Morgunblaðið - 30.04.1986, Síða 23
MÓRduksiJÆiÐ^aiíiÐvtífáí^^^
23
sá sjóður mun sýna meiri og meiri
halla, og öll aðhaldsstefna er flogin
út í veður og vind.
Nei, hér þarf greinilega fleira að
koma til en aukin verkefni, sem
raunar kalla á fleiri vélar, eða í það
minnsta einhveija endumýjun á
vélum, og vandamálið verður aftur
til staðar og margfalt eftir þijú ár.
Eg vil hér á eftir viðra hugmyndir
sem ég tel að séu vænlegar til að
leysa þetta vandamái, þ.e. offjár-
festinguna í vinnutækjum, án þess
að til of mikillar þenslu komi, og
að jafnframt sé lausn til frambúðar.
Fýrst vil ég gera svolitla grein fyrir
hvemig verð á þungavinnuvél, t.d.
28 tonnajarðýtu, verðurtil:
Innkaupsverð þ.e. fob-verð frá
framleiðanda í íslenskum krónum:
4.200.000,00
Flutningsgj.
Trygging 1%
Tollafgr.gj. 1%
Tollur 25%
Yörugjald 24%
Alagn. umboðs og
ábyrgðargj. 10%
Söluskattur 25%
Samtals
450.000,00
46.500,00
46.965,00
1.185.866,20
1.423.039,40
735.237,06
2.021.901,90
10.109.509.00
Eins og sjá má em tekjur ríkis-
sjóðs af þessari vél kr. 4.677.772,50
eða 99,6% á cif-verð, þ.e. verð vélar-
innar komin upp á bryggju. Þessi
gjöld þarf að staðgreiða þegar vélin
er leyst út og tekin í notkun, þannig
að fuliur fjármagnskostnaður er
kominn þegar á fyrsta degi, áður
en vélin er farin að hafa nokkrar
tekjur, og hvílir á hvort sem vélin
er notuð mikið eða lítið.
Ljóst er að verktakar sem eiga
nokkrar slíkar vélar em með mikið
fé undir í rekstri sínum og einnig
liggur mikill gjaldeyrir bundinn í
þessum tækjum sem bara ryðga
niður og verða verðlaus, ef engin
vinna er. Ljóst er að ekki er hægt
að selja þessar vélar aftur úr landi
þegar á innkaupsverð þeirra leggj-
ast 100 prósent gjöld, sem em ekki
endurgreidd, þó vélin væri flutt út
aftur, og hversu mikið sem unnið
væri með vélunum þá næðust aldrei
fyrir þeim gjöldum sem greidd
hefðu verið, þannig að verktaki
gæti selt, og náð viðunandi endur-
gjaldi fyrir vélina. Til að breyta
þessu, legg ég til að stjómvöld felli
niður öll innflutningsgjöld og sölu-
skatt af þessum vélum, en taki í
þess stað upp þá skyldu að löggiltir
vinnustundamælar séu í öllum
vinnuvélum og eigendur greiði visst
gjald til ríkisins af hverri vinnu-
stund, líkt og nú er innheimtur
þungaskattur af vömbifreiðum og
yrði lesið af þessum mælum 4 sinn-
um á ári og þá skyldu menn standa
skil á þessum vinnuskatti.
Vinnuskatt þennan mætti
ákvarða þannig að flokka vélar
niður í verðflokka og stærðarflokka
og reikna t.d. að líftími vélar væri
10.000 tímar og þá gjald t.d. á
hveija vinnustund af vél eins og
28 tonna ýtunni kr. 470,-. Ef eig-
andi slíkrar vinnuvélar fengi nú
engin verkefni og vildi selja hana,
þá gæti hann auðveldlega selt hana
úr landi, því hann hefði ekki fjárfest
meira en sem næmi notkun og
innkaupsverði og væri því ávallt
samkeppnisfær á erlendum mörk-
uðum, og jafnframt mundi dýrmæt-
ur gjaldeyrir skila sér aftur í þjóðar-
búið, í stað þess að ryðga niður.
Þessi aðferð hefði einnig þann
kost fyrir ríkissjóð, að auðvelt yrði
að fylgjast með notkun og tekjum
á svona vél með söluskattsskil f
huga. En nú kynni einhver að
spyija, en hvað þá með vélar sem
nú em í landinu, og full gjöld hafa
verið greidd af? Því er hægt að
svara þannig:
í dag búum við við vemlegar
erlendar skuldir og stefna stjóm-
valda er að draga úr þeim, og jafn-
framt laga gjaldeyrisstöðu okkar.
Ef farið verður út í auknar fram-
kvæmdir þá þarf að fjármagna þær
og það verður varla gert nema að
einhversstaðar komi erlent fjár-
magn til, annað hvort í gegnum
ríkissjóð eða bankakerfíð, og það
gerir heildarstöðuna verri. Því
mætti hugsa sér að í stað þess að
auka framkvæmdir þá gæfí ríkis-
sjóður þeim eigendum vinnuvéla,
sem vildu, og gætu selt þær úr
landi, kost á að greiða þeim jafn-
mikla upphæð úr ríkissjóði og þeir
skiluðu í erlendum gjaldeyri fyrir
útflutta vél, þ.e. endurgreiddu þeim
hlutfallslega aðflutningsgjöldin,
síðan gæti ríkið séð í gegnum
skattakerfíð hversu mikið af þess-
um peningum ætti að skattleggja
sem söluhagnað. Með þessu mundi
verulegur gjaldeyrir skila sér tii
baka, og útgjöld ríkissjóðs yrðu í
lágmarki, þetta mundi einnig leysa
upp þrýstihópinn. Ef síðan vænkað-
ist aftur hagur, og ný verkefni
kæmu upp, þá mætti fá inn nýjar
vélar án aðflutningsgjalda og skatt-
! leggja vinnu þeirra, og selja þær
1 síðan úr landi að loknu verkefni og
fá inn gjaldeyrinn. Þetta gera flest-
ar þjóðir Vestur-Evrópu með góðum
árangri, og selja notaðar vélar til
vanþróaðra landa með innflutnings-
reglur eins og ísland og hagnast á.
Um þetta mætti rita lengra mál,
en nauðsyn sýnist að einhver hafí
nú djörfung til að höggva á hnútinn
og stokka þetta kerfí upp sem hæfír
ekki lengur nútma þjóðfélagi.
Höfundur er framkvæmdastjári í
Kópavogi.
var mun betra en árið áður, nema
á Ólafsfírði. Afkoma sjóða félagsins
var einnig betri en fyrr. í júní var
starfsemi félagsins flutt í hið nýja
og glæsilega hús verkalýðsfélag-
anna á Akureyri, Alþýðuhúsið, en
eignarhluti Einingar í því er um
25%.
Á aðalfundinum var - samþykkt
tillaga sem lýsir stuðningi við frum-
varp til laga sem kveður á um að
óheimilt sé að greiða lægri laun
fyrir 40 dagvinnustundir á viku en
sem nemur framfærslukostnaði
einstaklings samkvæmt útreikningi
Hagstofu íslands. Þá var einnig
samþykkt meðfylgjandi ályktun
vegna Hitaveitu Akureyrar.
Ályktun:
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins
Einingar haldinn 20. apríl 1986 í
Alþýðuhúsinu á Akureyri, mót-
mælir harðlega þeirri ákvörðun
stjórnar Hitaveitu Akureyrar og
meirihluta bæjarstjómar Akureyrar
um að lækka gjaldskrá Hitaveitu
Akureyrar um aðeins 3%. Þegar
kjarasamningur sá sem undirritað-
ur var 26. febrúar sl. var sam-
þykktur á félagsfundi í Verkalýðs-
félaginu Einingu þann 6. mars var
það gert í trausti þess að bæjar-
stjóm Akureyrar mundi fylgja eftir
ákvæðum kjarasamningsins um 7%
lækkun á taxta Hitaveitu Akur-
eyrar. Bæjarstjórn Akureyrar hefur
brugðist því trausti og telur sér
fært að skerða þá litlu kauphækkun
sem launafólk fékk, um 10-20%.
Jafnframt átelur fundurinn stjóm
Hitaveitu Akureyrar fyrir það órétt-
læti sem hún beitir þá notendur
veitunnar sem eru þannig í sveit
settir að hús þeirra eru langt frá
tengibrunni og búa af þeim sökum
við verulegt hitatap í lögnum veit-
unnar, án fullnægjandi lækkunar á
gjaldskrá. Hvetur fundurinn stjóm
Hitaveitu Akureyrar til þess að
bregðast skjótt við og leiðrétta
þetta ranglæti hið allra fyrsta.
(Fréttatilkynning)
W /
\\w/
ORYGGISMOnUSTA
Þóroddsstðöum v/Skógarhlið. Reykjavík
Pósthólt 1101.121 Reykjavik
® 91-29399
- Simaþjónusta gllan sólahringinn
Kynnum.
í Mjóddmm:
Nautapottrétt
að hætti Víðis
með grænmeti tra Sol h..
Mastró súpur
Síld og
orafinn karta
ö frá íslenskum
matvælum h.f.
GÐÐ
KAUP!
• • •
Nautahakk
HLBOÐ:^, ^ö.OO
pr. kg.
Kindahakk
.00
pr. kg.
298
Komflex 1 kg-158'00
2DANNEYIRK /%r| cn
kg. Hveiti 38 r °
Nescaffé
Gull
Opið til kl.18.30 í Mjóddiiuiienta
kl. 18 í Austurstræti