Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987
Skattleggjum
gróða fyrirtækjanna
— en hættum að skattleggja rekstrarkostnað þeirra
— sagði Víglundur Þorsteinsson, formaður FÍIá ársþingi iðnrekenda ígær
Skárri afkoma 1986
Á síðastliðnu ári batnaði afkoma
iðnaðarins nokkuð miðað við árið
1985 en það ár var iðnaðurinn í
heild rekinn með tapi. Árið 1986
má ætla að iðnaðurinn hafí skilað
smávægilegum hagnaði en þó alltof
litlum til þess að tryggja eðlilegan
vöxt.
Það er einkennandi fyrir þessi tvö
ár að verulegt misgengi er í afkomu
iðnfyrirtækja, bæði einstakra fyrir-
tækja og heilla greina iðnaðarins.
Almennt var afkoma heimamark-
aðsgreinanna betri á síðastiiðnu ári
en afkoma útflutningsgreinanna þó
með undantekningum sé.
Á heimamarkaðnum á fataiðnað-
urinn í erfíðleikum um þessar
mundir, einkum vegna harðnandi
samkeppni frá láglaunalöndum
Suðaustur-Asíu, þar sem laun iðn-
verkafólks eru víða aðeins um
fímmtungur launa hér á landi. Þess
sjást þó merki að fyrirtækin séu
með markvissri vöruþróun að losa
sig út úr þessari samkeppni með
því að hverfa frá ódýrri fjöldafram-
leiðslu jrfír í framleiðslu á tískuvöru
í besta gæðaflokki. Nú er að hefj-
ast víðtækt framleiðniátak í fata-
iðnaði með allsheijar endurskipu-
lagningu, öflugri starfsþjálfun og
áframhaldandi tæknivæðingu.
íslenskir neytendur geta stutt við
þessar aðgerðir fyrirtælqanna með
því að taka vel á móti þessari nýju
viðleitni og aukið þannig markaðs-
hlutdeild fataiðnaðarins á nýjan
leik.
Erfiðleikar í
útflutningi
Útflutningur iðnaðarvara gekk
erfíðlega á síðstliðnu ári. Þar ber
hæst mikið tap stóriðjufyrirtækj-
anna vegna lækkandi markaðsverðs
og tap í ullariðnaðinum. Megin-
ástæðan fyrir taprekstri í ullariðn-
aðinum er einnig lágt markaðsverð
og fallandi gengi Bandaríkjadollars.
Undanfarin tvö ár hefur greinin
ekki náð neinum umtalsverðum
verðhækkunum á erlendum mörk-
uðum þannig að þrátt fyrir verulegt
átak í fyrirtækjunum til að þróa
nýjar vörur og auka framleiðni hef-
ur það einfaldlega ekki dugað til.
Ullariðnaðurinn var í heild rekinn
með um 7% tapi á árinu 1986. Þrátt
fyrir þessa erfíðleika eru engu að
síður góðir möguleikar til þess að
snúa þessu dæmi við með áfram-
haldi á vöruþróun og nýrri markaðs-
sókn, en frumforsendan er sú að
verulegt nýtt áhættufé komi nú
þegar inn í fyrirtækin í þessari
grein.
Mikill vöxtur í vörum
til sjávarútvegs
Ein grein iðnaðarútflutningsins,
§árfestingar- og rekstrarvörur til
sjávarútvegs, var áfram í örum
vexti á síðastliðnu ári en þá nam
heildarútflutningur þessarar fram-
leiðslu 420 milljónum króna
samanborið við 260 milljónir króna
1985. Það er skoðun mín að fyrir-
tæki í þessari grein eigi geysilega
vaxtarmöguleika ónýtta á næstu
árum. Fjárfestingarfélög, áhættu-
fjármagnssjóðir og einstaklingar
ættu að huga vel að fj'árfestingar-
kostum í fyrirtækjum í greininni
því vaxtarmöguieikamir á þessu
sviði, jafnt á heimamarkaði sem í
útflutningi, eru meiri en í mörgum
öðrum greinum og undanskil ég þá
ekki tískugreinar augnabliksum-
ræðunnar eins og fískeldi og
loðdýrarækt.
Með svipuðu áframhaldi stefnir
í það að útflutningur þessara greina
verði innan fárra ára jafnmikill og
heildarútflutningur okkar á ullar-
og skinnavörum.
Stóriðja
Eins og kom fram hér í upphafí
á stóriðjuframleiðsla okkar nú í
talsverðum erfiðleikum vegna lágs
útflutningsverðs sem stafar af sam-
drætti á alþjóðamörkuðum. Á þessu
ári stefnir þó í framleiðslu- og sölu-
aukningu á bæði áli og jámblendi
þótt enn sé markaðsverðið lágt.
Vegna samdráttar á þessu sviði er
nú lítill möguleiki á nýfjárfestingu.
Þetta ástand hefur nú leitt til þess
að á íslandi eru stjómmálamenn
og fjölmiðlar famir að afskrifa
orkufrekan iðnað sem kost í at-
vinnumálum. Hér sýnist mér að sé
nokkuð fljótt í rassinn gripið. Tíma-
bundinn samdráttur í orkufrekum
iðnaði samhliða auknu framboði á
vatnsorku í heiminum og lækkandi
olíuverði í augnablikinu eru ekki
gild rök til þess að afskrifa orku-
frekan iðnað. Ekkert hefur enn
breytt þeirri staðreynd að heimur-
inn stefnir í raforkuskort á næstu
áratugum. Við íslenskir iðnrekend-
ur heyrum mjög þessa dagana að
starfsbræður okkar á Norðurlönd-
unum, t.d. í Noregi og Svíþjóð,
hafa miklar áhyggjur vegna þess
að þeir telja fýrirsjáanlegan raf-
orkuskort í löndum sínum innan
10—15 ára. Það er því nokkuð
snemmt að afskrifa orkufrekan iðn-
að og orkuauðlindir okkar í íslenskri
atvinnuumræðu.
Við íslendingar verðum að varast
þá þröngu einsýni sem oft einkenn-
ir umræður um atvinnumál hér á
landi. Við höfum alltof ríka til-
hneigingu til að ræða atvinnumál á
hveijum tíma undir þeim formerkj-
um að vöxturinn verði helst í þessari
eða hinni greininni, jafnframt sem
slík umræða hefur jafnan þá til-
hneigingu að afskrifa möguleika
annarra greina.
Staðreyndimar eru aðrar þegar
þessi mál eru athuguð betur og
skoðuð í samhengi yfír lengri tíma.
Vaxtarsprotar eru
í öllum greinum
Vaxtarsprotamir em ekki ein-
skorðaðir við einstakar greinar.
Vöxturinn sprettur fram í einstök-
um fyrirtækjum í öllum greinum
framleiðslunnar. Með sama hætti
sjáum við að samdrátturinn verður
í einstökum fyrirtækjum og þau er
einnig að finna í öllum greinum
framleiðslunnar.
Það sem öðm fremur skilur á
milli vaxtar eða samdráttar er vöm-
þróun og markaðssókn.
Við sjáum þetta um allt þjóð-
félagið í dag og gildir þar einu
hvort við lítum til fískiðnaðar eða
annarrar iðnaðarframleiðslu. Meira
að segja landbúnaðurinn lýtur þess-
um lögmálum einnig þrátt fyrir
heljartök miðstýringar á sumum
sviðum.
Aukin rannsóknar- og
þróunarstarf semi
Eitt höfuðverkefnið í atvinnumál-
um á íslandi í dag er að stórauka
rannsóknar- og þróunarstarfsemi í
atvinnufyrirtækjunum. Fyrirtækin
þurfa að veija mun meira fjár-
magni af sínum rekstrartekjum til
þessarar starfsemi ef þau ætla að
standast síharðnandi samkeppni við
erlenda keppinauta.
Jafnframt því þurfum við að
bæta verulega nýtingu þeirra fjár-
muna sem veitt er af íjárlögum á
hveiju ári til rannsóknar- og þróun-
arstarfsemi í nafni atvinnuveganna.
Á yfírstandandi ári veitir ríkis-
sjóður nær 600 milljónum króna á
fjárlögum til rannsóknarstofnana
atvinnuveganna til þess að örva
nýsköpun og þróun í atvinnulífínu.
Það er nauðsynlegt að huga að
því, hvort nýtingu þessara miklu
fjármuna megi bæta, frá því sem
nú er. Það er full ástæða til að
ætla að vissrar sjálfvirkni sé farið
að gæta í þessum fjárveitingum og
að þar ráði núverandi stærð og
mannafli einstakra rannsóknar-
stofnana fremur en möguleikar
þeirra og geta til að hagnýta fjár-
magnið til jákvæðrar þróunar.
Einnig er veruleg hætta á því að
Víglundur Þorsteinsson flytur
ræðu sína á ársþingi iðnrekenda
í gær.
„Það er tillaga mín að
fastar fjárveitingar til
rannsóknarstof:nana
verði skornar verulega
niður, t.d. niður í 200
milljónir króna, en jafn-
framt að afgangnum,
400 milljónum króna,
verði veitt í sérstakan
rannsóknarsjóð þar
sem fjármagni verði
úthlutað til einstakra
verkefna, annað hvort
beint til fyrirtækjanna
eða til verkefna í sam-
starfi fyrirtækja og
rannsóknar stof:nana
eða annarra rannsókn-
ar- og þróunaraðila.“
slík sjálfvirkni leiði til þess að starf-
semi þessara stofnana slitni úr
tengslum við atvinnufyrirtækin og
falli um of í farveg gæluverkefna
og þjónustu við Alþingi og fram-
kvæmdavaldið á hveijum tíma.
Ég tel að nú sé tímabært að
breyta um stefnu í þessum efnum.
Breytt stefna í
fjárveitingum til
rannsóknarstofnana
Það er tillaga mín að fastar fjár-
veitingar til rannsóknarstofnana
verði skomar verulega niður, t.d.
niður í 200 milljónir króna, en jafn-
framt að afgangnum, 400 miíljón-
um króna, verði veitt í sérstakan
rannsóknarsjóð þar sem fjármagni
verði úthlutað til einstakra verk-
efna, annað hvort beint til fyrir-
tækjanna eða til verkefna í
samstarfí fyrirtækja og rannsókn-
arstofnana eða annarra rannsókn-
ar- og þróunaraðila.
Með þessum hætti myndum við
ná því marki að taka fyrir sjálf-
virkni núverandi kerfís og örva
verulega samkeppni um rannsókn-
arfjármagnið.
Eg hef þá trú að breyting sem
þessi myndi hleypa miklu lífí í rann-
sóknar- og þróunarstarfsemina
hérlendis.
Meginskilyrði fjárveitinga úr
slíkum sjóði ætti að vera fjárhags-
leg ábyrgð fyrirtælqa á rannsóknar-
verkefnum með því að krefjast
verulegrar eiginfjármögnunar
þeirra sjálfra á slíkum þróunarverk-
efnum.
Slíkt skilyrði myndi auka veru-
lega fjármagnið til þessarar starf-
semi og virkja betur þá góðu
þekkingu sem nú þegar býr með
þjóðinni og fer ört vaxandi á hveiju
ári með nýju, vel menntuðu fólki,
sem krefst starfa við hæfí sinnar
menntunar.
Með slíkum breytingum munu
einnig skapast aðstæður til að
stofna og starfræki rannsóknar- og
þróunarfyrirtækja í eigu einstakl-
inga sem gætu selt öðrum atvinnu-
fyrirtælqum þjónustu sína.
Og síðast en ekki síst gæti slík
breyting ásamt öðrum aðgerðum
örvað verulega stofnun nýrra fyrir-
tækja á ýmsum sviðum.
Haldi einhver, að ég sé hér að
leggja til sérstaklega byltingar-
kenndar breytingar, er það mesti
misskilningur. Þessar tillögur
ganga ekki út á neitt annað en að
við lærum af umheiminum og tök-
um upp samskonar vinnubrögð hér
og beitt hefur verið í okkar sam-
keppnislöndum og sannað gildi sitt
þar.
Stofnun tæknigarða við
Háskóla Islands
Nú er á lokastigi stofnun tækni-
garða sem staðsettir verða við
Háskóla íslands. Það eru
Reykjavíkurborg, Háskóli íslands,
Þróunarfélag íslands, Félag
íslenskra iðnrekenda og fyrirtækið
Tækniþróun hf., sem er sameign
Háskólans, Iðnlánasjóðs og nokk-
urra fyrirtækja sem standa að
stofnun tæknigarðanna. Skiptir þar
mestu vilji borgarstjómar
Reykjavíkur til að veita 50 milljón
króna lán til þess að reisa tækni-
garðana. Sú ákvörðun tryggir
framgang málsins.
Með tæknigörðum skapast leigu-
aðstaða fyrir ný fyrirtæki til
rannsóknar- og þróunarstarfsemi í
tengslum við Háskólann.
Nýjar aðferðir til fjármögnunar
rannsóknarstarfseminnar og nýir
möguleikar með tæknigörðum gefa
fslenskum vísinda- og rannsóknar-
mönnum fleiri tækifæri og em
líklegir til þess að hleypa auknum
krafti í rannsóknir og vömþróun
hér á landi.
Aukin sjálfvirkni
og tæknivæðing
Mér hefur verið tíðrætt um þýð-
ingu rannsókna- og vömþróunar-
starfsemi fyrir vöxt íslenskra
framleiðslufyrirtækja. Annað atriði
skiptir hér einnig sköpum en það
er aukin sjálfvirkni og tæknivæð-
ing.
Fram til þessa hefur granntónn-
inn í atvinnuumræðunni á íslandi
verið: Við þurfum nýjar framleiðslu-