Morgunblaðið - 02.09.1986, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
MorgunDiaoio/Junuí
Akraness
• Bikarmeistarar ÍA 1986. Efri röð frá vinstri: Áki Jónsson, liðsstjóri, Pótur Péturs- Birkir Kristinsson, Sigurður Lárusson, fyrirliði, Guðbjörn Tryggvason og Heimir Guð-
son, Júlíus Ingóifsson, Sigurður B. Jónsson, Guðjón Þórðarson, Valgeir Barðason mundsson. Á myndina vantar Sveinbjörn Hákonarson.
og Jim Barron, þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Árni Sveinsson, Óiafur Þórðarson,
Bikarmeistarar
Morgunblaöiö/Ámi Sœberg
• Sigurmark Skagamanna f uppsiglingu. Pótur Pótursson hefur skotið hörkuskoti að marki Fram ...
Morgunblaðið/RAX
• ... og sekúndubroti síðar má sjá knöttinn á leiðinni f markið. Jón Sveinsson horfir örvœntingarfullur
á eftir knettinum, en fyrir framan hann er Ormarr Örlygsson. Pótur er á milli Sveinbjarnar Hákonarsonar
og Ólafs Þórðarsonar.
Það er alltaf
svekkjandi að
tapa í bikar-
úrslitaleik
- sagði Guðmundur Torfason í Fram
„SVONA er knattspyrnan, stund-
um sætur sigur og stundum súrt
tap,u sagði Guðmundur Torfa-
son, markaskorarinn mikli í liði
Fram, eftir tapið gegn Skaga-
mönnum f úrslrtum Mjólkurbik-
arsins á sunnudaginn.
„Ég er nú ekki alveg viss um
að betra liðið hafi unnið hér í dag.
Mér fannst við vera betri aðilinn í
leiknum þar til við skoruðum mark-
ið. Þá drógum við okkur aftar og
ég held að það hafi verið rangt hjá
okkur. Þetta lagaðist fljótlega aftur
en síðan komu þessi tvö mörk frá
Pétri eiginlega ekki upp úr neinu.
Fyrirgjöf og klafs í markið. Þetta
var þó verulega vel gert hjá honum
og góð mörk.
Það er alltaf svekkjandi að tapa
úrslitaleik en það er mjög
skemmtileg tilfinning að vinna
slíkan og ég vil því óska Skaga-
mönnum til hamingju með sigurinn
í þetta sinn."
— Hvað gerist nú hjá ykkur?
„Það er auðvitaö ekkert annað
að gera en að safna kröftum fyrir
þá leiki sem eftir eru í (slandsmót-
inu og við verðum að vinna þá leiki
sem við eigum eftir um leið og við
treystum því að Skagamenn haldi
áfram á sigurbrautinni sem þeir
eru nú komnir á og vinni Vals-
menn. Þeir ættu að geta það fyrst
• Guðmundur Torfason
þeir eru byrjaðir að vinna þessi
topplið," sagði Guðmundur Torfa-
son.