallega til að þrátta um það sem í þeim stendur, oft daglangt. Menning sömuleiðis, — og skal nú tekið eitt dæmi sem margir þekkja af eigin raun, en það er hann Stefán frá Möðrudal með nikkuna sína í Austurstræti. Menning — gjörið svo vel — og má einu gilda þótt nikkan sé ekki talin til háaristó- krata i samfélagi hljóðfæra. Ekki má skilja þessi orð mín svo að ég sé að mælast til þess að fólk hætti að skapa og/eða njóta listaverka né að ég ætlist til þess að slagbrandar verði hið snarasta negldir fyrir dyr allra skóla. Síður en svo. En hversu mikla lífsfyllingu sem listir og fræðsla veita okkur þá má hitt ekki gleymast að við lifum umfram þann tíma sem við eyðum t.d. í skáldskap eða hafnargerð. Með því að hafa augun stöðugt opin fyrir því sérkennilega , sem okkur býðst á næsta götuhorni hvern einasta dag, getum við gert lífið að ljóði og reist okkur hafnir til að hafa stöku sinnum fast land undir fótum, á annars nokkuð tíð- indasnauðri siglingu frá vöggu til grafar. Pjetur Hafstein Lárusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.