Morgunblaðið - 30.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.11.1986, Blaðsíða 4
SVONA GERUM VIÐ 4 B__________MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÖVEMBER 1986_ ALLIRGETA SMITAST AF ALNÆMI Lítum á nokkrar staöreyndir: ENGIN LÆKNING. Enn hefur ekki fundist lækning viö al- næmi. En viö vitum hvernig sjúkdóm- urinn berst og hvernig hægt er aö koma í veg fyrir smit. ALLIR GETA SMITAST. Þaö eru fleiri en hommar og fíkni- efnaneytendur sem hafa smitast af al- næmi. Karlmenn hafa hingað til verið í meirihluta í hópi alnæmissjúklinga. En allar konur og allir karlmenn geta smit- ast og borið smitið áfram. HVERNIG SMITAST ALNÆMI? Einu líklegu leiðirnar til þess að smitast eru kynmök við smitaðan einstakling og sameiginleg notkun á sprautunál. ALNÆMI SÉST EKKI. Það er engin leið að sjá hvort fólk er smitað. Útlit þess og líðan getur verið í besta lagi og það hefur sjálft ekki hug- mynd um að það gangi með sjúkdóm- inn. Að líkindum bera nú 200-300 einstaklingar á (slandi alnæmisveiruna. Gerum allt sem við getum til þess að stækka ekki þann hóp. Hvað getum við gert? N0TUM SM0KKA VIÐ SAMFARIR. Áhættan við kynmök er engin ef báðir aðilar eru öruggir um að hafa ekki fengið veiruna. En sértu ekki viss um hinn aðilann slepptu því þá að hafa kynmök. Ef þú gerir það samt ætti karl- maðurinn skilyrðislaust að nota verjur. Það dregur mjög úr smithættu. VÖRUMST TILVILJANAKENND KYNMÖK. Því fleiri einstaklinga sem þú hefur kynmök við, þeim mun meiri líkur eru á að smitast. Varastu kynmök við skyndi- kynni. Gættu þess að áfengisneysla dregur úr varkárni fólks og þá er mun meiri hætta á tilviljunarkenndum kyn- mökum. Sérstök hætta er einnig af kynmökum sem kunna að særa kyn- færi eða munn og þó sérstaklega endaþarm. Vörumst því slík kynmök. ENGAR ÓHREINAR SPRAUTUR. Ef þú notar fíkniefni skaltu aldrei deila nál eða öðrum slíkum tækjum með öðrum. Mundu að ein sprauta með óhreinni nál dugar til að smita þig af al- næmi. VÖRUM BÖRNIN OKKAR VIÐ. Þegar börn vaxa úr grasi hættir þeim við ýmsum tilraunum í kynlífi og neyslu ííkniefna. Brýnum hætturnar fyrir börnunum og kennum þeim að varast þær. MUNUM ÞETTA: Einu líklegu leiðirnartil þess að smitast af alnæmi eru kynmök og sameiginleg notkun sprautunála. Enginn hefur smitast af daglegri umgengni við þá sem bera veiruna. NÁNARI UPPLÝSINGAR. Þeir sem vilja fræðast meira um al- næmi og varnir gegn því og þeir sem óttast að vera smitaðir geta hringt í síma 91-622280. Farið er með öll mál sem trúnaðarmál. Athugið að blóðsýni til mótefnamæl- inga eru tekin á öllum heilsugæslu- stöðvum. Fyllstu nafnleyndar er gætt. Fleiri karlar en konur hafa smitast. Konurgeta lika' fengið alnæmi og þær geta borið veiruna áfram i ófædd börn sfn. yp i 4P ‘i* llngt fólk, sem gjarnan gerir tilraunir f kynlifi og fikniefnaneyslu, er í sérstakri hættu. LANOLÆKNIR - HEILBRIGÐISMÁLARÁOUNEYTIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.