Morgunblaðið - 02.09.1986, Síða 11

Morgunblaðið - 02.09.1986, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ' ÞRÍÐJUDÁGtJR 2. SEPTEMBER 1986 B 11 Kraftaverk hjá Atla og félögum — leika næst gegn Níirnberg Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttaritara FYRSTA umferð í þýsku bikar- keppninni í knattspyrnu fór fram um helgina og var aðalleikurinn viðureign Uerdingen og Stutt- gart. Þetta var stórkostlegur leikur, en Uerdingen vann 6:4 eftir framlengdan leik. Stuttgart lék gríðarlega vel í fyrri hálfleik, en staðan í hálfleik var 3:0. Klinsmann skoraði tvívegis og Schröder einu sinni. Hinn 18 ára Bierhoff kom inn á í seinni hálfleik hjá Uerdingen, og hann jafnaði leikinn, 3:3, á 84. mínútu, Bierhoff skoraði einnig fyrsta mark Uerd- ingen á 61. mínútu, en Kuntz skoraði annað markið úr víta- spyrnu. Rudi Bommer axlarbrotn- aði eftir samstuð við Ásgeir Sigurvinsson og voru leikmenn Uerdingen aðeins 10 eftir það, því þeir höfðu notað báða varamenn- ina, og liðið var 3:0 undir! Funkel kom heimamönnum yfir Morgunblaðsins í Vestur-Þýskalandi. snemma í framlengingunni, en Allgöwer jafnaði fyrir Stuttgart. Raschid skoraði síðan tvívegis fyr- ir Uerdingen, sem vann 6:4. Leikurinn var mjög góður en harður og fengu nokkrir að sjá gula spjaldið, þar á meðal Ásgeir, og einum leikmanna Stuttgart var vikið af velli. Atli Eðvaldsson og Ásgeir léku báðir vel í þessum baráttuleik, en markvörður Stutt- gart var taugaóstyrkur og átti sök á tveimur markanna. Það var kraftaverk hjá Uerdingen að ná að jafna og sigra síðan í leiknum, en svo virðist, sem þeim takist þetta árlega. í mars var Uerdingen undir 3:1 í Evrópuleik, en sigraði 7:3 og áriö 1977 var liðið 3:0 undir gegn Frankfurt í bikarleik, en vann 6:3! Önnur helstu úrslit urðu annars þau að Kaiserslautern tapaöi 3:0 fyrir áhugamannaliðinu Remscheid, Werder Bremen gerði Sigurður er með betri liðsmönn- um Luzern. Liðið verður nú án hans langleiðina fram að jólum en Sigurður vonast til að ná sér á átta vikum. Hann verður að taka það rólega í tvær vikur en getur byrjað að þjálfa fótvöðvana með aðstoö sjúkraþjálfara eftir tvær vikur. „Ég hefði varla getað meiðst á verri tíma,“ sagði Sigurður en hann er kominn með flugmiöann heim til (slands á landsleikinn gegn Frökkum í hendurnar. „Ég get ekki spilað í landsleikjunum þremur í haust og verð ekki með í leikjum Luzern gegn Spartak Moskva í Arnór og Ragnar skoruðu báðir BELGÍSKA deildarkeppnin f knattspyrnu hófst á laugardaginn og voru bæði Arnór Guðjohnsen og Ragnar Margeirsson í sviðs- Ijósinu, hvor í sinni deild. Meistarar Anderlect unnu Sear- ing örugglega 3:1 á útivelli. Arnór Guðjohnsen skoraði þriðja markið og var það sérlega glæsilegt, mark umferðarinnar. Sending kom fyrir mark Searing, Arnór henti sér fram og skallaði knöttinn upp í vinkilinn. Annars urðu úrslit leikja í 1. deild þessi: Searing - Anderlecht 1:3 Beerschot - Mechlin 1:1 Charleroi - Antwerpen 1:1 Brugge - Waregem 3:0 Standard L. - Ghent 5:0 Berchem - Beveren 0:0 RWDM-Liege 1:1 Lokeren - Racing Jet 1:1 Kortrijk - Cercle Brugge 3:2 Ragnar Margeirsson byrjaði vel og skoraði bæði mörk Waterschei Sviss: Sigurður úr leikítvo mánuði Ziirích, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. SIGURÐUR Grétarsson, landsliðsmaður og leikmaður með Luzern f Sviss, var settur í gips „frá nára niður á tá“ á föstudag og losnar ekki úr því fyrr en eftir sex vikur. Liðbandið innan á hægra hné slitnaði fyrir rúmri viku þegar hann hljóp saman við annan liðsmann Luzern á æfingu. Sigurður vissi ekki hversu alvarleg meiðslin voru fyrr en nú skömmu fyrir helgina þegar hann fór til íþróttalæknis Bayern Miinchen f Vestur-Þýskalandi og lét hann líta á hnéð. Sá hinn sami læknir læknaði hann af bakkvilla, sem þjáði Sigurð f upphafi leiktfma- bilsins í Sviss, aðeins nokkrum dögum áður en hann meiddi sig í hnénu. UEFA-keppninni.“ Luzern sigraði Basel 2:0 í fyrstu deild í svissnesku knattspyrnunni nú um helgina. Ómar Torfason spilaði ekki með. Baden, lið Guðmundar Þor- björnssonar, sigraði Chiasso 1:2 í annarri deild. Leikar stóðu 1:0 í hálfleik. Seinni hálfleikur var spennandi og Guðmundur náði boltanum fjórum mínútum eftir að Chiasso skoraði sjálfsmark á 60. mínútu og hljóp glæsilega í gegn- um vörnina, gaf fyrir og Baden skoraði eitt mark sem nægði liðinu til sigurs. markalaust jafntefli við Aachen, Bayern Mrichen átti í erfiðleikum með Hertha Berlin, en vann 2:1, Schalke tapaði 1:0 fyrir áhuga- mannafélaginu Mainz 05 og Bochum tapaði 1:2 fyrir St. Pauli. Dregið hefur verið í 2. umferð bikarkeppninnar og leikur Uerding- en heima gegn Nurnberg. Homburg fær Bayern Munchen í heimsókn, Gladbach leikur gegn Dortmund, Dusseldorf gegn Lev- erkusen og Köln gegn Mannheim. gegn St-Truiden í 2. deildinni, en leikurinn endaði 2:2. „Ég skoraði fyrra markiö strax á 1. mínútu, ágætt mark. Við náðum tveggja marka forystu á 29. mínútu. Þá fékk ég boltann rétt innan vítateigs og þrumaði honum viðstöðulaust í hornið uppi. En á næstu mínútu var varnarmaður hjá okkur rekinn af velli og þá fór að síga á ógæfu- hliðina og andstæðingarnir náðu að jafna," sagði Ragnar í samtali við Morgunblaðið. Samningur Ragnars við Wat- erschei rennur út næsta vor. „Við höfum staðið okkur vel í æfinga- leikjum og mótum í sumar og ég er bjartsýnn fyrir keppnistímabilið, sem hófst um helgina. Liðið er gott og ef við verðum ekki fyrir skakkaföllum, eigum við góða möguleika á að endurheimta sætið í 1. deild," sagði Ragnar Margeirs- VOLVO RAtfííö V0LN/f9u^I rftvM nö qÆEÉ FOLKSBILAR KRONUR Púslkerfi í 240 stgr. 6.531- Framdempari í 240 2.743. Afiurdempari í 240 1.373.- SUÐURLANDSBRAUT 16 - SIMI 35200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.