Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986 B 5
Fast leikið en ekki gróft
Skemmtilegur
baráttuleikur
— sagði Guðmundur Steinsson
Morgunblaðið/Júlíus
• Það var oft hart barist í bikarúrslitaleiknum á sunnudaginn þó svo hann hafi ekki verið grófur. Hór
nær Pétur Ormslev knettinum eftir að Ólafur Þórðarson og Steinn Guðjónsson lágu í valnum eftir hart
návígi.
„ÞETTA var skemmtilegur bar-
áttuleikur og þrátt fyrir að
vindurinn setti sitt mark á hann
sást ágætis spil á köflum,“ sagði
Guðmundur Steinsson fyrirliði
Fram eftir að lið hans hafði beðið
lægri hlut í úrslitaleiknum í Mjólk-
urbikarnum en þar sigruðu
Skagamenn 2:1.
„Við áttum talsvert af færum
og vorum óheppnir að skora ekki
úr þeim, sérstaklega hefði verið
gott ef Pétur hefði náð að skora í
byrjun leiksins. Mér fannst við vera
meira með boltann og einnig átt-
um við hættulegri marktækifæri —
en það vantaði að nýta þau og því
fór sem fór.
Skagamenn er alltaf erfiðir aö
leika við og ég vil nota tækifærið
og óska þeim til hamingju með
sigurinn."
— Á ekki að reyna að gleyma
þessum leik sem fyrst?
Jú, það er ekkert annað fyrir
okkur að gera. Það þýðir ekkert
að fara í fýlu vegna þessa leiks.
Við verðum að gleyma honum og
einbeita okkur að (slandsmótinu.
Þar getur allt gerst ennþá og við
erum staðráðnir í að vinna þá leiki
sem eftir eru og vona að Valsmenn
tapi einhverjum stigum, sem er
mikill möguleiki því þeir eiga erfiða
leiki eftir og öll pressan er á þeim,“
sagði Guðmundur Steinsson að
lokum.
Morgunblaðiö/Júlíus
• Guðmundur Steinsson fyrirliði
Fram á fleygiferð með knöttinn í
átt að marki Skagamanna á
sunnudaginn.
EYSTEINN Guðmundsson dæmdi
úrslitaleikinn á sunnudaginn og
fórst honum það einstaklega vel
úr hendi. Hann var öryggið upp-
málað allan leikinn og trúlega er
Pétur Pétursson
maður leiksins
PÉTUR Pétursson var vaiinn
maður bikarúrslitaleiksins á
sunnudaginn og kom það víst
fáum á óvart. Dómnefndina skip-
uðu þeir Guðni Kjartansson og
Sigi Held og hefur valið ábyggi-
tega verið auðvelt hjá þeim
félögum.
Arnarflug veitti verðlaunin fyrir
þessa útnefningu og voru þau ferð
fyrir tvo til Hollands og ætti Pétur
að kannast við sig þar því það var
einmitt í Hollandi sem hann hóf
atvinnumannsferil sinn.
Pétur fór til Feyenoord í Hol-
landi í október árið 1978 og var
það upphafið á atvinnumannsferli
hans sem nú hefur staðið í átta
ár. Pétur er nú kominn heim aftur
og hefur leikið með Skagamönnum
í tæpan mánuð og kann því vel
þannig að það er aldrei að vita
hvað tekur við hjá honum eftir að
keppnistímabilinu lýkur hér heima
í haust.
Pétur er vel að nafnbótinni mað-
ur leiksins kominn því margur er á
því að hann hafi hreinlega unnið
leikinn fyrir Skagamenn. Hvað sem
til er í því þá er það staðreynd að
hann skoraði bæði mörk liðsins
og tryggði því þar með bikarmeist-
aratitilinn árið 1986. Til hamingju
Pétur!
Hvað sögðu
áhorfendur?
Eftir úrslitaleik Fram og IA í
Mjólkurbikarkeppninni á sunnu-
daginn tókum við nokkra áhorf-
endur tali og spuðum þá hvernig
þeim hefði þótt leikurinn. Svör
þeirra fara hér á eftir.
TRYGGVI PÉTURSSON:
Miðað við aðstæður fannst
mér þessi leikur bara alveg
sæmilegur en mér fannst úrslitin
ekki sanngjörn.
ANDREAS LÚÐVÍKSSON:
Mér fannst leikurinn vera
nokkuð góður en vindurinn setti
óneitanlega nokkurn svip á leik
beggja liöa. Mér fannst úrslitin
sanngjörn.
FANNEY JÚLÍUSDÓTTIR:
Þetta var mjög skemmtilegur
leikur og mér fannst þetta sann-
gjörn úrslit.
SVEINBJORN KRISTJANSSON:
Mér fannst sorglegt að Fram-
arar skildu tapa þessu, mér
fannst þeir eiga meira í leiknum.
Leikurinn var frekar slappur til
að byrja með enda hafði vindur-
inn sín áhrif, en það rættist þó
úr honum er líða tók á leikinn.
LINDA HALLGRÍMSDÓTTIR:
Mér fannst þetta mjög góður
leikur en úrslitin fannst mér ekki
sanngjörn.
SIGURBJÖRN SVEINSSON:
Þetta var mjög góður leikur
miðað við aðstæður, rokið og því
um líkt. Úrslitin voru góð fyrir
mína menn!
ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON:
Mér fannst þetta góður leikur
en ég held að það hefði verið
sanngjarnara að fá framlengingu.
Framarar voru betri í fyrri hálfleik
og áttu að vinna þennan leik.
þetta einn besti leikur sem ,hann
hefur dæmt lengi. Við spurðum
hann eftir að hann hafði flautað
til leiksloka hvernig honum hafi
fundist að dæma þennan helsta
leik íslenskrar knattspyrnu.
„Mér fannst bara gott að dæma
þennan leik. Hann var mjög drengi-
lega leikinn af hálfu beggja liða og
leikmenn slepptu því alveg að röfla
í þessum leik þannig að hann var
tiltölulega auðdæmdur. Hann var
að vísu fast leikinn en ekki grófur.
Ég bjóst satt best að segja við
meiri hörku í leiknum, sérstakelga
þar sem veðrið var leiðinlegt því
það kemur oft niður á leiknum."
— Hvað var mikið eftir þegar
Skagamenn skoruðu sigurmark-
ið?
„Það var nákvæmlega ein
mínúta eftir á minni klukku. Það
var rétt um hálf mínúta komin fram
yfir venjulegan leiktíma en ég
stöðvaði klukkuna þegar Pétur
meiddist í síðari hálfeik og því var
ein mínúta eftir er þeir skoruðu.
Ég stoppaði líka klukkuna þegar
Skagamenn fögnuðu markinu því
þeir fóru út af vellinum og mér
fannst ósanngjarnt að stöðva ekki,
það hefði ekki verið mikið eftir ef
klukkan hefði gengið á meðan,"
sagði Eysteinn dómari Guðmunds-
son.
lýsendur greitt reikninga
sína með greiðslukortum
frá VISA eða EURO.
VERIÐ VELKOMIN í GREIÐSLUKORTA VIÐSKIPTI.
Auglýsingadeild, Áskrift Afgreiðsla,
sími 22480. 691140 — 691141 sími 83033