Morgunblaðið - 11.02.1986, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR11. FEBRÚAR1986
A-liðið sigraði B-liðið
í jöfnum leik í Kef lavík
— Steinar lék með B-liðinu og var bestur
ÍSLENSKA landsliðið I handknatt-
leik lék œfingaleik gegn B-liðinu
í Keflavík á sunnudagskvöld.
A-liðið sigraði í jöfnum leik, 27-
23, eftir að staðan ( hálfieik var
12-11 fyrir A-liðið. Steinar Birgis-
son sem lók með B-liðinu var
maður leiksins og gerði 9 mörk.
Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn
og mátti varia á milli sjá hvort liðið
væri A- eða B-lið. Jafnt var á flest-
um tölum upp í 7-7. Þá skoraði
A-liðið næstu tvö mörk, en B-liðinu
tókst að jafna aftur, 10-10, og
forysta A-liðsins eitt mark í hálfleik
eins og áður segir.
Steinar jafnaði strax fyrir B-liðið
í byrjun seinni hálfleiks og komust
þeir síðan yfir, 13-15. Þá tóku
A-liðsmenn sig saman í andlitinu
og jöfnuðu aftur, 15-15, og gerðu
enn betur og juku smátt og smátt
forskotið og var staöan 26-18
þegar 12 mínútur voru til leiksloka
og var það jafnframt mesti munur-
inn íleiknum.
Það sem eftir lifði leiksins skor-
aði A-liðið ekki mark fyrr en á síð-
ustu sekúndu leiksins — Ellert
markvörður hafði þá hreinlega
lokað markinu hjá B-liðinu. B-liðið
saxaði jafnt og þétt á þetta forskot
og komst í 26-23 þegar ein mínúta
var eftir. Guðmundur Guðmunds-
son skoraöi þá síðasta markið í
leiknum fyrir A-liðið sem sigraði
með fjögurra marka mun, 27-23.
Besti leikmaður A-liðsins í þess-
umjeik var Kristján Arason. Horna-
mennirnir Bjarni Guðmundsson og
Guðmundur Guðmundsson kom-
ust einnig vel frá leiknum, en aðrir
léku undirgetu.
Hjá B-liðinu var Steinar Birgis-
son allt í öllu og stjórnaði vel liðinu
og fór oft illa með A-liðs vörnina,
var besti maður vallarins. Valdimar
Grímsson var einnig góöur í horn-
inu, geysilega fljótur og skemmti-
legur leikmaður.
Handknattielkur
V. V
Leikurinn bar þess merki að
ekki var mikil alvara á ferðinni.
MÖrfc A-Iiösins: Kristján Arason 10/5,
Guðmundur Guömundsson 6, Bjarni Guö-
mundsson 4, Geir Sveinsson 3, Atli Hilmars-
son 2 og Siguröur Gunnarsson og Páll Ólafs-
son eitt mark hvor.
Mörk B-iiösins: Steinar Birgisson 9/2,
Valdimar Grímsson 6, Egill Jóhannsson 3,
Jakob Sigurösson 2, Jón Árni Rúnarsson, Karl
Þráinsson og Júlíus Jónasson eitt mark hver.
Dómarar leiksins voru Jón Kr.
Magnússon og Hafsteinn Ingi-
bergsson og komust þeir vel frá
léttum leik.
Liðin voru þannig skipuð:
A-liöiö: Bjarni Guömundsson, Sigurður
Gunnarsson, Páll Ólafsson, Guðmundur Guö-
mundsson, Kristján Arason, Atli Hiimarsson,
Þorbjörn Jensson (í fyrri hálfleik) og Geir
Sveinsson í seinni hálfleik. Markveröir: Einar
Þorvaröarson og Kristján Sigmundsson.
B-liöiö: Jón Árni Rúnarsson, Valdimar
Grímsson, Egill Jóhannsson, Steinar Birgis-
son, Jakob Sigurösson, Karl Þráinsson og Júl-
íus Jónasson. Markveröir: Ellert Vigfússon og
Brynjar Kvaran. Þorbjörn Jensson lék meö
A-liöinu í fyrri hálfleik en B-liðinu í seinni hálf-
leik og skipti þá við Geir Sveinsson.
-Ó.T.
STOR
HAPPDRÆTTI
FLUGBJÖRGUNARSVEITANNA
3,,k- Voto
MILUONIR
KRÓNA
3 ,tk. Toyo'0
leice'.
10stk.
SKATTFRJALSIR
VINNINGAR
10 stk.
NORDMENDE
Myndbandsupptökutæki.
0 5 stk.
'jnppkz
Einkatölvur.
5 stk.
Macintosh
Einkatölvur.
NORDMENDE
Myndbandstæki.
1 Skíðaferð fyrir tvo
+ skíðaútbúnaður.
2 Utanlandsferðir.
100 Soda-Stream tæki.
GoldStar
50 stk.L^
Ferðahljómflutningstæki. STYRKIÐ
BJÖRGUNARSTARFIÐ
í LANDINU!
17. FEBRUAR
1986
SI»\l/IS|OI )lll/
Wlí.YKi:\VÍKllU s
CViNAuUI-SNIS
FLUGBJÖRGU N ARSVEITIRN AR
• Steinar Birgisson var besti maður leiksins f Keflavík og skoraði 9
mörk. Hann lék með B-liðinu.
Heimsbikarinn á skíðum:
Wasmeier sigraði
í risastórsvigi
— Girardelli efstur í heimsbikarnum
MARKUS Wasmeier frá Vestur-
Þýskalandi vann sinn fyrsta sigur
f heimsbikarnum er hann sigraði
f risastórsvigi í Morzine f Frakk-
landi é sunnudaginn. Þaö er um
eltt ár síðan Wasmeier varð
heimsmeistari f Bormio f fyrra.
Hann sannaði það með þessum
sigri að það var ekki einskær
heppni að hljóta heimsmeistara-
titilinn.
„Þetta var mikilvægur sigur fyrir
mig og sannar að heimsmeistara-
titillinn í Birmio var ekki heppni,"
sagði Wasmeier eftir keppnina á
sunnudaginn.
Wasmeier startaði fyrstur niður
brautina, sem var 1660 metra löng
og þótti erfið. Hann fór brautina á
1:22,32 mínútum og var hann í
nokkrum sérflokki því næsti maður
sem var Marc Girardelli var 1,04
sekúndum á eftir. Þetta var jafn-
framt næstbesta mót Girardeili á
þessu keppnistímabili. Hann hefur
aðeins unnið eitt mót í vetur en
hefur ávallt verið í fremstu röð og
er efstur að stigum í keppninni.
„Ég er mjög ánægður með
annað sætið í þessari keppni því
það var mjög erfitt færi í brautinni
og ein lélegasta braut sem ég man
eftir í heimsbikarnum. Þaö voru
stórir grafningar eftir skíðakeppn-
ina sem fóru fyrstir af stað," sagði
Marc Girardelli.
Þriðji varð Hubert Strolz fró
Austurríki, í fimmta og sjötta sæti
komu svo Austurríkismennirnir
Gúnther Mader og Hans Enn.
Peter Muller sigraði í bruni á
laugardaginn á sama stað. Múller
var rúmlega sekúndu á undan
Leonard Stock frá Austurríki á
1:53,81 mín. í þriðja sæti varð svo
áður óþekktur Norðmaður, Atle
Kárdan, sem var 1,13 sekúndum
á eftir sigurvegaranum.
Marc Girardelli er nú efstur í
stigakeppni heimsbikarins með
212 stig. Peter Múller er í öðru
sæti meö 186 og í þriðja sæti er
Markus Wasmeier með 169 stig.
Fyrsti sigur
Schmidhauser
SVISSNESKU skíðastúlkurnar
gera þaö akki endasleppt f heims-
bikarnum. Á sunnudaginn sigraði
áður óþakkt svissnesk skfða-
stúlka, Corinne Schmidhauser, f
svigi sem fram fór f Hrebienok f
Tékkóslóvakfu. í öðru sætl var
Nadia Bofini frá ítalfu og f þriðja
og fjórða sæti komu svissnesku
stúlkurnar Erika Hess og Brigette
Gadient.
„Þetta er í fyrsta sinn á ævinni
sem ég stend á efsta þrepi á verð-
launapalli — ég er í sjöunda himni,"
sagði Schmidhauser eftir sigurinn
í sviginu.
Mikið var um afföll í svigkeppn-
inni, 30 af 55 keppendum hættu
keppni eða voru dæmdir úr leik.