Morgunblaðið - 30.11.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.11.1986, Blaðsíða 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1986 daga veisla Frá föstudeginum 28. nóv. — mánudagsins 1. des. ★ Píta með buffi, frönskum kartöflum og pepsí á aðeins kr. 199.- ★ Píta með grænmeti, frönskum kartöflum pepsí á aðeins kr. 169.- ★ Allir krakkar fá bland í poka og blöðrur. ★ Jólasveinn skemmtir frá kl. 14.00—16.00 á sunnudag. ★ Pepsí í nýju dósaumbúðunum fylgir heimsendum pöntunum. — Ath.: Pítunni á Bergþórugötu hefur verið lokað til frambúðar. Góðan daginn! ASTIN , ÁTIMUM KÖLERUNNAR Skáld- saga eftir Marquez ÚT ER komin týá Máli og menn- ingu ný skáldsaga eftir kól- umbíska Nóbelsverðlaunahafann Gabríel García Marquez, og nefnist hún Ástin á timum kóler- nnnar. Guðbergur Bergsson rithöfundur þýðir verkið. í frétt frá Máli og menningu segir: „Sagan gerist í litskrúðugri hafn- arborg við Karíbahaf undir lok síðustu aldar og á fyrstu áratugum þessarar. Hún er í raun ástarsaga: I miðju sögunnar er Florentíno Aríza, maður sem bíður elskunnar sinnar í hálfa öld, svo gagntekinn verður hann á unga aldri af hinni ómótstæðilegu Fermínu Daza. Og meðan lesandinn bíður með honum, sífellt spenntari og vondaufari í senn, skemmtir Marquez honum með ótal frásögnum — uns niður- staða fæst í ferð með Karibíska fljótasiglingafélaginu eftir hinu mikla Magdalenufljóti." Ástin á timum kólerunnar kom fyrst út á spænsku í desember 1985, og hefur bókin hlotið afbragðsvið- tökur. íslenska útgáfan er 306 blaðsíður að stærð og unnin í Prent- smiðjunni Odda hf. Robert Guille- mette gerði kápu. Hjörleifur varð hlut- skarpastur Úrslitin ekki bindandi HJÖRLEIFUR Guttormsson, al- þingismaður, varð hlutskarpast- ur í forvali Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi. Hann hefur verið i öðru sæti á fram- boðslista flokksins í kjördæminu en nú gaf Helgi Seljan, alþingis- maður, efsti maður listans, ekki kost á sér til endurkjörs. Hjörleifur hlaut 737 atkvæði í fyrsta sæti og 848 alls af samtals 937 atkvæðum, sem greidd voru. í öðru sæti varð Unnur Sólrún Bragadóttir, Fáskrúðsfirði, með 405 atkvæði í fyrsta og annað sæti og 652 alls. í þriðja sæti varð Bjöm Grétar Sveinsson, Höfn, með 216 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti og 392 alls. í fjórða sæti varð Siguijón Bjamason, Egilsstöðum, með 306 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti og 364 alls. í fimmta sæti varð svo Þórhallur Jónasson, Höfn, með 314 atkvæði í fyrstu fimm sætin. Að sögn Kristins Ámasonar á Egilsstöðum eru niðurstöður for- valsins ekki bindandi, heldur em þau aðeins leiðbeinandi, eins og hann orðaði það, fyrir forvalsnefnd. Nefndin gerði tillögu um framboðs- lista fyrir kjördæmisþing og mundi hún þá ennfremur taka tillit til kynjaskiptingar og búsetu manna í kjördæminu. Hann sagði að stefnt væri að því að halda kjördæmisþing um aðra helgi og ganga frá skipan framboðslistans þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.