Tíminn - 28.09.1965, Side 12

Tíminn - 28.09.1965, Side 12
ÍÞRÓTTIR TIMINN ÍÞRÓTTIR PEIÐJTTDAGUR 28. septcmber 1965 Batdvin Baldvinsson skorar fyrsta mark ieiksins. Hann hefur stungiS Högna af — og á myndinni sést Ktartan markvörSur liggjandi á vellinum eftir að hafa mistekizt aS stöðva Bald- rtn. Fyrsta rnerktð yar ekki rangstöðumark. fTímamynd Róbert) Orrustunni er enn ekki lokið KR og Keflavík gerðu jafnfefli, 3:3, og nú verða KR og Akranes að leika aftur AK — Reykjavík- Orrustunni um fslandsmeistaratignina í knatt- spjrou 1965 er ekki enn lokiS. KR og Keflavík háðn æðisgengna baráttu á Langardalsvellinum á sunnudaginn fyrir framan 6- þús. áhorfendur, sem fylgduSt spenntir með þessari þýðingarmiklu viður- eign. Þegar líða tók á síðari hálfleikinn og Keflvikingar höfðu náð eins marbs forskotL 3:2, var um svo jafna baráttu að ræða, að eriitt var að átta sig á bvor aðiiinn myndi fara með sigur af hólmi. KR- ingar voru greinilega betra Iiðið í fyrri hálfleik og náðu þá að skora 2:0. En í siðrai hálfleik snérist taflið við og Keflvíkingar sóttu ákaft að KR-mprkinu og uppskera látlausra sóknartilrauna þeirra voru þrjú mörk, Það sfðasta skorað úr vitaspyrnn á 23. mínútu. Sigurbros áhangenda KR í liálfléik, breyttist í vonleysislega grettn, þegar llögni Gunnlangs son hafði skoraS úr vitaspyrnunni fyrir Keflavik, en meirihluti á- horfenda fagnaði markinu gifur Iega — undarlegt atvik, þegar til lit er tekið til þess, að þarna lék KR á sínum ,,heimavelli“. Leik urinn hélt áfram og mínúturnar snigluðust áfram ein af annarri meðan liðin héldu baráttu sinni áfram. Áhorfendur undu sér vel í áhorfendástæðunum, enda var veðrið indælt, nær því logn o^ mild haustsólin skein í heiði og hellti geisl’um sínum yfir Laugar- dalinn. Og á 32. mínútu náði spenn an liámarki. Gunnar Felixson, hægri útherji KR, brunaði upp kantinn og lék inn | vítateig Kefla víkur. V. bakvörður Keflavikur var til vamar og hafði engin önn ur úrræðj til að stöðva Gunnar en bvegða honum. Gunnar kastaðist áfram og bein afleiðing var víta spyrnudómur Hannesar Þ. Sigurðs sonar. Ellevt Schram framkvæmdi spyrnuna og sendi knöttinn örugg lega í markið, 3:3. Fleiri mörk voru ekki skoruð og úrslitin þýða það, að KR og Akranes verða að lcika aukaleik um íslandsmeistara tignina. Er ákveðið, að sá leikur fari fram á sunnudaginn kemur á Laugardalsvellinum. -%'i Eftir að KR hafði náð 2:0 í hálfleik var ekki hægt að búast við öðru en Þeir myndu taka ís- landsbikarinn með sér heim. Þeir höfðu leikið vel í fyrri hálfleik — með sterka vöm, þar sem Hörður Felixson bar af, höfðu undirtök in á miðjunni fyrir gott baráttu þrek þeirra Sveins Jónssonar og Kristins Jónsosnar og hjálp Ellerts — og í framlínunni ógnaði Baldvin með hraða sínum. Var hægt að búast við, að Keflavíkingar, sem léku ekki úrslitaleik fyrir sjálfa sig, heldur Akraness, myndu hafa það mikið baráttuþrek, að þeir gætu jafnað stöðuna? Það bjugg ust örugglega fáir við því í hálf leik, en samt gerðist þetta. Kefl víkingar jöfnuðu stöðuna — og meira en Það, þeir náðu forystu. Og frá mínum bæjardyrum séð, máttu KR-ingar þakka fyrir sleppa me ðjafntefli. Eftir leikinn gaf Ellert Schram, fyrirliði KR, eftirfarandi skýringu á því hvers vegna KR missti nið ur forskotið: „Við höfðum náð 2:0 í hálfleik og okkur var mjög j mikið í mun að lialda því for- skotL Þess vegna lékum við aftar strax í síðari hálfleik og misstum þá um leið tökin á miðjunnL sem við höfðum verið allsráðandi á í fyrri hálfleik og það hygg ég, að hafi ge>t gæfumuninn. Með öðrum orðum; við „bökkuðum“ of mikið“. Það er mikið til í þessari skýr ingu Ellerts. Sannleikurinn var nefnilega sá, að KR-ingar misstu algerlega tökin á miðjunni í síð ari hálfleik, enda léku báðir fram verðimir, Sveinn og Kristinn, sér staklega þó Kristinn, aftur. Þessi ráðs'töfuiá' VSf' á kostnað sóknarinn ar, enda sást ekki vel skipulögð sóknartilraun af hálfu KR nær allan síðari hálfleikinn. Það var vel skiljanlegt, að KR-ingar reyndu að draga sig til baka og styrkja vörnina, en þeir tóku bara ekki með í reikninginn ótrúlegt baráttuÞrek Keflvíkinga. Allt frá fyrstu mín. í síðari hálf leik í nær tvo stundarfjórðunga, ógnuðu Keflvíkingar KR-markinu og var Rúnar „bítill" sérlega skeinuhættur. Og Rúnar skoraði 2:1 á 5. mínútu eftir að Jóni Jóhanssyni, miðherja Keflavíkur, mistókst að afgreiða sendingu frá h. kanti, en knötturinn leið á- fram og út til vinstri, þar sem Rúnar tók á móti knettinum og spyroti honum í mark framhjá Heimi Guðjónssyni. Fimm neánút um síðar small knötturinn í slá KR-marksins eftir hörkuskot Jóns Jóhanssonar. Þarna skall hurð nærri hælum. Á 20. mín. virtist markstöngin enn ætla að bjarga KR. ,Þá skaut Jón Ólafur í stöng af stuttu færi — eir í þetta skipti j hrökk hann af stönginni og út ifyrir fætur Jóns J., sem ekki var Sveit Páls Asg. sigraði Á laugardaginn fór fram golf- keppni á vegum Golfklúbbs Reykja víkur, sem forræáðamenn klúbbs ins kölluðu ^bændakeppni". Var liði skipt og kepptu 48 golfmenn i tveimur hópum undir stjórn „bænd anna“ Páls Ásg. Tryggvasonar og Erlends Einarssonar. Svo fóru leik ar, að sveit Páls sigraði óvænt með 16 stigum gegn 7. Keppnin fór vel fram og eftir hana buðu ,tbændurn ir“ lðismönnum sínum veitingar í heimahúsum. seinn að nofaera sér þetta tæki færi og skoraði 2:2. Á 23. mín. var daemd vítaspyrna á Hörð Felix son fyrir að þjarma að Jóni J. Högni tók vítaspyrnuna og skoraði 3:2. Eftir öllum gangi leiksins í s. h. fram til þessa áttu Keflvík ingar vel skilið að hafa yfir eitt mark. Brúnin var heldur tekin að létt ast á þeim fjölmörgu Skagamönn um, sem komu til að horfa á leikinn, enda þýddi sigur Kefla víkur það, að Akranes yrði meist ari. Og að sama skapi var hrúnin tekin að siga hjá áhangendum KR. En KR-ingar höfðu ekki sagt sitt síðasta orð — og síðustu mínútum ar breyttu þeir um leikaðferð og sóttu meira. Og Þeir uppskára jöfnunarmark, sem þeir settu úr vítaspymu. Skemmtilegum leik lauk með jafntefli, 3:3. Knattspyrnulega séð var leikur inn að mörgu leyti góður. í fyrri hálfleik báru tveir leikmenn af á velilnum, nefnilega Hörður Felixson, sem allar sóknartilraun ir Keflvíkinga strönduðu á, og Ellert Schram, sem var mjög ötull bæði í sókn og vörn. Ellert lagði knöttinn á Baldvin í fyrsta markinu, sem var skorað á 15. mín. Keflvíkingar vildu halda því fram, að hann hefði Verið rangstæður, en Magnús Pétursson, sem var línuvörður sömu megin, taldi að Baldvin hefði ekki verið rangstæð ur. Magnús var mjög vel staðsett ur, þegar þetta átti sér stað. Ein ar ísfeld skoraði síðara mark KR á 35. mín. eftir að hafa fengið knöttinn sem hrökk af Keflvíking fyrir opnu marki. í síðari hálf leik bar ekki eins mikið á Ellert og Herði, þá tókst Bjama Fel. og Ársæli K. vel upp. Heimir stóð sig vel eftir atvikum — og í fram línunni gerðu Einar ísfeld og Gunnar Fel. margt gott. Eftir slakán fyrri hálfleik lék Keflvíkingar skínandi vel í síð ari hálfleik og þá brá liðið fyrir sig stuttu spili- Langbezti maður framlínunnar var Rúnar Júlíusson. Rúnar er mjög leikinn og hefur furðu gott úthald miðað við það; að hann er sagður æfa lítið. Jón Jóhannesson stóð sig mjög vel í síðari hálfleik, og auk tveggja framangreindra leikmanna sýndu Högni Gunnlaugsson og Sigurður Albertsson góðan leik. Annars hef ur Keflavíkur-liðið verið mun betra í tveimur síðustu leikjum sín um en það var fyrri hluta sumars — og má e. t. v. þakka Það þátt töku liðsins í Evrópubikarkeppn inn i. Hannes Þ. Sigurðsson dæmdi leikinn og gerði það að mínu viti vel. Leikurinn var l.arður og erfitt að dæma hann. Hannes sigldi á milli skers og bám og beitti flaut unni ekki of mikið og tapaði hvomgt liðið á því. Úrslit á Englandi og Skot- landi s.l. laugardag: 1. deild: Arsenal—Manch. U. 4:2 Aston Villa—Tottenham 3:2 Burnley—West Bromwich 2:0 Chelsea—Newcastle 1:1 Leeds—Blackburn 3:0 Liverpool—Everton 5:1 Worthampton—SheffieldW 0:0 Sheffield U.—Leicester 2:2 Stoke—Nottimgham F. 1:0 Sunderland—Fulham 2:2 West Ham—Biackpool 1:1 2. deild: Bolton—Birmingham 1:2 Bristol—Cardiff 1:1 Charlton—Huddersfield 0:2 Coventry—Carlisle 3:2 Manchester C—Derby 1:0 Norwich—Ipswich 1:0 Plymouth—Leyton 4:1 Preston—Crystal P. 2:0 Rotherhani—Southampton 1:0 Wolves—Bury 3:0 Skotland: Celtic—Aberdeen 7:1 Dundee—Rangers 1:1 Dunfermline—Kilmamock 1:0 Hamilton—Morton 1:2 Hibernian—Falkirk 5:1 Partick—Motherwell 1:1 St. Johnst.—Hearts 3:2 Stirling—Clyde 3:2 RYÐVORN Grensásveg 18 simi 30-9-45 [ » Látið ekkl dragast að ryð^ verje og nljóSeinangra bif . reiðina með Tectyl i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.