Morgunblaðið - 13.12.1985, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
Sædýrasafnið:
Dýrin mín stór
ogsmá
Sædýrasafnið verður opið um
helgina eins og alla daga kl. 10.00
til 19.00. Meöal þess sem er til sýnis
eru háhyrningar, Ijón, (sbjörn, apar,
kindur og fjöldi annarra dýra, stórra
og smárra.
Þjóöminjasafniö:
íslenskar hannyrðir í
Bogasal
í Bogasal Þjóðminjasafnsins er nú
sýning á verkum íslenskra hannyrða-
kvenna og nefnist hún „Meö silfur-
bjarta nál“. Þar getur að Ifta verk
eftir rúmlega 40 konur sem uppi
voru frá því á 12. öld og fram yfir
síðustu aldamót. A sýningunni er
leitast við að draga fram helstu ein-
kenni islensku útsaumshefðarinnar.
Vegleg sýningarskrá hefur verið gefin
út og er í henni meðal annars að
finna æviágrip allra þeirra kvenna
sem verkin á sýningunni eru eftir.
Sýningin er opin daglega frá kl.
13.30 til 16.00ogstendurframtil
áramóta.
SAMKOMUR
Kvennahúsið, Hótel Vík:
Laugardagskaffi
Hin svokölluðu laugardagskaffi
verða í Kvennahúsinu, Hótel Vlk, á
morgun, laugardaginn 14. desem-
ber, og siöan aö viku liðinni, 21.
desember, milli 14.00 og 18.00.
Lesið verður úr nýútkomnum bók-
um eftir konur og rabbaö veröur um
bækurnar yfir kaffibollum á eftir.
Krákan:
Létt tónlist
A sunnudögum og fimmtudögum
gengst veitingahúsið Krákan fyrir
léttum tónlistarkvöldum. Stefnt verð-
ur að því aö hafa tónlistina sem fjöl-
breyttasta. Á komandi tónlistar-
kvöldum munu þeir Jóhann Kristins-
son píanóleikari, Birgir Bragason
bassaleikari og Stefán Hjörleifsson
gftarleikari leika létta djasstónlist.
Lögreglufélag Reykja-
víkur 50 ára:
Alþjóðleg lögreglu-
sýning
Alþjóðleg lögreglusýning stendur
nú yfir að Hótel Loftleiðum í tilefni
50 ára afmælis Lögreglufélags
Reykjavlkur um þessar mundir. Sýn-
ingin stendur til 16. desember og er
opin alla daga frá 16.00 til 22.00.
Þetta er stærsta lögreglusýning sem
haldin hefur verið og er eigandi sýn-
ingarinnar Edouard Kries frá Lúxem-
borg. Þá veröa einnig munir frá
lögreglunni I Reykjavlk.
Hótel Borg:
Orator meö dans-
leiki
A Hótel Borg eru nú haldnir dans-
leikir um helgar á vegum Orators,
félags laganema I Háskóla íslands.
Þar verður bryddað upp á ýmsum
nýjungum.
Gestgjafinn:
Eyjakvöld
Svokölluö Eyjakvöld eru haldin
föstudags- og laugardagskvöld á
Gestgjafanum (Vestmannaeyjum.
Yfirskrift þeirra er: Eg vildi geta
sungiö þér. Flutt verða lög og Ijóð
eftir Oddgeir Kristjánsson, Asa i Bæ,
Arna úr Eyjum, Glsla Helgason og
Gylfa Ægisson. Þar aö auki verður
flutt hið nýja þjóðhátfðarlag eftir Lýö
Ægisson og Guðjón Weihe.
í tengslum viö Eyjakvöldin verður
boðið upp á pakkaferðir til Eyja.
Framreiddur verður ýmiss konar
matur sem dæmigerður má teljast
fyrir Vestmannaeyjar.
Hótel Saga:
LaddiáSögu
A Hótel Sögu skemmtir nú hinn
kunni grlnisti Laddi á föstudags- og
iáLígárösgskVökJum, 503 Þórhallur
Nemendur úr Tónlistarekóta Kópavogs.
Tónlistarskóli Kópavogs:
Jólatónleikar
Tvennir tónleikar veröa um helgina á vegum Tónlistarskóla Kópavogs. Þeir fyrri verða á
morgun, laugardag, kl. 14.00 í sal skólans. Seinni tónleikarnir veröa í Kópavogskirkju sunnu-
daginn 15. desember og hefjast þeir kl. 16.00. Aógangur er ókeypis og öllum heimill.
Sigurðsson, eins og hann heitir fullu
nafni. Hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar leikur undir meö honum og
slðar fyrir dansi.
A Mlmisbar Hótel Sögu verður
áfram dúett Andra Bachmanns.
Ölkeldan:
Þjóðlagakvöld
Grétar, Matti og Wilma munu sjá
gestum ölkeldunnar við Laugaveg
fyrir fjörugri þjóðlagatónlist næstu
föstudags- og laugardagskvöld. Tón-
listin er margvisleg en Irsk, skosk,
norræn og slavnesk þjóölög veröa
mest áberandi. -
Skíöaskálinn í
Hveradölum:
50ára afmæli skál-
ans
Sklðaskálinn í Hveradölum heldur
um þessar mundir upp á fimmtfu ára
afmæli sitt. I tilefni af þvl hafa Haukur
Morthens og félagar leikiö og sungið
fyrir gesti og gangandi. Þeir munu
halda þvl áfram eitthvað lengur á
föstudags- og laugardagskvöldum.
Fríkirkjan í Reykjavík:
Jólavaka
Jólavaka Fríkirkjunnar I Reykjavlk
verður að venju hinn 3. sunnudag I
aðventu, sem að þessu sinni ber upp
á 15. desember. Samkoman hefst
kl. 17.00. PavelSmld, frlkirkjuorgan-
isti, leikur einleik á orgel, séra Gunnar
Björnsson flytur ávarp og Frlkirkju-
kórinn syngur.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, leik-
kona, les smásöguna „Aðfanga-
dagskvöld Elíasar Hólmsteins" eftir
Tage Danielsson I þýðingu Péturs
Péturssonar, héraöslæknis I Bolung-
arvlk. Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður flytur ræðu og „ Jólabjöllurn-
ar“, kór starfsmanna á Keflavíkur-
flugvelli, syngja jólalög undir stjórn
Sharon Swansen. Einsöngvarar eru
séra William Condon bassi og Bev-
erly Chaney sópran.
Loksverður kertaljósahátlð, þar
sem hver tendrar sitt eigið kerti, en
meðan á þvl stendur flytur Frfkirkju-
kórinn „Slá þú hjartans hörpu-
strengi" eftir J.S. Bach. Loks verður
almennur söngur.
Norræna húsiö:
Píanótónleikar
Martin Berkofsky og Anna Málfrlð-
ur Sigurðardóttir munu flytja öll fjór-
hent verk eftir Franz Schubert á alls
sex tónleikum, sem allir munu fara
fram I Norræna húsinu á laugardög-
umkl. 16.00.
Aörir tónleikarnir af sex verða á
morgun, 14. desember. Miðar verða
seldir við innganginn. Verð á ein-
staka tónleika er 300 krónur. Afslátt-
arverö fyrir nemendur er 200 krónur.
Þetta mun vera I fyrsta sinn á
Islandi sem heildarflutningur á frum-
sömdum verkum fyrir fjórhentan
planóleik eftur Schubert fer fram.
Vottar Jehóva:
Mót
Vottar Jehóva halda tveggja daga
mót I samkomuhúsi slnu við Sogaveg
I Reykjavík nú um helgina. Mótið
hefst kl. 10.00 á morgun, laugardag,
og er á dagskrá fjöldi erinda, viðtala
og umræðuþátta. Einkunnarorð
þessa móts eru „ Verið staðfastir I
trúnni”. Aðalræðu flytur Bjarni Jóns-
son á sunnudag kl. 14.00 og nefnist
hún „Grundvöllur trúar í trúlausum
heimi".
Samtök lækna gegn
kjarnorkuvá:
Hátíðahöld á Borg-
inni
Samtök lækna gegn kjarnorkuvá
munu gangast fyrir hátiðahöldum á
morgun, laugardag, kl. 14.00 til
17.00 á Hótel Borg. Tilefnið er að
Friðarverölaun Nóbels á þessu ári
voru veitt alþjóðasamtökum lækna
gegn kjarnorkuvá sem samtökin hér
á landi eiga aðild aö. Hátfðin verður
byggö upp af mörgum stuttum atrið-
um, flest flutt af listamönnum.
Bandalag há-
skólamanna:
Fundur
Bandalag háskólamanna heldur
opinn fund um háskólakennslu utan
Reykjavlkur á morgun, laugardag,
kl. 13.30 Istofu 101 (Odda, húsi
félagsvísindadeildar Hí.
Tónlistarskólinn Sel-
tjarnarnesi:
Jólatónleikar
Tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi
heldur sina árlegu jólatónleika nk.
sunnudag, 15. desember, kl. 14.00
í sal skólans. Allir bæjarbúar eru
velkomnir svo lengi sem húsrúm
leyfir.
Vikuna 16.-20. desember veröur
engin kennsla heldur veröa haldnir
tónleikar fyrir skólabörn bæjarins.
Fimmtudaginn 19. desember verður
eldri borgurum Seltjarnarness boðið
á sérstaka tónleika kl. 17.00.
Háteigskirkja:
20ára vígsluafmæli
A aðventukvöldi 15. desmeber nk.
kl. 20.30 verður 20 ára vígsluafmælis
Háteigskirkju minnst I kirkjunni. Sig-
urbjörn Einarsson biskuþ flytur
ávarp. Skólakór Alftamýrarskóla
syngur undir stjórn Hannesar Bald-
urssonar ásamt kirkjukór Háteigs-
kirkju undir stjórn Orthulf Prunner.
Kór Háteigskirkju hefur nýverið
gefiö út hljómplötu með sálmum úr
Litlu orgelbókinni eftir Bach, sungnir
á Islensku. Meö plötunni vill kórinn
leggja lltið eitt af mörkum til messu-
gjörðar á aðventu- og jólatíma ásamt
þvl að minnast Bachs á afmælisári
Ungt par frá Danmörku
skemmtir á jólahátíðum
Danskennarasamband íslands heldur dansleik í Tónabæ
annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 21.00 til 1.00. Allt áhugafólk
um dans er velkomið. Ungt, danskt danspar heldur sýningu
um kvöldið. Stúlkan er aöeins 11 éra gömul og heitir Merete
Hachman og pilturinn er 14 ára og heitir Jesper Sörensen.
bau eru hingað komiö á vegum dansskóla Hermanns Ragnars
Stefénssonar.
Á sunnudaginn heldur dansskóli Hermanns Ragnars jóla-
og f jölskylduhátíö á Broadway kl. 14.00 og 17.00 og mun
þetta unga par dansa þar einnig. bau heimsóttu ísland í
fyrravetur og dönsuóu m.a. é Hótel Sögu é vegum dansskól-
ans. bau eru margfaldir meistarar í dansi í sínum aldursflokki
og koma hingaó eftir aö hafa sýnt i Bella Center í Kaup-
mannahöfn í tíu skipti.
B 15
og þrjáfiu ára afmælis Kórs Háteigs-
kirkju 1983.
Dómkirkjan:
Orgeltónleikar
Ann Toril Lindstad organleikari
heldur orgeltónleika I Dómkirkjunni
nk. sunnudag kl. 17.00. A efnis-
skránni eru verk eftir Messiaen, Rolf
Karlsen og Julius Reubke.
Ann Toril er norsk að uppruna og
hefur að baki sex ára nám viö tónlist-
arháskólann í Osló. Hún lauk kandid-
atsprófi í kirkjutónlist árið 1983, og
„diplom“-prófi iorgelleik 1985.
Kennarar hennar voru m.a. Björn
Boysen og Gotthard Arnér. Hún
leggur nú stund á nám i túlkun bar-
okktónlistar hjá Jacques van Oort-
merssen sem er lektor við Sweilinck
Conservatorium í Amsterdam.
LEIKLIST
Stúdentaleikhúsið:
Stúdentaleikhúsið sýnir rokksöng-
leikinn „ Ekkó - guðirnir ungu“ í Fé
lagsstofnun stúdenta á sunnudög-
um, mánudögum, miðvikudögum og
fimmtudögum og hefjast sýningar kl.
21.00.
Ólafur Haukur Slmonarson þýddi
leikinn og tónlist er eftir Ragnhildi
Gisladóttur. Andrés Sigurvinsson
leikstýrir.
Þrettán leikarar koma fram (leikrit-
inu auk fjögurra manna hljómsveitar .
sem einnig tekur þátt I leiknum.
Miöapantanir eru allan sólarhringinn
i slma 17017 auk þess sem miðasala
er við innganginn. Sýningum fer
fækkandi.
Leikfélag Akureyrar:
Jólaævintýri
A sunnudaginn kl. 16.00 er slð-
asta sýning Leikfélags Akureyrar
fyrir jól á söngleiknum Jólaævintýri,
sem byggir á sögunni „ A Christmas
Carol" eftir Charles Dickens.
Arni T ryggvason fer á kostum I
gervi nirfilsins Scrooge en fjöldi leik-
ara, barna og tónlistarmanna flytja
jólin í bæinn með sýningu þessari
sem hlotiö hefur einróma lof gagn-
rýnenda. Leikstjóri er Maria Krist-
jánsdóttir og hljómsveitarstjóri er
Roar Kvam. Sala aðgöngumiða er
hafin á sýningarnar milli jóla og ný-
árs.
Þjóöleikhúsiö:
Grímudansleikur
Nú um helgina verða allra slöustu
sýningarnar á óþerunni Grimudans-
leik eftir Verdi I Þjóðleikhúsinu og
er þetta jafnframt slöasta sýningar-
helgi fyrir jól. Næstsfðasta sýning
óperunnar veröur annað kvöld, laug-
ardag, og sú allra siöasta á sunnu-
dagskvöldið.
Leikstjóri er Sveinn Einarsson,
hljómsveitarstjóri er Ragnar Björns-
son, leikmynd er eftir Björn G.
Björnsson, búningar eftir Malin Ör-
lygsdóttur og lýsing eftir Kristin
Daníelsson. Meö helstu hlutverk fara
Kristján Jóhannsson, Kristinn Sig-
mundsson, Elísabet F. Eirlksdóttir,
Katrln Sigurðardóttir, Hrönn Hafliða-
dóttir, Viðar Gunnarsson, Robert
Becker, Guðbjörn Guðbjörnsson,
Gunnar Guöbjörnsson og Björn
Björnsson. Þá taka Þjóðleikhúskór-
inn og íslenski dansflokkurinn einnig
þátt i sýningunni.
FERÐIR
Feröafélag íslands:
Gönguferö
A sunnudaginn 15. desember
verður gönguferö kl. 13.00. Ekið
verður upp á Kjalarnes og gengið
með strönd Hofsvíkur að Brautar-
holtsborg. Ferðin tekur um þrjár
klukkustundir. Létt ganga I forvitni-
legu umhverfi. Fá sæti eru eftir f ára-
mótaferöina.
Útivist:
Gönguferð
Ásunnudaginnkl. 13.00 verður
ganga um Alftanes: Ekið verður út
að Bessastöðum og gengið um
Skansinn og þaðan út I Hrakhólma
og Hliðnes. Gangan er létt og fróð-
leg. Allir eru velkomnir og er brottför
frá bensínsölu BSl.