Morgunblaðið - 02.09.1986, Page 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
T
%
Jj
Spánn:
Gary Lineker
byrjar vel
GARY Lineker byrjaði vel með
Barcelona í 1. umferð spænsku
deildarkeppninnar I knattspyrnu.
Hann skoraði bæði mörk liðsins
gegn Santander.
Metaðsókn var á vellinum í
Barcelona eða um 120 þúsund
manns. Hitt stórliðið í spænsku
deildinni, Real Madrid, vann ör-
uggan sigur á Murcia, sem kom
upp í 1. deild í vor. Mexíkanski
landsliðsmaðurinn Hugo Sanchez
gerði tvö og Jorge Valdano eitt.
Önnur úrslit í fyrstu umferð voru
þessi:
Bracelona — Santander 2—0
Osasuna — Mallorca 0—0
Real Sociedad — Cadiz 4—0
Zaragoza — Sevilla 2—0
Gijon — Athletic de Bilabo 2—0
Las Palmas — Valladolid 2—0
Murcia — Real Madrid 1—3
Beddtis — Sabadell 1 —0
Atletico — Espanol 1—1
Lazarek með
Pólverjana
WOJCIECH Lazarek hefur verið
ráðinn þjálfari pólska landsliðs-
ins í knattspyrnu í stað Antoni
Piechniczek, sem sagði starfi
sínu lausu eftir lélegan árangur
liðsins á HM í Mexíkó í sumar.
Lazarek, sem er 47 ára gamall,
skrifaði undir fjögurra ára samning
og verður því væntanlega með liö-
ið fram yfir næstu heimsmeistara-
keppni. Hann þjálfaði Póllands-
meistara Lech Poznan 1983 og
1984, en hefur verið með 2. deild-
arliðið Trelleborg í Svíþjóð að
undanförnu.
Morgunblaðlð/SUS
• Bræðurnir frá Sauðárkróki hafa verið iðnir við að skora mörk í sumar. Um helgina skoruðu allir nema
Björn og Eyjólfur gerði tvö mörk. Þessi mynd var tekin af þeim eftir sigurinn á Austra á Eskifirði fyrir
skömmu og á henni eru frá vinstri: Sverrir, Eyjólfur, Eiríkur og Björn og allir eru þeir Sverrissynir.
3. deild:
Fjórir á heimsleika
fatlaðra barna
Bræðurnir frá
Króknum skora
— Hringur fótbrotnaði á Grenivík
ÞESSA dagana fara fram í Nott-
ingham í Englandi heimsleikar
fatlaðra barna og unglinga.
Þátttakendur frá íslandi á leik-
um þessum eru; Ásdís Úlfarsdóttir
ÍFR, Rúnar G. Halldórsson ÍFR,
Halldór Guðbergsson ÍFR og Arnar
Klemensson frá Viljanum, Seyðis-
firði. Fararstjórar eru þau Margrét
Hallgrimsdóttir og Páll B. Helga-
son.
Heimsleikir fatlaöra barna og
unglinga eru nú haldnir í fyrsta
sinn og er vonandi að vel takist
til því ásamt þeim greinum er
keppt er í verður kynning á fjöl-
mörgum öðrum íþróttum sem vel
henta fötluðum, en lítið hafa verið
stundaðar.
SÍÐUSTU leikirnir í B-riðli þriðju
deildar voru leiknir á laugardag-
inn en keppni er þegar lokið í
A-riðlinum og þar vann ÍR sór
sæti í 2. deiid eins og við höfum
skýrt frá. Leiftur sigraði í B-riðlin-
um og leikur í 2. deild að ári en
Austfjarðarliðin Valur og Leiknir
féllu niður i 3. deild ásamt HV,
sem hætti keppni snemma sum-
ars, og Ármanni.
Leiftur vann sinn síðasta leik
gekn Árskógstrendingum og varð
BELENENSES frá Lissabon hefur
forystu í portúgölsku 1. deildinni
eftir tvær fyrstu umferðirnar.
Sporting sem ÍA mætir í Evrópu-
keppninni og Benfica eru í öðru
sæti með 3 stig.
Mexíkanski sóknarmaðurinn
Negrete skoraði fyrsta markið fyrir
Sporting með hörkuskoti á 22.
mínútu og Raphael, sem er ensk-
ur, bætti við öðru markinu fyrir
leikhlé, gegn Rio Ave á útivelli. í
seinni hálfleik tókst heimamönn-
um að jafna með mörkum Jaime
Grace og Alonso. Benfica sigraði
Varzim, 2:0 með mörkum Rui Agu-
as og Chiquinho.
Annars urðu úrslit sem hér seg-
ir:
Farenge — Boavista 1—1
Elvas — Maritino 2—0
Benfica — Varzim 2—0
Guimaraes — Porto 2—2
Chaves — Braga 0—2
Rio Ave — Sporting 2—2
Saloueiros — Belenenses 0—2
Academica — Portimonense 1—0
það all sögulegur leikur. Magna-
menn skoruðu strax á 2. mínútu
og var þar að verki Jón Ingólfsson
en síðan jafnar Leiftur rétt fyrir
leikhlé og komust síðan yfir á 70.
mínútu. Magni fékk vítaspyrnu í
lokin en hún var varin. Það óhapp
henti að einn leikmanna Magna,
Hringur Hreinsson, fótbrotnaði í
þessum leik.
Á Fáskrúðsfirði léku heima-
menn, Leiknir, við Tindastól og
töpuðu 3:6. Leiknir náði þó að
• Mexíkanski landsliðsmaður-
inn Negrete skoraði glæsilegt
mark fyrir Sporting Lissabon um
helgina. íslendingum gefst kostur
á að sjá Negrete í Evrópuleiknum
gegn IA 17. september á Laugar-
dalsvelli.
gera þrjú mörk sem er jafn mikið
og liðið hefur skorað í öllum hinum
leikjunum í deildinni til samans.
Mörk þeirra gerðu Arnar Ingason,
Svanur Kárason og Magnús Guð-
mundsson en fyrir Tindastól
skoruðu þeir bræður Sverrir, Eyj-
ólfur (2) og Eiríkur Sverrissynir eins
og venjulega og að auki Stefán
Pétursson og Birgir Rafnsson.
Dómgæslan í þessum leik var
all söguleg eins og svo oft áður.
Línuverðir leiksins þóttu með af-
brigðum slakir enda máttu þeir
varla vera að því að gegna hlut-
verki sínu. Þeir ræddu mikið við
áhorfendur og reyktu meira að
segja á meðan á leik stóð — nokk-
uð sem alls ekki samræmist
störfum þeirra. Því miður hefur
framkoma sem þessi verið of al-
geng þar eystra og er vonandi að
gerð verði bragarbót í dómaramál-
um þar sem fyrst.
Reynir sigraði Austra 2:0 og var
sá sigur sanngjarn. Austramenn
voru fámennir þar nyrðra enda
margir úr liðinu farnir erlendis í
sumarfrí þar sem vertíðin fyrir liðið
sem slíkt var á enda.
Þróttur sendi Valsara frá Reyð-
arfirði endanlega niður í fjórðu
deild er þeir unnu þá á Neskaup-
stað 2:0 og nú heyrast þær sögur
að Reyðfirðingar ætli að fjölmenna
til nágranna sinna á Eskifirði
næsta keppnistímabil en hvort af
því verður kemur líklega ekki í Ijós
fyrr en í vetur.
Sigurvegarar riölanna, Leiftur
og ÍR, munu leika úrslitaleik um
hvort liðið vinnur 3. deildina og
verður væntanlega varpað hlut-
kesti um hvort hann verður leikinn
fyrir norðan eða hér fyrir sunnan.
Eðlilegast væri að leikur þessi yrði
á Akureyri því ferðakostnaður lið-
anna í B-riðlinum hefur verið mun
meiri en liðanna í A-riðlinum en
að vísu mun kostnaði við úrslita-
leikinn vera skipt niður á liðin sem
leika hann þannig að kostnaðar-
lega séð skiptir ekki máli hvar leikið
verður.
Stjörnustrákar
til Hollands
STRÁKARNIR í 4. flokki í knatt-
spyrnu í Stjörnunni, Garðabæ,
fara í viku æfinga- og keppnis-
ferð til Hollands í dag.
Strákarnir hafa safnað fyrir
ferðinni með ýmiss konar vinnu.
Þeir hafa safnað glerjum og selt
og á bikarúrslitaleik Vals og UBK
í kvennaflokki, sem fór fram á
Stjörnuvelli, sáu þeir um miða-
söluna og veitingasölu. Þeir létu
veðrið ekkert á sig fá og sögðu
í samtali við Morgunblaðið, að
mikið betra væri að selja heitt
kaffi í roki og rigningu, en í sól
og blíðu. Þeir koma til með að
leika þrjá leiki í Hollandi og svo
ætla þeir að sjá Atla Eðvaldsson
í leik með Uerdingen gegn Dort-
mund. Á myndinni eru framherjar
4. flokks Stjörnunnar, þeir Sigfús
Gissurarson með kaffikönnuna
og Jón Gunnar Sævarsson með
sælgætiskassann.
Portúgal:
Negrete skoraði
fyrir Sporting