Morgunblaðið - 01.03.1987, Qupperneq 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ1987
ijk i riui rvrnyNDANNA
James Woods
Leikstjórinn
Rob Reiner.
Stjörnubíó:
Stöndum saman eftir Rob Reiner
Smásagan „The Body“ eftir
Stephen King er ekki þessi dæmi-
gerði King-hryllingur eins og hann
hefur verið upp á síðkastið, með
geöveikum trukkum, geðveikum
hundum eða geðveiku hverju-
sem-er, heldur er hún sjálfsævi-
söguleg saga um fjóra stráka sem
alast upp í smábæ í Bandaríkjun-
um. í kynningu með myndinni,
Stand By Me (Stöndum saman),
sem gerð er eftir þessari sögu og
verður bráðlega sýnd í Stjörnubíói,
segir að í henni sé blandaö saman
drama, spennu, ævintýri
og spaugi. Leikstjóri
myndarinnar er Rob
Reiner, sonur hins
fræga leikstjóra
Félagarnir fjórir í myndinni „Stand By Me“.
og leikara (The Russians Are Com-
ing, The Russians Are Coming)
Carl Reiner. Hún segir frá Gordie,
Chris, Teddy og Vern, sem hafa
fylgst í nokkra daga með fréttum
í útvarpinu um 12 ára gamlan
dreng sem er saknað. Þeir komast
á snoðir um að hann sé dáinn og
halda í leiðangur í leit að líki hans.
Ferðin hefst á saklausan hátt og
þeir láta sig dreyma um að verða
frægir fyrir líkfundinn en áður en
yfir lýkur hafa þeir reynt ýmislegt
sem þeir höfðu ekki getaö ímyndað
sér að gæti gerst.
Smásaga Kings kom fyrst út
liðþjálfann í An Officer
and A Gentleman (hlut-
verkið sem Louis Gossett
fékk). Honum leist ekki á
hlutverkið frekar en um-
boðsmanni hans og
hafnaði því þótt miklir
peningar væru í boði. „Ég
vil miklu heldur vera fá-
tækur og ánægður með
mitt hlutskipti heldur en
að vera ríkur og örvasa,"
segir James Woods.
Salvador þótti heldur
blóðug mynd, eins og
raunar allt sem Oliver
Stone gerir, og stóru kvik-
myndaverin iitu ekki við
henni þar sem hún þótti
heldur gagnrýnin á ut-
anríkisstefnu Reagans.
Það eru því margir sem
halda því fram að James
Wood komi ekki til með
að hreppa Óskarsverð-
launin þrátt fyrir tilnefn-
inguna; meðlimir
Bíóhúsið:
Sjóræningjarnir
eftir Polanski
Þeir léku saman James Woods og Robert DeNiro
f „Once Upon A Time In America".
- tilnefndur til Óskarsverðlauna
.fyrir „Salvador"
kvikmyndaakademíunnar
þykja frekar íhaldssamir
og ekki líkiegir til að verð-
launa þá leikara sem
ganga fram fyrir skjöldu
og benda á óþægilegan
sannleika. En þeir sem
misstu af Salvador þegar
hún var sýnd í bíó og lang-
ar til að sjá hana geta ef
til vilf fundið hana á ein-
hverri myndbandaleig-
unni.
HJÓ
James Woods er í fyrsta
sinn á ferli sínum til-
nefndur til Óskarsverð-
launa fyrir hlutverkið í
Salvador, sem Oliver
Stone gerði og sýnd var
snemma árs 1986.
Tónabíó sýndi myndina
síðastliðið vor. Woods lék
Ijósmyndarann Boyle sem
fór til El Salvador og varð
vitni að blóðbaði; ef til er
eitthvert orð sem getur
lýst reynslu þessa manns
þar í landi. Woods sýndi
ótrúlegan leik og það
kemur ekkert á óvart að
hann skuli nú vera til-
nefndur til Óskarsverð-
launa.
En James Woods er
þannig maður að hann
tekur oröur og verðlaun
ekki alvarlega, hann bara
hlær aö þeim. Hann er
utangarðsmaður í heirni
kvikmyndanna, segist
hvergi eiga heima nema á
meðal persónanna sem
hann leikur. Hann setur
algjört traust sitt á
umboðsmann sinn,
Todd Smith, sem
skoðar öll þau
Roman Polanski kallar
sjálfur nýjustu myndina sína
„hina fullkomnu sjóræn-
ingjamynd". Hann fór að
hugsa út í gerð hennar 12
árum áður en hún var frum-
sýnd á síðasta ári eða
skömmu eftir að hann gerði
Kínahverfið árið 1974. Hann
settist niður með handrits-
höfundinum Gerard Brach
og þeir sniðu ævintýra-sjó-
ræningjamynd sem gerist
einhverntímann á gullöld
sjóræningjanna. Á síðasta
ári kom svo myndin í kvik-
myndahús úti í heimi og hún
var frumsýnd í Bíóhúsinu
núna fyrir helgi. Hún heitir
einfaldlega Sjóræningjar
(Pirates), Polanski leikstýrir,
en Walter Matthau fer með
aðalhlutverkið.
Hér á landi höfum við
hvorki séð mynd með Matt-
hau eöa eftir Polanski í
bíóhúsum í nokkur ár.
Síðast sáum við Matthau i
gamanmyndinni Survivors
(1983) þar sem hann lék á
móti Robin Williams og Tess
(1979) er síðasta myndin
sem við sáum eftir Pol-
anski. Ein skýringin á því af
hverju það tók hann 12 ár
að koma Sjóræningjum frá
sér tengist fjármögnun. Það
vildi enginn kosta verkefnið
James Woods er tilnefndur til Óskarsverðlauna
fyrir að leika drykkfelldan, bandariskan Ijós-
myndara sem fer til El Salvador og verður vitni
að blóðbaði.
Roman Polanski (f miðlð) með Walter Matthau (til hægri)
við tökur myndarinnar Sjóræningjar.
handrit sem honum ber-
ast, vinsar úr og lætur
Woods lesa þau sem hon-
um líst vel á. Woods
segist frekar hætta að
leika heldur en að skipta
um umboðsmann.
Woods fékk sitt fyrsta
umtalsverða hlutverk í
sjónvarpsflokknum
Holocaust, þar sem hann
lék eiginmann Meryl
Streep. Því næst lék hann
í Laukakrinum (The Onion
Field) sem áreiðanlega er
hans merkilegasta mynd
til þessa. Þetta var fyrir
átta árum, og á þeim tíma
sem liðinn er hefur hann
leikið í tíu, tólf myndum,
svo sem Næturverðinum
(með William Hurt), Split
Image, Against All Odds
(Jeff Bridges og Rachel
Ward), Once Upon a Time
In America (með DeNiro),
og Cat's Eye. Hann af-
þakkaði boð um að leika
þar til framleiðandinn Tarak
Ben Ammar las handritið
og líkaði vel svo ekki sé
meira sagt. Og þá loksins
fóru hjólin að snúast.
Byggt var m.a. risastórt
seglskip fyrir átta milljón
dollara. Það var tvö ár í
smíðum og getur borið 600
manns en kvikmyndaliöið
taldi „aðeins" 380. Meira
að segja Polanski hafði ekki
gert sér í hugarlund stærð
skipsins. „Ég sá aldrei fyrir
mér neitt þessu líkt," segir
hann, og hefði frekar kosið
að fá eitthað minna í sniðum
(þótt hann væri hæst-
ánægður með það sem
hann fékk).
En var Sjóræningjar erfið-
asta myndin sem hann
hefur gert? „Tess var tal-
svert löng, svona eins og
Sjóræningjar en Sjóræningj-
ar var erfiðari mynd. Hún
var hreinasta martröð
vegna þess að hún var að
mestu tekin á hafi úti svo
veðrið skipti afskaplega
miklu máli. Hún var tekin í
Túnis árið 1985 og veturinn
þar það ár var sá harðasti
sem komið hefur í áratugi.
Þetta var risastórt fyrirtæki
og tæknilega mjög vanda-
Walter Matthau f fullum
skrúða.
samt. Það voru tæknibrellur
í hverju skoti," segir Pol-
anski.