Morgunblaðið - 20.07.1986, Qupperneq 1
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
Atli Heimir Sveinsson
Vandamál
óperugerðar
Ekkert listform, tengt
tónlist, er jafn fárán-
legt og óperan, nema
ef vera skyldi klass-
íski ballettinn. Enda
hefur óperunni ávallt verið hall-
mælt og formið gagnrýnt misk-
unnarlaust af lærðum sem leikum.
Sú staðreynd ein að í óperu syng-
ur fólk en talar ekki sýnir áþreif-
anlega, að tilvist þessa forms er
handan hins hefðbundna raun-
veruleika. Við sjáum og heyrum
fólk á sviðinu tjá ást sína í löngum
dúettum, heilsast í tertsettum, og
hatast í kórsöngvum með hljóm-
sveitarundirleik. Maður getur
fyrst notið óperunnar þegar mað-
ur hefur meðtekið þessar mót-
sagnir, sem hluta af upplifuðum
veruleik.
Operan er sennilegasta dýrasta
listform evrópsks menningarsam-
félags, óperuhúsin gleypa mikinn
hluta þess fjármagns, sem veitt
er til tónlistar. Og þó fullt sé útúr
dyrum á kvöldi hveiju, þá fer
§arri því að óperusýningar standi
undir sér. En fólk sækir mjög
óperusýningar bæði hér heima og
erlendis, óperan á marga trygga
aðdáendur.
Óperusöngvarinn er burðarás
þessa listforms. Til hans eru gerð-
ar miklar kröfur. Í fyrsta lagi
þarf hann að hafa meðfædda
hæfileika: fagra, volduga og heil-
brigða rödd, sem tekur mörg ár
að þjálfa. Þar að auki þarf söngv-
arinn að hafa leikhæfileika, og
„rétt“ útlit spillir ekki fyrir. Séu
ekki allir þessir eiginleikar, og öll
þessi menntun, fyrir hendi verður
óperuflutningur aldrei fullnægj-
andi. Nú á tímum eru gerðar þær
kröfur til óperusöngvarans að
hann sé fullkominn leikari auk
þess að vera söngvari til þess að
þau séu trúverðug, t.d. hertoginn
í Rigólettó, Salome eða Lulu.
Og starf söngvarans er vanda-
samt. Til margs þarf að taka tillit
til áður en söngvarinn getur flutt
og túlkað þær nótur sem tónskáld-
ið fékk honum í hendur. Fyrst er
öll hin raddlega vinna, beiting
raddarinnar, raddblær, öndun,
frasering, framburður, utanbók-
arlærdómur texta og tónlistar og
er þá fyrst komið að hinni list-
rænu túlkun. Þarnæst má má
nefna samvinnu við aðra flytjend-
Atli Heimir Sveinsson
ur, hljómsveit og hljómsveitar-
stjóra, sem ber ábyrgð á
snuðrulausum gangi hverrar sýn-
ingar. Svo kemur leikræn túlkun.
Öll þessi atriði, og mörg fleiri,
þurfa að mynda ótjúfanlega heild.
Söngvarar hafa stundum mis-
notað vinsældir sínar og keypt sér
billegt lófaklapp með smekkleys-
um á kostnað hinnar listrænu
tjáningar. Við könnumst við háu
tónana óendanlegu, ótímabærar
fermötur og hraðabreytingar.
Þannig getur óperan orðið söngv-
arasirkus, eða raddflúrsfímleikar,
innihaldslaus syrpa vinsælla laga.
í sendibréfum Glueks, Tsjæ-
kofskís og Verdis má lesa sífellda
gagnrýni þeirra á „vókal-ídíóta",
sem þeir kalla svo, og „leikbún-
ingakonsert". Óperan var vett-
vangur tískunnar áður fyrr.
A öllum tímum hafa hinir bestu
óperufrömuðir, tónskáld, hljóm-
sveitar- og leikstjórar barist á
móti óperusiðum og komið fram
með umbótahugmyndir. Þær
gengu allar út á hið sama, hvort
sem Gluck, Mozart, Wagner,
Verdi, Debussy, Berg eða Zimm-
ermann áttu í hlut: Óperan er
ekki stjömusýning, heldur dra-
matísk heild tónlistar og leiklistar,
samfléttun allra þátta leikhússins.
í rauninni er hugmynd Wagners
um allsherjarlistaverk — Ge-
samtkunstwerk — ekki ný. Hún
er megininntakið í bestu óperu-
gerð allra tíma allt frá Monte-
verdi. Hún er aðeins framkvæmd
með þeim tæknilegu aðferðum,
sem leikhúsið á hveijum tíma
hefur yfir að ráða.
Eins og margir góðir hlutir (t.d.
pensillínið) varð óperan til fyrir
klaufaskap og misskilning. Aðal-
bornir listvinir í Flórens um árið
1600 héldu sig vera að endur-
vekja forngrískan harmleikja-
flutning með því að láta leikarana
syngja við hljómsveitarundirleik í
stað þess að tala. En þetta átti
ekkert skylt við harmleikina —
það kom síðar í ljós. En kammer-
atarnir (svo nefndu þeir sig) duttu
niður á nýtt leikhúsform sem
reyndist hafa stórfenglega þróun-
armöguleika. Og nafn þessa forms
2c
Úr Silkitrommunni.
MERYL
STREEP
OG
KAREN BLIXEIM
Viðtal við leikkonuna
Meryl Streep um leik
hennar í kvikmyndinni
Jörð í Afríku, Sophie’s
Choice ofl.
4c
Söguöldin 3c
Negrasálmar? 5c
Myndsmíðar
__________Hreins 6c
Þegargeisl*
arnirkomu 6c
íslenskar bók-
menntir í útlöndum 7c