Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986 B 3 Annað heimsmet Sedyks Sovétmenn sýndu og sönnuðu enn einu sinni yfirburði sína í sleggjukasti. Unnu þeir þrefaldan sigur og í miklu innbyrðis einvígi Juri Sedych og Sergej Litwinow varð eitthvað að láta undan. Stóðst heimsmetið ekki átökin. Sigurkast Sedychs mældist 86,74 metrar, eða 8 sentimetrum lengra en fyrra met hans, sem sett var í sumar. Verðlaunamenn- irnir eru hinir sömu og 1982, en þá varð Nikulin í öðru sæti en Litwinow þriðji. Sedych og Litwinow hafa mörg einvígin háð á stórmótum og skipst á því að setja heimsmet undanfarin 6 ár. Tók Litwinow for- ystu með því að kasta 85,74 metra í fyrsta kasti, sem jafnframt reynd- ist hans lengsta. Sedych kastaði nær tveimur metrum styttra, en hann er mikill keppnismaður, og í næstu umferð sagði hann Lit- winow stríð á hendur með 85,28 metra ksati. í þriðju umferð minnk- aði Sedych bilið enn, kastaði 85,46 metra og skildu aðeins 28 senti- metrar þá að. Fjórða kast Sedychs heppnaðist síðan mjög vel og fagnaði hann nýju heimsmeti með því að hoppa fram og aftur við kasthringinn. í næstu umferð sýndi hann að met- kastið var engin tilviljun því enn slöngvaði hann sleggjunni lengra á árinu en gamla metið var, eða 86,68 metra, og sjötta og síðasta kastið mældist svo 86,62. Gamla heims- metið var 86,66, sett í sumar. Sedyph og Litwinow voru í nokkrum sérflokki. Sedych er ekki eins snöggur i hringnum, en Lit- winow hins vegar fremur mistæk- ur. Hann hefur ekki of gott vald yfir útkastinu, líklega vegna hins mikla snúningshraða, og lendir sleggjan oft utan geira. Sedych er hins vegar mun öruggari og stenst enginn honum snúning að því leyti. Juri Sedych er 31 árs Úkraínu- maður og býr í Kænugarði (Kiev). Hann sló ungur í gegn og varð t.d. Evrópumeistari unglinga árið 1973, þá 18 ára gamall. Aðeins þremur árum síðar varð hann ólympíumeistari í Montreal, þar sem Rússar unnu einnig þrefaldan sigur. Hann varð og ólympíumeist- ari 1980, en tapaði fyrir Litwinow á heimsmeistaramótinu 1983. ÚrslH: Juri Sedych, Sovétr. 86,74 Sergej Litwinow, Sovótr. 85,74 Igor Nikulin, Sovótr. 82,00 Gunter Rodehau, A-Þýzkal. 79,84 Jörg Schafer, V-Þýzkal. 79,68 Ralf Haber, A-Þýzkal. 78,74 í forkeppninni kastaði Finninn Juha Tiainen, sem varð ólympíu- meistari í Los Angeles, ekki nógu langt til að komast í úrslit. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson • Austur-þýzku stúlkurnar fagna sigri í 4x400 metra boðhlaupi. Sveitina skipuðu (f.v.) Kirsten Emmel- mann, Sabine Busch, Petra Miiller og Marita Koch. Busch átti heimsmetið í 400 metra grindahlaupi, en tapaði þvf og gullverðlaunum til sovózku konunnar Mariu Stepanowu: Koch er mesta afrekskona sögunnar í 400 metra hlaupi og á heimsmetið. Óvæntur sigur í 5 km „Bað pabbi fyrir mór? Ég veit það ekki. En hann hefur liklega verið í kirkjunni um það leyti sem ég var að hlaupa. Alla vega hefur hann áreiðanlega ekki horft á hlaupið. Vantrú á mig? Nei, hann verður alltaf svo taugaóstyrkur af því að horfa á mig hlaupa." Black hljóp undir 45 sek. Bretinn Roger Black varð Evr- ópumeistari í 400 metra hlaupi á 44,59 sekúndum, sem er brezkt met. Hann varð Evrópumeistari unglinga í fyrra. A-Þjóðverjinn Thomas Schönlebe var 2-3 metrum á und- an Black eftir 300 metra, en með mikilli baráttu kláraði Black hlaupið betur og smeygði sér framúr 10 metrum frá marki. ÚrslK: 1. Roger Black, Bretland 44,59 2. Thomas Schönlebe, A-Þýskaland 44,63 3. Mathias Schersinge, A-Þýskaland 44,85 4. Derrek Redmond, Bretland 45,25 5. Ralf Lúbke, V-Þýskaland 45,35 6. Antonio Sanchez, Spánn 45,41 7. Aldo Kanti, Frakkland 45,93 8. Erwin Skamrahl, V-Þýskaland 46,38 Þannig mælti prestssonurinn og landfræðingurinn Jack Buckner eftir mjög svo óvæntan sigur sinn f 5000 metra hlaupi á lokadegi Evrópumeistaramótsins í Stutt- gart. Buckner var nær óþekktur utan heimalandsins og þetta er fyrsta árið hans sem 5 km hlaupari. Hef- ur hann hingað til keppt í 1500 metra hlaupi, sem hann hljóp á 3:35 mín. í fyrra. Var þetta jafn- framt fyrsti sigur hans í vegalengd- inni. Keppnin í 5 km hlaupinu var æsispennandi og mikill hraði í hlaupinu frá byrjun. Ætlaði allt um koll að keyra þegar þrir fyrstu menn komu í hnapp út úr síðustu beygjunni. Mátti ekki sjá á milli lengi vel, en þegar 50 metrar voru eftir komst Buckner fram úr ítalan- um Stefano Mei, sem sigraði í 10 km hlaupinu og sigraði. Eitt landsmet var sett í hlaup- inu, en þar var Búlgarinn Ignatow að verki. Buckner bætti árangur sinn um 6 sekúndur og náði næst- bezta árangri bresks hlaupara frá upphafi. Mei bætti sig einnig ræki- lega. • Jack Buckner sigraði óvænt í 5000 metra hlaupinu. Úrslrt: 1. Jack Buckner, Bretland 13:10,15 2. Stefano Mei, ítalia 13:11,57 3. Tim Hutchings, Bretland 13:12,88 4. Eugeni Ignatow, Búlgaría 13:13,15 5. Antonio Leitao, Portúgal 13:17,67 6. Martti Vainio, Finnland 13:22,67 7. Pierre Deleze, Sviss 13:28,80 8. Alberto Cova, ítalia 13:35,86 Einartrelt. R*yk»avil<urv.gl >7-28 - 220 Hehwttr&l - Svrw S2723/S4706 Snupraði sovésku landsþjálfarana Gífurlega hörð og skemmtileg keppni var háð í 400 metra grindahlaupi kvenna og endaði rimman með því að Marina Step- anowa, sem er 36 ára, setti heimsmet. Veitti hún iandsþjálf- urum Sovótrikjanna þar með hressilega ofanfgjöf því mánuði fyrir mótið lögðust þeir hart gegn þvf að hún yrði valin tii að keppa, að því er sovózkur útvarpsmaður sagði mér. „Ég fór ekki nógu vel af stað og átti í erfiðleikum með að hitta rétt á fyrstu grindurnar, en átti síðan örlítið meiri krafta en hinar í lokin," sagði Stepanowa. Ann Louise Skoglund, Svíþjóð, fór mjög hratt af stað og hafði forystu rúma 300 metra og á næstsíöustu grind, 70 metra frá marki, var hún sam- hliða Stepanowu og Sabinu Busch, Austur-Þýskalandi, sem hlaut silf- ur. Hún átti heimsmetið, 53,55 sek. Skoglund hafði Evrópumeist- aratitil að verja en kraftarnir voru alveg þrotnir í lokin og missti hún af bronzverðlaununum á marklín- unni, en fór altént heim með sænskt met. „Við hefðum farið undir 53 sek- úndur ef vindurinn hefði ekki verið svona mikill í fyrri hluta hlaups- ins," sagði Stepanowa og lét engan bilbug á sér finna þrátt fyr- ir aldurinn. Hún geislaöi af gleði yfir sigrinum og kvaðst eiga eftir að bæta árangur sinn. Stepanowa setti einnig heimsmet, 54,78 sek., árið 1979 og varð í sjötta sæti á Evrópumeistaramótinu í Prag 1978. Hún er frá Kiev og á dóttur, Marinu, sem einnig er byrjuð að hlaupa. ÚrslH: Marina Stepanowa, Sovótríkin 53,32 Ágúst Ásgeirsson skrifar frá Stuttgart Sabine Busch, A-Þýskalandi 53,60 Cornelia Feuerbach, A-Þýskalandi 54,13 Ann Louise Skoglund, Svíþjóð 54,15 Genowefa Blaszak, Póllandi 54,74 Ellen Fiedler, A-Þýskalandi 54,90 Christieana Matei, Rúmeníu 55,23 Margarita Chromowa, Sovétríkin 55,56 Þú getur þétt í hvaða veðri sem er og það heldur Fillcoat 4 pappaþokin Fillcoat með trefjum - á sprungur og samskeyti Fillcoat með ryðvorn - á stálþökin • Stephane Caristan fagnar Evrópumeti í 110 m grindahlaupi með þvf að sveipa sig franska fánanum. Caristan setti Evrópumet Mitterrand Frakklandsforseti sendi Stephane Caristan ham- ingjuóskaskeyti þegar hann hafði sigrað i 110 metra grindahlaupi á nýju Evrópumeti í Stuttgart á laugardag. Finninn Arto Bryggare hljóp samsíða Caristan yfir fyrstu 7 grindurnar af 10 en síðan seig fransarinn framúr. Bryggare náði sínum bezta tíma um árabil, en hann varð í þriðja sæti á tveimur síðustu Evrópumótum og á ólympíuleikunum í Los Angeles. Caristan jafnaði Evrópumetiö (13,28 sek.) í undanúrslitunum, en bætti það svo um munaði í úrslita- hlaupinu. Aðeins 1-2 Bandaríkja- menn eru með betri árangur í sumar og ætti hann að geta veitt þeim mikla keppni á heimsmeist- aramótinu á næsta ári eða ólympíuleikunum 1988. Hann er Parísarbúi, frá útborginni Creteil, 22ja ára gamall og gegnir her- þjónustu. Aður en hann sneri sér alfarið að grindahlaupi stökk hann 7,79 í langstökki, 5,00 í stangar- stökki og í hitteðfyrra náði hann 10,51 sek. i 100 metrum. ÚrslH: 1. Stephane Caristan, Frakkland 2. Arto Bryggare, Finnland 3. Carlos Sala, Spánn 4. Nigel Walker, Bretland 5. Andreas Oschkenat, A-Þýzkaland 6. Jonathan Ridgeon, Bretland 7. Liviu Giurgian, Rúmeníu 8. Gyorgy Bakos, Ungverjaland 13,20 13,42 13,50 13,52 13,55 13.70 13.71 13,84 Sovétmennirnir Andrej Pro- kofjew (13,28 í ár) og Alexandr Markin (13,39 í ár) féllu úr leik áður en að úrslitum kom.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.