Morgunblaðið - 02.09.1986, Síða 1
amtuítn'
?>%
llprðnirl
Bikarkeppni kvenna
Valsstúlkurnar
ósigrandi
Sjá bls. 9B
B
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
ÞRIÐJUDA GUR 2. SEPTEMBER 1986
BLAÐ
Morgunblaðiö/Júlíus
Sigri fagnað
• Skagamennirnir Pótur Pétursson og Sigurður Lárusson fagna hér sigri í bikarkeppni KSÍ á sunnu-
daginn. Sigurður hefur ekki tapaö bikarúrslitaleik til þessa og hefur hann þó tekið þátt í þeim
nokkrum um ævina. Pétur Pétursson var hetja Skagamanna í þessum leik því hann skoraði bæði
mörk þeirra í ieiknum og tryggði þeim þar með sigurinn að þessu sinni. Sjá nánar um bikarúrslita-
ieikinn á síðum 4B, 5B, 6B og 7B.
Fer Mölby til Juve?
Frá Bob Hennessy, fróttaritara Morgun-
blaösins á Englandi.
• Jan Molby
SÍÐUSTU daga hefur mikið verið
rætt um að Juventus hafi áhuga
á að fá Jan Molby í sínar herbúðir.
Ástæðan er sögð vera sú, að
lan Rush falli betur og fyrr inn í
liðið hafi hann félaga með sér, sem
hann þekkir. Molby sagði að ekki
væri tímabært að ræða framtíðina,
hann ætti eftir eitt ár af samningn-
um við Liverpool og framhaldið
væri óráðið.
„Pétursmálið"
Fjögur lið hafa
lagt inn kæru
NÚ HAFA fjögur 1. deildarlið lagt
inn kæru í Pétursmálinu svokall-
aða, FH, Valur, Þór og UBK.
Áfrýjun FH til KSÍ var dómtekin
í gær og verður endanlega dæmt
í því máli í dag. Mál Vals á hend-
ur ÍA var dómtekið hjá íþrótta-
bandalagi Akraness í gær og
verður dæmt þar sfðar í vikunni.
Breiðabliksmenn sendu inn
kæru í sama máli til íþróttabanda-
lags Akraness í gaer og Þórsarar
lögðu inn kæru til ÍBA á Akureyri
fyrir helgi. Öll þessi félög kæra ÍA
fyrir að hafa notað Pétur Péturs-
son í leikjum gegn þessum liðum.
T ryggvi
skoraði sex og
puttabrotnaði
HINN marksækni framherji KA,
Tryggvi Gunnarsson, gerði sex
mörk fyrir lið sitt gegn Skalla-
grfmi úr Borgarnesi i' 2. deild á
laugardaginn. Tryggvi, sem nú
hefur gert 25 mörk, varð fyrir því
óhappi f leiknum að puttabrotna
og ekki vi'st að hann geti leikið
með KA tvo síðustu leikina í deild-
inni.
„Ég var skorinn upp í gær og
var þumallinn mölbrotinn, kom
svona illa niður á hann í leiknum.
Ég er nú með gifs upp að olnboga
en hef ekki gefið upp alla von um
að leika síðustu tvo leikina. Þetta
verður skoðað aftur fyrir helgi og
ef hægt veröur fæ ég eitthvað lótt-
ara gifsi og spila en það varður
bara að koma í ljós,“ sagði Tryggvi
Gunnarsson í samtali við Morgun-
blaöið í gærkvöldi.
Hann sagðist vera mjög ánægð-
ur með sumarið. Nú ættu þeir tvo
leiki eftir í deildinni og væru með
1. deildarsætið í hendi sér. „Við
þurfum þrjú stig úr þessum tveim-
ur leikjum til að tryggja okkur
sætið. Leikum við Njarðvík um
næstu helgi og síðan við Víking
hér heima í síðustu umferð.
Skemmtilegast væri þó að vinna
deildina."
Það verður alvöruleikur
hjá okkur gegn Akranesi
- sagði aðstoðarframkvæmdastjóri Lissabon
MEÐAL áhorfenda á úrslitaleik
Fram og Akraness í Mjólkurbik-
arnum á sunnudaginn var að-
stoðar framkvæmdastjóri
Sporting Lissabon, mótherja
Skagamanna í Evrópukeppni fé-
lagsliða (UEFA-keppninni). Hann
heytir Valdemar Custodio og við
rædum við hann eftir leikinn.
„ÞESSI leikur kom mér talsvert
á óvart. Ég kom hingað til að fylgj-
ast með áhugamönnum leika
knattspyrnu og ég verð að segja
þaö eins og er að geta liðanna kom
mér verulega á óvart. Leikmenn
eru teknískir, líkamlega sterkir og
þeir ráða yfir miklum hraða.
Akranes kom verulega á óvart.
Þeir voru 1:0 undir en tókst með
seiglunni að sigra í leiknum þrátt
fyrir erfiðar aðstæður. Þetta var
mjög góður sigur hjá þeim og sýn-
ir ákveðna þrautseigju og einbeitni
að ná að vinna leikinn á móti rok-
inu. Betra liðið vann að þessu sinni
— það hefði ekki verið sanngjarnt
ef þeir hefðu tapað leiknum."
— Hvernig Ifst þér á að leika
gegn Skagamönnum í Evrópu-
keppninni í haust?
„Sporting Lissabon er atvinnu-
mannalið og í hópi bestu liða
Evrópu. Það ætlast allir til þess
að við vinnum áhugamennina og
það hvílir á okkur mikil ábyrgð og
við verðum undir pressu því, að
mati fylgjenda liðsins og blaða-
manna heima, kemur ekki til mála
að tapa leik gegn áhugamönnum.
Ég get sagt þéreitt: Ferðin hing-
að veröur engin skemmtiferð. Viö
verðum að berjast til þess að vinna
og ef við gerum það ekki þá gæti
eitthvað óvænt gerst í leiknum, og
þetta á reyndar við um heimaleik
okkar líka. Við verðum að leika
vel, og mun betur en menn heima
telja, til þess að vera öruggir í
aðra umferð keppninnar.
Ferðin hingað hefur verið mjög
gagnleg fyrir mig og lið mitt. Ég
er búinn að sjá Akranes leika og
vona að ég geti gert leikmönnum
mínum Ijóst fyrir leikinn að þetta
veður alvöru leikur, ekki neinn
æfingaleikur," sagði Valdemar
Custodio aðstoðar framkvæmda-
stjóri Sporting Lissabon að lokum.
Morgunbiaöiö/SUS
• Meðal gesta f bikarúrslitaleik Fram og Skagans á sunnudaginn
var aðstoðarframkvæmdastjóri Sporting Lissabon, mótherja Skaga-
manna í Evrópukeppni félagsliða. Hann sést hér til vinstri en til
hægri er Joao Paulo Diniz blaðamaður „A Bola“ i' Portúgal, en það
er stærsta iþróttablaðið þar i' landi.