Morgunblaðið - 11.02.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR11. FEBRÚAR 1986
B 3
, Skotar sigruðu
íslendinga ílands-
keppni ífimleikum
— Davíð og Hanna Lóa stóðu sig
best íslensku keppendanna
Skíði:
Fyrst júgóslavn-
eskra kvenna
■
Morgunblaðið/Júlíus
• Vilborg Hjaltalfn er hór f œfingum á jafnvœgisslá. Ungu íslensku
stúlkurnar urfiu að lúta f lægra haldifi fyrir þeim skosku í landskeppn-
inni á sunnudaginn.
Skíði:
Einar Í12. sæti
SKOTAR sigruðu Islendinga í
landskeppni f fimleikum sem
fram fór í Laugardalshöll á
sunnudaginn. Keppt var í karla-
og kvennaflokki. Skosku karlarnir
sigruðu þá íslensku með 14 stiga
mun og sömuleiðis voru skosku
stúlkurnar hlutskarpari og mun-
urinn þar 6,20 stig. Keppnin var
þó jöfn og spennandi, sórstak-
lega í kvennaflokki.
Besta árangri íslensku karlana
náði Davíð Ingason eða þriðja
sæti samanlagt. Scott Mackie var
bestur allra með 51,15 stig. í
Fimleikar:
W
Urslit
ÚRSLIT á mótinu voru sem hér
segiríkarlaflokki.
Skotland: stig
Scott Mackie 51,15
Stuart McMahon 48,05
Barry Phelan 46,90
Harry Sey 45,60
Stuart Glendinning 43,30
Samtals: 237,35
ísland:
Davíö Ingason 47,95
Guðjón Gíslason 46,40
Guðjón Guðmundsson 44,40
Arnór Diego Hjálmarsson 42,75
Aöalgeir Sigurðsson 40,73
Kristmundur Sigmundsson 40,15
Samtals: 223,35
Úrslit í kvennaflokki:
Skotland:
Ruth Gibson 34,00
Leigh Morris 33,95
Alison Bennett 33,85
Anne Charlton 31,55
Gillian Henderson 31,25
Kim Lillejohn 31,10
Samtals: 166,45
ísland:
Hanna Lóa Friðjónsdóttir 32,50
Linda S. Pétursdóttir 32,45
Dóra Óskarsdóttir 32,15
Fjóla Ólafsdóttir 31,05
Ingibjörg Sigfúsdóttir 29,55
Vilborg Hjaltalin 29,35
Samtals: 160,25
kvennaflokki var Hanna Lóa Frið-
jónsdóttir best íslensku stúlkn-
anna, varð fjórða samanlagt, með
32,50 stig. Skoska stúlkan Ruth
Gibson var best allra í kvennaflokki
með34,0stig.
Karlarnir kepptu í sex greinum
en konurnar í fjórum. Samanlagður
árangur úr þessum greinum taldi.
Skosku karlarnir fengu samtals
237,35 stig en þeir íslensku 223,35
stig. Skosku stúlkurnar hlutu
166,45 stig og þær íslensku
160,25 stig.
Þetta var í fjórða sinn sem ís-
lendingar og Skotar eigast við í
landskeppni og hafa Skotar sigrað
í öll skiptin. Þetta er þó minnsti
munur milli þjóðanna hingað til.
Það var áberandi hvað íslensku
stúlkurnar eru ungar að árum og
var sú yngsta aðeins 11 ára og
elsta 16 ára. Skosku stúlkurnar
voru á aldrinum frá 16—22 ára.
íslensku stúlkurnar eiga því fram-
tíðina fyrir sér í fimleikunum ef þær
halda áfram að æfa.
Lið fslands í karlaflokki er einnig
mun yngra en það skoska. Elsti
tilað
HIN 17 ára gamla Mateja Svet
frá Júgóslavíu varð fyrst júgó-
slavneskra kvenna til að vinna
sigur f heimsbikarkeppninni. Hún
varð sigurvegari f stórsvig-
skeppni íTókkóslóvakfu á laugar-
daginn.
Hún hafði besta brautartímann
í báðum umferðum og vann örugg-
an sigur og fékk samanlagðan tíma
1:48,71 mín. í öðru sæti var Blanca
keppandi Skota var 39 ára gamall
og sýndi hann að lengi lifir í göml-
um glæðum og stóð sig vel.
Davíð Ingason stóð sig best
allra íslensku keppendanna eins
og áður segir og náði 47,95 stig-
um, sem er besti árangúr sem ís-
lenskur fimleikamaður hefur náð
síðan stigakerfinu var breytt 1984.
Að sögn Jónasar Tryggvasonar,
þjálfara íslenska liðsins, er boga-
hesturinn aðalvandamálið hjá
strákunum. Þar tapaði liðið níu
stigum af þeim 14 sem munaði á
liðunum. „Eg er ekki fyllilega sáttur
vð árangurinn í karlaflokki. Við
eigum á góðum degi að ná 230
stigum," sagði Jónas í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins eftir
keppnina.
Skotar hafa boðið íslendingum
að koma til Skotlands á næsta ári
og etja kappi við þá aftur. Þessi
samskipti þjóðanna eru mikils virði
fyrir báðar þjóðir.
Mótið tókst í alla staði vel.
Mótstjórn var í umsjá fimleika-
deildar Ármanns og mótstjóri var
Aðalheiður Diego.
sigra
Fernadnesz Ochoa frá Spáni, hún
var 48 hundruðustu úr sekúndu á
eftir Svet. Traudl Hecher frá Vest-
ur-Þýskalandi varð þriðja og fjórða
varð svo Erika Hess frá Sviss.
Það voru aðeins 27 af 62 kepp-
endum sem komust í mark. Maria
Walliser er nú efst að stigum eftir
síðustu helgi. Hún hefur 218 stig
en fast á hæla heni er Erika Hess
með210stig.
EINAR Ólafsson skiðagöngumað-
ur frá ísafirði varð í 12. sæti á
mjög sterku göngumóti í Sviþjóð
á sunnudaginn.
Norðmaðurinn Pál Gunnar
Mikkelsplats varð sigurvegari i
göngunni sem var 15 kílómetrar.
Einar varð í 12. sæti og var 1,45
mín. á eftir Mikkelsplats. Heims-
bikarhafinn Gunde Svan frá Sví-
þjóð varð í þriðja sæti.
lumlta stállUllur
áclnsiaetu vtnSi
Gráfeldur hefur einnig ávallt á lagervinsæla LUHdÍa
furuhillukerfið. nú líka fáanlegt í fallegum tískulitum.
Gráfeldur býður LUHdÍcí
T-4000 stálhillukerfið á
ótrúlega lágu verði.
Lundiaí T-4000 er hannað
sérstaklega fyrir: Verslanir,
skrifstofur, teiknistofur og alls
kyns skjala- og birgðageymslur.
Hillukerfið er fljótuppsett, allt
krækist saman og þú getur
stækkað eða minnkað kerfið að
vild.
Sendum mynda- og upplýsinga-
lista hvert á land sem er.
*
GRAFELDUR HF.
Þingholtsstræti 2, sími 26540.
(
i
t
i