Tíminn - 28.09.1965, Side 16
SEX NYLIÐAR A
HAUSTSÝNINGUNNl
GB-Reykjavík, mánudag.
Haustsýningin, hin árlega sam-
sýning Félags íslenzkra myndlist-
armanna, verSur opnuð í Lista-
mannaskálanum á þriðjudags-
kvöld fyrir gftsti, en öllum opnuð
daginn eftir ag síðan opin dag-
lega kl. 2—10 síðdegis í hálfan
mánuð.
Að þessu sinni taka þátt í haust
sýningunni tuttugu málarar og
sjö myndhöggvarar og eru nú sex
með í fyrsta sinn, Magnús Tómas-
son og Tryggvi Ólafsson, sem báð
ir eru við myndlistarnám í Kaup
mannahöfn, Sveinn Snorri, sem
sýndi á Listahátíðinni í fyrra en
nú málverk í fyrsta sinn, þá eru
og málverk eftir tvo ókunna
menn, Arnór Herbertsson frá
Siglufirði og Jónas Guðvarðsson
frá Hafnarfirði, og höggmyndir
eftir Bjarna Guðjónsson frá Vest-
mannaeyjum og Hallstein Sigurðs
son úr Reykjavík. Sýningamefnd
skipuðu Þorvaldur Skúlason, Jó-
hannes Jóhannesson, Eirikur
Smith, Hafsteinn Austmann og
Steinþór Sigurðsson fyrir málara,
en fyrir myndhöggvara Magnús
Á. Árnason og Guðmundur Bene-
diktsson.
Sögðu þeir Þorvaldur Skúlason
og Hörður Ágústsson við frétta-
menn í dag, að Hannes Davíðsson
arkitekt hafi nú lokið við teikn-
ingu nýs myndlistarskála, sem á
að rísa á Klambratúni, og er ver-
ið að gera líkan af því húsi, en
vonandi yrði þetta síðasta sam-
sýningin, sem félagið neyddist til
að halda í skálaræksninu við
Kirkjustræti, sem átti aðeins að
standa í fimm ár, en hefur verið
notaður í aldarfjórðung, þótt
hann haldi hvorki vindi né vatni.
Eru aS hengja upp á ’Haustsýning-
unni, málararnir Jóhannes Jóhannes
son, Þorvaldur S.kúlason, Eiríkur
Smith^ Hörður Ágústgson og Steln
þór Sigurðsson.
Guðmundur
Vilhjálmsson, látinn
GB-Reykjavík, mánudag.
f gær lézt hér í borg Guðmund-
ur Vilhjálmsson, 74 ára, er í 32
ár var forstjóri Eimskipafélags fs-
lands, en mörg ár þar áður í þjón
ustu Sambands íslenzkra samvinnu
félaga, bæði innan lands og utan.
Hann fæddist á Undirvegg í
Kelduhverfi, þar sem foreldrar
hans bjuggu, Vilhjálmur bóndi þar
og síðar á Húsavík Guðmundss. og
Helga ísaksdóttir. Ungur byrjaði
Guðmundur að vinna hjá Kaupfé-
lagi Þingeyinga á Húsavík og hélt
þyí áfram í 14 ár. Á skrifstofu
SÍS í Kaupmannahöfn starfaði
hann 1915—17, en þá varð hann
erindreki SÍS í New York og var
þar til 1920, að hann stofnsetti
skrfistofu SIS í' Leith og var for-
stöðumaður hennar til ársins 1930
að Sigursteinn Magnússon tók við
þyí starfi, er Guðmundur fluttist
til Reykjavíkur og varð fram-
kvæmdastjóri Eimskipafélags ís-
lands og gegndi því til 1962. Frá
1945 og til dauðadags var hann
stjórnarformaður Flugfélags ís-
lands. Kona hans, Kristín, dóttir
Thors Jensens, lifir mann sinn, og
börn þeirra, Thor rithöfundur og
Guðmundur W. lögfræðingur.
NÝR CUÐFRÆÐIDOK TOR
FB—Reykjavík, mánudag.
Á laugardaginn varði sr. Jak-
ob Jónsson sóknarprestur í
Hallgrímssókn, doktorsritgerð
sína, Humor and Irony in the
New Testament, eða nánar til
tekið Kimni og háð í Nýja
Testamentinu. Andmælandi
var sr. Barbour frá Edinborg,
og meðmælandi prófessor
Henri Clavier frá Strassbourg.
Meðal þeirra er viðstaddir voru
doktorsvörnina, voru biskup-
inn yfir íslandi, sr. Sigurbjörn
Einarsson, og rektor Háskól-
ans, Ármann Snævarr, en mik
ið fjölmenni hlustaði á vörn-
ma.
Forseti guðfræðideildar, séra
Björn Magnússon, setti sám-
komuna, en síðan tók hinn verð
andi doktor til máls. Skýrði
hann nokkuð verk .sitt og starf
að venju. Séra Jakob Jónsson
sagði meðal annars, að eftir
að hann fór að leggja stund á
rannsóknir biblíunnar, hafi
honum oft dottið í hug, að
sumt væri auðskildara í guð-
spjöllunum, ef litið væri á það
sem gamansemi. Hefði hann
hugsað mikið um þessi mál, og
síðar farið að rannsaka þau
nánar, og flokka niður setning
ar úr helgiritum Gyðinga, Tal-
mud og Midrash og árangurinn
hefði verið bók sú, sem hann
nú lagði fram sem doktorsrit-
gerð sína.
Meðmælandinn var prófessor
Henri Clavier og hældi hann
ritgerðinni mjög, og sagði, að
hún væri þýðingarmikill liður
í rannsóknum þeim sem nú
fara fram á ævi Krists. And-
mælandinn, sr. Barbour, lagði
spurningar fyrir doktorsefnið
Framhald á bls. 15.
Guðmundur Vllhjálmsson
Frá doktorsvorninni f Háskólanum á laugardaglnn. Dr. Jakob Jónsson er í ræðustól en til hliðar eru and-
mælendurnir prófessor Clavier og Barber Barbour. (Tímamynd K. J.)
TELJfl MILTISBRANDINN
HAFA VERID YFIRUNNINN
MB-Reykjavík, mánudag.
Vonir standa nú til þess að tek-
izt hafi að hefta miltisbrandssjúk-
dóminn á Þórustöðum í Ölfusi, en
fyrir helgina veiktust þar tveir
menn og voru taldar miklar líkuf
á því, að um miltisbrand væri að
ræða, en ekki hefur það sannazt
við rannsókn.
Blaðið átti í dag tal við þá Jón
Guðbrandsson, dýralækni á Sel-
fossi, og Magnús Ágústsson, hér-
aðslækni í Hveragerði. Jón sagði,
að ekki hefði nú orðið vart við ný
tilfelli á Þórustöðum, enda hefði
öllum sýktum gripum verið lógað
og hræin verið grafin í jörð. Hins
vegar hefði enn ekki þótt rétt að
leyfa mjólkursölu að nýju frá
Þórustöðum.
Magnús Ágústsson, héraðslækn-
ir í Hveragerði, var nýkominn úr
fríi, þegar blaðið átti tal við hann,
___________Framhaid á bls. 14.
Niðurstöður fé-
lagsdóms væntan-
legar í vikunni
EJ-Reykjavík, mánudag.
Samkomulag náðist við bólstr-
ara í nótt, og var samkomulagið
samþykkt á félagsfundi hjá þeim
í morgun, þannig að auglýstu verk
falli hefur verið aflýst. Ekki hef-
ur náðst samkomulag við trésmið?
né málara.
Munnlegur málflutningur vaf
fyrir Félagsdómi í dag vegna
kæru Meistarafélags trésmiða á
hendur Trésmiðafélagi Reykjavík-
ur vegna verkfallsins í Árbæjar-
hverfi. Má búast við dómi næstu
daga.