Tíminn - 28.09.1965, Qupperneq 6

Tíminn - 28.09.1965, Qupperneq 6
6 TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 28. september 1965 Todda í Sunnuhlíð eftir MARGRÉTI JÓNSDÓTTUR. Þetta er fram hald bókarinnar TODDA FRÁ BLÁGARÐ. — f fyrri bókinni segir frá dvöl Toddu í Kaup- mannahöfn. Þegar hún er 7 ára, fer hún til ís- lands með móðusystur sinni. Hér er sagt frá viðtökunum, sem Todda litla fæ hjá ömmu sinni í Sunnuhlíð og ýmsu, sem við ber fyrsta veturinn, sem hún dvelur á íslandi. Hanna og Tom síðasta bókin um Hönnu. Hanna finnur nú, að njósnir og eltingaleikur við allskonar óknytta- lýð er bæði erfitt og getur verið áhættusamt. ^)g þar sem ástin er nú líka kómin í spilið, tekur hún að' lokum þann kostinn að láta allar njósnir sigla sinn sjó og breiðir faðminn mót unnusta sínum. Kim og leðurjakkarnir og Kim og smyglararnir eru nýjustu bækumar um Kim og félaga hans. Vinir okkar frá fyrri Kim-bókum flækjast hér inn í viðsjárverða atbuði, spennandi og dular- fulla. ^ Vigga og vinir hennar. Þetta er hugþekk saga um Viggu og vini henn ar, þá Níels og Henning. Þeir eiga lítinn og rennilegan seglbát, sem þau sigla oft á sér til skemmtunar. Og auðvitað er Sigga með þeim á þessum dámsamlegu ferðum. Sagan af Tuma litla. Hér kemur seinna bindið og niðurlag sögunnar af Tuma litla eftir Mark Twain. íslenzkir les- endur, eldri og yngri, kannast Við Söguna af Tuma litla, en bókin hefur verið ófáanleg mörg undanfarin ár, og kemur nú sem góður vinur í heimsókn til íslenzka lesenda. Þrír fræknir ferðalangar ^ Þessi skemmtilega sagá kom út fyrir nokkrum árum og seldist þá upp. í bókinni er sagt frá ævintýralegu ferðalagi þriggja röskra dengja. Þeim hafði veið boðið til Frakklands í heim- sókn ti lfrændfólks, en glötuðu vegabréfum og farangri. En þeir gefast ekki upp. Gang- andi fara þeir ferða sinna og sofa þar sem þá ber að garði. Ævintýrin geta verið erfið, en gaman er að ryfja þau upp og heyra frá þeim sagt á skemmtilegan hátt. Fallegu ævintýrin. f þessai skemmtilegu bók eru fjórtán gömul ævintýri. Mörg gömlu ævintýrin eru falleg- Þau hafa haft í sér lífsmáttinn til þess að standast umrót breytinganna. Tíminn síar úr það bezta og skilur eftir perlurnar. Ævintýrin heita: Steinn Bollason, Förin til stjamanna, Fiskurinn í eykinni og hérinni í tjörninni, Sendi boði Drottins. Kölski og saumastúlkan, Bauna- 12 kur frá LEIFTRI Átta UNGLINGABÆKUR, fjórar fyrir FULLORÐNA. kóngurinn, Kóngsveizlan, Munaðarleysingjarnir sjö Enarráði drengurinn, Sagan af heimskum strák, Gæfu baunin, Sólin og tunglið, SmælM, Höllin fyrir austan sól og vestan mána. — Bjarni Jónsson listmálari hefur teiknað margar falleg ar myndir í bókina. BÆKUR FYRIR FULLORÐNA: Draumar og vitranir eftir HUGRÚNU: - Prófess or Jóhann Hannesson segir m. a. í formála fyrir þess- ari bók: — „Veröld hins ósýnilega er oft og einatt hrollvekjandi, ekki síður en hinn sýnilegi hlutaheimur. Þetta veit sérhver sá, sem verið hefur í snertingu við hina ósýnilegu veröld. Nú hafa íslendingar ekki aðeins verið í snertingu við hina ósýni legu veröld í hundruð ára, heldur jafnvel átt erfitt með að greina á milli veraldanna. Oft virðast áhrifin frá hinu ósýnilega hafa orkað sterkar á menn en öfl hins sýnilega heims. Mér er í minni kona ein öldruð, er sagði okk- ur systkinunum sö^gur, þegar við vorum lítil. Ævintýrin gerðust í ævintýraheiminum, þar sem flest fór á endanum, eins og það átti að fara. — En hvað um huldufólksheiminn, draugana, galdrana — og drauma, sem menn dreymdi?“ Sjö sögur eftir SIR ARTHUR CONAN DOYLE. - Höfundur þessarar bókar, Sir Arthur Conan Doyle, var einn af kunnustu rithöfunum Breta. Hann var fædur 1859, las læknisfræði og stundaði lækn- ingar um skeið, en gerðist síðan blaðamaður og að lokum skáldsagnahöfundur. Mesta frægð hefur hann hlotið fyrir leynilögreglusögur sín- ar, ævintýri Sherlock Holmes. En auk þess hefu hann ritað fjölda lengri og styttri sagna frá ýmsum tímum. Nokkrar þeirra hafa verið þýddar á íslenzku, svo sem fyrrnefndar leyni- lögreglusögur. Hvíta hersveitin, Baskerville- hundurinn, í heljargreipum og ýmsar smásögur og ritgerðir. Jónas Rafnar, læknir, þýddi sögurnar. Sofandi kona eftir Georg Alexander. Ingibjög Jónsdóttir þýddi. — Sagan er ótrúlega spennandi. Hún fjallar um ást og afbrotamál. Viðburðarás sög- unnar er ör og fjörlega rituð. Lesandinn er hugfanginn frá fyrstu til síðustu blaðsíðu. — Taflið milli slunginna misyndismanna og Þaul- æfða þjóna lögreglunnar, þar sem gullið og auðævin em annars vegar, en fagrar og glys- gjarnar konur hins vegar, — þar eru ýll meðul notuð í baráttunni. Gerviaugað efitr ERLE STANLEY GARNER. - Þetta er PERRY MASON-bók — Ólafur Sv. Björnsson þýddi bókina. — Höfundur þessarar bókar er meðal allra frægustu höfunda leynilögreglu- sagna. Bækur hans eru nú þýddar um allan heim. Aðalpersónu hans, Perry Mason þekkir svo til hvert mannsbarn. Perry Mason er hér eins og venjulega að leysa torráðna gátu. Og honum tekst að sýkna þann, sem hafðu er fyrir rangri sök. Prentsmiðjan LEIFTUR LAUS STAÐA StaSa bókara I hjá Bæjarsímanum í Reykjavík er laus til umsóknar. Umsækjandi þarf að hafa góða leikm í vélritun og kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli. Umsóknir sendist póst og símamálastjórn fyrir 5. október 1965. Reykjavík 27. september 1965, * Póst- og símamálastjórnin. Bifreiöastjóri óskast Reglusamur bifreiðarstjóri, með réttindum til að aka leigubifreið með 16 farþ. eða fleiri,, óskast. Þarf að geta tekið til starfa í október. Umsóknir sendist til oddvitans í Vatnsleysustranr- arhreppi, sem gefur nánari upplýsingar. Oddvitinn í Vatnsleysustrandarhreppi, sími 12, símstöS Vogar. TYLKYNNING FRA Berklavörn í Reykjavík Kaffisala verður eins og venjujega á Berkjavarn- ardaginn, sunnudaginn 3. október, til ágóða fyrir Hlíðarsjóð. Konur_ sem ætla að gefa kökur, vin- samlegast komi þeim í Breiðfirðingabúð fyrir há- degi sunnudag eða hringið í síma 20343 og 32044. Stjórnin. RAFSUÐUTÆKI ÓDVR handhæg 1 fasa. lnntak 20 amp Af- köst 120 amp (Sýður vír 3.25 mm) Innbyggt öryggi fyrtr yfirhitun Þyngd 18 kíló Einnig rafsuðukapall og rafsuðuvír SMYRILl Laugavegi 170, Sími 1-22-60. Auglýsið í TÍMANÚM

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.