Morgunblaðið - 02.09.1986, Side 2

Morgunblaðið - 02.09.1986, Side 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986 Cram kom fram hefndum í 1500 • Bretinn Steve Cram hleypur fyrstur yfir markltnuna f 1500 metra hlaupinu á Evrópumeistaramótinu í Stuttgart á sunnudag og aógætir hvort landi sinn Sebastian Coe sé ekki örugglega í hæfilegri fjarlægð. Annað var uppi á teningnum i 800 metrunum, en þar sigraði Coe. Var Coe sáttur við hlutskipti sitt í 1500 metrunum og kom brosandi i mark og óskaði Cram til hamingju með handabandi. Ólafur konungur ánægður með Ingrid LÍTIÐ varð úr einvígi Sebastians Coe og Steve Cram f 1500 metra hlaupinu á lokadegi Evrópumeist- aramótsins. Cram sigraði af miklu öryggi og á blaðamanna- fundi eftir hlaupið sagðist Coe ekki hafa haft roð við miklum hraða Cram sfðustu 400 metrana, sem hann hljóp á um 51 sekúndu. „Steve var sterkari í dag. Ég átti enga möguleika. Ég get ekki annað en dáðst að frammistöðu hans, því ég hef tvisvar verið í sömu aðstöðu og hann á stórmóti og veit því vel hvernig það er að þurfa að rífa sig upp eftir ósigur; telja kjark í sjálfan sig og öðlast trú á að maður geti unnið keppi- nautana í næsta hlaupi," sagði Coe, sem tvisvar tapaði 800 metr- um á Ólympíuleikunum en vann síðan 1500 metrana. Hlaupararnir fóru afar rólega af stað og stefndi strax í mikið enda- sprettsuppgjör. Cram var sjálfur í forystu og hljóp fyrsta hring á 64 sekúndum, sem þætti slakt í hlaupi á íslandi. Sami hraði hélst eftir tvo hringi, en þá var annar Breti tekinn við forystu, John Gladwin. Hlaupar- arnir skiptu hins vegar um gír þegar nálgaðist síðasta hringinn og þegar bjallan gall til marks um að einn hringur væri eftir tók danski Norðurlandamethafinn í greininni, Nils Kim Hjorth, til sinna ráða og reyndi að keyra upp hrað- ann. Hjorth átti hins vegar enga möguleika í endaspretti og þaut Cram fram úr honum 300 metrum frá marki og leit aldrei til baka. Spánverjinn Jose Luis Gonzales reyndi að hanga í Cram en þegar röskir 100 metrar voru í mark fór Coe fram úr honum og Hollending- urinn Han Kulker stuttu seinna. Coe gerði tilraun til að hala Cram inn en án árangurs. Hinn litli byrj- unarhraði kom í veg fyrir góðan tíma í hlaupinu, en úrslitin urðu þessi: 1. SteveCram, Bretland 3:41,09 2. Sebastian Coe, Bretland 3:41,67 3. Han Kulker, Holland 3:42,11 4. Jose Luis Gonzales, Spánn 3:42,64 5. John Gladwin, Bretland 3:42,57 6. Marcus O’Sullivan, írland 3:42,60 7. Johnny Kroon, Svíþjóö 3:42,61 8. Frank O'Mara, írland 3:42,90 9. Jose L. Carreira, Spánn 3:44,09 10. Peter Wirz, Sviss 3:44,09 11. Igor Lotorjew, Sovétrikin 3:44,80 12. Nils Kim Hjorth, Danmörk 3:45,06 ,,ÉG ÁKVAÐ að taka enga áhættu og keppa bara í 10 km hér því takmarkið var að sigra á stór- móti. Ég óttaðist að skemma fyrir mér í 10 km með því að hlaupa annað hvort 3 km eða maraþon- hlaupið. Það eru margir sem hafa sagt að ég gæti náð góðum tíma á hlaupabrautinni en sýndi svo ekki neitt á stórmótum. Ég þurfti að sljákka í þessu fólki og náði takmarkinu, sem var að sigra,11 sagði norska hlaupadrottningin Ingrid Kristiansen eftir sigurinn í 10 km hlaupinu. Kristiansen hafði tæpast slitið snúruna í markinu þegar hún fékk símhringingu frá Ólafi konungi, sem er mikill íþróttaáhugamaður. Konungur var óhress með norska sjónvarpið, sem rauf útsendingu til að koma fréttatima að þegar Kristiansen átti nokkra hringi í mark. Hringdi hann í yfirmenn sjónvarpsins og las yfir þeim lexíu fyrir framkomu af þessu tagi, að sögn norskra blaðamanna. Kristiansen hafði mikla yfirburði og þorði enginn keppandi að fylgja henni eftir. Hún tók strax forystu og jók bilið jafnt og þétt. Virtist hún ekki leggja mjög hart að sér en var samt ekki nema tæpar 10 sek. frá heimsmeti sínu. Olga Bondarenko, sigurvegari í 3.000 metrunum, og Ulrike Bruns, settu báðar landsmet, en það gerðu reyndar sex stúlkur aðrar; frá Ítalíu, Lúxemborg, Svíþjóð, Frakklandi, Beigíu og Tékkóslóv- akíu. Bondarenko átti um tima heimsmetið. Á blaðamannafundi eftir hlaupið sagðist Kristiansen eiga von á því að nokkrar stúlkur næðu sama árangri og hún í langhlaupi jafnvel þegar á næsta ári. Bondarenko var henni ósammála, sagði heimsmet Kristiansen í 5 og 10 km afburða- góð og að þau myndu standa lengi. Úrslrt: 1. Ingrid Kristiansen, Noregi 30:23,25 2. Olga Bondarenko, Sovótríkin 30:57,21 3. Ulrike Bruns, A-Þýzkaland 31:19,76 4. Aurora Cunha, Portúgal 31:39,35 5. Swetlana Guskowa, Sovótríkin 31:42,43 6. Jelena Shupijewa, Sovétríkin 31:42,Ð9 7. Eiizabeth Lynch, Bretland 31:49,46 8. Karolina Szabo, Ungverjaland 31:55,93 9. Angela Tooby, Bretland 31:56,59 10. María Curatolo, ítalfa 32:04,34 Hjaltnes án verðlauna Norðmaðurinn Knut Hjeltnes reið ekki feitum hesti frá kringlu- kastinu á Evrópumeistaramótinu, en honum hafði jafnvel verið spáð sigri og a.m.k. verðlaunum. Hann fór hins vegar tómhentur heim og kom það mjög á óvart að Sov- étmenn skyldu vinna kringluna þrefalt. Frammistaða Tékkans Imrich Bugar var og slök, en hann varð Evrópumeistari 1982 og heims- meistari 1983. Þá féll ólympíu- meistarinn Rolf Dannenberg úr leik eftir þrjár umferðir og varð 9. með 61,60. Hjeltnes var í öðru sæti eftir tvær umferðir og í þriðja eftir þrjár, en síðan skaust Kolnootchenko í annað sætið í þeirri fjórðu. Lenti kringlan nær alltaf í sama farinu hjá Hjeltnes, aðeins 6 sentimetra munur var á þremur lengstu köst- unum hjá honum. Rússarnir skipt- ust á að hafa forystu í fyrstu fimm umferðunum. Úrslit: 1. Romas Ubartas, Sovétr. 67,08 2. G. Kolnootchenko, Sovétr. 67,02 3. Vaclovas Kidikas, Sovétríkin 66,32 4. Knut Hjeltnes, Noregi 65,60 5. Gejza Valent, Tókkósl. 65,00 6. Erik de Bruin, Holland 64,52 7. Jurgen Schult, A-Þýzkaland 64,38 8. Imrích Bugar, Tókkósl. 63,56 eOrlando Pizzolato (t.v.) og Gelindo Bordin fagna tvöföldum rtölsk- um sigri í maraþonhlaupinu á Evrópumeistaramótinu í Stuttgart. Bordin kom á óvart með sigri sfnum þvf Pizzolato og þriðji ítalinn í hlaupinu, Ponti, höfðu báðir náð betri árangri. „Pizza og pasta“ „PIZZA og pasta, það er galdur- inn,“ sagði ítalinn Gelindo Bordin, sem svo óvænt sigraði í maraþonhlaupinu á Evrópu- meistaramótinu, þegar hann var spurður hver væri lykillinn að velgengni ítala í langhlaup- unum. ítalir urðu f fyrstu tveimur sætunum í maraþon- hlaupinu og þremur fyrstu í 10 km. Maraþonhlaupið var nokkuð dramatískt, eins og oft vill verða. Hlaupararnir hlupu fyrst tæpa þrjá hringi á vellinum og voru á „jarðarfarartempói" eins og Bret- inn orðar það. En þeir höfðu vart yfirgefið leikvanginn er Bretinn Steve Jon- es, sem var talinn sigurstrang- legastur, tók forystu og jók hraðann til muna. Eftir 5 km hlaup bætti Jones enn við sig og sagði skilið við aðra keppendur. Eftir 10 km var hann tæpri mínútu á undan næstu mönnum og um tveimur eftir 25 km. Jones var enn með góða for- ystu eftir 30 kílómetra, en þá fór að síga á ógæfuhliðina hjá þess- um frækna hlaupara. Hafði hann greinilega ofgert sér, því hann hægði verulega á sér og skokk- aði síðustu 10 kílómetrana. Þegar rúmir 35 kílómetrar voru liðnir fóru ítalirnir Bordin og Or- lando Pizzolato fram úr Jones og skömmu seinna Vestur-Þjóver- jarnir Rafl Salzmann og Herbert Steffny. ítalirnir hlupu samsíða síðasta kaflann og það var ekki fyrr en röskir 100 metrar voru í mark að Bordin átti meira eftir og seig fram úr Pizzolato, sem unnið hefur maraþonhlaupið í New York tvö sl. ár. Salzmann og Steffny hlupu einnig lengi vel samsíða eða þar til rétt áður en þeir komu inn á leikvanginn. Varð þá Salzmann að gefa eftir og Steffny hlaut bronzverðlaunin. Áhorfendur voru að vonum ánægðir með frammistöðu þeirra tveggja því langt er síðan Vestur-Þjóðverjar hafa unnið verðlaun í langhlaupi á stórmóti. Eins og menn rekur eflaust minni til keppti Herbert Steffny í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra og sigraði í því hálfa. Með einstöku hugrekki lauk Steve Jones hlaupinu og hlaut hann lof áhorfenda, sem fylgst höfðu með hlaupinu á stórri Ijósatöflu á leikvanginum. Alls lögðu 29 hlauparar af stað en 21 kom í mark. Sigurvegarinn er með öllu óþekktur hlaupari og var með lakari tíma en lands- menn hans tveir fyrir hlaupið. Úrslrt: 1. Gelindo Bordín, Ítalía 2:10,64 2. Orlando Pizzolato, Ítalía 2:10,57 3. Harbort Stoffny, V-Þýzkal. 2:11,30 4. RaW Salzmann, V-Þýzkal. 2:11,41 6. Hugh Jones, Brotland 2:11,49 6. Gerard Nijboor, Holland 2:12,46 7. Jacques Lefrand, Frakkland 2:12,53 8. Antoni Niemczak, Pólland 2:13,04 9. Kjell Erlk Stahl, Svfþjóð 2:13,14 10. Dirk Vanderherten, Belgía 2:13,23 11. Alex Gonzales, Frakkland 2:13,36 12. Wlktor Sawicki, Pólland 2:15,16 13. Glovanni Poli, ítalfa 2:15,25 14. Tomislav Askovic, Júgósl. 2:15,27 15. JerzySkarzynski, Pólland 2:16,40 16. Dlck Hooper, irland 2:17,45 17. Jörg Peter, A-Þýzkaland 2:18,05 18. Per Wallin, Svíþjóð 2:19,28 19. Pater Lyrenmann, Sviss 2:19,49 20. Steve Jones, Bretland 2:22,12 21. latvan Kerekjarto, Ungverjal. 2:22,46

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.