Morgunblaðið - 15.05.1987, Side 3

Morgunblaðið - 15.05.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1987 B 3 merking nýyrðis komist nægilega til skila. Um þetta má m.a. vísa til Orðabókar Menningarsjóðs þar sem fjöldi erlendra heita er fordæmdur, sagt að þau beri að varast og jafn- an tilgreind íslensk samheiti. Vitundin um erlendu heitin reynist hins vegar svo sterk að þeim er óhikað og athugasemdalaust teflt fram sem skýringarorðum við þessi íslensku heiti. Þessi staða nýyrð- anna markar þeim í rauninni meiri sérstöðu innan orðaforðans en æskilegt væri og myndar skörp skil milli þess hluta orðaforðans sem er af íslenskri rót runninn (þ.e.a.s. þar sem erlend orð hafa ekki hönd í bagga um myndun eða merkingu) og nýyrða sem eiga sér erlend upp- hafs- eða stofnheiti. Þriðja lagið í orðaforðanum eru svo erlendu orðin sem ekki eru viðurkennd enda þótt þau séu mörgum töm og gegni m.a. því stuðningshlutverki við ný- yrðin sem ég var að lýsa. Þetta ástand endurspeglast á áþreifanleg- an hátt í því hvemig orðaforðinn er birtur almenningi. I fyrsta lagi er um að ræða orðabækur þar sem erfðaorðin og myndanir af þeim skipa öndvegi og þar sem áhersla er lögð á samfelluna í íslensku máli frá fornmáli til nútímamáls. Nýyrðin eru svo að mestu leyti kynnt í sérstökum orðasöfnum sem eins konar viðauki eða eftirmáli við þann stofn orðaforðans sem fyrir liggur í þessum bókum. Töku- og aðskotaorðin, þau sem ekki þykja fyllilega aðlöguð málkerfinu eða þykja ekki hæfa íslenskri málnotk- un af öðrum ástæðum, lenda svo að mestu utangarðs nema hvað sum þeirra gægjast fram í sínum erlenda búningi að baki íslenskra nýyrða og önnur eru leidd fram sem upp- flettiorð í því skyni að vara við notkun þeirra. Orðabók um slangur fól reyndar í sér nokkra breytingu á þessu þótt útgáfa hennar sé í anda þeirrar stefnu að halda fyrr- greindum lögum orðaforðans aðgreindum. Það leiðir af þeirri stefnu í ný- yrðasmíð sem ég hef verið að lýsa að fremur lítið ber á tökumerking- um. Það sjónarmið hefur enda sterk ítök að ekki skuli hrófla við merk- ingarskorðum góðra og gildra og rótgróinna íslenskra orða og að- fengin merkingar- og notkunarein- kenni beri að uppræta. Tökumerk- ingar eru ekki heldur fysilegur kostur að því leyti að þar er auðvit- að ekki um neina orðasmíð að ræða og ekki verið að vekja málið eða málkerfið til sýnilegra viðbragða. Þegar reynt er að finna nýjum hugtökum búning við hæfi og tekin er afstaða til myndunar nýyrða virðist mega greina tvö atriði sem a.m.k. er hægt að styðjast við sem mælikvarða á ágæti þeirra orða eða myndana sem til álita koma. I fyrsta lagi er keppikefli að ná fram sem skýrastri vísun til þess hlutar eða fyrirbæris sem átt er við og reyna að koma í veg fyrir að búningur orðsins leiði menn á merkingarlegar villigötur. Að þessu leyti eru mörg tökuorð vænlegur kostur, þegar svo háttar til að menn þekkja hugtakið beinlínis af tilteknu erlendu orði, um er að ræða eins konar nafn- bundið samband milli hugtaks og heitis. í tökuþýðingum hefur slíkt nafnbundið samband óverulegt gildi og kemur aðeins fram gagnvart þeim sem þekkja til myndunar er- lenda orðsins sem að baki býr (sbr. t.d. samviska „conscientia"). Onnur leið til þess að ná fram slíkri vísun til þess sem við er átt er sú að vekja merkingarleg tengsl með orð- mynduninni, láta hana búa yfír merkingarlegu gagnsæi. Slíkt gagnsæi er einmitt aðal góðra ný- yrða, einkum samsettra orða, en margar tökuþýðingar fela það einn- ig í sér jafnframt því sem þær bergmála sína erlendu fyrirmynd (sbr. t.d. geisla virkur „rad ioakti v“). Hinn mælikvarðinn er aðlögun að formkerfi málsins og orðmynd- unarkerfi þess sérstaklega, að viðbættu því gildi sem heitið eða myndunin þykir hafa til styrktar íslenskri málhefð. Þar standa töku- orð augljóslega höllum fæti og iðulega sérstakra aðgerða þörf eigi þau að standast ströngustu kröfur. I þessu sambandi verður að taka afstöðu til hlutdeildar og réttmætis einstakra myndunarleiða, í hvaða mæli eigi t.d. að reyna á myndanir með óvirkum eða lítt virkum við- skeytum. Fyrri mælikvarðinn varðar eink- um skilyrði og aðstöðu málnotenda til að nota og skilja það orðafar sem um ræðir, sá síðari snýr fyrst og fremst að málkerfinu, að því hvaða tillit beri að taka til eiginda þess, eins og þessar eigindir birtast þeim sem um Qallar. Ég vék að því í upphafi hversu áberandi það er að orðmyndun í íslensku leiti gagnsæis. Slíkar myndanir eru auðvitað alls ekki bundnar við nýyrði þar sem erlend heiti eru í bakgrunninum. Oft fellur orðmyndunin nánast sjálfkrafa í ákveðinn farveg, t.d. þegar mynduð eru nafnorð með grunnliðunum -maður, -fræði og -stjóri. En þama er einnig að finna myndanir sem hafa á sér persónulegri og huglæg- ari svip, orð eins og gervitungi, bifreið og Ijósvaki. Styrkur slíkra gagnsærra samsetninga er ekki aðeins sá að málsamfélagið er þeim yfirleitt hliðhollt, heldur getur hinn almenni málnotandi látið til sín taka við orðmyndunina, hvort sem hann nýtir sér aðeins þær brautir sem beinast liggja við eða bregður upp sínu persónulega sjónarhomi. Nú er gagnsæi í orðmyndun að öðm jöfnu því skýrara því skýrari vensl sem hægt er að greina með myndunarliðunum. Að þessu leyti em tví- og fleirliða samsetningar ákjósanlegar myndanir. En ókostir samsetninga, og þá einkum marg- liða samsetninga, em jafnframt augljósir, sérstaklega að því er varðar myndun nýrra samsetninga af slíkum orðum þar sem myndanir geta orðið margliðaðri en hag- kvæmt má teljast frá sjónarmiði málnotkunar. Annar ágalli sam- setninga er sá að gagnsæið á það til að þrengja eða afmarka merk- ingu orðanna umfram það sem merkingarhlutverk erlends sam- heitis segir til um. Dæmi um þetta em orðin videó og myndband. Sam- setningin myndband vísar aðeins til þess hlutkennda, ekki til fyrirbæris- ins í heild. Af þessum ástæðum m.a. þykir þeim sem fást við orðasmíð, sér- staklega þeim sem fást við skipu- lega nýyrðasmíð, rétt að hafa hóf á myndun samsetninga. I stað þess er lögð áhersla á þá myndunarleið sem ég leyfi mér að kalla stofn- myndanir, þ.e.a.s. að mynda ósamsett ori) af íslenskum stofni sem þá verður að bera gagnsæið uppi, stundum reyndar með nokkr- um tilstyrk viðskeyta sem felld em að stofnunum. Mörgum slíkum myndunum er tekið opnum örmum og verða á skömmum tíma sjálf- sagðir merkimiðar þeirra hugtaka sem þær tákna. I þeim hópi em ýmis sígild dæmi um íslenska orða- smíð, orð eins og tölva, þota og hreyfdl. Hins vegar er alls ekki ljóst að þessi orð eigi velgengni sína að þakka því gagnsæi sem í þeim býr. Eftir að orðin ná festu kann tilfinn- ing manna fyrir gagnsæi þeirra að vísu að dofna. En það er einnig hægt að virða fyrir sér orð af þessu tagi sem fæstir hafa nokkur kynni af. Úr prentuðum nýyrðasöfnum má t.d. nefna orðin deil eða deili (hk.) („differential"), deil (kvk.). („kvantum"), glæni (lakk), þöggull (=hljóðdeyfir), þjál („plastik"), sí (hk.), („filtrat"), Ijóm („luminisc- ens'j og mætti („moment"). Þótt menn rati í sumum tilvikum eitt- hvað áleiðis að því hugtaki sem við er átt er alls ekki auðratað alla leið og því full þörf á leiðsögn. Þá er handhægt að segja mönnum til með því að tilgreina erlenda samheitið sem þar með leitar sífellt upp á yfirborðið. Það er annað einkenni þessarar orðmyndunar að hún er sjaldnast sjálfsprottin og ekki ástunduð af óbreyttum málnotend- um, heldur er hún mestan part lærð, ef svo má segja, og fer fram með skipulegum hætti þar sem tek- ið er mið af málsögulegum og orðmyndunarfræðilegum þáttum. Velgengni orða af þessum flokki er fyrst og fremst háð þeirri þörf sem er á hugtakinu sem um ræðir samfara þeim skilyrðum sem erlent samheiti hefur til að vera viður- kennt í íslensku. Einnig skiptir máli hvaða kynningu orðið fær á opinberum vettvangi. Eigi orð af þessu tagi að hafa framgang verður að gæta sérstaklega að því hvernig hægt sé að kynna þau í tjáningar- samhengi svo að þau fái að sanna gildi sitt og verða málnotendum töm. Ef þetta er látið hjá líða er hætt við að fjöldi þessara orða verði aðeins safngripir í orðasöfnum og hafi ekki annað sér til gildis en að vitna um þá viðleitni orðasmiða að reyna á myndunarhæfni íslenskra orðstofna. Þar með er ég aftur kominn að síðari mælikvarðanum, kröfu um aðlögun að formkerfi málsins og gildi orðmyndunar til styrktar íslenskri málhefð. Það er oft látið fylgja sögunni þegar fjallað er um íslenska orðasmíð og málstefnu að tökuorð geti átt fullan rétt á sér í íslensku, að því tilskildu að þau samræmist íslensku málkerfí. En það er alls ekki augljóst við hvað þessi krafa um samræmi miðast. Að því er varðar beygingu virðast yfírleitt vera tök á viðunandi aðlög- un þegar um nafnorð og sagnir er að ræða sem þá á sér að mestu leyti stað sjálfkrafa. Hins vegar hafa ýmis lýsingarorð tilhneigingu til að haldast óbeygð. Um aðlögun að hljóðafari gætir að nokkru and- stæðra sjónarmiða sem einnig eiga við um aðlögun að rithætti. Annars vegar kann að þykja keppikefli að aðlaga erlent orð til hins ýtrasta þannig að búningur þess sé samgró- inn íslenskum erfðaorðum, bæði að því er tekur til ritmyndar og hljóð- skipunar. Þetta sjónarmið birtist t.d. í þeirri tillögu að orðinu „bridge“ sem löngum hefur, öðrum þræði a.m.k., verið stafsett að er- lendum hætti, skuli fengin myndin briss, með þá lærðu röksemd í huga að hljóðasambandið /ds/ sé ekki að finna í bakstöðu nefnifalls í íslensk- um erfðanafnorðum. Erlenda orðið skuli sem sé gróa svo inn í íslensk- an orðaforða að það beri engin sýnileg merki sérstöðu sinnar. Ann- að sjónarmið er að lúta því hljóða- fari sem mótast í munní manna og stafsetja samkvæmt því, enda þótt það kunni að flækja hljóðafars- og ritunarreglur, skrifa þá t.d. brids eða bridds. Oft er ekki um annað að ræða ef menn ætla sér að nota sum tökuorð óhindrað, t.d. orðin rövla og sófi svo að einhver séu nefnd. Það sjónarmið er einnig hugsanlegt að afbrigðilegar rit- myndir, þ.e. myndir sem ekki standast á við hljóðafar, geti haft sitt gildi þegar einstöku töku- eða aðskotaorð eiga í hlut áð því leyti að þær gefi til kynna sérstöðu slíkra orða og auðveldi málnotendum jafn- vel að taka afstöðu til notkunar þeirra (t .d. hafna notkun þeirra þar sem hún á ekki við). Um þetta mætti t.d. nefna orðið „pizza“ þar sem ritmynd með tveimur setum stangast harkalega á við hljóðafar og íslenskar ritvenjur, en aðrar rit- myndir virðast ekki öllu vænlegri. Hægt er að skjóta sér undan vanga- veltum um þetta með því að sniðganga orðið og tefla fram íslenskri myndun. Ég vísa til orðs- ins flatbaka sem stungið hefur verið upp á um þetta fyrirbæri. Eitt af því sem orðasmiðir grípa til við að klæða erlend orð í íslensk- an búning er að bæta íslenskum viðskeytum við erlenda stofna. Slík viðskeyti geta verið til þess fallin að skerpa merkingarhlutverk orð- anna (viðskeytið -ald vísar t.d. til einhvers sem er hlutkennt, -lingur gegnir smækkunarhlutverki o.s.frv.). Að öðru leyti þjóna slíkar myndanir því hlutverki að ljá orðun- um íslenskt svipmót og breiða yfír upprunaeinkenni þeirra og í sumum tilvikum jafnframt því að leiða ákveðin viðskeyti eða myndunar- mynstur fram á sjónarsviðið og blása í þau lífí. Til þess að viðskeyt- ingin sýnist eðlileg getur oft þurft að breyta stofnmyndinni einnig. Avöxtur slíkra aðgerða eru orð eins og mótald fyrir „modem“ og sífill fyrir „syphilis", svo að ég nefni tvö nýleg dæmi. Nýmyndanir með við- skeytum eiga fullan rétt á sér, einkum þegar um íslenska stofna er að ræða og viðskeytið styrkir skilning manna á merkingarhlut- verki orðsins. En ég hef miklar efasemdir um réttmæti þessa myndunarháttar þegar erlendir stofnar eiga í hlut, eins og hann birtist I þessum tveimur dæmum. Astæðan fyrir því er sú að málnot- endur sem íhuga gerð orðanna gera sér grein fyrir því að ákveðin við- skeyti eru til marks um íslenskt ættemi þess orðs sem í hlut á, og alla jafna er stofnmyndin kunnug- leg og hægt að tengja hana öðrum orðum í málinu. Þeir málnötendur sem fylgjast ekki beinlínis með myndun nýyrðanna og vita ekki hvemig þau em til komin hljóta að vilja greina orðin á þennan hátt. Slíkri greiningu verður hins vegar ekki við komið nema hvað alþýðu- skýringar kunna að spretta fram, t.d. þannig að menn setji stofninn mót- í samband við íslenska orðið mót og frændgarð þess. Ekki verð- ur séð að málnotendum sé greiði gerður með því að valda þeim heila- brotum af þessu tagi. Slíkar aðlögunaraðgerðir á stofn- myndum tökuorða em auðvitað ekki bundnar við orð sem jafnframt fá íslenskt viðskeyti. Nýleg dæmi um slíkar myndir em mænir fyrir „monitor" og fæni fyrir „fónem“. Líklegt er að myndunarháttur er- lendu orðanna þar sem viðskeyting kemur fram valdi sérstökum erfið- leikum á að viðurkenna þau í óbreyttri mynd. Þar sem ekki er farin sú leið að mynda nýyrði af íslenskum stofni er bmgðið á það ráð að stýfa viðskeytið af og færa stofninn í íslenskan búning. Þar gegnir /-hljóðvarpið eða öllu heldur hljóðavíxlin ó-æ mikilvægu hlut- verki. En áhrif þessarar aðgerðar em þau sömu og ég lýsti áðan, at- hugulir málnotendur fá engan botn í hljóðvarpið nema þeir þekki er-' lendu orðin sem að baki búa, en það getur hæglega orðið til þess að styrkja stöðu erlendu orðanna, a.m.k. sem förunauta eða eins kon- ar skuggamynda hinna íslensku. Orðið fæni og tilurð þess leiðir einnig hugann að því hversu lengi má vænta nýrra tillagna um heiti á hugtökum sem kalla á nýyrði eða íslenskan búning. Um hugtakið fón- em hafa a.m.k. þrjú önnur heiti komið fram í íslensku auk myndar- innar fónem, þ.e. heitin hljóðungur, fónan og hljóðan. Þessi heiti hafa mælst misjafnlega fyrir og ekkert þeirra náð yfírhöndinni, ekki síst vegna þess að myndin fónem hefur troðið sér fram. Með heitinu fæni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.