Tíminn - 28.09.1965, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.09.1965, Blaðsíða 2
 - ; asMpMwi 4^ .* ' j - 1 -'... ' ' ■/ <• ■ ■ ■•' '..'i' ■ii hverju Karlsá mmmík TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 28. september 1965 MÆLA SEGULMAONI HEIMSHÖFUNUM Seglskipið „Zarja" j Reykjavíkurhöfn. (Tímamynd K.J.) Háskólaf y r i r 1 estra r Prófessor Henri Clavier frá Strasbourg flytur fyrirlestra á vegum Guðfræðideildar háskólans sem hér segir: Þriðjudaginn 28. sept.: The Kingdom of God, its coming and mans's entry into it. Miðvikudaginn 29. sept.: Paul- ine Thought on the Old Testa- ment. Fimmtudaginn 30. sept.: Faith and Works, an essay of compara tive and biblical theology. Allir fyrirlestrarnir hefjast kl. 10,15 og verða fluttir í V. kennslu stofu Háskólans. VESTRÆNNI IÐNAÐUR Framhald af bls. 1 berlega um einstök atriði í til- lögum Kosygins. Mun þafo verða fyrst gert á miðvikudag eða fimmtudag, þegar fundi miðstjórn arinnar lýkur. Er talið, að um- bætur þessar verði þýðingarmikill hluti í næstu fimm ára fram- kvæmdaáætlun Sovétríkjanna. Heimildir í Moskvu segja að samkvæmt hinni nýju stefnu eigi það að vera stefna iðnaðarfyrir- tækja að ná hagnaði. Er einnig talið, að framleiðslan muni verða sniðin meir samkvæmt eftirspurn- inni, í stað kvótakerfis sem nú ríkir. KJ—Reykjavík, mánudag Þrí mastrað rússneskt seglskip liggur núna í Reykjavíkurhöfn, í höfuðdráttum ekki frábrugðin þeim seglskipum sem hingað hafa komið á undanförnum árum. En um borð í þessu skipi er.unnið merkilegt vísindalegt starf og þetta er eina skipið sinnar teg undar í heiminum. Aðalverkefnið er segulmælingar, en jafnhliða eru unnin skyld vísindaleg störf. Skipstjórinn B. Veselov leiðang ursstjórinn A. Pushkov og einn vísindamannanna G- Klimenko ræddu við fréttamenn í dag og sýndu þeim skipið. Þetta er um 600 lesta skip, byggt úr tré og ýmsum ósegulmögnuðum málmum, vélin er 300 hestöfl og ganghrað inn 7—9 mflur á klukkustund. Níu vísindamenn og 27 skipverjar eru um borð, en rétt fyrir brottförina frá Leningrad „stungu tveir og einu kvenmennirnir, sem um borð voru, sér „í hjónabandið" eins og skpistjórinn komst að orði. Hann sagði að í suðrænum löndum þar sem þeir kæmu við væri það oftast fyrsta spurningin sem þeir væru spurðir að hve margt kvenfólk væri um borð, en hér hefðu þeir ekki enn verið spurðir slíkrar spumingar. Þetta skip „Zarja“ er eina skip ið í heiminum sem sérstaklega er byggt með það fyrir augum að mæla og athuga segulmagn, og í þessu Skyni fara þeir um öll heimsins höf. Hingað hefur skipið áður komið, það var árið 1956, og einn af vísindamönnunum sem nú eru um borð hefur verið á því síðan. Hingað komu Þeir frá Leningrad sem er heimahöfn, með viðkomu í Kaupmannahöfn en þar er segulstuðull heimsins geymdur, sem öll segulmælingatæki heims ins eru stillt eftir. Vísindamenirn ir á „Zarja“ munu gera athuganir á segulmælingatækjum hérlendis og bera þau saman við segulstuð ulinn í Kaupmannahöfn þegar þeir koma þangað, en þetta er eitt af verkefnum þeirra að athuga segul mælingatæki hinna ýmsu landa sem þeir koma við í, og bera þau saman við tækin í Kaupmanna- höfn. Þeir búast við að fara héð an á miðvikudaginn, og halda eftir neðansjávarhryggnum í Atlants hafi suður til Gíbraltar, Þaðan fara þeir svo til Gíneu, St. Helenu, Senegal, aftur til Gíbraltar Kaup mannahafnar og Leningrad þang að sem þeir áætla að vera komnir í lok apríl, en ferðin hófst 4. sept. s- 1. FLOKKSÞING Framhald af bls. 1. stjórnarinnar um að hún fái vald til þess að senda heim innflytjend ur, sem ekki eru taldir Bretlandi til þénustu. Hugsanlegt er að ríkisstjórnin muni gefa eftir á ýmsum sviðum í þessu máli, en hún hefur oft-1 sinnis lýst því yfir, að hún munif halda fast við grundvallaráætlun sína um að taka aðeins á móti 8.500 innflytjendum árlega. Gunt- er lagði einnig áherzlu á það í ræðu sinni, að flokksþingið gæti ekki sagt ríkisstjórninni fyrir verkum í sambandi við stefnu hennar. Síðar í vikunni mun flokksþing- ið ræða ályktunartillögu, þar sem kynþáttamisréttið í Suður-Afríku er fordæmt. Mun ályktunin skora á brezku stjórnina að styðja að- gerðir innan Sameinuðu þjóðanna sem hafi það takmark, að Suður- Afríka verði beitt efnahagslegum refsiaðgerðum. Wilson forsætisráðherra mun á morgun taka til máls í fyrsta sinn á þinginu, og er talið senni- legt, að Wilson muni spá betra ástandi i efnahagslífi Bretlands í framtíðinni. NYTT FRIMERKI FB—Reykjavík, mánudag. í dag komu út merkin svonefndu, en frímerki hafa verið gefin af aðildarlönd’um ráðs pósts og síma á hausti síðan árið 1960. sinni bera Evrópumerkin eftir íslendinginn Hörð son, sem einmitt er staddur um þessar mundir og sýnir verk sín. Merkin eru tvö verðgildi 8 kr. og 5 kr. FB—Reykjavík, mánudag. Þýzki orgelsnfllingurinn Martin Gunther Förstemann mun halda tónleika í Neskirkju á miðvik’udaginn, og hefjast þeir klukkan 21. Öllu blindu fólki er boðinn ókeypis aðgangur að tónleikunum. Mgrtin Gunther Forstemann er eins og kunnugt er prófessor við tónlistarháskólann í Hamborg. Tónleikarnir í Neskirkju. verða þeir einu, sem Förstemann heldur hér í boroinni að þessu sinni. Á efnisskránni eru verk eftir hann sjálfan og ennfremur eftir Niko- laus Bruhns, Georg Böhm, Jóliann Sebastían Bach og Max Reger. Afyöngumiðar verða seldir í bókabúðum Sigfúsar Eymundssonar og hjá Lárusi Blöndal. Vísindamennirnir hafa til um- ráða mikið af sérstaklega smíðuð um tækjum til rannsókna, sem að- eins vísindamenn bera skyn á, en þó voru þarna heilmiklir dýptar mælar sem Rússarnir sögðu að mældu allt að 10 þúsund metra dýpi og eitt .sinn hefði nálin á tækinu sýnt 9-800 metra dýpi er þeir voru við rannsóknir á Kyrra hafi. Mörg ár tekur að fá heildar niðurstöður af rannsóknum sem þessum, en rannsóknirnar hafa bæði mikla vísindalega og praktíska þýðingu t. d. við gerð sjókorta, og Þegar að því kemur að járn verður unnið af sjávar botni. Rússarnir sögðust ekki vera ó- vanir að fá heimsóknir um borð í höfnum þar sem þeir koma við, og væri öllum heimilt að skoða skipið og búnað þess. VILJA FÁ Framhald af bls. 1. að hér fengju læknar ákveðið gjald fyrir vaktina 575 krónur + vísitölu, og auk þess 158 krónur + vísitölu fyrir hverja vitjun. Hér í Reykjavík eru tveir til þrír lækn ar samtímis á vakt, og er þeim lögð til bifreið til vitjana, auk þess sem þeir eru að sjálfsögðu ekki á eigin lækningastofu, heldur hafa bækistöð í Heilsuverndar- stöðinni, á læknavarðstofunni þar. Hér fer á eftir greinargerð LR: „Hinn 1. apríl 1965 féllu úr gildi samningar um greiðslu fyr ir heimilislæknaþjónustu milli Tryggingastofnunar rfldsins vegna sjúkrasamlaganna í Keflavík og Njarðvíkurhreppi annars vegar og Læknafélags íslands hins vegar. Samningar tókust ekki. Aðeins var deilt um greiðslu fyrir varð- þjónustu læknanna eftir venju- legan vinnutíma og á helgidögum og frídögum. Læknamir töldu sig eiga rétt á hliðstæðum greiðslum fyrir þessi störf og læknar í Reykjavík fá samkvæmt samningi við Sjúkrasamlag Reykjavíkur, enda eru þeir félagsmenn í Lækna félagi Reykjavíkur. Trygginga- stofnun ríkisins bauð aðeins að semja um fast gjald fyrir þessa þjónustu kr. 26.00 á ári fyrir hvern samlagsmann og vitjunar- gjald kr. 110.00 fyrir hverja næt- urvitjun. Til 31. júlí 1965 störfuðu lækn- arnir og tóku gjald fyrir umrædda þjónustu í samræmi við eldri samninga. Er það sýndi sig, að samningar myndu eigi nást, þrátt fyrir mikla bið, var ákveðiö að læknarnir tækju gjald fyrir störf sín samkvæmt gjaldskrá Læknafé- lags Reykjavíkur og var það gert frá 1. ágúst 1965. Tryggingastofn- un ríkisins óskaði þá eftir að mál inu yrði skotið til gerðardóms sam- kvæmt ákvæðum 51. gr. almanna tryggingalaganna. Var á það fall- izt af læknum að leggja málið fyrir gerðardóminn. Hinn 20. þ. m. var kveðinn upp dómur í mál- inu. Féllst meiri hluti gerðardóms ins á skoðanir Tryggingastofnun- ar ríkisins og ákvað, að fyrir næt- ur- og helgidagavarðstöður lækna skyldu sjúkrasamlögin greiða fast árgjald kr. 26.00 fyrir hvern sam- lagsmann og kr. 10.00 fyrir hvert barn á framfæri samlagsmanna auk vitjunargjalds kr. 110.00 fyrir hverja vitjun. Samkvæmt gerðar- dómnum verða heildargreiðslur til læknanna allra því aðeins kr. 9.697.83 á mánuði fyrir varðstöð- ur allar nætur frá kl. 17.00 að kveldi til kl. 8,00 að morgni, alla laugardaga frá hádegi og alla helgi- og frídaga. Ennfremur ber læknum fyrir þetta gjald að leggja til afnot af síma, lækninga- stofu og öðru, er til þarf svo og leggja til bifreið, ef í vitjun er afrið. Er ljóst, að slíkt er óviðun- andi. Hefur dómi gerðardómsins nú verið sagt upp frá 1. janúar 1966 að telja“.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.