Morgunblaðið - 10.04.1987, Blaðsíða 17
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1987
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRlL 1987
B 21
*
Ef nota á kerti í skreytinguna
þá er best aö skera úr frauðinu
fyrir þeim.
„Vírnum stingur maður inn í
stilkinn og fyrir bragðið standa
blómin upprétt.
Ulie segir að blómasvampinn eigi að leggja ofan á vatnið og
láta hann þannig draga í sig bleytu. Það er nauðsynlegt að
vökva alltaf ððru hvoru og evo þarf að passa að frauðkanturinn
nái upp fyrir kantinn á ítlátinu sem nota á.
„Páskaliljur eru alltaf vlnsœlar um páskana, en auðvitað ei
hœgt að nota ýmls önnur blóm og ekkert skilyrðl að þau séu gui.
„Það er nauðsynlegt að þekja
frauðið þegar búið er að skreyta
og þá er hagfellt að nota eitthvað
úr náttúrunni, mosa eða slíkt.“
Má finna ýmislegt úti
í náttúrinni til að nota í
skreytingu fyrir páskana
segir Ulle Balslev sem hefur meðal annars sérhæft sig í blómaskreytingum
Páskaliljurog fleiri afskorin blóm prýða
mörg heimili yfir páskahátíðina.
Tíðum eru blómin sett ofan í fallega
skrautvasa en það er ýmislegt annað sem
haegt er að gera og það getur verið
skemmtilegt að nota þau í að útbúa fall-
ega páskaskreytingu á páskaborðið.
Við leituðum á náðir Ulle Balslev og
báðum hann að aöstoða okkur við að búa
til nokkrar skreytingar til að lesendur
gætu áttað sig á því hvernig þeir eigi að
bera sig að.
Ulle segir að það sé mjög auðvelt að
útbúa fallega borðskreytingu með af-
skornum blómum og bætir því við að
blómin verði jafnvel langlífari í blautu
frauði en í venjulegum blómavasa.
„Það sem þarf að hafa við hendina er
blómafrauð, vír, hentugt ílát undir skreyt-
inguna, þau blóm sem nota á, kerti ef
vill og kannski unga eða egg svo og eitt-
hvað sem þekur frauðið. Yfirleitt standa
páskaliljur frekar stutt en það eru fleiri
blóm sem nota má með eða í staðinn."
Ulle telur hagfellt að nota ýmislegt sem
finnst í náttúrunni, mosa, steina, og
greinar úr garðinum í skreytingar. „Grein-
arnar geta verið mjög sniöugar til að
hengja á egg, litla unga eða þvíumlíkt.
Ég nota mikið af lerki, birki og víði.“ Ulle
segist láta greinarnar standa í volgu vatni
í um það bil viku áður en hann ætlar að
nota þær og lætur þá plastpoka yfir til
að fá sem mestan raka eða úðar þær
nokkrum sinnum á dag.
Þegar talið berst að páskahaldi í Dan-
mörku, en Ulle er danskur, segir hann
því svipa mjög til þess sem sé á íslandi.
„í Danmörku skipar páskamorgunn
stóran sess í páskahaldi. Morgunverðar-
boðið er skreytt fallega og auðvitð eru
allskonar útfærslur af eggjum á borðum.
Þá er það einnig siður að allir þeir sem
vettlingi geta valdið fara í innkaupaferð
til Þýskalands á skírdag því þar eru versl-
anir opnar. Annars hef ég verið búsettur
hér á fslandi undanfarin sjö ár og er því
dottinn útúr þessu að einhverju leyti."
GRG
Hafnarstræti 3.
OpiA alla daga frá kl. 09-21.
TÓNUSMRSKÓU
KÓPPNOGS
Frá
Tónlistarskóla
Kópavogs
Fjórðu vortónleikar skólans verða
haldnir í salnum Hamraborg 11
laugardaginn 11. apríl kl. 15.30.
Skólastjóri.
Flugvélar
til sölu
Cessna Cardinal RG (TF-100), árg. 1976
Heildarflugtími 1080 klst., 80 klst búnar af mótor.
Vel búin tækjum.
Cessna Skyhawk árg. 1980.
Heildarflugtími 440 klst. Vel búin tækjum.
Cessna Skymaster árg. 1965.
Heildarflugtími 1048 klst. 500 klst. og 1248 búnar
af mótorum.
Loftfar hf.
Hafnarstræti 11,
sími 622220.