Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986 B S • íslands- og bikarmeistarar Vals í knattspyrnu kvenna 1986. Aftari röA frá vinstri: Róbert Jónsson, þjájfari, Bryndís Vals- dóttir, Þóra Úlfarsdóttir, Sólrún Tryggvadóttir, Ingibjörg Jóns- dóttir, Arney Magnúsdóttir, Ragnhildur Skúladóttir, Mar- grét Bragadóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir og Hera Ár- mannsdóttir. Fremri röö frá vinstri: Kristín Arnþórsdóttir, Cora Barker, Guðrún Sœ- mundsdóttir, Erna Lúðvíksdótt- ir, Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrirliði, Gunnhildur Gunnars- dóttir, Margrét Óskarsdóttir og Védís Ármannsdóttir. Morgunblaðid/Júlíus íslands- og bikar- meistarar Vals Veðrið skemmdi leikinn alveg - sagði Ragnheiður Víkingsdottir fyrir- liði Islands- og bikarmeistara Vals Bikarkeppni kvenna: Valsstúlkurnar ekki íneinum erfiðleikum með rokiðogUBK Morgunblaðiö/Júlíus • Ragnheiður Vfkingsdóttir með sigurlaunin í bikarkeppninni. Félag- ar hennar fagna fyrir aftan. Ragnheiður Víkings- döttir, fyrirliði Vals: „Veðrið skemmdi leikinn al- veg. Hann gat farið hvernig sem var, en við nýttum færin. Það var vonlaust að halda boltanum og spila, en við vorum staðráönar í að sigra. Við unnum leikinn á góðri baráttu og samheldni, því við erum sem ein fjölskylda." Margrét Óskars- dóttir, Val: „Ég vildi fresta leiknum, en fyrst við unnum, þá er ég fegin aö hann fór fram. Þetta var eng- in knattspyrna, en ég er ánægð með sigurinn og það var gaman að skora í leiknum." Ingibjörg JónS- dóttir, Val: „Þetta er fyrsti titillinn sem ég vinn i knattspyrnu og því er ég virkilega ánægð. Veðrið var öm- urlegt og það var mjög erfitt að spila í þessu roki. En þetta voru góð og sanngjöm úrslit, þó knatt- spyrnan hafi ekki veriö falleg." Sigríður Jóhannes- dóttir, fyrirliði UBK: „Þetta var sanngjarn sigur hjá Val. Þær eru með sterka liös- heild og hafa sýnt í sumar að þær eru með besta liðið. Þaö er alltaf svekkjandi að tapa leik, en við „ÞETTA er samhentur og jafn hópur, stelpurnar hafa æft mjög vel og uppskeran er ánægjuleg,** sagði Róbert Jónsson, þjálfari Vals, f samtali við Morgunblaðið eftir úrslitaleikinn. Róbert þjálfaði Breiöablik þegar liðið varð Islands- og bikarmeistari árið 1983, og hefur endurtekið leik- inn í ár með Valsstúlkurnar. „Þetta sköpuðum okkur fá færi, sem ekki nýttust, en dæmið gekk upp hjá Val. Þær eru betri núna, en okkar tími kemur aftur." Guðríður Guðjóns- dóttir, UBK: „Ég ætla að hætta núna í knattspyrnunni og því hefði verið gaman að enda ferilinn með bik- arsigri, en maður verður bara að sætta sig við það, að þær voru einfaldlega betri og unnu sann- gjarnan sigur. En það var ekki hægt að spila knattspyrnu í þessu veðri og kom það jafnt niður á báðum liðum." Aðalsteinn Örnólfs- son, þjálfari UBK: „Betra liðið vann, en þetta var ekki góö knattspyrna. Valsstúlk- urnar voru duglegri, en okkar eru nettari, þó þær hafi ekki náð að sýna þaö í þessum leik. Hins vegar hafa Valsstúlkurnar sýnt í sumar að þær eru bestar og því voru þetta sanngjörn úrsiit. Sigurbergur Sig- steinsson, landsliðs- þjálfari kvenna: „Veðrið réð gangi leiksins, en Valur vann sanngjarnan sigur. Blikastúlkurnar virtust bæði vilja- og áhugalausar, en það er Iftið að marka svona rokleiki." er skemmtileg tilviljun, en ég hafði trú á stelpunum, vissi að þær voru góðar og myndu standa sig vel í sumar. Við vorum mjög óheppin með veður í leiknum. Stúlkurnar geta miklu meira, en í svona roki er ekki hægt að leika knattspyrnu. Hins vegar er ekki hægt að fresta svona leikjum, og ég er ánægður með sigurinn," sagöi Róbert Jóns- son. VALUR varð bikarmeistari kvenna í knattspyrnu á laugar- daginn, þegar liðið vann UBK 2:0 á Stjörnuvelli í Garðabæ í úrslita- leiknum. Leikurinn fór fram í hávaðaroki og rigningu og áttu stúlkurnar í mestu erfiðleikum með að leika knattspyrnu. Vals- stúlkurnar léku á móti vindi f fyrri hálfleik og skoruðu þá bæði mörkin. Fyrri hálfleikur var frekar jafn, en Valsstúlkurnar nýttu færin. Á 9. mínútu nýtti Margrét Óskars- dóttir sér slæm varnarmistök hjá UBK, náði knettinum og skaut jarð- arbolta frá vítateigslínu að marki UBK. Guðríður Guðjónsdóttir, markvörður, virtist hafa knöttinn, en hann fór engu að síður í markið. Baráttan við Kára hélt áfram og var vonlaust að halda einhverju spili gangandi. Á 32. mínútu fékk Kristín Arnþórsdóttir stungusend- ingu inn fyrir vörn UBK frá hægri. Kristín lék nær markinu og skoraði örugglega af stuttu færi. Á næstu mínútu skall hurð nærri hælum UBK. Ingibjörg Jónsdóttir fékk þá knöttinn utarlega í vítateig UBK. Þrumuskot hennarfóristöng og þaðan beint í fangið á Guðríöi. Skömmu fyrir hlé fengu Blikarn- ir tvö góð færi, en tókst ekki að skora. Fyrst átti Ásta B. Gunn- laugsdóttir skot í stöng og síöan brenndi Erla Rafnsdóttir af úr dauðafæri. Valsstúlkurnar voru ákveðnari í seinni hálfleik og á 42. mínútu komst Kristín inn fyrir vörn UBK, en Guðríður varði skot hennar í horn. Ásta B. fékk eina marktækifæri UBK í seinni hálfleik á 54. mínútu. Þá komst hún inn fyrir Valsvöm- ina, en Valsstúlkunum tókst að bjarga á siðustu stundu. Þær brun- uðu upp og Kristín skaut rétt framhjá markinu hinum megin. Skömmu síðar náðu Valsstúlkurn- ar góöu spili, en Kristín hitti ekki markið úr góðu færi. Á 58. mínútu varði Guðríður skot frá Margréti Óskarsdóttur, knötturinn fór í stöng og aftur fyrir og á 75. mínútu fékk Ingibjörg Jónsdóttir tvö ágæt marktækifæri, en brást bogalistin þegar á reyndi. Greinilegt var að leikmenn beggja liða urðu þeirri stundu fegnastir þegar góður dómari leiksins, Eyjólfur Ólafsson, fiautaði af. Stúlkurnar náðu ekki að leika neina knattspyrnu af viti vegna veðurofsans og var það synd, þar sem leiknum var sjónvarpað beint. Gætu margir hafa fengið ranga mynd af getu stúlknanna, en þær eru mun betri en þær sýndu á laug- ardaginn. Guðrún Sæmundsdóttir var sterkasti hlekkurinn i vörn Vals og Kristín Arnþórsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir og Margrét Óskars- dóttir voru ógnandi i framlínunni. Guðríður Guðjónsdóttir stóð sig ágætlega í marki UBK, en annars var liðið frekar jafnt. - S.G. Samhentur og jafn hópur - sagði Róbert Jónsson þjálfari Vals

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.