Tíminn - 28.09.1965, Qupperneq 8

Tíminn - 28.09.1965, Qupperneq 8
ÞRIÐJUDAGUR 28. september 1965 v / 8 TÍMINN Sig. Vilhjálmsson: ER LÝÐVELDID I HÆTTU? Engin þjóð verður mikil af lög um sínum, heldur af þeim mönn- um sem landið byggja. Tacitus (Rómaveldi 11 bls. 115). Það er eins og þessar línur, sem ég hef skráð hér að ofan tali til okkar íslendinga. Öllum ber sam- an um að þjóðveldislögin fornu hafi verið hin ágætustu eins og þá stóð á. En sagan sýnir að því fer fjarri að þjóðin hafi getað lif- að eftir þeim og þroskað sig í anda þeirra. Það fór mjög snemma að bera á því að ofureflismenn hrifsuðu til sín meira af valdi en þeim bar og notuðu það til fram- dráttar sérmálum sínum. Afleið- ing þess varð sú að þjóðveldið liðaðist sundur og þjóðveldishuf/ sjónin sem var undirstaða laganna varð draumur einn. Mennimir sem áttu að njóta þess að lifa í lögbundnu þjóðfélagi reyndust þannig, að þeir gátu ekki skapað mikla þjóð og lögin þó góð væru gátu það ekki. Á öllum tímum síðan þjóðir fóru að lifa í lögbundnu þjóðfé- agi, hvort sem þær hafa búið við lög sett á þingum eða af einvalds- höfðingjum hefur sagan endurtek ið sig. Stórveldi hafa hrunið vegna þess að fólkið hefur ekki búið yfir þeim sköpunarmætti sem þarf til að mikil þjóð verði til, sem getur mætt viðhorfunum eins og þau eru við hinar ýmsu aðstæður, sem þróun mannlífsins veldur í' -Öm- ans straumi. Sagan bregður upp fyrir okkur þjóðum, sem hafa vaxið úr smá- hóþum í það að verða mik.ar þjóðir og þær hafa um lengri og skemmri timabil haldið áfram að vera miklar þjóðir. Vissul. hefur löggjafarstarfið átt sinn þátt í því, að þessar þjóðir hafa náð þeirri hámenningu sem hefur hald- ið uppi frægð þeirra. Hvort þar hafa verið að verki vitsmunir lög- gjafans eða siðleg viðhorf fólks- ins og þróttur er ekki alltaf auð- velt að greina, en að líkindum hef ur það hvört tveggja farið saman. Sagan sýnir að þær þjóðir sem hafa auðgazt mikið, flestar með því að draga til sín arð úr öðr- um löndum frá öðrum þjóðum hafa komist á síig eins konar há- menningar, sem þó hefur verið gagnsýrð af siðleysi og spillingu. Nægir að benda á Rómaveld og ýmsar Evrópuþjóðir, t. d. Þýzka- land eins og best kom í Ijós á nasiztatímabilinu. Óhóf, hégómadýrð og hvers kyns siðleysi varð þeim að falli og í kjölfar þessara bresta and- varaleysi og hnignun innan frá, sem hefur valdið og mun valda hverri þjóð sem svo er ástatt fyrir hnignunar og a. 1. tortímingar, sem mikillar þjóðar. Einfalt líf og atorka fólksins er hað sem gefur þjóðinni mátt og einstaklingurinn, sem temur sér hóflegar lífsvenjur er sá hyrning- arsteinn sem frama möguleikar hans og þá um leið hans samfél- ags byggist á. Því fleiri sem slík- ir hornsfteinar eru þess traustara verður samfélagið og því meiri líkur til þess að viturleg löggjöf verði að gagni til að skapa mikla þjóð. Það er ekki undir mann- fjöida komið hvort þjóð er mik- it. „Heilbrigð sál í hraustum lík- ama‘ er undirstaða mikilla manna og mikilla þjóða. Hvernig er nú ástatt í okkar litla þjóðfélagi í þessum efnum rúmum 20 árum eftir að lýðveldi var stofnað í landinu? Um þær mundir, sem lýðveldið var stofnað var öllum hugsandi mönnum það Ijóst að setja þurfti ný stjórnskipunarlög. Enda var þá skömmu síðar skipuð nefnd til þess að gera tillögur um nýja stjórnarskrá. Enginn árangur er enn af starfi þessarar nefndar. Hins vegar hafa verið gerðar með stjórnarskrárbreytingum breyting ar á kjördæmaskipuninni, sem vafasamt er að hafi fært þjóð- ina nær lýðveldishugsjóninni. Fljótt á litið virðist svo sem lýð- ræðið hafi styrkst en lýðveldið orð ið veikara. Á hverju Alþingi eru samin mörg lög um hin sundurleitustu efni. Sum þeirra grípa fram í fyrir eðlilegri þróun eins og t. d. lög- gjöfin sem „nýsköpunin“ sæla byggðist á og löggjöfin um „við reisnina" o.fl. Auk þess er gripið til þess að gefa út bráðabirgðalög þegar ríkisstjórnir telja sig þurfa að hlutast tii um athafnir þegnanna og framvindu mála. Bersýnilegt er að algjört mis- ræmi er nú milli siðlegs þroska fólksins og löggjafarinnar. Enn- fremur er augljóst að mikið vant- ar á að framkvæmdarvaldið sé öruggt. Þetta sýna hin tíðu afbrot sem sífellt virðast færast í vöxt. Eftirlitið með framkvæmd lag- anna virðist ekki fullnægjandi. Það kann að vera mannúðlegt að taka vægum höndum á afbrota mönnunum, hollt er það ekki fyr- ir samfélagið og getur bókstaf- lega orðið til stórtjóns. Vafalanst er að mikjð af lögum þeim, sem sett hafa verið síðan lýðveldið var stofnað eru góð lög og stefna í rétta átt til þess ?ð hjálpa fólkinu til aukins þroska og miða þá jafnframt að því að skapa sterka þjóð. Það er meira vafamál hvort fullkomins samræm is gætir milli hinna ýmsu löggjaf- aratriða. Á það ekki sízt við um hin marg brotnu og veigamiklu lög sem nú gilda um efnahags og atvinnumál. Skal ekki farið út í að ræða hér um þau mál þar sem það mundi verða bókaefni. Aðeins vil ég benda á að öll sú löggjöf sem þessi mál gildir, mundi þurfa ítar- legrar endurskoðunar og samræm ingar við, ef ætti að byggja upp traust efnahagskerfi og far sælan atvinnurekstur. Það duga engar fullyrðingar um velgengni þegar svo er ástatt sem nú. að al- gjör glundroði ríkir í þessuja mál- um. Eðlileg og hagsapl þróun bygg- ist á því að fólkið finni til örygg- is við þær athafnir sem það hefur með höndum. Framtaksvilji ein- staklingsins lamast er óvissan um framtíðina vofir yfir öllum fram- kvæmdum. Það er meira virði fyr- ir framfarir þjóðarinnar og þroska að sem flestir sjálfstæðir einstaklingar eflist en að fáir auð menn og valdamenn ráði yfir meiginhluta alls fjármagns. Ég vil aðeins benda á að það er fullkomin ástæða fyrir okkur íslendinga að gæta okkar fyrir þeim veilum sem eru á háttum okkar. Það veltur mjög á hæfni löggjafans oe stjórnsemi valdhaf- anna hvert stefnir um þróun þjóð arinnar í efnahagslegu og menn- ingarlegu tilliti. Við verðum að minnast þess að landið okkar „líkist engum lönd- um“ og þjóðin jr fámenn. Okkur hentar því ekki sömu lög og öðr- um. Við verðum að varast að verða eitthvert tískufyrirbrigði. En jafn framt verðum við að til- einka okkur aljar framfarir og samræma þær við staðhætti og aðr ar aðstæður. Nútímamenn verða að varast óhóf, tildur og hégómaskap. Við verðum að vera minnungir þeirra baráttu, sem fyrri kynslóðir háðu til þess, að halda velli fyrir ásælni annarra og varðveittu þau menn- ingarverðmæti sem hafa reynst happasælust til þess að við höf- um haldið eignarréttinum á landi okkar. Það eru þessi verðmæti sem gerðu stofnun lýðveldis mögu lega. Það eru þessi vérðnjaeti, sem gáfu þeim mönnum, sem harðast sóttu fram djörfung og mátt til endurheimtu fullkomins sjálfstæð is og óskoraðs forræðis. Þessar liðnu kynslóðir eiga kröfur á hend ur nútíma og síðari tíma mönnum um að gæta þess arfs sem þær létu eftirkomendum sínum eftir. Ég valdi þessa setningu hins forna manns, sem greini hefst á til þess að benda á að það veltur mest á fólkinu sjálfu hvernig þjóð inni famast. Hins vegar vil ég benda á að það er sígildur boðskapur að „méð lögum skal land byggja en með ólögum eyða.“ En ólög eru þau lög sem léiða af sér upp- lausu og misræmi í þjóðfélaginu og ómenningu. Samstarf þjóðarinnar við land sitt og auðlindir þess og öræfi hafa grundvallaþýðingu fyrir þroska mannanna og menningu alla. Þekking á kostum landsins og göllunum eru frumskilyrði þess að notin af því verði fólkinu til hamingju og sannrar menningar. Löggjöfin verður að vera sniðin eftir lands- og þjóðháttum svo sam starf mannanna og sambúð þeirra við land sitt verði sá aflvaki sem knýr þjóðina til raunverulegra framfara. Landshættir og landgæði hafa mjög mikil áhrif á eðli fólksins og andlegann þroska. Þess Vegna verður að taka tillit til þess þegar lög og reglur eru settar. Lög og reglur sem brjóta í bága við þær aðstæður sem eru, verða venju- legast ólög, sem koma þeirri þjóð í koll fyrr eða síðar, ef hún met- ur kringumstæðurnar rangt. Vegna þess hvað landshættir og þjóðhættir hinna ýmsu þjóða eru ólíkit éiga sömu lög og reglur ekki við nema að takmörkuðu leiti. Gagnrýnislítil eftirherma í löggjöf er varasöm. Það er höfuð- nauðsyn að löggjöfin samsvari eig inleikum lands og þjóðar. Okkur íslendingum ber að varast öll „is- ma“ kerfi, hvort heldur þau eru „kapsitalísk," „kommúnísk' eða hvað annað fyrirbæri, sem skýtur upp lcolli í hinni víðu veröld. Hins vegar er nauðsynlegt að fylgjast vel með .því sem aðrar þjóðir að- hafast sér til uppbyggingar og þroska. Það verður að varast star- blinda íhaldssemi í löggjöf. Það veltur því mikið á því að til lög- gjafarastarfs og forystu veljist menn, sem meta réttar aðstæð- ur. Rígbundinn flokkastjónarmið verður að varast. Vitsmuni ,ber að nota fremur en óbeislað kapp ófyrirleitinna forystumanna. Það verður að varast hið heimsborg- aralega sjónarmið, sem sækir í það horf að einstaklingurinn verði aðeins tönn í hinu mikla tannhjóli. sem auðhyggja og efn- ishyggja leitast við að smíða. Manngildin eru meira virði. Reynsla okkar íslendinga er sú að farsælust hefur þróUnin orðið þegar stjórnarvöldin liafa verið hófsöm í aðgerðum sínum og byggt aðgerðir sínar á þjóð- legum grundvelli. Svo mun epn reynast. Þess vegna sýnist vonin um heppilega lausn á þeim vandamál um sem nú steðja að vera bundin við að Framsóknarflokkurinn studdur af bændum og hófsömum launþegum, og verkamönnum nái þeim þingáhrifum, sem duga til að kveða niður þau óheillaáhrif, sem núverandi stjórnarsamsteypa hefur haft á þjóðlífið. Ráðstefna sú sem margir Fram- sóknarmenn gengust nýlega fyrir um stjórnskipunarmálið er fylli- lega tímabær. Það sýnir að þeir hafa glöggann skilning á því hvert stefnir og vilja vinna að bættum háttum þjóðarinnar. Um þetta verður að fjalla af glöggskyggni, hleypidóma og öfgalaust. Það er mikil nauðsyn að þjóðin geri sér grein fyrir því að með núverandi stjórnarháttum stefnir hún til ófarnaðar. Siðleysi, smygl, skatt- svik og fals eru svo augljós sjúk- dómseinkenni, að ekki má drag- ast að leitast við að finna þau læknisráð sem að haldi koma. Sigurður Vilhjálmsson. Hánefsstöðum. Ættarskrá Bjarna Hermannssonar í Vatnshorni. í Skorradal. Ari Gíslason tók sam- an. Útgefandi Svembjöm Oddsson Akranesi 1965. Bók sú sem hér getur kom út í síðastliðnuim mánuði. Höfundur hennar, Ari Gíslason kennari á Akra nesi, er vel þekktur ættfræðingur og ömefnasafnari, afkastadrjúgur og áhugasamur um þjóðleg fræði. Ari Yfr aðalhöfundur að Amardalsætt, er út kom 1959, mikið verk, en áð úr hafði hanm skráð Prentaratal 1954. Auk þess á hann margt f handriti. Ari hefur um langt ára bil ferðast á sumrin um landið þvert og endilangt og safnað ör- nefnum á vegum Þjóðminjasafnsins og nú hin síðustu ár hefur hann unnið að söfnun skjala og heim ilda um Borgarf jörð til héraðsskjala safns í Borgamesi. Bjami Hermannsson sem á niðja tal sitt í bók þessari var fæddur 1774, dáinn 1856 82 ára, að Vatns homi f Skorradal þar sem hann hafði búið í tæp fimmtíu ár og um langt skeið verið hreppstjóri og forsvarsmaður sinnar sveitar. Bjarni var þríkvæntur og átti a. m. k. 24 böm. Er frá ýmsu greint varðandi ævi Bjarna og aldarhátt þess tíma, í fróðlegu æviágripi 1 upphafi bók- ar. Ættarskráin_ sem er rúmar 300 bls skiftist í fjóra aðalkafla. Pyrst em formálsorð höf, og saga Bjama, fróðleg og greinargóð þegar þess er gætt að heimildir til hennar em mjög af skomum skammti. — Þá em raktar ættir Bjarna og kvenna hans til ýmissa átta aftur í aldir. — Svo kemur niðjatalið sjálft, aðal kafU bókarinnar. Síðasti hlntinn er svo nafnaskrá allra þeirra sem nefndir era 1 bókinni og að lokum eftrimáli útgefanda, Sveinbjamar Oddssonar bókavarðar á Akranesi, er lézt 6. ágúst síðastl. tæplega átt- ræður að aldri^ rétt um það leyti að bókin kom út. Þá er ógetið bókarauka sem er 97 myndasíður með 433 myndum af fólki er kemur þar við sögu, og er þá bókin yfir 400 blaðsíður með öllu. Ekki hef ég kunnugleika til að leggja dóm á hversu ömgg þessi bók kann að vera sem heimUdarrit, enda verður slíkt ekki reynt tíl hljtar nema með tímafrekum athug unum. Hitt er ljóst að frágangur allur er með þeim hætti að bæði höfundur og útgefandi hafa lagt Framhald á bls. 15. \ / l l I r t 4 r

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.