Morgunblaðið - 03.04.1986, Side 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986
MorgunblaAiA/Bjami
• Það fér akki á mllli mála að Amgelr Friðriksson hefur krafta í
kögglum. Hér slengir hann Kjartani Asmundssyni sam ekki er nein
smásmíði á öxl sár en Kjartani tókst að verjast falii og glímu þeirra
lauk með jafnglími.
Frakkland:
Paris SG slapp
í undanúrslit
Frá BamharA Vaiasynl fróttarttara Morgunblaðsina í Frakklandi.
ÞRÍR leikir voru á þriðjudags-
kvöldið í átta liða úrslitum bikar-
keppninnar frönsku. Paris SG rétt
marði sigur yfir Lens og sömu
sögu er að segja um Bordeaux
og Rennes.
Lens vann fyrri leikinn gegn
Paris SG á föstudaginn með tveim-
ur mörkum gegn einu en í síðari
leiknum, sem leikinn var á þriðju-
daginn, vann Parísarliðið 2:0 og
komst því áfram á heildarmarka-
tölunni, 3:2.
Tours og Bordaux léku einnig á
föstudaginn og þriðjudaginn.
Tours, sem leikur í 2. deild, stóð
sig vel gegn meisturunum en mátti
þó þola 1:0-tap í báðum leikjunum.
Sigurmarkið í síðari leiknum skor-
uðu heimamenn á 83. mínútu.
Það þurfti að framlengja síðari
leik Rennes og Auxerre til að fá
fram úrslit. Fyrri leikurinn endaði
með því að bæði liðin gerðu eitt
mark og eftir venjulegan leiktíma
á þriðjudaginn var staðan einnig
1:1. í framlengingunni tókst leik-
mönnum Rennes að skora eitt
mark og komast því í undanúrslit.
Marseille og RS Paris, en þeir
sigruðu í 2. deildinni í vetur, áttu
einnig að leika en leiknum var
frestað til 8. apríl. Undanúrslita-
leikirnir verða leiknir 15. og 22.
apríl.
Jose Toure, einn sókndjarfasti
leikmaður Nantes og franska
landsliðsins, meiddist illa í leik um
páskana og hann mun ekki leika
með Frökkura í heimsmeistara-
keppninni í Mexíkó í sumar. Hann
tekur þessum slæmu tíðindum
vel, segist byrja að skokka aftur í
maí og undirbúa sig fyrir næsta
keppnistímabil en líklegt er talið
að hann skipti um félag í vor.
Marselle og bæði Parísarliðin, SG
og RS, hafa mikinn áhuga á þess-
um snjalla sóknarmanni.
Einn leikur var á þriðjudaginn í
1. deildinni. Nantes vann 3:1-sigur
á Brest og hafa þeir nú 46 stig,
fimm stigum minna en Paris SG
og eygja því enn fræðilegan mögu-
leika á meistaratitlinum.
íþróttafélag fatlaðra
á Suðurlandi stofnað
Setfossi.
ÍÞRÓTTAFÉLAG fatlaðra héK
kynningu é fþróttum fatlaðra fyrir
stuttu. I kjölfar þeirrar kynningar
-var stofnað íþróttafélag fatlaðra
é Suðurlandi.
Kynningin fór fram í íþróttahúsi
Gagnfræðaskólans þar sem fólki
var boðið að koma og reyna sig í
hinum ýmsu greinum sem fatlaðir
leggja stund á.
Kynningin var haldin að frum-
kvæöi Svæðisstjórnar um málefni
fyrir fatlaða á Suðurlandi og stjórn-
ar íþróttasambands fatlaðra.
Kosin var stjórn fyrir hið nýja
íþróttafélag fatlaðra á Suðurlandi.
Formaður er Ágústa Olesen, aðrir
í stjórn eru Hafdís Jakobsdóttir og
Sigríður Sæland. í varastjórn eru
Ásta Guðmundsdóttir, Eiríkur
Harðarson og Ragnar Magnússon.
Sig. Jóns
Landsflokkaglíman 1986:
Eyþór Pétursson
sigraði íyfirþyngd
í íþróttahúsi Kennaraháskólans var landsflokkaglíman háð 22.
mars sl. og mættu til mótsins 27 glfmumenn, sem röðuðust í 3
þyngdarflokka og 4 aldursflokka. Einn keppenda, Hjörtur Þráinsson,
UMF Mývetningi, varð að hætta vegna tognunar um öxl, svo að 26
luku keppni.
Formaður glfmusambandsins, Rögnvaldur Ólafsson, setti og sleft
mótinu, en Jóhannes Jónasson afhenti verðlaun. Dómarar voru Gísli
Guðmundsson, Garðar Erlendsson og Sigurjón Leifsson. Mótið stóð
f nær 4 klst. Gólfrými var fyrir tvo glfmuvelli, svo að Ijúka mátti mót-
inu á skemmri tfma, sem hefði komið sér vel fýrir keppendur hvað
varðar að halda sér í upphitun. Keppendur annarra fþróttagreina
hefðu látið í sér heyra. Þeir eru orðnir vanir að njóta strangra tfma-
setninga keppnisatriða.
íslandsmeistari í yfirþyngd varð
Eyþór Pétursson, UMF Mývetn-
ingi. Hann lagði eina keppinaut
sinn, Árna Bjarnason, KR, á vinstra
klofbragði. Búist hafði verið við
Ólafi H. Ólafssyni og Pétri Yngva-
syni. Ólafur á við tognun að stríða
en Pétur átti ekki heimangengt. í
milliþyngd varð Kristján Yngvason
íslandsmeistari. Mývetningurinn
Kristján lagöi báða viðfangsmenn
sina á vinstri lausamjöðm. Bragð
þetta hefur Kristján oft tekið
hærra. Annar í flokknum varð Ás-
geir Víglundsson, sem lagði hinn
knáa féiaga sinn Helga Bjarnason
úr KR á hælkrók fyrir báða.
í léttaþyngdarflokki voru 3 kepp-
endur og því þrjár viðureignir. í
þessum viðureignum í glímu, sem
er einvígisíþrótt, gekk enginn af
hólmi sem ótvíræður sigurvegari.
Hjörleifur Pálsson, KR, varð ís-
landsmeistari. Hann gerði jafnt við
Geir Arngrímsson, UMF Mývetn-
ingi, en hefði hvílt sú skylda á
dómurum að dæma á milli við-
fangsmanna að foknum fullum
lotutíma, hefði Hjörleifur hlotið
dómsigur. Viðureignina viö Davíð
Jónsson, UMF Mývetningi, vann
Hjörleifur við þaö að Davíð byltist
á völlinn, er hann hnaut um Hjör-
leif, sem lá í gólfvörn. Þeir Mývetn-
ingarnir Geir og Davíð gerðu jafnt
en þá viöureign átti Geir unna. (
þessum þremur flokkum, svo fá-
mennum, hefði átt að beita jafnað-
arglímu, þá hefði verið fullreynt
milli þessara ágætu glímumanna.
í flokki pilta 16 og 17 ára voru
10 keppendur. Föngulegt lið vel á
vegi að verða góðir glímumenn.
Fjórir Þingeyingar, fjórir Árnesing-
ar og tveir Reykvíkingar. Stígandin
Carl
bestur
SKOTMENN reyndu tvívegis með
sér f keppni í síðasta mánuði og
varð Carl J. Eiríksson, íslands-
meistari í skotfimi, hlutskarpast-
ur f báðum mótunum.
Fyrri keppnin var 40 skota
keppni í standandi stöðu og þar
hlaut Carl 341 stig af 400 mögu-
legum en Gissur Skarphéðinsson,
sem varð í öðru sæti, hlaut 280
stig. Hans Christinsen varð þriðji
með 270 stig.
Seinna mótið var 20 skota
keppni í liggjandi stöðu og þar
vann Carl einnig, hlaut nú 197 stig
af 200 mögulegum. Annar varð
Lárus Fjeldsted með 189 stig og
í þriðja sæti varð Árni Páll Jóhanns-
son en hann hlaut 182 stig.
Fyrirtækja-
keppni Hauka
FYRIRTÆKJAKEPPNI Hauka f
körfuknattleik fer fram é laugar-
daginn.
Keppnin fer fram í Haukahúsinu
í Hafnarfirði. Upplýsingar veittar í
síma 53712 eftir kl. 17.00 á dag-
inn.
er að verða þeim meira en við-
hafnarhringspor í upphafi viður-
eignar, heldur háttbundin hreyfing
réttsælis, sem færir með sér
breytilega afstöðu til sóknar-
bragða. Of margir báru skakkt fyrir
sig hönd. Mývetningarnir voru
kunnáttulitlir á varnir. Grímsnes-
ingarnir standa skakkir til vinstri
við andstæðingi og hægra hnéð
hjá sumum þeirra of oft á lofti til
búið til varnar. Reykvíkingarnir
þyngdu sig niður og spyrntu á
móti. Þetta var einnig Ijóður á
glímulagi Lárusar Björnssonar,
Mývetnings.
Viðureignir, sem voru 45, unn-
ust sem hér greinir: hælkrókur
hægri á hægri 3, hælkrókur hægri
á vinstri 2, hælkrókur fyrir báða
2, sniðglíma 8, hnéhnykkur 1,
krækja á lofti 1, leggjarbragð 10,
klofbragð með vinstri 5, klofbragð
með hægri 1, lausamjöðm vinstri
1, jafnt 8 (18%), bragðleysa 2 og
einni lauk með því að sækjandi
fékk byltu viö að hrasa um við-
fangsmann í gólfvörn. Áberandi
var hve há brögð ollu sjaldan byltu
og hvað sniðglíma og leggjarbragð
voru oft sigurbrögð. Hábrögðin
höfðu þeir sýnilega ekki á valdi
sínu. Undin staða til vinstri gaf
aukna aðstöðu til sóknar sniðglímu
og leggjarbragðs. Margar glímur
voru knálegar t.d. milli þeirra Harð-
ar og Arngeirs. Krækja Gunnars
Gunnarssonar á lofti var eitt snjall-
asta sigurbragðið. Yngvi tók vinstri
fótar klofbragð vel og Kjartan Ás-
mundsson sniðglímu.
Úrslit urðu þessi í flokknum:
íslandsmeistari Arngeir Friðriks-
son, UMF Mývetningi, 8 '/2 vinning,
sigurbrögð: leggjarbragð (5),
lausamjöðm v. hælkrókur h.a.v. og
klofbragö h.; 2. Lárus Björnsson,
sama félagi, 'h vinning, sigur-
brögð: hælkrókar (5) og leggjar-
bragö (2); 3. Kjartan Ásmundsson,
UMF Hvöt, 6 '/2vinning, sigur-
brögð: sniðglíma (5) og leggjar-
bragð; 4. Jón Birgir Valsson, KR,
5 '/2vinning sigurbrögð hælkrókur
fyrir báða, sniðglíma og klofbr.
með vinstri; 5. Jóhann P. Krist-
björnsson, KR, 5 vinninga, sigur-
brögð: leggjarbragð og klofbragð.
Með vinning 6.-7. urðu Hörður
Óli Guðmundsson, UMF Hvöt,
sigurbrögð: leggjarbragð og klof-
bragð v. og Ingvi R. Kristjánsson,
UMF Mývetningi, sigurbrögð: hné-
hnykkur, hælkrókur h. á v. og klof-
bragð v. Báðir höföu 3 V* vinning;
8. Gunnar Gunnarsson, UMF Hvöt,
2 '/2 vinning, sigurbrögð: krækja á
lofti og sniðglíma; 9. Jóhann G.
Friðgeirsson, KR, 1 V2 vinning,
sigurbragð: sniöglíma; 10. Grétar
Ásgeirsson, UMF Mývetningi, 1
vinning, unninn á sniðglímu.
Þorsteinn Einarsson
Morgunblaðifi/Skapti
• Sanavöllurinn á Akureyrl var sérstaklega ruddur fyrir knattspyrnu-
menn sem spiluðu æfingaleiki um péskana.
Sanavöllurinn vel
nýttur um páskana!
Akuroyrl.
SANAVÖLLURINN é Akureyri var
vel nýttur um péskana. Þar fóru
fram sjö æfingaleikir, einskonar
Páskamót, með viðbæti þó. Sana
“Wembley" er enn eitt vorið
bjargvættur akureyrskra knatt-
spyrnumanna — tilbúinn til leiks
langt é undan öðrum.
KR-ingar komu norður með a-
og b-lið og öttu kappi við KA og
a- og b-lið Þórs. Þá komu Völsung-
ar frá Húsavík til bæjarins og
mættu b-liði KR-inga.
Úrslit leikjanna urðu sem hér
segir, fyrstu leikirá skírdag:
Þór a — KR a 3:2
KA — KR b 2:0
Bjarni Sveinbjörnsson skoraði
tvö mörk fyrir Þór gegn KR og
Óskar Gunnarsson eitt. Gunnar
Gíslason gerði bæði mörk KR,
annað úr víti. Hinrik Þórhallsson
og Helgi Jóhannsson gerðu mörk
KAgegn KR-ingum.
Þé er það föstudagurinn langi:
KA —KRa2:3
Þór b — KR b 4:1
Ásbjörn Björnsson, fyrrum leik-
maður KA, skoraði öll þrjú mörk
KR gegn sínum gömlu félögum en
mörk KA í leiknum gerðu Bjarni
Jónsson og Steingrímur Birgisson.
Mörk Þórs b gegn KR b gerðu
Hlynur Birgisson, Ólafur Hilmars-
son og Kristján Kristjánsson sem
gerðitvö, bæði úrvítum.
Urslft é laugardag:
Þór —KR 2:0
Völsungur — KR b 1:0
Hlynur Birgisson skoraði bæði
mörk Þórsara í sigrinum á KR og
Björn Olgeirsson gerði mark Völs-
ungs í sigrinum á b-liði KR.
Á Páskadag var síðan síðasti
leikurinn í þessari páskatörn — Þór
og KA mættust í „aðalleik" helgar-
innar. Þórsarar sigruðu 1:0 en leik-
urinn olli mönnum vonbrigðum.
Var ákaflega slakur enda menn
sjálfsagt orðnir þreyttir eftir leiki
og æfingar helgarinnar. Það var
Hlynur Birgisson sem skoraði eina
mark leiksins í síðari hálfleik.